Morgunblaðið - 29.05.1979, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 29.05.1979, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1979 19 LANDBÚNAÐARMÁL í BRENNIDEPLI Ingi Tryggvason: Að leysavandann — eða leysa hann ekki Landbúnað- arráðherra sagði frá samkomulagi stjórnar- flokkanna: Enga frekari verðábyrgð til bænda. skyndivanda vegna ills árferðis, sem eru erfiðleikar, sem bænd- um verður að sjálfsögðu veitt aðstoð til að yfirstíga. En Sjálf- stæðisflokkurinn er ekki reiðu- búinn til að veita núverandi ríkisstjórn neitt umboð, vegna þess, að hann treystir henni ekki til eins né neins. Enda hefir ríkisstjórn ekkert samstarf né samráð viljað við Sjálfstæðis- flokkinn hafa um lausn á vanda landbúnaðarins. Þvert á móti slegið á útrétta hönd hans. Sjálfstæðisflokkurinn ber enga ábyrgð á þeim fjárlögum, sem nú gilda í landinu. Flokkur- inn ber heldur enga ábyrgð á lánsfjáráætlun ríkisstjórnarinn- ar, sem samþykkt var, þegar aðeins vika lifði þings. Þar var heldur ekki að finna neina lausn á fjárhagsvanda landbúnaðar- ins, að sjálfsögðu í samræmi við það samkomulag í ríkisstjórn- inni, sem fyrr var á minnzt, að um frekari fjárskuldbindingar ríkissjóðs vegna landbúnaðarins yrði ekki að tefla. Og svo reyndu tveir stjórnar- flokkanna, Framsókn og komm- ar, að koma fram á síðustu klukkustundum þingsins ákvæði um fjárhagsskuldbindingu ríkis- sjóðs, sem nam þrjúþúsund og fimmhundruðmilljónum króna. Látum vera þótt þeir væru með því að rifta samkomulagi, sem þeir höfðu gert við Alþýðuflokk- inn í ríkisstjórn. Það liggur okkur sjálfstæðismönnum í léttu rúmi. En koma átti málinu fram með atfylgi Sjálfstæðisflokksins þótt fyrir lægi, að ríkisstjórnin vildi ekkert samráð og enga samvinnu hafa við flokkinn um málið. Ég minni á orð land- búnaðarráðherra í sjónvarpinu s.l. föstudagskvöld, eftir að við- mælandi hans, Sighvatur Björg- vinsson, hafði fullyrt að Framsókn og kommar hljóti að hafa leitað eftir samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn um fram- gang málsins. Orðrétt sagði ráð- herrann: „Og svo ert þú að tala um samstöðu og samninga við stjórnarandstöðu. Ég kannast ekki nokkurn skapaðan hlut við slíkt." Það voru orð og að sönnu. Svo ærast þessir ráðalausu menn yfir því að þingmenn Sjálf- stæðisflokksins skuli ekki óðfús- ir að veita málum þeirra brautargengi. Það er því miður fleiri en bændur sem eiga eftir að bíta úr nálinni vegna þeirrar óstjórnar sem ríkir á Islandi. Hvernig skal því f jármagni varið? Að endingu skal ítrekuð fyrir- spurn, sem margsinnis hefir verið varpað fram, þegar rætt hefir verið um fjárhagsstuðning hins opinbera vegna örðugleika landbúnaðarins: Hvernig skal því fjármagni varið? Við þessari spurningu hafa ekki gefizt greið svör. Fram- sóknarmenn hefir rekið mjög í vörðurnar og vafið tungum um höfuð sér, þegar beðið hefir verið um nákvæma greinargerð um áætlaða vegferð fjárins. Svo mjög að samstarfsflokkur þeirra, Alþýðuflokkurinn, hefir fyllzt grunsemdum um að ekki væri síður hugsað fyrir sölusam- tökum bænda en bændum sjálf- um, sér í lagi Sambandi íslenzkra samvinnufélaga. Þess vegna lagði Alþýðuflokkurinn höfuð áherzlu á það í tillögugerð sinni, að sá þáttur mála yrði rannsakaður sérstaklega, og eins aðild sölusamtakanna að lausn vandans. Þar var nú heldur betur komið við kviku á sálarkút Framsóknar. Á þessi atriði skal enginn dómur lagður hér, en þeir sem gerst til þekkja telja að víða sé pottur brotinn, svo sem eins og sá, að söluumboðslaun skuli vera lögð á útflutningsuppbætur. Á hinn bóginn liggur það í hlutarins eðli, að öll kurl verða að hafa komið til grafar, áður en Framsóknarsamtök fá rúmt um hendur að ráðstafa fé rikisins. Það er trúa mín, að vinnu- brögð þessi í þingi eigi eftir að draga langan slóða í samskipt- um stjórnmálaflokka. Fimmtudaginn 24. maí birtir Morgunblaðið á tveim stöðum sama viðtalið við formann Sjálf- stæðisflokksins. Fjallar viðtalið um útgöngu sjálfstæðismanna og krata af fundi Neðri deildar alþingis á þriðjudaginn, en með þeirri útgöngu var komið í veg fyrir að heimiluð yrði þriggja milljarða króna lántaka til að greiða hluta af fyrirsjáanlegum halla á útflutningi landbúnaðarvara á þessu ári. Vegna ummæla flokksformanns- ins um óvissuþætti þessa máls þykir mér rétt að eftirfarandi komi fram: Útflutningsbætur samkvæmt fjárlögum þessa árs eru nú þrotn- ar. Samkvæmt áætlun um fram- leiðslumagn þessa verðlagsárs vantar rúma 5 milljarða á að útflutningsbótaréttur samkvæmt lögum dugi til að greiða bændum fullt verð fyrir framleiðsluna. Ef reiknað er með 4400 bændum eru þetta um 1,2 milljarður á bónda eða yfir 20% af áætluðum fjöl- skyldutekjum í verðlagsgrundvelli. Breytingin á Framleiðslu- ráðslögum í vetur var á Alþingi samþykkt breyting á Framleiðsluráðslögun- um sem á að auðvelda stjórn á landbúnaðarframleiðslu svo að framleiðslan geti betur lagað sig að markaði hverju sinni og þörf fyrir útflutningsbætur minnki. Það er rangt hjá formanni Sjálfstæðis- flokksins, að ekki hafi verið fjallað um offramleiðsluvandamálið í vetur. Eftir langa baráttu bænda- samtakanna og síendurteknar kröfur aðalfunda Stéttarsambands bænda allt frá árinu 1966 hefur Alþingi nú loks samþykkt heimildir til Framleiðsluráðs til að gera ráðstafanir til að draga úr óhagkvæmri framleiðslu land- búnaðarvara. Þetta ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum, sem fylgjast með málefnum bænda- stéttarinnar. Skerðing á tekjum bænda Mönnum má vera ljóst að til þess að bændastéttin geti lagað sig að breyttri framleiðslustefnu þarf aðstoð ríkisvalds. Þótt árferði væri eðlilegt, er ekki hægt að ætla neinni stétt að taka á sig 20% kjaraskerðingu án nokkurra bóta frá samfélaginu. Ósk landbúnaðar- ráðherra um heimild til að ábyrgjast 3,5 milljarða króna lán- töku til greiðslu útflutningsbóta miðaðist við að sárasti broddurinn væri tekinn af tekjuskerðingunni. Þótt þessi lánsheimild hefði feng- ist, hefði enn staðið eftir óbættar um kr. 300 þúsund á bónda, sem hefði komið sem bein kjaraskerð- ing og þætti víst mörgum slík launaskerðing ærið tilfinnanleg. Landbúnaðarráðherra lagði til að Ingvi Tryggvason lánið yrði endurgreitt af spöruðum útflutningsbótum á næstu 5 árum vegna samdráttar í búvörufram- leiðslunni og með framlögum á fjárlögum. Það var því fullkomlega ljóst að lán það sem Fram- leiðsluráði yrði heimilað að taka yrði notað svo langt sem það næði til að greiða bændum lögákveðið verð samkvæmt verðlagningu sexmannanefndar á búvörum. Hvert fara peningarnir? Fyrirsögn annars tveggja áður nefndra viðtala hljóðaði svo: „Hvert fara peningarnir? Til bænda eða SÍS?“ Mér finnst einkennilegt, að flokksformaðurinn skuli ekki hafa kynnt sér betur starfshætti Samvinnufélaganna en þessi orð bera með sér. Samvinnufélögin selja framleiðsluvörur bænda í umboðssölu. Kostnaður við þessa sölu er sem nær jafn hvort sem söluverð varanna er lægra eða hærra. Auðvitað tekur það þó breytingum eins og annar kostn- aður við almennar verðlagsbreyt- ingar. Verð það sem bændur fá endanlega er því breytilegt eftir áföllum vinnslu- og dreifingar- kostnaði varanna. Yfirleitt hafa Samvinnufélögin sett sér það mark að greiða bændum svokallað „meðalgrundvallarverð". Þetta hefur oft tekist, einstakir aðilar hafa stundum greitt smávegis umfram meðalverð, hitt hefur þó verið algengara, að meðalverð hefur ekki náðst. Flest eða öll samvinnufélögin hafa sérreikninga yfir afurðasöluna, en sameigin- legum kostnaði er skipt eftir ákveðnum reglum. Ég fæ ekki séð að umrætt lán hefði breytt öðru fyrir samvinnu- félögin en því, að fjárhagsleg staða bændanna hefði batnað og þeir þess vegna átt auðveldara með að standa í skilum við sína viðskipta- aðila, þar á meðal samvinnufélög- in. Dylgjur um að Framleiðsluráð vilji taka stór lán með ríkisábyrgð undir fölskum forsendum eru óheppilegar og ótímabærar. Söluvandi og harðindi Flokksformaðurinn segir, að sjálfstæðismenn geri greinarmun á vanda bænda vegna harðæris annars vegar og offramleiðslu hins vegar. Það gera vafalaust allir. Hinu má þó ekki gleyma að stór- felld kjaraskerðing er jafnsár af hverju svo sem hún stafar. Eins og fyrr segir eru nú horfur á tekju- skerðingu vegna lágs verðs á út- fluttum landbúnaðarvörum sem nemur á aðra milljón á meðalbúi. Að öllu óbreyttu verður að leggja á stórfelld verðjöfnunargjöld til að jafna þessum halla niður á bænda- stéttina. Framleiðsluráð hefur vart önnur ráð til að taka á þeim vandamálum, sem þegar eru fyrir hendi. Hitt er svo eftir að leysa þann vanda sem harðærið skapar. Þessi vandamál fléttast saman, þótt aðgerðir verði tæpast þær sömu. Bændur landsins búa nú við meiri óvissu um kjör sín en oftast áður. Það andlega og líkamlega erfiði, sem þeir leggja á sig þessa dagana verður ekki mælt í neinum þeim einingum, sem ókunnugum eru skiljanlegar. Þess vegna er heldur engin furða þótt mörgum bóndanum hafi þótt sú kveðja köld, sem þeim barst úr sölum Alþingis, þriðjudaginn 22. maí sl. Þá kveðju ætti ekki að árétta, heldur ber nú vandamönnum í þjóðfélaginu skylda til að sameinast nú þegar um úrræði, sem koma í veg fyrir fjárhagslegt hrun landbúnaðarins í hjólfar núverandi harðinda og sölutregðu. Geir Hallgrímsson: Hvert f ara peningarn ir? Til bænda eða SÍS? Formaður Stéttarsambandsins sýndi ekki u*. lit á ad leysa vandann í tíð fyrri stjórnar ,'-í Á hlaðamannafundinum í garr var formaður SjálfNtrðÍNflokka- in« spurður um afstöðu Sjálfstæfr isflokksins til landhúnaðarmála vegna andstöðu flestra þing- manna hans við heimild til 3.5 milljarða lántöku vegna hænda. og svaraði hann á þesaa lelð: Ég vil gjarnan itreka þá grein- argerð. sem ég haffti vift atkvæfti minu í þessu máli. Ég lagfti áherzlu á, aft vift yrftum að taka framleiftsluvanda landbúnaðarins föstum tðkum, sem ekki hefur verift gert, því aft ríkisstjórnin og núverandi landbúnaðarráðherra hafa brugftizt Vift erum tilbúnir til þess að veita liftsinni okkar til þess aft leysa vandamál baenda. en vift teljum, aft rækileg kðnnun verfti aft fara fram áftur en frekari ábyrgftir verfta lagftar á ríkissjóft. Ég legg áherzlu á. aft í | könnun komi fram sérstaklega, áhrif vorharðinda á stöftu og kjör baenda Vift verðum að gera okkur grein fyrir því, í hverju vandamál landbúnaftarins eru fólgin. í gildi er verfttryggft ábyrgft ríkissjóðs allt að 10% af heildarverftmieti landbúnaftarafurfta. Þegar talaft er um heildarverðmæti landbúnaftar afurfta i þessu sambandi er átt vift margvisleg hlunnindi og einnig önnur framleiftsluverðmaeti en nautgripa- og sauðfjárafurftir. Hér er um aft ræfta 50 efta jafnvel 60 milljarfta framleiftsluverðmæta á þessu ári. í fjárlögum er gert ráft fyrir um 5 milljarfta framlagi til útflutningsuppbóta, en jafnval et talift, aft þessi ábyrgð muni kosu einn milljarð til viftbóUr frá því sem gert er ráft fyrir í fjárlögum, ef miftaft er vift 10% verftábyrgð. farift fram á aft auka þessa ábyrgð i a.m.k. um 16%. Áftur en þaft er gert og þetu fé f innheimt með almennri skatt- heimtu á landsmenn, verftum vift á aft gera okkur grein fyrir því, f hvernig á aft ráfta við offramleiftsl- una, þannig að þetu verfti ekki [ varanlegt vandamál og varanleg skattheimU. Þetta hefur ríkis-J stjómin ekki gert. í vetur var ekk J fjallað um þetU vaadamál bændaj Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins ^ landbúnaftarnefnd neftri deildaj flutta tillögu, sem gat verift heinj ild aft lausn þessara mála. Þá allt stjórnarliðift upp hendinæ móti þeirri tillögugerft. ÞáJ ekki talaft um ofstæki í bændastéttarinnar og form Stéttasambands bænda lét s vel lika, aft þessi tillaga varl Þá var tími til aft fella slíka inn i lánsfjáráætlunina, okkar um breytingar laganna, sem áður höfðu verið samþykktar af samtökum okkar, þar á meðal voru tillögur um framleiðslu- stjórn. Við lýstum jafnframt eftir tillögum frá hinum nefndarmönn- unum, sem létu mjög á sér standa, eins og nú verður rakið. Fulltrúar vinnumarkaðarins í nefndinni kröfðust hinsvegar ítar- legrar gagnasöfnunar utanlands og innan, gagnasöfnunar sem tók nokkra mánuði. Og þegar þau gögn voru komin þótti þeim enn vanta miklar upplýsingar. Þá var unnið að því að nefndarmenn aðila vinnumarkaðarins, ásamt for- manni og ritara, færu til Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur til að fræðast um þessi mál þar. Sú ferð var farin snemma árs 1978 og skýrsla um þá ferð hefur verið afhent fulltrúum allra þingflokka á Alþingi. Það voru þessir menn í nefnd- inni sem töfðu störf hennar. Það var einfaldlega af því að þeir höfðu, svo sem þeir viðurkenndu nánast sjálfir, enga þekkingu á verkefni sínu. Og þrátt fyrir mikla leiðbeiningu af hálfu annarra nefndarmanna og stórfellda gagna söfnun auk áðurgreindrar ferðar til Norðurlanda, töldu þeir sig ekki geta skilað tillögum um lagabreytingu fyrr en í lok febrúar á þessu ári. Þessi fuliyrðing Geirs Hall- grímssonar er því líka alröng og byggist á furðulegri vanþekkingu. 3. Þá fullyrðir Geir Hallgríms- son að hann hafi ekki vitað hvað átti að gera við þann 3,5 milljarð króna, sem umrædd ríkisábyrgð fjallaði um, en felld var á Alþingi s.l. mánudag. Það hefur verið upplýst síðan á áramótum á prenti og í öðrum fjölmiðlum, að vanta myndi rösk- lega 5 milljarða króna til að bændur gætu fengið lögákveðið verð fyrir framleiðslu sína á þessu ári. Þá er sexmannanefndin búin að taka tillit til alls framleiðslu- auka búvöru sem orðið hefur að undanförnu og meta hann bænd- um til tekna á fullu verði. Þá er einnig búið að ákveða hlut milli- liðanna í vöruverðinu, og varðandi sauðfjárafurðirnar var sú ákvörð- un miðuð við kaupgjald og verðlag í september 1978. Sú ákvörðun gildir jafnt fyrir alla sem verzla með búvörur, hvort sem það eru samvinnufélög, einstaklingar eða hlutafélög. Upp- lýsingar um þetta efni hafa allar legið fyrir síðan í janúarmánuði í vetur og hver sem óskað hefur skýringa um þessi mál hjá Stétt- arsambandi bænda, hefur fengið þær. Þar á meðal voru sumir þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Tveir þeirra, Friðjón Þórðarson og Eggert Haukdal, greiddu líka atkvæði á Alþingi að athuguðu máli og ber þeim heiður og þökk fyrir það. Ég hélt að allir þingmenn vissu þetta og alveg sérstaklega að formenn stjórnmálaflokkanna allra vissu þetta. Fylgist Geir Hallgrímsson þá ekkert með þessum málum? Jú, auðvitað fylgist hann með, en hann er að réttlæta óverjandi ábyrgðarlausa framkomu meiri- hluta flokks síns fyrir fólki, sem hann heldur að viti lítið um þessi mál og er að reyna að sætta það við aðgerðir sinna manna, með því að blekkja það með tvíræðum og röngum fullyrðingum. Sá sem hagar sér þannig ber ekki mikla virðingu fyrir þeim sem hann er að blekkja og raunar ber hann enn minni virðingu fyrir sjálfum sér með því að bera svona blekkingar fram. Trúir einhver því að Sjálf- stæðisflokkurinn verði stór flokk- ur og vaxi að virðingu með þjóð- inni af svona vinnubrögðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.