Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1979
Þorvaldur Garðar Kristjánsson alþingismaður:
Félagslegar úrbætur
í stað f óstureyðinga
FRUMVARP Þorvalds Garðars Kristjánssonar alþingismanns um þrengingu
heimilda til fóstureyðinga vakti alþjóðarathygli, þó að skoðanir væru skiptar um efni
þess. Hann fylgdi þessu frumvarpi eftir með öðru frumvarpi, sem fól í sér, ef
samþykkt hefði verið, félagslegar ráðstafanir til að auðvelda mæðrum, eða verðandi
mæðrum, að skapa sér og barni sínu framtíð. Hér á eftir fer framsaga hans, að
meginefni, fyrir hinu síðara frumvarpinu. í síðari ræðu Þorv. Garðars í þessari
umræðu kom fram, að Samband kvenfélaga á Akureyri hefði lýst eindregnum
stuðningi við frumvarp hans um þrengingu heimilda til fóstureyðinga og beint
áskorun til allra félagasamtaka í landinu þess efnis, að taka málið til meðferðar.
Stóraukin
félagsleg
fyrirgreiðsla
Frumvarp þetta felur í sér
félagslegar ráðstafanir, sem er
ætlað að bæta úr þeim félagslegu
ástæðum, sem nú geta samkvæmt
lögum heimilað fóstureyðingu.
Með frumvarpi þessu er lagt til, að
það sé bætt úr þessum félagslegu
ástæðum með því að gera breyt-
ingar á lögum um almannatrygg-
ingar. Hér er um að ræða verulega
aukna aðstoð við einstæðar mæð-
ur og heimildarákvæði um slíkt
hið sama til hjálpar konum, sem
eru í hjúskap eða í sambúð, en eru
hjálparþurfi. Skal ég nú gera
grein fyrir hinum einstöku grein-
um þessa frv.
1. gr. fjallar um mæðralaun. Þar
er kveðið svo á, að mæðralaun
skuli vera árlega sem þar segir,
eða með einu barni 200 þús. kr.,
með tveimur börnum 500 þús. kr.,
með þremur börnum eða fleiri 800
þús. kr. Hér er um að ræða
verulega breytingu frá gildandi
lögum og er það með tvennum
hætti. í fyrsta lagi eru mæðralaun
stórlega hækkuð frá því sem nú er.
Auk þess er breytt hlutföllum á
mæðralaunum milli konu með eitt
barn og konu með tvö börn og svo
konu með þremur börnum eða
fleiri, þ.e.a.s., að hækkunin er
mest þegar um eitt barn er að
ræða og það er einnig veruleg
hækkun, þegar um tvö börn er að
ræða, en miklu minni hækkun,
þegar um þrjú börn er að ræða.
Til glöggvunar skal þess getið,
að samkvæmt lögum voru mæðra-
laun 1. mars 1979 57.264 kr. með
einu barni. Hér er lagt til, að það
verði 200 þús. kr. Með tveimur
börnum voru mæðralaun sam-
kvæmt gildandi lögum 1. mars
1979 310.836 kr. í frumvarpi þessu
er lagt til, að þessi upphæð
breytist þannig, að með tveim
börnum nemi mæðralaun 500 þús.
kr. Samkvæmt gildandi lögum
voru mæðralaun með þremur
börnum eða fleiri 1. mars 1979,
621.648 kr. Nú gerir þetta frum-
varp ráð fyrir, að þetta verði
hækkað í 800 þús. Ástæðurnar til
þess að það er gerð tillaga um
þessar breytingar eru augljóslega
þær, að það verður ekki með
neinum hætti talið, að það sé nóg
að gert í þessum efnum sam-
kvæmt gildandi lögum og það sjá
menn best með því að líta á þær
tölur, sem ég hef hér gert grein
fyrir, upphæð mæðralauna miðað
við 1. mars s.l.
Fæðingarorlof
Ég kem þá að 2. gr. frumvarps-
ins. Hún stendur sér og hún er á
þá leið, að það er gert ráð fyrir, að
það komi ný gr. í lög um almanna-
tryggingar, sem hljóði svo:
„Greiða skal einstæðri móður
óskerta dagpeninga samkvæmt
33. gr. í 90 daga eftir barnsburð,
enda njóti hún ekki orlofsfjár
vegna barnsfæðingar.“
Við minnumst þess, að nú eru
gildandi lög um það, að konur þær,
sem eru í verkalýðssamtökunum
og svo konur í opinberri þjónustu
hafa sérstakt fæðingarorlof. En
það er ekki svo, að allar íslenskar
konur hafi fæðingarorlof og það er
svo um þær konur, sem eru mest
þurfi fyrir aðstoð í þessu formi.
Þar er um að ræða einstæðar
mæður. Þetta ákvæði miðar að því
að tryggja það, að undir öllum
kringumstæðum fái einstæðar
mæður sérstaka greiðslu í 90 daga
eftir barnsburð. En þá er gert ráð
fyrir, að konan njóti ekki orlofs-
fjár vegna barnsfæðinga sam-
kvæmt öðrum ákvæðum laga.
Þetta er um 2. gr. frumvarpsins.
Röskun á
stöðu og högum
Ég kem þá að 3. gr. frumvarps-
ins og vil segja um hana, sem
reyndar á við 4. gr. frumvarpsins,
að samkvæmt þessum gr. eru
Ungur gestur skoðar höggmynd Magnúsar Árnasonar, Mansöng,
gerða f móberg. Ljósmyndin gæti heitið Ást og afkvæmi.
Þingræða
með frum-
varpi til
breytinga
á almanna-
trygginga-
lögum
teknar upp nýjar bætur til ein-
stæðra mæðra, sem nú er ekki
fyrir að fara í íslenskri löggjöf.
Það er litið á það, að einstæð
móðir verður við fæðingu barns
oft eða oftast fyrir ákveðinni
röskun á stöðu og högum^ Og það
er ekki óeðlilegt, að hin einstæða
móðir njóti aðstoðar til þess að
mæta þessu. Við gerum slíkt í
öðrum tilfellum. Við höfum t.d.
sérstakan ekkjulífeyri, þegar kona
missir maka sinn. Það er hugsað
til þess að aðstoða konuna vegna
þeirrar röskunar á stöðu og hög-
um, sem það hefur fyrir hana að
missa eiginmanninn. Af svipuðum
ástæðum þykir mér rétt að veita
aðstoð til einstæðrar móður til
þess að bæta henni upp röskun á
stöðu og högum, sem hún verður
fyrir og getur orðið með margvís-
legum hætti við barnsfæðingu.
Samkvæmt 3. gr. frumvarpsins er
gert ráð fyrir, að þessar bætur
sem gert er ráð fyrir af þessum
ástæðum til einstæðrar móður sé
jafnhá eins og ekkjubætur sam-
kvæmt 1. mgr. 17. gr. almanna-
trygginga. Én þessar bætur á
ekkjan rétt á í 6 mánuði og ég geri
ráð fyrir að hin einstæða móðir
hafi rétt til þessara bóta jafnlang-
an tíma.
í 17. gr. almannatryggingalaga
er svo í framhaldi af ákvæðum um
ekkjubætur, sem ég hef hér vikið
að, ákvæði um það, að ef bótaþegi
eigi barn yngra en 17 ára á
framfæri sínu, eigi hann rétt á
bótum í 12 mánuði til viðbótar. 4.
gr. þessa frumvarps mælir svo
fyrir, að hin einstæða móðir skuli
undir sömu kringumstæðum, þ.e.
a.s., ef barn innan 17 ára er fyrir á
hennar framfæri, eiga rétt á
þessum sérstöku bótum í 12 mán-
uði til viðbótar eins og ekkjan.
Sérstök
heimildarákvæði
í 5. gr. frumvarpsins er gert ráð
fyrir, að það komi ný gr. inn í lög
um almannatryggingar, þar sem
verði tekin upp sérstök heimildar-
ákvæði til aðstoðar í fyrsta lagi
við einstæða móður og í öðru lagi
við konu í hjúskap eða í sambúð
undir vissum kringumstæðum.
Hvað varðar konu, sem er einstæð
móðir, þá er svo kveðið á í 1. mgr.
5. gr. frumvarpsins, að þegar
niður falli bætur þær, sem ég var
að gera grein fyrir og eru sam-
kvæmt 3. og 4. gr. frumvarpsins,
sé tryggingarraði heimilt að
greiða einstæðri móður allt að
fullum lífeyri einstaklings sam-
kvæmt 11. gr. almannatrygginga-
laga ásamt tekjutryggingu sam-
kvæmt 19. gr. Hér er sett inn
heimildarákvæði sem að sjálf-
sögðu er ekki gert ráð fyrir, að
verði notað nema undir vissum
aðstæðum, þ.e.a.s. að það sé
nauðsynlegt til aðstoðar við hina
einstæðu móður.
Það er hér vitnað til lífeyris
einstaklings samkvæmt 11. gr.
laga um almannatryggingar, þ.e.
a.s. eins og segir í skýringum með
frumvarpinu, að það er gert ráð
fyrir, að upphæð þessara bóta sé
sem svarar til þess sem þar segir í
11. gr., en þar eru ákvæði um
elliiífeyri. En ellilífeyririnn er
mismunandi svo sem kunnugt er
eftir því hvort hann er fyrst
tekinn við 67 ára aldur eða 72 ára
aldur eða einhvers staðar þar á
milli. Það er ekki ástæða að mínu
viti að kveða nánar á um það, hve
upphæðin á að vera há. Sam-
kvæmt heimildarákvæðinu í 1.
mgr. 5. gr. frumvarpsins hefur
tryggingaráð það í hendi sér að
meta það. En þó þykir mér það
líklegt, að þar sem er um heimild-
arákvæði að ræða mundi þetta
væntanlega ekki fara yfir lægsta
flokk ellilauna, þ.e. ef miðað er
við, að ellilaunin séu fyrst tekin
við 67 ára aldur, en það er veruleg
upphæð samt á ári og var 1. mars
s.l. 652.776 kr. En með því að þetta
er heimildarákvæði, þá er það að
sjálfsögðu í valdi tryggingaráðs að
meta það, hve upphgæð þessi yrði
há í hverju einstöku tilfelli.
Konur í hjú-
skap eða sambúð
Allt sem ég hef sagt fram að
þessu varðar bætta aðstöðu ein-
stæðra mæðra. En frumvarp þetta
gerir ráð fyrir, að það geti verið að
fleiri séu aðstoðar þurfi í þessu
efni en einstæðar mæður. Það geti
verið, að svo sé ástatt um konu í
hjúskap eða í sambúð. Þess vegna
gerir 2. mgr. 5. gr. frv. ráð fyrir
því, að tryggingaráð fái heimild til
þess að ákveða greiðslur til þess-
ara kvenna í hjúskap eða í sam-
búð, sams konar greiðslur eins og
gert er ráð fyrir til einstæðra
mæðra. En ekki skilyrðislaust.
Þetta verði bundið því skilyrði, að
tekjur hjónanna eða sambúðar-
fólksins fari ekki fram úr ákveðnu
marki. Og auk þess að ástand á
heimilum þessara mæðra sé það
slæmt, að það jafngildi þeim
ástæðum, sem samkvææmt gild-
andi lögum heimila fóstureyðingu.
Þetta er tekið skýrt fram í 5. gr.
frv., því að þar segir, að þessar
bætur komi aðeins til að uppfyllt-
um eftirfarandi skilyrðum:
— 1. Hafi konan alið mörg börn
með stuttu millibili og skammt er
liðið frá síðasta barnsburði.
— 2. Eigi konan við að búa
bágar heimilisástæður vegna
ómegðar eða alvarlegs heilsuleysis
annarra á heimilinu.
— 3. Vegna annarra ástæðna,
sem eru sambærilegar við ofan-
greindar ástæður.
Þetta ákvæði er orðrétt upp úr
gildandi lögum, orðrétt tilteknar
þær ástæður, sem geta heimilað
fóstureyðingu.
Þetta og raunar allt þetta frum-
varp er byggt á þeirri forsendu, að
það sé ekki eðlilegt, að fóstri sé
eytt af félagslegum ástæðum, það
eitt sé eðlilegt, að leysa og bæta úr
hinum félagslega vanda.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
alþingismaður.
Frumvarp þetta er flutt í fram-
haldi, ef svo mætti segja, af öðru
frumvarpi, sem ég hef flutt um
breytingar á lögum sem fjalla um
fóstureyðingar. í því frumvarpi er
lagt til, að félagslegar ástæður
geti ekki heimilað fóstureyðingu.
Eg flutti allítarlega framsögu
fyrir því máli og lagði áherslu á
það sjónarmið, að þjóðfélaginu
bæri að leysa þessar félagslegu
ástæður með öðrum hætti en að
gripið sé til fóstureyðinga. Þetta
frumvarp er flutt í framhaldi af
hinu fyrra frumvarpi um fóstur-
eyðingar til þess að árétta þetta
sjónarmið.
Kynning máls
til ákvörð-
unar síðar
Nú er það, að þetta frumvarp
felur í sér tilteknar breytingar á
tryggingarlöggjöfinni, að mínu
viti um það, sem mest er um vert,
að gert sé og á heima í lögum um
almannatrygfgingar. Ég veit, að
það geta verið ýmsir aðrir erfið-
leikar fyrir hendi, sem þetta
frumvarp nær ekki til. En ég tel,
að þetta frumvarp sé ákaflega
þýðingarmikið, geti verið þýðing-
armikið spor í þá átt, að þjóðfélag-
ið taki á sig þá skyldu að aðstoða
hinar einstæðu mæður i staðinn
fyrir að hlaupa frá þessum skyld-
um með því að heimila fóstureyð-
ingu af félagslegum ástæðum. En
við munum aldrei — já, ég segi
aldrei, þó að mér dytti í hug að
segja seint, — hafa það ástand í
þessu landi í félagslegum málefn-
um, að það sé ekki alltaf hægt að
finna einhverja erfiðleika, sem
ekki verður séð við í löggjöf. En
við erum á mikilli framfaraleið í
þessum efnum. Við höfum verið
það á síðustu árum, á síðustu
áratugum. Við erum alltaf að
bæta okkur í þessum efnum. En
það yrði enn þá aukin hvatning til
þess að gera það, ef það yrði nú
fellt úr lögum, að félagslegar
ástæður gætu heimilað fóstureyð-
ingar. Og samkvæmt því, sem ég
hef lagt til í því frumvarpi, sem ég
hef hér áður flutt, þatá að gera það
skilyrðislaust. Þrátt fyrir mikil-
vægi hinnar félagslegu ástæðna,
sem ég legg svo mikla áherslu á,
þá eru ástæðan fyrir því að það
eigi ekki að leyfa fóstureyðingar
af félagslegum ástæðum. Og við
skulum hafa það í huga, að
umhyggja fyrir barni, sem fæðist í
þennan heim, fer ekki alltaf eftir
ríkidæmi eða því hve félagsmála-
löggjöfin er fullkomin. Það hafa
margir orðið góðir þegnar, sem
hafa alist upp við kröpp kjör. Á
sama hátt sem jafnvel ríkidæmi
er engin trygging í þessu efni. Ég
vildi, þó að ég leggi mikla áherslu
á hinar félagslegu umbætur, einn-
>g leggja áherslu á þessi víðtækari
sjónarmið, sem við verðum einnig
að hafa í huga.
Ég geri ekki ráð fyrir og ætlast
ekki til að þetta frumvarp né
heldur hið fyrra frumvarp sem ég
hef vitnað tiL verði afgreitt á
þessu þingi. Ég geri mér grein
fyrir, að þessi máFeru veigamikil
og svo þýðingarmikil, að það er
eðlilegt að bera þau fyrst fram til
sýnis þannig að öllum hv. þm.
gefist sem best rúm til þess að
skoða sinn hug og athuga þessi
mál.