Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ1979
sigrar Þór
Enn
EINS «k fram kom í Mbl. á
laugardag sÍKraði Þór Fylki í 2.
deild íslandsmótsins f knatt-
spyrnu á föstudax með 3 mörkum
ííegn 2. Sakir rúmleysis á fþrótta-
sfðum blaðsins á laugardag var
ekki unnt að gera leiknum þau
skil sem venja er og skal úr því
bætt nú.
Leikurinn fór fram á Sana-
velli á Akureyri í vægast sagt
leiðinlegu veðri, slyddu og hægri
norðanátt. Þrátt fyrir að aðstæð-
ur voru ekki sem bestar til
knattspyrnuiðkunar á föstu-
dagskvöldið iögðu leikmenn
beggja liða sig fram enda hvert
stigið dýrmætt í þeirri hörðu
keppni sem fram undan er í 2.
deildinni.
Fyrsta markið lét ekki lengi á
sér standa. Þegar á 9. mínútu var
það staðreynd. Oddur óskarsson
sendi þá góða sendingu fyrir mark
Fylkis þar sem Guðmundur
Skarphéðinsson kom aðvífandi og
skailaði í net Fylkis án þess
Ögmundur kæmi vörnum við.
Fylkir jafnaði leikinn með
glæsimarki Hilmars Sighvatsson-
ar beint úr aukaspyrnu af um 25
metra færi. Skot Hilmars hafnaði
efst í markhorninu, sannariega
eitt með glæsilegri mörkum sem
sést hafa á Sanavelli.
Liðin skiptust á um að sækja
næstu mínúturnar og voru Þórsar-
ar öllu beittari upp við markið án
þess tækist þó að skora. Það var
síðan á 40. mín. að gefin var há
sending inn að marki Fylkis.
Varnarmenn Fylkis fórnuðu hönd-
um og töldu sóknarmenn Þórsara
rangstæða, og eftirleikurinn var
Guðmundi Skarpheðinssyni auð-
veldur, tvö gegn einu fyrir Þórs-
ara.
Réttri mínútu síðar lentu Hilm-
ar Sighvatsson og Árni Stefánsson
miðvörður Þórsara í návígi, sem
lyktaði þannig að Hilmar sparkaði
í Árna liggjandi. Dómari leiksins
Björn Bjarnason hafði engin um-
svif og vísaði Hilmari af leikvelli.
Þannig var því staðan í leikhléi, 2
mörk gegn 1 fyrir Þór og Fylkir
einum ieikmanni færri. Það var
því trú flestra að eftirleikurinn
yrði Þórsurum auðveldur en ann-
að kom á daginn. Sókn Fylkis var
stöðug allan síðari hálfleikinn, og
það kom því ekki á óvart þegar
Fylkis jafnaði metin á 60. mín.
Það var Einar Hafsteinsson sem
skallaði í netið eftir aukaspyrnu
Ómars Egilssonar. Vörn Þórsara
og markvörður voru þarna ákaf-
lega illa á verði. Á 68. mínútu
ieiksins gerði Guðmundur Skarph-
éðinsson síðan út um leikinn. það
var raunar fyrsta sóknin í síðari
hálfleik af hendi Þórsara sem
eitthvað kvað að. Sendur var
stungubolti inn fyrir vörn Fylkis
og Guðmundur fylgdi vei og skor-
aði fallegt mark. Þar með full-
komnaði Guðmundur þrennu sína.
Það sem eftir lifði leiksins sóttu
Fylkismenn ákaft, án þess. að
takast að jafna metin.
Ekki verður annað sagt en
Þórsarar byrji vel í ár, hafa hlotið
fjögur stig úr tveimur leikjum, en
hlutu einungis eitt stig úr leikjum
sínum við sömu lið í fyrra. Því er
þó ekki að leyna að Þórsarar voru
heppnir að hljóta bæði stigin úr
viðureigninni við Fylki. Fylkir var
betra liðið í leiknum, þó svo þeir
léku einum færri allan seinni
hálfleikinn. Það sem helst virðist
á bjáta hjá Fylki er óöryggi í
vörninni, eins og varnarmennirnir
tali ekki nóg saman. Ætii Fylk-
ismenn að berjast í efri hluta
deildarinnar tali ekki nóg saman.
Ætii Fyikismenn að berjast í efri
hluta deildarinnar verða þeir að
þétta vörnina. Hilmar Sighvats-
son var besti maður Fylkis meðan
hans naut við, sannarlega eitt
mesta efni sem undirritaður hefir
séð á vellinum. Þá átti Grettir
Gíslason og góðan leik. Vinstri
bakvörðurinn Kristinn Guð-
mundsson, er sterkur sóknarbak-
vörður en mætti leggja meiri rækt
við varnarhlutverkið.
Guðmundur Skarphéðinsson var
besti maður Þórs á föstudag og
hefir raunar verið í báðum leikj-
um Þórs til þessa. Guðmundur
skoraði öll mörk Þórsara í leikn-
um og var alltaf að. Veikleikar
Þórsara virðast liggja í vörn og
markvörslu. Einkum þó í vörninni
á miðjunni. Þá eru miðherjarnir
ekki beittir, kann ef tii vill að
hljóma undariega þegar litið er tii
þess að liðið hefir skorað 8 mörk í
tveimur leikjum, en öll mörkin á
móti Fylki gerði útherji og sum
markanna gegn Austra á dögun-
um voru hrein útsölumörk. Jón
Lárusson, sem verið hefir einna
drýgstur Þórsara við markaskor-
un undanfarin ár virðist alls ekki
með á nótunum, en vonandi kemst
það í lag hjá Jóni.
LEikinn á föstudag dæmdi
Björn Bjarnason og var vægast
sagt iélegur dómari. Björn virtist
dæma fyrst og fremst eftir pönt-
unum, og voru dómar hans oft
með ólíkindum. Þá hefir undirrit-
aður sjaldan orðið vitni að öðru
eins orðbrúki fgarð dómara án
þess nokkuð væri að gert.
• Eftt besta marktækifæri íslendinga. Ingi Björn er kominn itgott færi en nær ekki að spyrna boltanum.
Sepp Maier liggur á grasinu kominn úr jafnvægi. Ljósm. EmiKa.
Fer Neeskens til Feyenoord?
í ENSKA dagblaðinu Daily
öllum líkindum leggja skóna á
Telegraph er frá því skýrt íyrir
skömmu að hollenski snillingur-
inn Johan Neeskens myndi gera
það upp við sig næstu 2 vikurnar
hvaða lið hann myndi ganga til
liðs við. en samningur hans við
Barcelona er útrunninn.
Neeskens er orðaður við nokk-
ur stórfélög, svo sem Arsenal í
Englandi, New York Cosmos,
Strassburg, PSV Eindhoven og
jafnvel Feyenoord, en öll hafa
þau gert kappanum tilboð. Eins
og sakir standa, er ifklegast að
Arsenal hreppi hnossið, þó að
slíkir hlutir geti breyst hraðar en
nokkuð annað. Það gæti þvf allt
eins farið svo að Pétur Péturss«»n
leiki við hlið Johans Neeskens
næsta keppnistfmabil og ætti það
að geta orðið hinn besti skóli.
Steve Heighway mun nú að
hilluna. Hinn kunni útherji er nú
33 ára gamall og hefur unnið flest
verðlaun með Liverpool síðustu
árin. Honum hefur gengið illa að
vinna sér fast sæti í liði Liverpool
að undanförnu og þar sem líkur
eru á að Peter Barnes verði keypt-
ur til Liverpool, hefur karlinn þótt
sem dagar sínir hjá félaginu væru
taidir.
David McCreery, norður írski
landsliðsþjamaðurinn í liði
Manchester Utd, hefur vart
komist í lið síðustu mánuðina.
Fyrir nokkrum vikum bauð
Tommy Dochetry, stjóri QPR og
áður United, í kappann, en
McCreery hafði ekki áhuga. Nú
hefur Docherty ítrekað tilboð sitt
og er McCreery að sögn kominn á
fremsta hlunn að slá til og fara til
Lundúna.
Fyrir skömmu var frá því skýrt,
að Manchester City hefði keypt tií
iiðs við sig Mick Flannagan, hinn
mikla markaskorara Chariton.
Síðan hefur það gerst, að
Flannagan hefur aflýst öllu
saman á þeim forsendum að
Manchester sé of langt frá
London. Stjórar Charlton vita
vart hvaðan á sig stendur veðrið,
þeir segja að ef eitt stærsta félag
Englands sé ekki nógu gott fyrir
hann, hvað þá?
Heist er um það rætt, að
Flannagan fari annaðhvort til
Arsenal eða Crystal Palace.
Arsenal hefur þó að sögn meiri
áhuga á Jóhanni Neeskens, en
Palace hefur gert tilboð í
Flannagan. Palace hefur einnig
fest kaup á Gerry Francis frá QPR
t fyrir 450.000 sterlingspund.
Atli Eðvaldsson, lengst til vinstri á myndinni, skýtur þrumuskoti á i
Tilþríi
lands
TVÖ MÖRK Vestur-Þjóðverja
skoruð með aðeins hálfrar mín-
útu millibili í fyrri hálfleik í
landsleik þjóðanna í Laugardaln-
um á laugardag gerðu vonir
íslendinga að engu á móti hinum
þrautþjálfuðu atvinnumönnum.
Að vísu var glæsilegt mark Atla
Eðvaldssonar besta manns ísl-
enska liðsins sólargeisli í lok
ieiksins og fögnuðu áhorfendur
því innilega og risu úr sætum,
enda kom markið upp úr vel-
byggðri sóknarlotu, og endahnút-
ur Atla var fallegur. 3—1 sigur
Þjóðverja var sanngjarn og hefði
vel getað orðið stærri. En ísl-
enska liðið átti Iíka sín tækifæri
og ekki hefði verið ósanngjarnt
að það hefði náð að skora fyrsta
mark leiksins er Janus komst
einn inn fyrir vörn Þjóðverja og
átti aðeins markvörðinn eftir er
dómarinn flautaði og stoppaði
leikinn og dæmdi brot á einn
þýska varnarleikmanninn. Var
þetta afar hæpinn dómur þar sem
þýska liðið hagnaðist á brotinu.
Rétt skömmu síðar var Ingi
Björn Albertsson í góðu mark-
tækifæri en var heldur of seinn
að reka tána í boltann og Sepp
Maier náði að góma boltann á
síðasta augnabliki. Voru þetta
tvö bestu tækifæri íslenska liðs-
ins í leiknum.
Góð byrjun
íslenska liðið byrjaði leikinn
vel, og lék af nokkrum krafti og
ákveðni. Tvívegis á fyrstu fjórum
mínútunum byggir Atli upp góðar
sóknir og sendir stungubolta á
Pétur sem honum tókst þó ekki að
ná til. Islensku leikmennirnir voru
ákveðnir í návígjum til að byrja
með og var eins og það kæmi þeim
þýsku nokkuð á óvart hversu
mikla mótspyrnu þeir fengu. En
það fór ekkert milli mála er líða
tók á leikinn hverjir höfðu yfir-
höndina og sýndu meiri knatt-
leikni og yfirsýn í leiknum. Þjóðv-
erjarnir fóru að sýna klærnar og
fengu á skömmum tíma þrjár
hornspyrnur og sóttu allstíft án
þess þó að þeim tækist að skapa
sér hættuleg tækifæri.
Bestu marktækifæri
íslendinga
Á 20. mínútu fyrri hálfleiksins
ná Islendingar skyndisókn. Jó-
hannes nær boltanum og brunar
upp völlinn. Janus tekur á sprett
upp kantinn og fær góða sendingu
frá Jóhannesi. Janus óð upp að
þýska markinu með varnarmann á
hælunum sem sá sér þann kost
vænstan að halda Janusi til að
reyna að stöðva hann. Ekki tókst
það og rétt um leið og Janus sleit
sig lausan og komst á auðan sjó og
átti aðeins markvörðinn eftir
flautar dómarinn og dæmir auka-
spyrnu á Þjóðverjana. Var þetta í
meira lagi furðulegur dómur þar
sem augljóst var að þýska liðið
hagnaðist verulega á brotinu. Eft-
ir leikinn fullyrti Janus að þarna
hefði verið tekið af honum mark.
Voru þetta slæm mistök hjá hin-
um skoska dómara.
Upp úr aukaspyrnunni átti Jó-
hannes ágætan skalla sem rétt fór
yfir markið. Rétt mínútu síðar
byggja þeir Atli og Ingi Björn upp
fallega sókn með góðum samleik.
Ingi fær boltann frá Atla rétt
utan við markteigshornið og var
kominn í dauðafæri er hann
missti boltann aðeins of langt fra
sér og náði ekki að reka endahnút-
inn en var ákaflega nærri því að
skora. Sepp Maier markvörður
rétt náði til boltans þar sem hann
var kominn úr jafnvægi og lá á
vellinum. Það var alveg synd að
þessi tvö ágætu tækifæri skyldu
ekki nýtast. íslenska liðið hefði
átt það fyllilega skilið því það lék
vel þessar fyrstu 25 mínútur
leiksins, byggði upp fallegar sókn-
ir.
Tvö mörk á 30 sek.
Á 30. mínútu fyrri hálfleiksins
pressa Þjóðverjar á íslenska
markið. Jón Pétursson bjargar á