Morgunblaðið - 29.05.1979, Qupperneq 30
3 0 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ1979
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Oskum eftir
bifvélavirkja
eöa manni vönum bifreiöaviögeröum á
verkstæði okkar.
Bifreiðastöð Steindórs s.f.,
Sími 11588.
Hótel Esja
Rösk smurbrauðsdama óskast nú þegar.
Einnig starfsstúlkur í eldhús.
Nánari uppl. gefur yfirmatreiöslumaöur á
morgun miðvikudag milli kl. 13 og 15.
Fóstrur athugið
2—3 fóstrur óskast á dagheimiliö Sunnuborg
frá 1. ágúst.
Uppl. í síma 36385 hjá forstöðumanni.
Saumastörf
Óskum aö ráöa nokkra ungar stúlkur til
starfa við saum á kvenkápum.
Starfsþjálfun veröur veitt.
Einungis veröa ráönar þær, sem hugsa sér
starfið sem framtíðarstarf.
Max h.f.,
Ármúla 5.
Sími 82833.
Framtíðarstarf
Óskum að ráöa nú þegar starfsmann til
framtíðarstarfa í pökkunardeild.
Starfiö felst meöal annars í stjórnun pökkun-
arvéla
Umsóknir með uppl. um aldur, menntun og
fyrri störf, sendist oss fyrir 2. júní n.k.
OSTA- OG SMJÖRSALAN S/F,
Snorrabraut 54.
Siglufjörður
Staöa sparisjóðsstjóra viö Sparisjóð Siglu-
fjaröar er laus til umsóknar. Góö launakjör.
Ráðning frá 1. október 1979.
Umsóknir sendist til formanns stjórnar
Sparisjóðsins fyrir 1. júlí n.k., sem gefur allar
nánari upplýsingar.
1. stýrimaður
óskast strax á 278 lesta bát frá Patreksfirði.
Fer á togveiðar.
Upplýsingar í síma 94-1160.
Bílstjóra
Óskum eftir að ráöa bílstjóra meö meirapróf
strax.
ísaga h.f. Sími 83420.
Innheimta—bifreið
Starfskraftur óskast til innheimtustarfa þarf
aö hafa bíl til umráða.
Vinna hefst milli kl. 9 og 10. Daglegur
vinnutími er 5—7 stundir.
Tilboð sendist augld. Mbl. merkt „ábyggileg
— 3391“ fyrir miðvikudaginn 30. maí.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Vonarstræti 4 — Sími 25500
fHúsvörður
óskast
Húsvörður óskast í fullt starf fyrir sambýlis-
hús í Breiöholtshverfi.
Aðeins umgengnisgott og reglusamt fólk
kemur til greina. Húsvöröur annast minni
háttar viöhald og hefur umsjón með um-
gengni og ræstingum.
Góð íbúö fylgir starfinu.
Umsóknir er greini aldur, búsetu og fyrri störf
sendist húsnæöisfulltrúa fyrir 5. júní n.k. sem
einnig gefur allar nánari upplýsingar um
starfiö.
Kennarar
Tvo kennara vantar aö gagnfræöaskóla
Húsavíkur.
Aöalkennslugreinar enska og danska.
Uppl. veitir skólastjóri í síma 96-41166 eöa
96-41344.
Skólanefnd Húsavíkur.
Ráðskona
Vegna forfalla vantar okkur um óákveöinn
tíma matreiöslu- og umsjónarkonu í
eldhúsiö.
Upplýsingar á skrifstofunni.
Veitingastofa B.S.Í.
Skrifstofustúlka
Fasteignasala sem staösett er í miðborginni
óskar eftir skrifstofustúlku.
Starfiö er fólgiö í símavörslu, vélritun,
uppsetningu samninga ásamt ýmsum öðrum
vandasömum tilfallandi störfum.
Góö laun eru í boði. Þarf aö geta hafið störf
fljótlega.
Tilboö merkt „S — 3269“ skilist á'aug-
lýsingadeild Morgunblaösins sem fyrst.
Frá Fjölbrautar-
skólanum í Breiðholti
Vakin skal athygli á því aö nokkrar kennara-
stöður hafa verið auglýstarlausar til umsókn-
ar viö skólann og er umsóknarfrestur til 11.
júní n.k.
Um er aö ræöa kennslu í eftirtöldum
greinum: íslenzku, stæröfræöi, raungreinum
(þ.e. eölis-, efna- og náttúrufræöigreinum.)
félagsgreinum (sögu), viðskiptagreinum, tón-
menntun og íþróttum.
Skólameistari verður til viötals í sambandi
viö kennararáðningu þá sem hér um ræöir
frá 1. til 8. júní kl. 9—12 á skrifstofu sinni í
húsakynnum skólans viö Austurberg.
Sími ckólameistara er 75710.
Fjölbrautarskólinn í Breiðholti.
Ljósmæðrafélag
íslands 60 ára
Saga félagsins og stéttartal ljós-
mæðra væntanlegt í haust
LJÓSMÆÐRAFÉLAG íslands
hélt hátíölejít 60 ára afmæli sitt
jafnframt aðalfundi 1979 að Hótel
Esju 2. maí s.l.
Ljósmæður eru fyrsta stétt ís-
lenskra kvenna í opinberu starfi,
en Ljósmæðrafélag Islands var
stofnað 2. maí 1919. Aðalhvata-
maður og brautryðjandi að stofn-
un félagsins var Þuríður Bárðar-
dóttir, sem einnig var fyrsti for-
maður félagsins, ásamt Þórdísi
Jónsdóttur Carlqvist, en þær voru
báðar umdæmisljósmæður í
Reykjavík.
I tilefni af 60 ára afmælinu
gefur félagið út ritverkið „Ljós-
mæður á Islandi", sem er stéttar-
tal ljósmæðra frá 1961—1978 og
60 ára saga félagsins, sem Helga
Þórarinsdóttir, sagnfræðingur,
hefur skráð, auk þess verður í
ritinu ritsmíð, sem heitir „Barns-
burður", sem Anna Sigurðardóttir
hefur skrifað.
Ritnefnd vinnur nú ásamt rit-
stjóranum Björgu Einarsdóttur
kappsamlega að því að ritið geti
komið út í haust.
í nokkur ár hefur félagið unnið
markvisst að útgáfu stéttartals-
ins, en grundvöllinn að því lagði
Haraldur Pétursson, fræðimaður
(fyrrverandi safnhúsvörður), er
hann gaf Ljósmæðrafélagi íslands
mikið safn heimilda um ljós-
mæður um tveggja alda skeið.
A afmælishátíðinni var
Haraldur Pétursson gerður að
heiðursfélaga Ljósmæðrafélags
íslands, en sakir lasleika Haralds
veitti sonardóttir hans, Sigríður
Pétursdóttir, Heiðursskjalinu
móttöku.
Fjórar ljósmæður voru gerðar
heiðursfélagar á afmælisfundin-
um: Jensína Óladóttir, Bæ í
Víkursveit á Ströndum, sem
hefur verið umdæmisljósmóðir í
50 ár. Jóhanna Margrét
Þorsteinsdóttir, hún hefur starf-
að sem ijósmóðir samfellt í 40 ár,
bæði í umdæmum og um árabil á
fæðingardeild Landspítalans.
Sigurbjörg Júlía Jónsdóttir, sem
hefur verið starfandi ljósmóðir á
fjórða áratug og um tíma yfirljós-
móðir á fæðingardeild Landspítal-
Þórdís Ólafsdóttir, Sigurbjörg Jónsdóttir, Jóhanna M. Þorsteinsdóttir, Pálmi Guðmundsson og Sigríður
Pétursdóttir með heiðursskjöl Ljósmæðrafélags íslands.
ans. Þórdís ólafsdóttir en hún á
40 ára ljósmóðurstarf að baki og
var í 25 ár gjaldkeri félagsins.
Jensína komst ekki til afmælis-
fagnaðarins. Hún var bundin ljós-
móðurskyldum í afskekktu héraði.
Sonur Jensínu, Pálmi Guðmunds-
son, tók á móti heiðursskjali
móður sinnar. Skýrslur komu frá
landshlutadeildum en þær eru sex
og hafa verið stofnaðar hin síðari
ár og síðast Suðurnesjadeild á
þessu starfsári.
í afmælishófinu söng Inga
María Eyjólfsdóttir við undirleik
Ólafs Vignis Albertssonar.
Eldri heiðursfélagar voru sér-
staklega boðnir. Heillaóskir og
gjafir bárust. Fundurinn var fjöl-
mennur og fundarstjóri var
Valgerður Guðmundsdóttir frá
Dalvík. Núverandi stjórn Ljós-
mæðrafélags íslands er þannig
skipuð:
Steinunn Finnbogadóttir, for-
maður, Dóra Sigfúsdóttir, vara-
formaður, Sigurbjörg Guðmunds-
dóttir, ritari, Anna Astþórsdóttir,
gjaldkeri, Hulda Þórarinsdóttir,
Margrét Sigmundsdóttir og
Sólveig Matthíasdóttir.
Meðfylgjandi ályktun var m.a.
gerð á fundinum:
„Aðalfundur Ljósmæðrafélags
Íslands 2. maí 1979 telur nauðsyn
á að samræma sem mest undir-
stöðumenntun heilbrigðisstétt-
anna í landinu.
A þingi Alþjóðasambands ljós-
mæðra 1972 í Washington í
Bandaríkjunum var starfssvið
ljósmæðra skilgreint þannig:
„Fæðingarhjálp, umönnun um
meðgöngutímann, meðferð ung-
barna og mæðra eftir fæðingu,
fjölskylduáætlanir og foreldra-
fræðsla."
Samkvæmt þessu gerir
aðalfundurinn kröfu til þess að
menntun íslenskra ljósmæðra sé
ætíð fyllilega í samræmi við
starfssvið og ábyrgð ljósmæðra-
stéttarinnar."