Morgunblaðið - 29.05.1979, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ1979
Frá borgarstjórn — Frá borgarstjórn — Frá borgarstjórn — Frá borgarstjórn — Frá borgarstjórn
Sjöfn Sigurbjömsdóttir:
„Álagning sorphirðugj alds
kjánaleg og stendur í vegi
fyrir eflingu atvinnulífs”
Sem kunnuKt er urðu all snarp-
ar umræður á burKarstjórnar-
fundi 17. mai vcgna samþykktar
meirihluta framkvæmdaráðs
KCKn atkvæðum minnihlutans um
álaKningu sérstaks sorphirðu-
KÍalds á fyrirtæki sem hefðu yfir
ákvcðinn fjölda af sorptunnum.
Gjöld þessi hefðu samtals numið
um 30 milljónum. í meirihluta
framkvæmdaráðs voru á þessu
fundi: Adda Bára Sigfúsdóttir,
Þröstur Ólafsson, Guðmundur
Gunnarsson og BjörKvin
Guðmundsson, en f minnihluta
voru: Hilmar GuðlauKsson, Jónas
Elíasson ok Davfð Oddsson. f
vetur olli sorphirðuKjald á
borKarbúa upp á 300 milljónir
KifurleKU fjaðrafoki í borKar-
stjórnarmeirihlutanum þeKar
einn fulltrúa hans, Sjöfn SÍKur-
björnsdóttir, Kreiddi atkvæði
KCKn þeirri álaKninKu. Þess má
Keta, að tekjustofnar fyrir sorp-
hirðu felast í útsvörum ok fast-
eÍKnaKjöldum.
Kjánalegar
tilraunir
Sjöfn SÍKurbjörnsdóttir (A)
kvaddi sér hljóðs og minnti á, að
borgarstjórn hefði í vetur fellt að
leggja á sérstakt sorphirðugjald.
Sú samþykkt stæði og harmaði
hún bjánalegar tilraunir annarra
minnihlutamanna að sniðganga
það. Sjöfn kvaðst eindregið á móti
þessu, hún vildi efla atvinnulíf í
Reykjavíkmeð því að Iaða hingað
fyrirtæki. Til þess þyrfti að bæta
aðstöðu þeirra og meiri álögur á
þau væru hreint ekki rétta leiðin
til þess. Hún kvaðst hafa kynnt
sér skýrslur sem gerðar hefðu
verið um sorphirðu í Reykjavík og
í ljós kæmi, að sorphirða væri um
50% dýrari hér en í Kópavogi og
Hafnarfirði. Sennilega væri um að
kenna óhagkvæmni í vinnubrögð-
um og mætti eflaust laga það.
Athuga mætti hvort útboð væri
ekki eðlilegt. M.a. hefði Fram-
sóknarflokkurinn látið slíkt í ljós.
Ekki bjart fyrir
augu og eyru Sjöfn!
Adda Bára Sigfúsdóttir (Abl)
sagði leiðinlegt, að Sjöfn skyldi í
hvert sinn sem sorp bæri á góma
hlaupa yfir til íhaldsins. Sorpið
hlypi fyrir brjóstið á Sjöfn, en um
það ætlaði hún ekki að hafa fleiri
orð úr þessum ræðustól. Hún
sagðist vona, að Sjöfn settti ekki
bjarg fyrir augu og eyru þegar
talað væri um sorp, en tíðkast
hefði, að hreinsunardeildin hefði
komið til manna og hreinsað
sérstaklega ef um hefði verið
beðið og þá verið fyrir það greitt.
Sum fyrirtæki hefðu allt að 90
tunnur og ekki væri eðlilegt að
hreinsun á slíku greiddist úr
sameiginlegum sjóði.
Héraðsbrestur
Sjafnar
Adda Bára sagði, að vel kynni
að vera, að lögspekingar fyndu út,
að ekki megi taka þetta gjald, en
þetta væri óréttlátt eins og það
væri nú. Borgarstjórn hefði í
vetur fellt ósk til félagsmálaráð-
herra um heimild til þessarar
gjaldtöku. Þetta væri ekki stór
upphæð nú, en það yrði þó ekki
héraðsbrestur þegar Sjöfn gengi
til liðs við sjálfstæðismenn í
sorpinu, en það væri leiðinlegt. Þá
Adda Bára Sigfúsdóttir: Það verður ekki héraðsbrestur þó sorpið hlaupi fyrir
brjóstið á Sjöfn og hún gangi í lið með sjálfstæðismönnum. Davíð Oddsson:
Hagræðing þýðir ekki auknar álögur.
sagði Adda Bára það undarlegt
hjá Sjöfn að segja samstarfs-
manni sínum Björgvini
Guðmundssyni, sem sæti ætti í
framkvæmdaráði, ekki frá afstöðu
sinni. Mottóið hjá Sjöfn virtist
vera „Ég greiði alltaf atkvæði
gegn sorpi."
Sjöfn í meirihluta
Adda Bára Sigfúsdóttir sagði,
að ef Sjöfn kysi að búa allt í einu
til nýjan meirihluta gæti hún gert
það meðan nokkur yndi því, að
hún hegðaði sér þannig, en ekki
væri þetta góður samstarfsmáti.
Sjálf-
stæðis-
menn:
Tekju-
stofnar
sorp-
hirðu
eru
þegar
til
Persónulegur
skætingur
Davíð Oddsson (S) sagði að
sjálfstæðismenn hefðu staðið fyrir
úttekt á sorphreinsun í borginni
og um það hefðu verið samdar
skýrslur. Sjálfstæðismenn hefðu
lagt ríka áherzlu á að koma á
hagræðingu í sorphirðu borgar-
innar. Það stæði hinsvegar kloss-
fast í Öddu Báru Sigfúsdóttur, að
hagræðingu skuli fylgja auknar
álögur. Þessar umræddu 30
milljónir væru hluti af 300
milljónunum, sem átt hafi að
koma í gegn sl. vetur. Þá sagði
Davíð, að Adda Bára væri sérstak-
lega persónuleg í garð Sjafnar.
Smygl og
hnakkadramb
Davíð Oddsson sagði, að borgar-
stjórnarmeirihlutinn væri með
þessari tillögu nú að reyna smygla
í gegn hluta af áður felldri tillögu.
Þá væri sama hvaða svívirðingu
Sjöfn yrði fyrir af hálfu Alþýðu-
bandalagsins, aðalatriðið væri, að
hún væri sjálfri sér samkvæm, því
að hún stæði við fyrri orð. Það
væri hins vegar Adda Bára Sigfús-
dóttir, sem stofnaði í raun til alls
þessa í trausti þess, að Sjöfn
brysti, sem ekki gerðist reyndar
heldur þvert móti. Líklega
ætlaðist Adda Bára til þess, að
flokkurinn tæki í hnakkadrambið
á Sjöfn og drægi hana til hlýðni.
Gríla samstarfs-
flokksins
Davíð Oddsson sagði það
örugglega einsdæmi, að borgar-
fulltrúi notaði samstarfsflokk sem
grýlu á borgarfulltrúa hans. Þeir
sjálfstæðismenn sem fylgst hefðu
með samstarfi meirihlutans í
æskulýðsráði væru sammála um,
að þar hefði Sjöfn Sigurbjörns-
dóttir sýnt fulltrúum Alþýðu-
bandalagsins einstakt umburðar-
lyndi. Þess vegna væri tal Öddu
Báru um samstarf léttvægt. Davíð
lagði síðan til, að álagningartillög-
unni yrði vísað frá
Sorphreinsun
þegar greidd
Albert Guðmundsson (S)
minnti á innheimtu fasteigna-
gjalda og aðstöðugjalda sem öll
fyrirtæki greiddu í einni eða
annarri mynd, en með þeim væru
þau búin að greiða fyrir sorp-
hreinsunina. Það væri langt sótt
að reyna gera borgarfulltrúa
Aiþýðuflokksins tortryggilegan
þegar rætt væri um sorp. Albert
sagðist sérstaklega vilja minna á,
að hagræðing ætti að vera til
sparnaðar en ekki til að auka
gjöld. Það væri furðulegt, ef Adda
Bára héldi, að borgin gæti ráðstaf-
að tekjum fasteigna- og aðstöðu-
gjalda án þess að láta fyrirtækin
hafa neitt í staðinn.
Athafnasemi og
kommúnistar
Albert sagði einkennandi, að ef
minnst væri á einstaklinga eða
fyrirtæki þá væri slíkt allt að
réttdræpur arðræningi í augum
kommúnista, ef hægt væri að
koma ól um hálsinn. Þetta væri
ljótur hugsunarháttur hjá
kommúnistum, enda væri þjóð vor
illa á vegi stödd ef ekki hefðu
meðal hennar verið framtakssam-
ir einstaklingar sem byggt hefðu
upp atvinnulíf í landinu.
Ekkert
baktjaldamakk
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir sagðist
vilja minna Öddu Báru á, að
Alþýðuflokkurinn væri lýðræðis-
flokkur og samkvæmt því væri
greitt atkvæði í borgarstjórn.
Sjöfn sagði, að afstaða sín ætti að
vera og hefði átt að vera öllum ljós
í þessu máli, ekki hefði svo lítið
gengið á fyrr í vetur þegar þetta
mál hefði verið til umræðu í meira
umfangi. Umræður í borgarstjórn
Reykjavíkur ættu að vera frjálsar
en ekki baktjaldamakk.
Sjöfn, sorpið
og íhaldið
Adda Bára Sigíúsdóttir sagði
Sjöfn, sorpið og íhaldið samtengt.
Mjög væri það gott fyrir Sjöfn að
hafa jafn tungulipran mann sem
Davíð Oddsson í liði með sér.
Adda Bára sagðist kunna lítil
andsvör við svona ræðum, enda
væru þær út í bláinn. Líklega
þætti Sjöfn gaman að vera komin
út í bláinn.
Heilagt fóst-
bræðralag í sorpi
Adda Bára sagði, að í raun hefði
samskonar tillaga sem þessi ekki
verið felld heldur hefði þar verið
um að ræða ósk. En forsendurnar
skiptu ekki máli þegar Sjöfn og
sjálfstæðismenn hefðu svarist í
heilagt fóstbræðralag í sorpinu
sínu góða. Hún kvaðst ekki ætla
eyða tíma í að ræða það. Þegar
Sjöfn talaði um lýðræðisflokk yrði
hún að gera sér grein fyrir, að þar
réði meirihlutinn.
Skýr afstaða
Davíð Oddsson sagði algeran
óþarfa fyrir Öddu Báru að veitast
svo að persónu Sjafnar, slíkt kæmi
úr hörðustu átt, en afstaða Sjafn-
ar væri skýr og í samræmi við
fyrri ákvarðanir.
Grimm stjúpa
Markús Örn Antonsson (S)
sagði málfltuning Alþýðubanda-
lagsins vera þannig, að hann bæri
að harma. Svo virtist sem Adda
Bára vildi kjósa sér hlutverk
grimmu stjúpunnar í
Öskubuskuævintýrinu. Hún teldi
sig greinilega auðveldlega geta
beitt samstarfsaðila járnaga. Það
hefði verið ætlun Alþýðubanda-
lagsins að gera litið úr persónu
Sjafnar með því að klína rusla-
bingjum að nafni hennar. Þetta
væri óþarft og ósmekklegt en hins
vegar venjuleg vinnubrögð
kommúnista. Hann undirstrikaði
að lýðræðissinnaðir menn stæðu
hér í borgarstjórn og greiddu
atkvæði samkvæmt eigin sam-
bizku en ekki einhvers yfirmanns.
Rauðhetta
og úlfurinn
Albert Guðmundsson sagði, að
eins mætti segja, að Rauðhetta
hefði étið úlfinn, en hvorugt væri
þetta nú rétt. Arásirnar á Sjöfn
væru hins vegar ómaklegar. Elín
Pálmadóttir (S) sagðist ekki
minnast slíks orðbragðs sem kom-
ið hefði fram hjá Alþýðubanda-
laginu síðan hún fór að kynnast
borgarmálum.
Frávísunartillagan var síðan
samþykkt af fulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins og Sjöfn Sigur-
björnsdóttir gegn atkvæðum ann-
arra.
Ólafur B. Thors:
Frábið mér stjóm-
kerfi vinstri manna
ÓLAFUR B. Thors sagði á
borgarstjórnarfundinum 17. maí,
að stjórnkerfi borgarinnar væri
að verða svo flókið, að borgar-
stjórn hefði ekki einu sinni tæki-
færi til að fylgjast með og
borgarfulltrúar væru hálfruglað-
ir í ríminu.
Skólabókardæmi væri, að
embættismenn í vélamiðstöð
þyrftu á einhverju að haida. Þeir
kæmu því á framfæri við fram-
kvæmdaráð, sem vísaði málinu til
stjórnar Innkaupastofnunar
borgarinnar, þaðan færi málið til
borgarráðs og loks til borgar-
stjórnar. Ólafur B. Thors sagði, að
svona vitleysa að velta málinu
með millilendingu á ýmsum
stöðum þjónaði engum tilgangi
nema rugla borgarfulltrúa svo í
ríminu, að þeir vissu ekkert um
gjörðir sínar. Slíkt sagðist Ólafur
B. Thors vilja frábiðja sér.