Morgunblaðið - 29.05.1979, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1979
39
Svan H. Trampe flugumferðarstjóri:
I fréttum sjónvarpsins síðastlið-
inn föstudag (18. þ.m.) birtist
örskamma stund á skjánum mynd
af forsvarsmönnum flugmála-
stjórnarinnar, þar sem þeir höfðu
boðað til sín fréttamenn fjölmiðla,
til að útlista fyrir alþjóð „að-
gerðir" þessara alltafveiku
ómögulegu hrokagikkja, flugum-
ferðarstjóra.
Þarna voru saman komnir þeir
Guðmundur Matthíasson deildar-
stjóri, Valdimar Ólafsson yfirflug-
umferðarstjóri og ErnstGíslason
yfirflugumferðarstjóri þjálfunar,
allt hinir gjörvilegustu menn,
enda myndin hin glanslegasta.
Þetta „þríhross" flugmálastjórn-
arinnar hefur að undanförnu,
svona í gríni, gengið undir viður-
nöfnunum ráðgjafarnir „Fláráður,
þjálfun nemenda í deildinni".
Sannleikurinn í því máli er sá, að
aðeins tveir menn eru nú á því
stigi, að þeir geti hafið nám í
deildinni. Þessa menn hefur flug-
málastjórnin tafið í námi um
árabil. (Hafa trúlega ekki mátt
missa þá úr starfi til náms).
Á vinnustað fer aðeins fram
verkleg þjálfun (On the job
training). Til þess að verkleg
þjálfun geti hafist, þarf að ljúka
bóknámi fyrst. Flugmálastjórnin
hefur engan áhuga sýnt á því að
ljúka bóknámi þessara manna, svo
AUmga
semdir vegna blaða-
mannafundar fbig-
málastjórnar
Fáráður og Vésteinn" innan
veggja stofnunarinnar.
Um tilurð nafngiftar „Fláráðs"
þarf ekki að fjölyrða. Hún skírir
sig sjálf. Nafngift „Fáráðs" er til
komin vegna þess, að hann fær
nánast engu ráðið, vegna ofríkis
þeirra, sem hærra telja sig setta.
Nafngift „Vésteins" er til komin
vegna þess, að hann hefur ásamt
þeim nemum í flugumferðar-
stjórn, sem hann hefur umsjón
með, nánast orðið að leita á náðir
véfrétta um það, hvernig námi og
þjálfun þessara manna skuli hátt-
að.
I laugardagsútgáfu sumra dag-
blaðanna var svo pistillinn birtur.
Engum er til þekkir innan
veggja flugmálastjórnar dylst það,
hvers handbragð er á tilskriftun-
um. Pistilinn skrifaði „Fláráður"
ráðgjafi og enginn annar, þó svo
að þeir „Fáráður" og „Vésteinn"
fengju að vera með á myndinni,
svona til skrauts. Eða var það
kannski gert til að gera þá
samseka?
En við skulum aðeins líta á
„stílinn“ eins og hann birtist í
Morgunblaðinu laugardaginn 19.
þessa mánaðar, undir yfirskrift-
inni:
„Aðgerðir flugumferðar-
stjóra“.
Strax í þessari yfirskrift er
fyrsta villan í stílnum. Flug-
umferðarstjórar hafa ekki staðið
fyrir neinum aðgerðum. Af þeirra
hálfu hefur miklu fremur verið
um að ræða aðgerðaleysi. Hafi
um aðgerðir verið að ræða, þá
hafa þær verið af hálfu flugmála-
yfirvalda. Síðan segir í flenni-
stórri fyrirsögn:
„Fella niður þjónustu í and-
stöðu við gildandi reglur“
Ja, ekki lagast það. Hafi ráð-
gjafinn sett um þetta einhverjar
reglur, þá hefur hann jafnframt
gleymt að athuga það, hvort hægt
væri að vinna samkvæmt þeim, án
þess að öryggi flugumferðar væri
jafnframt stefnt í hættu, og gildi
þeirra því í hæsta máta vafasamt.
Næst er í „stílnum" vikið að
skipunarbréfum, launaflokkum
o.fl. þar sem segir: „Eru þeir nú i
19. launaflokki en höfðu viljað
vera í 20. launaflokki".
Ekki nema það þó.
Flugumferðarstjórar hefðu gjarn-
an viljað vera í miklu hærri
launaflokki, en mér vitanlega er
ekki um að ræða neina samninga
um röðun í launaflokka fyrr en
næst kemur að kjarasamningum
opinberra starfsmanna.
Það er í sjálfu sér ekki aðal-
atriði í þessu efni, hvort launa-
flokkurinn heitir 15., 20., 25. eða
30. Það sem máli skiptir er það,
að stjórnvöld virði sín eigin
skipunarbréf til manna og
ráðningarkjör þcirra. Það hafa
þau ekki gert, og slíkt líkar flug-
umferðarstjórum ekki.
Síðan segir: „En síðar með því
að neita að annast verklega
að starfsþjálfun gæti hafist. Það
er raunar liðinn hálfur annar
áratugur, síðan flugumferðar-
stjórar vöruðu við því, að mann-
ekla yrði til vandræða við flugum-
ferðarstjórnina.
En flugmálayfirvöld hafa
heldur kosið að standa bara og
klóra sér, og hafast ekki að. Það
má líka alltaf skrökva einhverju
upp á flugumferðarstjóra, þegar
allt er komið í steik. Á undanförn-
um árum hefur flugumferðar-
stjórn á íslandi verið haldið gang-
andi með yfirgengilegri auka-
vinnu. Reyndar ekki svo vitlaus
pólitík þess opinbera, þar sem
a.m.k. helmingur teknanna fer
aftur beint í beinharða skatta. Ég
leyfi mér að birta hér bréf yfir-
flugumferðarstjóra, frá 27.
febrúar síðastliðnum, varðandi
samanburð á vinnustundafjölda
flugumferðarstjóra á íslandi,
Noregi, Danmörku, Englandi og
Kanada.
Samanburður á vinnustunda-
fjölda flugumferðarstjóra.
ÍhI. Nor. Danm.EnKl.Kan.
Vinnuvika 12 38 32-3fi 31 31
Yfirvinnu-
skylda x 10 klst. enx. enK- enK.
viku
Alm.
vinnut.
opinb.
starfsm. 10 38 10 40 37,5
x Undanfarin ár hefur yfirvinna
flugumferðarstjóra á Islandi verið
óhóflega mikil. Síðastliðin 4 ár
hefur verið unnið samkv.
þrískiptu vaktakerfi í flug-
stjórnarmiðstöðinni í Reykjavík,
það er að segja til þess að ein vakt
kæmist í sumarorlof þurftu hinar
þrjár vaktirnar að bæta á sig
störfum þeirrar fjórðu tímabilið 1.
júní til 30. sept., en einmitt þetta
tímabil er flugumferðin tvöfalt
meiri en á veturna.
Algengt er að flugumferðar-
stjórar hafi unnið um 600 klst. í
aukavinnu hver, á ári, en það
samsvarar 3—4ra mánaða vinnu
miðað við 42ja stunda vinnuviku.
Slíkt yfirvinna einstaks flug-
umferðarstjóra hefur jafnvel
komist yfir 900 klst. á ári, eða
meira en 5 mánaða starfi.
Ofanritað tekið saman að beiðni
flugmálastjóra, upplýsingar frá
öðrum löndum fengnar símleiðis,
nú í dag.
Reykjavík
27. febrúar 1979,
Valdimar ólafsson
yfirflugumferðarstj.
Á samanburði þessum má sjá,
að algengt hefur verið að flug-
umferðarstjórar á íslandi hafi
unnið um 600 klst. í aukavinnu
hver, á ári, sem svarar til 3—4
mánaða vinnu, miðað við að 42ja
stunda vinnuviku. Yfirvinna ein-
staks flugumferðarstjóra hefur
jafnvel komist upp í 900 klst. á ári,
eða sem svarar meira en 5 mánaða
starfi.
Er þá vinnuárið komið yfir 17
mánuði. Við þetta hafa
flugumferðarstjórar orðið að búa í
nærfellt áratug. Skyldi nokkurn
þurfa að undra, þótt þeim þyki
nóg komið af svo góðu, sérstaklega
þegar þess er gætt, að meðalaldur
starfsmanna í deildinni er yfir 45
ár.
Alþjóðavinnumálastofnun
Sameinuðu þjóðanna í Genf
(I.L.O.) hefur gert úttekt á hinum
ýmsu starfsgreinum. í skýrslu
hennar þar um kemur fram, að
ekkert starf er þekkt í heiminum í
dag, þar sem vinnuálag og stress
er meira en við flugumferðar-
stjórn. Til jafns kemst þar aðeins
starf orrustuflugmanna, þá er þeir
eru í orrustu, segir í skýrslunni.
En víkjum aftur að „stílnum",
þar sem talað er um „aðgerðir
flugumferðarstjóra í febrúarmán-
uði síðastliðnum", en þær aðgerðir
voru í því fólgnar, að þá unnu
tveir flugumferðarstjórar sér það
til óhelgi að leggjast í flensu.
Fyrir kl. 9 á sunnudagsmorgni var
hríngt heim til þeirra og boðuð
koma trúnaðarlæknis stofnunar-
innar.
Ekki var nú að spyrja að
hupplegheitunum, að lofa veikum
mönnum að sofa út á sunnudags-
morgni. Engin dæmi munu vera
til þess á Islandi, að veikindi
tveggja manna hafi verið auglýst
með þeim hætti, sem þá var gert. í
fjölmiðlum glumdu hástemmdar
yfirlýsingar stjórnvalda, svo sem
„veikir að sögn“, „ofboðslaun",
„nýjar kröfuY vikulega", þó svo að
trúnaðarlæknir stofnunarinnar
gengi úr skugga um það, að um
lögleg forföll væri að ræða. Ég vil
hér með skora á viðkomandi ráðu-
neyti, að birta þessar vikulegu
kröfur opinberlega, eða hafa sann-
leikann í heiðri ella.
Varðandi síðari veikindi, þar
sem tvo menn vantar af fjórum á
vakt, er þetta að segja. Annar
þessara manna hefur verið frá
störfum í meira en tvö ár vegna
alvarlegra veikinda. Hinn, sem
telst vera í orlofi, mun vera heima
hjá sér, að nostra við magasárið
sitt, þótt ekki teljist hann var í
veikindafríi. Engu að síður er
þetta sívinsælt fréttaefni
fjölmiðla, þótt svo að varla þætti
það fréttamatur, að loka þyrfti
deildum alþingis Islendinga æ
ofan í æ, sakir fjarvistra hátt-
virtra alþingismanna. Svei mér ef
maður getur bara ekki orðið veik-
ur af þessu öllu saman.
En víkjum þá að breytingu
vaktaskrár flugumferðarstjóra.
Þar segir í „stílnum“, að „vakta-
skránni hafi verið breytt með
tilskildum mánaðar fyrirvara."
Drottinn minn dýri. Er vesa-
lings manninum það virkilega
ekki ljóst, að vinnutími manna er
alger hornsteinn allra kjarasamn-
inga, svo og það hvað greitt er
fyrir vinnuna. Og það svo, að slíkt
er lögverndað, með lögum um
kjarasamninga opinberra starfs-
manna. Vinnutíma manna verður
ekki breytt einhliða, enda eru við
slíku lagabroti þung viðurlög.
Hafi flugmálayfirvöld aðra skoð-
un þar á, verður það vart skýrt á
annan hátt en þann, að þeir hafi
svikist um að læra heimadæmin
sín.
Forsaga þessarar breytingar á
vaktaskránni er þó öllu skraut-
legri. En sagan segir, að starfs-
maður Flugleiða h.f., fyrrverandi
starfsmaður flugmálastjórnarinn-
ar, hafi marsérað inn á skrifstofu
til yfirflugumferðarstjóra, og sagt
þar fyrir verkum um breytinguna.
Þessi „litlivísir" íslenskra flug-
mála var síðan sæmdur hinni
íslensku fálkaorðu fyrir afrekið.
Halelúja.
Og þá sögðu fulltrúar flugmála-
stjórnarinnar „að hraða þyrfti
þjálfun flugumferðarstjóra, og að
ekki skorti vilja stjórnvalda til að
hraða henni."
Um þann vilja mætti skrifa
heila bók, stóra nokkuð, en við
skulum bara taka nýjasta dæmið.
Mánudaginn 21. þessa mánaðar
átti að hefjast námskeið í skipu-
lagningu leitar og björgunarað-
gerða í New York á vegum U.S.
Coast Guard. Er þetta vikunám-
skeið.
Tveir af varðstjórum islensku
flugumferðarstjórnarinnar voru
skráðir til setu á þetta námskeið.
íslendingadagurinn
í Gimli haldin há-
tíðlegur í 90. skipti
fslendingadagurinn vcrður
haldinn hátíðlegur ( Gimli, Mani-
toha í nítugusta skipti í ár. Fjöl-
menn undirhúningsnefnd. íslend-
ingadagsnefndin. hefur allan veg
og vanda af dagskrá hátfðahald-
anna ár hvcrt. og formaður
nefndarinnar í ár er Terry Terge-
son. arkitekt í Winnipeg.
Hann er sonur Sven Johan
Hanssons, kaupmanns á Gimli, og
konu hans, Láru Helgu Júlíusdótt-
ur, sem til skamms tíma var
formaður Islendingafélagsins í
Gimli. Lára fór með hlutverk
Fjallkonunnar á íslendingadegin-
um í Gimli í fyrra.
Terry hefur tekið virkan þátt í
starfi Íslendingadagsnefndarinnar
í mörg ár. Þar er kennd íslenska,
íslensk matreiðsla, íslenskir leikir,
sögur, söngvar og sitthvað fleira.
Lorna er dóttir Ollu og Stefans J.
Stefanssonar, sem er forseti Þjóð-
ræknifélags íslendinga í Vestur-
heimi.
Hátíðahöldin i Gimli eru alltaf
fyrstu helgina í ágúst, og mörg
undanfarin ár hafa þau staðið í
þrjá daga, þ.e. frá iaugardegi til og
með mánudegi.
í ár er gert ráð fyrir fjölmennum
hópi frá íslandi, og venjulega
Ahugi íslenskra stjórnvalda var
slíkur, að klukkan að ganga sjö að
kvöldi föstudagsins 18. þessa mán-
aðar lá loksins fyrir leyfi viðkom-
andi ráðuneytis til fararinnar. Þá
var að sjálfsögðu búið að loka
bönkum, og engan gjaldeyri að fá
til fararinnar. Má þó vera, að
varðstjórarnir hafi stolið glæpn-
um og tekið út gjaldeyri sjálfir á
eigin kostnað, en eins víst er, að
þeir verði að borga námskeiðið úr
eigin vasa. Má af þessu glöggt sjá,
hver hinn raunvérulegi áhugi
stjórnvalda er.
Samskipti íslenskra flugum-
ferðarstjóra við stjórnvöld gegn
um árin er löng raunasaga. Þeir
hafa þó ekki borið vandamál sín á
torg, en tekið því sem hluta af
starfinu, að í þá væri hreytt
ónotum. I samningum þeirra við
stjórnvöld má finna nærri tíu ára'
gömul ákvæði, sem ennþá hafa
ekki verið uppfyllt. Þessi sam-
skipti gegn um árin væru verðugt
verkefni í doktorsritgerð einhvers
fræðimannsins, því að af nógu er
að taka, sem ekki verður rakið hér.
Vissulega væri æskilegra, að þessi
samskipti flugumferðarstjóra og
stjórnvalda væru betri en þau eru,
og eru þau þó, þrátt fyrir allt,
nokkuð góð á ýmsum sviðum. En
enginn þarf að vænta þess, að
endalaust sé hægt að bera á torg
óhróður og rangfærslur, án þess
að þeim verði svarað.
Og sæmra væri stjórnvöldum að
vinna af alvöru að lausn þeirra
vandamála, er að flugumferðar-
stjórninni steðja, heldur en að
láta sífellt sem þeim komi þau
ekki við.
Ella hlýtur að koma að því, að
flugumferðarstjórar sjálfir verði
að taka að sér rekstur þessarar
þjónustu.
Flugmönnum má hins vegar
segja það til hróss, að þeir líta
þessi mál alvarlegri augum. En
alþjóðasamtök þeirra i.f.a.l.p.a.
samþykktu fyrir nokkrum árum
svohljóðandi ályktun.
„(1) When the normal ATC
system of a region is not available,
for safety reasons all commercial
flying within it.s limits should
cease.
(2) IFALPA request the •
assistance of the controllers
organisations in issuing as much
advance warning as possible of all
work to rule actions threatened."
í þessu sambandi má minna á
það, að fyrir nokkrum árum, þegar
flugumferðarstjórar í Frakklandi
fóru í verkfall, var reynt að láta
herinn yfirtaka störf þeirra.
Þær ráðstafanir höfðu hinar
hörmulegustu afleiðingar í för
með sér, strax á fyrsta degi, og
voru síðan afturkallaðar.
Á fátt eitt hefur hér verið
drepið, varðandi málefni flugum-
ferðarstjóra, en fleira látið kyrrt
liggja. Að sinni.
Það er von mín að stjórnvöld
láti nú af þeim ósið, að útbýta
óhróðurspistlum um flugumferð-
arstjóra, því að annars eru þeir
tilneyddir að leiðrétta „stílinn", en
þeir hafa satt að segja nóg annað
að gera.
Terry Tergesen. forseti íslend-
ingadagsnefndarinnar í Kan-
ada.
drífur fólk víða að til þess að taka
þátt í íslendingadeginum í Gimli.
I fyrra munu um 12 þúsund
manns hafa verið á hátíðinni, segir
í frétt, sem Mbl. hefur borizt frá
Jóni Ásgeirss.vni, ritstjóra.