Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 48
ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ1979
Gengissig og eldsneytishækkanir:
Allt ad 40 þúsund
króna hækkun á
sólarlandaferðum
VEGNA KengissÍKs o« eldsneytis-
hækkana hafa íslenzku ferða-
skrifstofurnar hækkað verð á
sólariandaferðum um 10% og eru
4% af þeirri hækkun vegna
gengissigs og 6% vegna
eidsneytishækkana.
Samkvæmt þessu hækka
Spánarferðir um 20—25 þús. kr.,
ítalíuferðir um 25—30 þús. kr.,
Júgóslavíuferðir um 30—35 þús.
kr. og Grikklandsferðir um 35—40
þús. kr.
Tveir menn hand-
teknir í gær vegna
nauðgunarmála
Rannsóknarlögregla ríkisins handtók í gær og
gærkvöldi tvo menn vegna tveggja nauðgunarmála sem
rannsóknarlögreglan íékk til meðferðar um helgina.
Hefur annar maðurinn játað en yfirheyrslur voru að
hefjast yfir hinum þegar Mbl. hafði tal af lögreglunni
seint í gærkvöldi.
Morgunblaðið hafði í gærkvöldi
samband við Arnar Guðmunds-
son hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins. Arnar sagði, að
rannsókn þessara mála væri svo
skammt á veg komin, að eigi væri
hægt að skýra nema að iitlu leyti
frá því sem gerst hefði. Hann
gæti þó skýrt frá því, að fyrri
nauðgunin hefði verið kærð
aðfararnótt sunnudags og átti
hún að hafa átt sér stað í húsi í
Kópavogi. Konan, sem er á
þrítugsaldri, kærði ókunnan
mann fyrir að hafa nauðgað sér
og meitt sig. Seint í gærkvöldi
handtók lögreglan mann sem er
grunaður um nauðgunina og voru
yfirheyrslur að hefjast yfir hon-
um.
Seinni nauðgunin var kærð
aðfararnótt mánudags. Kona á
þrítugsaldri kærði mann fyrir
nauðgun og annan mann fyrir að
hafa veitt aðstoð við nauðgunina,
en hún á að hafa gerzt í
Öskjuhlíðinni. Hinn kærði var
handtekinn í gær og hefur hann
játað. Rannsókn er haldið áfram.
Fyrsta skipti í ára-
tugi að ekki fæst
mjólk fyrir ungböm
Þessa mynd tók ljósmyndari Mbl. á Raufarhöfn rétt fyrir helgina, en hún sýnir vel það ástand sem
ríkir víða um land í maflok. Sjá grein á bls. 16 og 17. Ljósmynd mm. KHstinn
Engin samstaða í ríkisstjórninni um lagasetningu:
„Vona að fari að stytt-
ast í miðlunartillögu”
— segja ráðherrar, en nefndin hefur enga slíka í undirbúningi
ENGIN samstaða hefur náðst innan ríksistjórnarinnar um aðgerðir vegna kjaramálanna. Þak á vísitölu verður
ekki sett fyrir mánaðamót, enda kvaðst Steingrímur Hermannmsson í samtali við Morgunblaðið í gær efast um
að unnt væri að setja bráðabirgðalög um það eitt. Þá er heldur engin samstaða um aðgerðir ( farmannadeilunni.
í dag mun sáttanefnd rfkisins ætla að hafa fundi með undirnefndum f farmannadeilunni. Bæði Steingrímur og
Magnús H. Magnússon kváðust vonast til þess, að brátt sæist miðlunartillaga frá sáttanefnd, en Torfi
Hjartarson, rfkissáttasemjari. formaður nefndarinnar, sagði f samtali við Morgunblaðið f gær að slfkrar tillögu
væri ekki að vænta f bráð.
UPF ÚR samningamálum slitnaði
milli mjólkurfræðinga og vinnu-
veitenda síðastliðinn föstudag og í
kjölfar sáttafundarins tilkynntu
mjólkurfræðingar, að aðeins yrði
heimilt að selja 280 þúsund lítra af
mjólk og undanrennu f þessari
viku. Samkvæmt áætlunum
Mjólkursamsölunnar var gert ráð
fyrir að þörfin í vikunni yrði 660
þúsund lítrar vegna hvftasunnunn-
ar. sem er um næstu helgi. Guðlaug-
ur Björgvinsson, forstjóri Mjólkur-
samsölunnar, sagði í samtali við
Mbl. í gær að ekki hefði verið stætt
að setja framieiðsluna í gang fyrir
_slíka nánös“, svo að undanþág-
unni var hafnað.
Guðlaugur kvað hið alvarlegasta í
þessu vera, að þessi mjólk, sem seld
væri að jafnaði sem neyzlumjólk,
skyr eða jógúrt, færi nú í osta og
smjör, sem allt annað verð fengist
fyrir og allt annar og verri markað-
ur væri fyrir. Hér væri verið að tala
um vörur, sem neytendur greiddu
fullt verð fyrir, en hins vegar um
útflutningsvöru, sem yrði að niður-
greiða með útflutningsbótum og ekki
væri vilji fyrir hendi að framleiða.
Morgunblaðið benti Guðlaugi á, að
barnalæknir, sem starfað hefði í
áratugi í Reykjavík, myndi ekki eftir
slíkum degi sem í gær, að ekki
fengist einu sinni mjólk fyrir ung-
bórn. Guðlaugur Björgvinsson kvað
heilbrigðisyfirvöld ekki tilbúin með
neins konar skömmtunarfyrirkomu-
lag undir slíkum kringumstæðum.
Þó hefði talsvert farið út af mjólk í
síðustu viku og kvaðst hann vona að
fólk ætti enn eitthvað eftir. „Ég hef
boðið upp á það,“ sagði Guðlaugur,
„að útvega mjólk handa ungabörn-
um, ef málið snýst um það og treysti
heilbrigðisyfirvöld sér til þess að
annast skömmtun á henni." Sagði
Guðlaugur að þá yrði eðlilegast að sú
mjólk kæmi frá Mjólkurbúi Flóa-
manna.
Sjá „6 mjólkurfræðingar stöðva
vinnu 160 rnanns" á bls. 2.
Um næstsíðastliðna helgi lögðu
farmenn fram tillögu um breytingu
á vinnutímatilhögun, sem að þeirra
sögn er veruleg tilslökun frá fyrri
kröfum þeirra. Þessar tillögur hafa
vinnuveitendur nú haft til skoðunar
í rúma viku og er þess vænzt að svör
þeirra fari að berast.
Magnús H. Magnússon kvað á-
standið hafa verið rætt frá mörgum
hliðum á aukafundi ríkisstjórnar-
innar í gærmorgun, en hann kvað
niðurstöðu umræðna hafa verið, að
ekki væri ástæða til að sinni að
grípa inn í þróun mála. Morgunblað-
ið spurði Magnús, hvort miðlunar-
tillaga færi að sjá dagsins ljós í
deilunni. Hann svaraði. „Ég er að
vona það, að það fari að styttast í
það.“ Kvaðst Magnús vona að þessi
tillaga kæmi fram nú í vikunni.
Steingrímur Hermannsson kvað
enga ákvörðun hafa verið tekna um
bráðabirgðalög og sagði hann þau
nánast vera orðin of seint á ferðinni
vegna launaútreiknings um
mánaðamótin. „Sumir fá ekki greitt
fyrr en eftir á og að sjálfsögðu
myndu lög ná til þeirra og því yrðu
lögin að virka aftur fyrir sig að því
er varðar þá launþega, sem fá
fyrirframgreitt." Steingriihur sagði
ennfremur: „Afstaða okkar fram-
sóknarmanna er að visitöluþak yrði
að vera í miklu stærri pakka. Er þá
mikil spurning, hvort stjórnar-
skráin heimilar að setja
bráðabirgðalög um vísitöluþak eitt,
hvort hægt sé að rökstyðja þau sem
brýna nauðsyn. Hins vegar erum við
hlynntir því að halda launajöfnun-
arstefnu, en við erum að súpa seyðið
af samningunum, sem gerðu ráð
fyrir visitölugreiðslu upp úr og af
ákveðnum yfirlýsingum um að setja
samningana í gildi. Því er erfitt við
þetta að stríða."
Steingriihur kvaðst telja að sátta-
nefndin yrði að fá tækifæri til að
reyna að gera tillögur. „Við fram-
sóknarmenn förum heldur og ekki
dult með það að við teljum, að
ríkisstjórninni sé ekki stætt ef hún
láti verða neyðarástand af þessum
völdum." Steingrímur kvað sátta-
nefnd verða að meta það hvenær
miðlunartillaga kæmi fram, nefnd-
inni væri ekki stjórnað frá ríkis-
stjórninni. Sér hefði skilizt að til-
lögur vinnuveitenda væru væntan-
legar „og er það von mín a.m.k. að
sáttanefnd geti farið að gera raun-
hæfar tillögur. Þarf það að gerast
sem allra fyrst. Það er eriftt að fá
menn til þess að taka á þessum
rnálurn."
Hreyfilfestingar Flugleiðatí-
unnar voru skoðaðar í nótt
DC-10 breiðþota Flugleiða fór í
skoðun í nótt í New York í
framhaldi af þeirri ákvörðun
Douglas-verksmiðjanna og
handarfsku flugmálastjórnarinn-
ar að hreyfilfestingar á öllum
DC-10 þotum verði rannsakaðar,
en talið er að bilun í hreyfilfest-
ingu hafi valdið flugslysinu f
Chicago s.l. föstudag. Skoðun
fslenzku breiðþotunnar var ekki
lokið þegar Mbl. fór í prentun, en
brottför var áætluð til íslands kl.
04 að fslenzkum tíma.
DC-10 breiðþota Flugleiða var
smíðuð á s.l. ári. Vélin sem fórst í
Chicagó er mun eldri og gerð fyrir
skemmri flugleiðir, var hún m.a.
með minni hreyfla og færri hjól en
íslenzka þotan. Þotur af DC-10
gerð fyrir stuttar flugleiðir eru
léttbyggðari en þotur fyrir úthafs-
flug milli heimsálfa.
Bandaríska flugmálastjórnin
ákvað í gær að stöðva flug allra
DC-10 véla í eigu bandarískra
flugfélaga frá og með deginum í
dag þar til búið væri að skoða þær
allar. í tilskipun bandarískra aðila
varðandi rannsókn er gerð grein
fyrir því hvernig rannsókn skuli
framkvæmd, en hún er aðallega
fólgin í leit að málmþreytu í
hreyfilfestingum.
í fréttatilkynningu frá Flugleið-
um í gær segir, að félaginu hafi
borizt tilkynning um rannsókn
málsins í gær og þá þegar hafi
verið ákveðið að þota félagsins
færi í skoðun strax að loknu því
flugi sem stóð yfir enda þótt vélin
væri ein af nýjustu DC-10 þotun-
um og þar af leiðandi lítil líkindi
til slíkra skemmda.
DC-10 þotur eru nú í notkun hjá
41 flugfélagi víðs vegar um heim.
Samtals hafa þær flogið yfir
fjórar milljónir flugstunda og
flutt yfir 225 milljónir farþega frá
því þær voru teknar í notkun, en
það var í ágúst 1971. DC-10 þotur
fara daglega 756 flug og flytja á
degi hverjum 137.000 manns.