Morgunblaðið - 14.06.1979, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1979
Átakalítið þing B.S.R.B.:
Gefur ekki kost á
sér til endurkjörs
I>INGI Bandalass starf.smanna ríkis og bæja, sem staðið hefur
undanfarna daga á Hótel Sögu, lýkur síðdegis í dag. Fjölmörg mál
hafa vcrið til umfjöllunar á þinginu, svo sem kjaramál, skattamál,
efnahagsmál almennt, orlofsmál og önnur réttindamál B.S.R.B.
stofnun verkfallssjóðs, sérstakt bæjamálaráð innan B.S.R.B.,
uppbygging aðstöðunnar í Munaðarnesi, jafnréttismái og mörg fleiri
mál.
Frekar rólegt hefur verið yfir
þinghaidinu og lítið um stór
ágreiningsmál. Ekki er heldur
búist við miklum átökum í stjórn-
arkjöri í dag, þó nokkur óánægja
sé innan raða bandalagsins með
forystuna síðustu mánuði. Þegar
er Ijóst að Hersir Oddsson fyrsti
varaformaður B.S.R.B. mun ekki
gefa kost á sér til endurkjörs, og
er líklegt talið að Þórhallur
Halldórsson verði kjörinn í hans
stað.
Þá hefur einnig verið nokkur
óánægja með það, að Haraldur
Steinþórsson framkvæmdastjóri
B.S.R.B. er einnig annar varafor-
maður, en varla mun sú óánægja
þó leiða til þess að hann nái ekki
endurkjöri. Þó kann svo að fara að
Örlygur Geirsson gefi kost á sér.
Sjá miðsfðu
Myndun sögu Sáms
leyfð í Skaftafelli
ÞYZKIR kvikmyndatökumenn
hafa sótt um leyfi til að fá að
kvikmynda Sögu Sáms Per Olof
Sundmans hér á landi og sem
kunnugt er af fréttum var óskað
leyfis til að kvikmynda m.a. á
Þingvöllum og í Skaftafelii.
Sigrún Valbergsdóttir
aðstoðarmaður framleiðanda
myndarinnar tjáði Mbl. að leyfi
myndi nú hafa fengist fyrir
kvikmyndatökunni í Skaftafelli,
sem áður hafði verið synjað af
náttúruverndarráði, eftir að
fallist var á skilyrði ráðsins,
m.a. að takan færi fram utan
aðalferðamannatímans, og sagði
Sigrún nú beðið staðfestingar
ráðsins. Þá hefur Þingvallanefnd
til umræðu umsókn um kvik-
myndun á Þingvöllum og kvað
Sigrún vera bráðlega að vænta
niðurstöðu hennar, en taka
myndarinnar hefst í fyrsta lagi
næsta sumar ef leyfi fást.
Ljósm. Mbl. Jóhannes Tómasson
Loftorku ætti ekki að verða skotaskuld úr því að bæta úr þessu
bágborna ástandi atvinnutækis síns, sem svo var komið fyrir eina
dagstund við Grundartanga á dögunum.
Siglfirðmg-
ur á veiðar
eftir helgi
TOGARINN Siglfirðingur. sem
er í eigu útgerðarfélagsins ísa-
foldar í Siglufirði, liggur um
þessar mundir í Reykjavíkur-
höfn vegna bilunar. Skúli Jónas-
son framkvæmdastjóri ísafoldar
sagði að rafall skipsins hefði
bilað fyrir um það bil þremur
vikum en skipið var í fyrstu
veiðiferð eftir eigendaskiptin, en
það var sem kunnugt er áður í
eigu Þórshafnarbúa.
Sagði Skúli að rafallinn hefði
bilað eftir sólarhrings veiði og
skipið hefði síðan verið í Reykja-
vík til viðgerðar. Kvað hann
líklegt að rafallinn hefði blotnað
og komizt í hann selta eftir að
skipið hefði legið í Akureyrar-
höfn og væri viðgerðin alldýr, en
hún væri tryggingarmál. Bjóst
Skúli við að togarinn kæmist á
veiðar um eða strax eftir næstu
helgi.
INNLENT
800 milljóna kr. tap
á kaupfélögum SÍS
VERULEGT rckstrartap varð hjá kaupfélögum innan Sambands
íslenskra samvinnufélaga eða á áttunda hundrað milljónir samanlagt
á síðasta ári. Hjá Sambandinu varð hins vegar rúmlega 80 milljóna
króna tekjuafgangur, að því er fram kom m.a. á aðalfundi
Sambandsins sem hófst í gærmorgun að Bifröst í Borgarfirði. Um
hundrað fulltrúar frá rúmlega 40 Sambandsfélögum sækja fundinn,
auk stjórnar Sambandsins, framkvæmdastjórnar og fjölmargra gesta.
Tekjuafgangur á rekstrarreikn- rekstri Sambandsins á árinu 1978
ingi Sambandsins var 83.6 millj-
ónir á síðasta ári, samanborið við
24,4 milljónir árið 1977. Er þá búið
að taka tii greina afskriftir fasta-
fjármuna að upphæð 697 milljónir
króna, vaxtagjöld 2.171 milljón
króna, opinber gjöld 744 milljónir
og endurgreiðslur til frystihúsa og
kaupfélaga 106 milljónir króna. I
heild varð fjármunamyndun í
1.085 milljónir.
Brúttótekjur Sambandsins
jukust um 61,8% sem er mun
meira en veltuaukningin og eru
helstu ástæður þess mun betri
afkoma skipadeildar en áður og
minnkandi hlutdeild umboðssölu í
heildarveltu. Rekstrarkostnaður
jókst á hinn bóginn mjög mikið og
hækkaði gjaldahlið rekstrarreikn-
Þýzka skemmtiferðarskipið EUROPA var statt í Sundahöfn í
Reykjavík í gær og virðist sem jafnvel hin stærstu skip Eimskipa-
félagsins séu ekki annað en smábátar við hlið þess. Ljósm. Kristján.
inga um 62% milli áranna 1977 og
1978. Þar af voru laun og launa-
tengd gjöld rúmir fimm milljarðar
og höfðu hækkað um 57,9% milli
áranna.
Verulegt rekstartap varð á
kaupfélögunum innan
Sambandsins, eða á áttunda
hundrað milljónir samanlagt. A
árinu 1978 skiluðu þannig 12 félög
af 41 hagnaði að upphæð samtals
70 milljónir, en 28 félög voru gerð
upp með halla samtals nær 780
milljónir króna. Halli umfram
hagnað er því 728 milljónir en var
174 milljónir árið áður. Velta
þessara félaga var samtals 95.062
milljónir og skiptist þannig: Sala
vöru og þjónustu 58.690 milljón-
ir, sala landbúnaðarafurða 26.643
milljónir, sala sjávarafurða 9.739
milljónir.
Heildarvelta Sambandsins var
62.872 milljónir króna á árinu og
jókst hún um 19.443 milljónir eða
44,8% frá fyrra ári. Fjárfestingar
Sambandsins árið 1978 námu 1.174
milljónum. Sjóðir og eigið fé
Sambandsins voru í árslok 1978
6,8 milljarðar og hækkuðu um 1,5
milljarð á árinu.
Starfsmenn Sambandsins voru
1741 í árslok 1978 en 1831 í árslok
1977, þeim hafði því fækkað um
90.
Gert er ráð fyrir að aðalfundin-
um ljúki síðdegis í dag.
Flugið gengið vonum fram-
ar þrátt fyrir röskunina
DC-10 ÞOTA Flugleiða er enn í
flugbanni svo sem aðrar þotur
af þeirri gerð, en bandarísk
flugmálayfirvöld hafa enn ekki
gefið leyfi til að þær mættu
fljúga að nýju. Sveinn
Sæmundsson blaðafulltrúi
Flugleiða sagði í samtali við
Mbl., að mikið álag væri nú á
því starfsfólki félagsins er ynni
í flugdeild og farskrárdeild svo
og á flugstöðvunum í Keflavík
og erlendis.
— Við höfum þurft að breyta
áætlunum og taka upp nýjar
tímasetningar, t.d. færa flug frá
árdegi og yfir á síðdegið, sagði
Sveinn og starfsfólkið hér leggur
á sig mikla vinnu vegna þessarar
röskunar til að allt megi ganga
sem greiðlegast, því mjög mörg-
um ferðum hefur þurft að hag-
ræða og breyta. Stundum hafa
t.d. verið farnar tvær ferðir til
New York með DC-8 og Boeing
720-vél frá Arnarflugi og flaug
t.d. DC-8-vélin beint þaðan til
Luxemborgar, en Boeing-vélin
lenti á íslandi og tel ég að þrátt
fyrir þessa röskun hafi flugið
gengið vonum framar.
ar er Mbl. spurði hann hvort
ákveðið hefði verið að taka
söguna á dagskrá útvarps.
Indriði sagði að lögbann hefði
verið sett á söguna í apríl ’75 og
eftir löng og ströng málaferli,
sem útvarpið hefði sjálft ráðið
lögfræðing til að reka, hefði
lögbanninu verið aflétt. — Ég
hefði þá haldið að lesturinn
myndi hefjast hið fyrsta, sagði
Indriði einnig, og fyndist mér
það undarlegt ef útvarpsráð
tekur einhverja aðra afstöðu en
Hæstiréttur og gerir sig þar með
að æðri dómara.
Undarlegt ef útvarps-
ráð tekur aðra af-
stöðu en Hæstiréttur
— segir Indriði G. Þorsteinsson
- Ég hefi ekki fylgst náið Ólafur R. Einarsson formaður
mcð málinu en mér hefur heyrzt útvarpsráðs upplýsti Mbl. um að
að þrátt fyrir íjögurra ára málið hefði ekki verið rætt í
baráttu sé útvarpsráð eitthvað útvarpsráði enn, nema hvað búið
á tveimur áttum með að Þjófur í væri að kynna niðurstöður
paradís verði a’tur á dagskrá Hæstaréttar, en kvaðst gera ráð
eftir að sagan varð laus úr fyrir að sagan yrði lesin, enda
lögbanni, sagði Indriði G. væri það eindregin ósk höfund-
Þorsteinsson höfundur sögunn- ar.
Indriði G. Þorsteinsson
Vaxtahækkun á gjaldeyrisreikningum;
Rúmar 1.728 milljónir ísl.
króna á 4.100 reikningum
GJALDEYRISREIKNINGAR landsmanna eru nú rúmlega 4.100
talsins í Landsbanka íslands og Útvegsbanka íslands, þ.e. aðalbönk-
um ásamt útibúum þeirra. Samtals nema innstæður þessara reikninga
um 1.728 milljónum íslcnzkra króna.
Vextir á gjaldeyrisreikningum
voru hinn 1. júní sl. hækkaðir og
eru nú 7% í stað 5% áður nema á
vestur-þýzkum mörkum en þar
eru þeir áfram 2%. Hægt er að
stofna gjaldeyrisreikning í
enskum pundum, bandaríkjadöl-
um og dönskum krónum auk
v-þýzkra marka.
í Útvegsbanka íslands ásamt
útibúum hans eru alls kringum
900 reikningar og nema innstæður
þeirra samtals um 453 milljónum
íslenzkra króna. í Landsbanka
Islands og útibúum eru gjaldeyr-
isreikningar alls 3.229 og er inn-
stæða á þeim samtals um
1..275.720.815 kr. umreiknað í ís-
lenzkar krónur. í hverjum gjald-
miðli fyrir sig eru upphæðir í
Landsbankanum og útibúum hans
þessar: Bandaríkjadalir: tæpar
373 milljónir ísl. kr. Ensk pund:
150 ísl. kr. Danskar krónur: 569 m.
ísl. kr. og vestur-þýzk mörk rúmar
183 milljónir ísl. kr.