Morgunblaðið - 14.06.1979, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1979
3
Eru
þeir að
fá 'ann
•?
■
36 LAXAR voru komnir á land
úr Laxá í Aðaldal í gærkvöldi
og verður það að teljast betra
en þokkalegt, þar sem áin hefur
oltið fram í stórflóði alla veiði-
dagana til þessa. Hún var þó
heldur farin að lagast í gær.
Fyrsta veiðidaginn, sunnudag-
inn 10. júní, veiddust 18 laxar,
allir í Kistukvísl og 8—13 pund.
13 pundarinn, sem Árni Jónsson
veiddi, er enn stærsti laxinn sem
komið hefur á land. í fyrradag
komu 10 laxar á land og 8 í gær.
Sem fyrr segir hefur flóð verið
mikið í ánni, margir hólmar
hafa verið í kafi og áin í þokka-
bót kolmórauð. Samt fá þeir
’ann.
Álafoss:
Hráefni endist fram
að sumarleyfistíma
— VIÐ höfum fyrir nokkru gert ýmsar ráðstafanir til að treina okkur
hráefnið þannig að það á að endast okkur fram að sumarleyfum sem
hefjast 6. júlí. sagði Ólafur Ottósson fulltrúi framkvæmdastjóra Álafoss er
Mbl. innti hann eftir gangi mála hjá fyrirtækinu.
Ólafur kvað það ekki rétt, sem
komið hefði fram í fjölmiðlum, að
fólki hefði verið sagt upp störfum
hjá fyrirtækinu, en hins vegar
hefði verið hætt við að ráða kring-
um 20 manns eins og ráðgert hafði
verið í vor þegar verkfall farmanna
kom til framkvæmda. Kvað Ólafur
fyrirtækið eiga nokkuð af þeim
hjálparefnum, er til þyrfti við
framleiðsluna, í skipum í höfninni
og að sumarleyfistíminn yrði
notaður til að afla frekari birgða til
að hafa í ágústbyrjun er sumar-
leyfum lyki, þ.e. ef verkfallið leyst-
ist. Hins vegar sagði hann aö
verkbannið lamaði alla starfsemi
fyrirtækisins ef það kæmi til fram-
kvæmda. Ólafur sagði, að útflutn-
ingur Álafoss hefði gengið nokkurn
veginn eðlilega í farmannaverkfall-
inu, en þó hefðu aukizt flutningar
með flugvélum síðustu vikurnar.
Fœreying-
ar komnir
með helm-
ing kvótans
FÆREYSKU skipin, er verið
hafa að veiðum hér við land, eru
um þcssar mundir búin að veiða
tæplcga helming þess, sem þeim
hefur v?rið heimilað. Skv. upplýs-
ingum Landhelgisgæzlunnar
hafa þau veitt rúmar 8.200 lestir
samtals, þar af rúmar 2.600 lestir
af þorski.
Þröstur Sigtryggsson í stjórn-
stöð gæzlunnar sagði að Færey-
ingar hefðu leyfi fyrir 17.000
tonna afla og mætti þorskur ekki
vera yfir 6.000 tonn af þeim afla.
Landhelgisgæzlan sér um eftirlit
og fær reglulega tilkynningar um
afla færeysku skipanna og hefur
leyfi til að fara um borð í skipin til
að sannreyna að afli sé í samræmi
við uppgefnar tölur.
Auðurí
úrslitin
AUÐUR Bjarnadóttir ballett-
dansari, sem nú keppir í listdans-
keppni í borginni Kuopio í Finn-
landi er ásamt mótdansara sínum
meðal 8 para er komust f úrslit
keppninnar, sem verða í dag.
Áuður keppti í fyrradag í
klassiskum dansi og í gær í
nútímadansi og sagði Örn Guð-
mundsson hjá íslenzka dans-
flokknum að hún og mótdansari
hennar hefðu verið klöppuð upp í
gær eftir atriði þeirra og að þeim
hefði verið vel tekið. Hefði
frammistaða þeirra vakið athygli
og m.a. hefði verið samtal við Auði
í finnska sjónvarpinu. Úrslita-
keppnin fer fram í dag og eins og
áður sagði er Auður þar á meðal,
en keppendur eru alls 20 pör.
2 skip seldu
íBretlandi
TVÖ íslenzk fiskiskip seldu
afla erlendis í gær, bæði í
Brctlandi.
Glófaxi seldi 32,5 tonn í
Fleetwood fyrir 12,9 milljónir
króna, meðalverð 396 krónur
og Dagný seldi 100 tonn í Hull
fyrir 37,7 milljónir króna,
meðalverð 377 krónur kílóið.
Tónleikar íEyjum
í frétt um ljóðatónleika John
Speight, baritónsöngvara og
Sveinbjargar Vilhjálmsdóttur,
píanóleikara í blaðinu í gær féll
niður að tónleikarnir væru í
Félagsheimilinu við Heiðarveg í
Vestmannaeyjum. Tónleikarnir
eru í kvöld kl. 20.30.
Lestu. þessa augtýsingu.
-Og þúveistþaö
i^jasta
í ísLenskum tískuheiinl
í dag klukkan 13 opnar nýjasta tískuversl-
unin í bænum, að Laugavegi 27. Við köll-
um hana ,,Studio“. Hér verður á boð-
stólum fatnaður fyrir ungt fólk á öllum aldri,
— fatnaður frá háborgum tískunnar: New
York, Kaupmannahöfn, London, Róm og
Reykjavík. Hér fæst allskonar fatnaður.
Vanti þig satín — fatnað til að fara í á ball,
eða vanti þig þægilegar gallabuxur til að
gifta þig í. Vanti þig fatnað fyrir fríið eða
fatnað fyrir diskótekið. Vanti þig nærbuxur.
Vanti þig skyrtu. Hér fæst það allt.
Kíktu við og kynntu þér það nýjasta.
Skoðaðu lengstu búð landsins og þá nýstárlegustu
LAUGAVEGI27 / SIMI1 44 15