Morgunblaðið - 14.06.1979, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ1979
Bílaleiga Á.G.
Tangarhöföa 8—12 Ár-
túnshöföa. Símar
85504 og 85544.
Höfum Subaru, Mözdu
og Lada Sport.
Gott útsýni meö
BOSCH
þurrkublööum
Hvert þurrkublaö fer henni og skert útsýni
aem samsvarar yflr ætti aft skipta um
100 kilómetra á rúöunni þurrkublöö minnst
á ári, og til aö koma einu sinni á ári.
i veg fyrir skemmdir á
BOSCH
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820
voss
ELDAVÉLAR - OFNAR - HELLUR
ELÖHÚSVIFTUR
Eldavélar: 4 hraðhellur, klukka, hita-
skúffa, stór sjálfhreinsandi ofn með
Ijósi og fullkomnum grillbúnaði.
Hvítar, gulbrúnar, grænar, brúnar.
Innbyggingarofnar: Sjálfhreinsandi
með Ijósi, fullkomnum grillbúnaði og
viftu, sem m.a. hindrar ofhitun inn-
réttingarinnar.
Helluborð: Ryðfrítt stál, 2 eða 4
hellur, alls 3 gerðir, auk skurðar-
brettis og pottaplötu, sem raða má
saman að vild.
Eldhúsviftur: Útblástur eð hrlngrás,
geysileg soggeta, stiglaus hraðastill-
ing, Ijós, varanleg fitusía. 4 lltir.
Afbragðs dönsk framleiðsla: Vfir-
gnæfandl markaðshlutur í Danmörku
og staðfest vörulýsing (varefakta)
gefa vísbendingu um gæðin.
^onix
HÁTÚNI 6A • SÍMI 24420
Steinunn Jóhannesdóttir
Saga Jónsdóttir
Útvarp kl. 20.10:
„Gæfusmiðir”
í kvöld verður flutt í
útvarpi leikritið „Gæfu-
smiðir“ eftir Ásu Sól-
veigu. Leikstjóri er Gísli
Halldórsson, en með hlut-
verkin fara Steinunn
Jóhannesdóttir og Saga
Jónsdóttir en flutningur
leikritsins tekur tæpa
klukkustund.
Tvær fráskildur konur,
„sú ljósa“ og „sú dökka",
hafa íbúð í sameiningu.
Hvorug þeirra hefur farið
vel út úr skilnaðinum, en
þær ákveða að bjarga sér
sem best þær geta. Um
leið og þær brjóta fortíð
og nútíð til mergjar,
verður þeim ljóst að
skilnaður kostar endur-
mat, bæði hvað þær sjálf-
ar snertir og aðra.
Ása Sólveig er af kyn-
slóð hinna yngri rithöf-
unda, fædd 1945. Hún
hefur þegar skrifað nokk-
ur leikrit fyrir útvarp og
sjónvarp og á síðasta ári
kom út eftir hana skáld-
sagan ,,Leyndarmál
Stefaníu". Aður hefur út-
varpið flutt tvö leikrit
eftir Ásu Sólveigu,
„Gunnu“ árið 1973 og „Ef
ekki í vöku, þá í draumi",
árið 1975.
Útvarp kl. 22.50:
Áfangar
í undanförnum þáttum hefur
veriö fjallað um tónlistarstefnu
sem kölluð hefur verið „nýbylgju-
tónlist" en sú nafngift orkar tví-
mælis að áliti stjórnenda þáttar-
ins. Kynntar hafa verið lítt þekkt-
ar hljómsveitir og um þær fjallað
án þess að þær séu dregnar í dilka
sem dæmi um einhverjar sérstaka
nýbylgju eða þh.
í þessum þætti verður fjallað um
ýmsa listamenn sem fram hafa
komið í Bretlandi á síðustu árum
og reynt að gera þeim einhver skil.
Þar koma fram m.a. Tom Robinson
band, Graham Parker og hljóm-
sveitin Rumour, en sú hljómsveit
hefur leikið á plötum með honum,
auk þess sem hún hefur gefið út
eigin plötur. Ýmsir þeir tónlistar-
menn sem álits njóta í tónlistar-
heiminum í dag m.a. meðlimir
hljómsveitarinnar Rumour eiga
rætur sínar að rekja til hljóm-
sveitarinnar Brinsiey Schwarz sem
starfaði í upphafi þessa áratugar.
Þess má geta að í þeirri hljómsveit
var Nick Lowe sem af mörgum er
talinn einn að mestu áhrifavöldum
svokallaðrar nýbylgjutónlistar
sem vinsælda nýtur um þessar
mundir, m.a. hefur hann stjórnað
upptökum hjá Elvis Costello auk
þess sem Elvis þessi hefur leikið
inn á plötur ýmis laga hans.
Þessi þáttur verður sá síðasti að
sinni sem hefur þessi nýbylgjumál
til umfjöllunar, en í næstu þáttum
munu stjórnendurnir, þeir Ás-
mundur Jónsson og Guðni Rúnar
Agnarsson, róa á önnur mið í
efnisleit,
Útvarpkl. 11.00:
„Útflutningsrádgjafi til leigu”
Þátturinn Iðnaðarmál er á
dagskrá útvarpsins kl. 11 í dag
en í honum verður fjallað um tvö
mál en þau teljast til nýjunga á
sviði íslensks iðnaðar.
í fyrsta lagi verður fjallað um
byggingariðnaðinn í Reykjavík
og nýmæli í því sambandi. Um
þessar mundir eru að hefjast í
Seljahverfi í Breiðholti bygging-
arframkvæmdir og það, sem er
nýstárlegt við þær, er að lóða-
hafarnir hafa haft hönd í bagga
með skipulagi hverfisins, m.a.
hönnun húsa, skipulagi gatna og
þess háttar en slíkt fyrirkomu-
lag hefur ekki þekkst í Reykja-
vík fyrr. í þessu sambandi verð-
ur rætt við Birgi R. Gunnarsson,
einn þeirra lóðahafa sem hönd
hefur haft í bagga með uppbygg-
ingu hverfisins.
í öðru lagi verður fjallað um
nýjung í starfsemi Útflutn-
ingsmiðstöðvar iðnaðarins. Rætt
verður um það sem kallast „út-
flutningsráðgjafi til leigu“, sem
er í því fólgið, að Útflutnings-
miðstöðin gefur minni iðnfyrir-
tækjum kost á að koma sér
saman um útflutningsráðgjafa
sem gefur ráð um markaðsöflun
erlendis. Er í þessu mikil hag-
ræðing fyrir hin minni fyrirtæki
auk þess sem þetta fyrirkomulag
hefur sparnað í för með sér. Er
þetta algerlega ný leið sem
þarna opnast fyrir hin minni
fyrirtæki og mælist hún vel fyrir
að sögn þeirra sem hlut eiga að
máli. Um þetta atriði verður
rætt við Gunnar Kjartansson,
starfsmann Útflutningsmið-
stöðvar iðnaðarins.
Útvarp Reykjavík
FIMMTUDAGUR
14. júní
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar
7.10 Leikfimi. 7.20 bæn. 7.25
Tónleikar.
8.00 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá.
Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Ármann Kr. Einarsson held-
ur áfram að lesa ævintýri
sitt „Ilöllin bak við
hamranau (4).
9.20 Leikfimi.
9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Tónleikar.
11.00 Iðnaðarmál. _ Umsjónar-
menn: Sigmar Ármannsson
og Sveinn Hannesson. Rætt
við Birgi R. Gunnarsson
húsasmíðameistara og Gunn-
ar Kjartansson starfsmann
útflutningsmiðstöðvar iðn-
aðarins.
11.15 Morguntónleikar: Eberh-
ard Wáchter, Craziella
Sciutti og Giuseppe Taddei
syngja aríur úr „Don Giov-
anni“ eftir Mozart/ Trieste-
tríóið leikur Tríó í B-dúr
fyrir píanó, fiðlu og selló op.
99 eftir Franz Schubert.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar.
Við vinnuna: Tónleikar.
SIÐDEGIÐ____________________
14.30 Miðdegissagan: „Kapp-
hlaupið“ eftir K&re Holt,
Sigurður Gunnarsson les
þýðingu sína (8).
15.00 Miðdegistónleikar: Roger
Boutry og Kammersveitin í
Saar Ieika Konsertþátt í G-
dúr fyrir píanó og hljómsveit
op. 92 eftir Robert Schu-
mann; Karl Ristenpart stj. /
Ríkishljómsveitin í Dresden
Ieikur Sinfónfu í d-moll eftir
César Franck; Kurt Sanderl-
ing stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar
17.20 Lagið mitt: Helga Þ.
Stephensen kynnir óskalög
barna.
■HliiliiUJBI
FÖSTUDAGUR
15. júní
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og
dagskrá
20.40 Prúðu leikararnir
Gestur í þessum þætti er
leikkonan Marisa
Berenson.
Þýðandi Þrándur
Thoroddsen.
21.05 Græddur var geymdur
eyrir
í landinu er f gildi verð-
stöðvun.
í þriðja þætti Sjónvarpsins
um yerðlagsmál verður
• fjallað um gildi verðstöðv-
unar og framkvæmd henn-
ar. Meðal annarra verður
rætt við Svavar Gestsson
viðskiptaráðherra og Þráin
Eggertsson hagfræðing.
Umsjónarmaður Sigrún
Stefánsdóttir.
21.20 Rannsóknardómarinn
Franskur sakamálamynda-
flokkur.
Fjórði þáttur. Eldsvoði
Þýðandi Ragna Raghars.
22.55 Dagskrárlok
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
KVÖLDIÐ """
19.35 Daglegt mál, Árni Böðv-
arsson flytur þáttinn.
19.40 íslenzkir einsöngvarar
og kórar syngja
20.10 Leikrit: „Gæfusmiðir“
eftir Ásu Sólveigu.
Leikstjóri: Gísli Halldórsson.
Persónur og leikendur:
Sú ljósa / Steinunn
Jóhannesdóttir
Sú dökka / Saga Jónsdóttir
21.15 Gestur í útvarpssal: Elfr-
un Gabriel frá Leipzig leikur
píanóverk eftir . Mozart,
Sjostakovitsj, Geissler og
Debussy.
21.45 Á ferð með Jóni Jónssyni
jarðfræðingi. Tómas Ein-
arsson og Jón leggja leið
sfna um nágrenni Hafnar-
fjarðar.
22.15 Einsöngur: Edith Mathis
syngur lög eftir Mozart;
Bernhard Klee leikur á pí-
anó. '
22.30 Veðurfregnir, Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.50 Áfangar. Umsjónar-
menn: Ásmundur Jónsson og
Guðni Rúnar Agnarsson.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.