Morgunblaðið - 14.06.1979, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNI 1979
Ríkisstjórnin
og Thorlacius
Þing BSRB stendur nú
yfir. Það virðist svo sem
engra átaka sé Þaðan að
vænta og flestir búast
við, að Kristján Thorlaci-
us og Haraldur Steín-
Þórsson verði kosnir
áfram, eins og ekkert hafi
í skorizt. Og vitaskuld
verður látiö líta svo út
sem Þeir sóu óumdeildir
forystumenn opinberra
starfsmanna.
í setningarræðu sinni
var Kristján Thorlacius
meira að segja svo kot-
roskinn aö láta Þetta út
úr sér: „Fyrsta skrefið
sem stíga Þarf nú er að
ríkisstjórnin snúi sér
beint til samtaka launa-
fólks og nái við Þau
samningum um viðun-
andi lágmarkslaun í Þjóð-
félaginu og verðtrygg-
íngu kjara almennt.“
Thorlacius haföi orö á,
að núverandi stjórnar-
flokkar kæmu sér ekki
saman um einföldustu
dægurmál, en pess er
Kristján Thorlacius
líka skemmst að minn-
ast, aö hann kom sér
ágætlega saman við
ríkisstjórnina, Þegar
hann samdi við hana um
Það að fella niður 3%
umsamda grunnkaups-
hækkun opinberra
starfsmanna og var ekki í
rónni fyrr en löggjöf haföi
verið sett um aö aðrir
yrðu sviptir henni líka.
En opinberir starfs-
menn voru bara ekki meö
á nótunum og höfnuðu
Þessu ágæta samkomu-
lagi. En Kristján Thorlaci-
us virðist lítið af Þessari
rassskellingu hafa lært,
Því aö enn er hann að
tala um Það, aö ríkis-
stjórnin eigi aö snúa sér
til Þeirra Haralds, eins og
peir hafi raunverulega
eitthvað um Það að segja,
hver sé vilji opinberra
starfsmanna.
Ég vil lög,
segir Snorri
Fyrir ári hefði senni-
lega engum dottið í hug,
Haraldur Steinpórsson
aö forsti AlÞýöusam-
bandsins geröi Þaö að
kjarna síns málsflutnings
í sjónvarpsÞætti meö
framkvæmdastjóra
Vinnuveitendasam-
bandsins að bráða-
birgðalög yrðu sett í
kaupgjaldsmálum. En sú
er Þó oröin raunin á. Og
Þaö sem meira er:
AlÞýðusambandiö hefur
hafnað viðræðum um
launamál á sama tíma og
opinberir starfsmenn og
raunar fleiri hafa fengið
3% grunnkaupshækkun,
en meðlimir Alpýöusam-
bandsins ekki neitt.
Ríkisstjórnin á að lög-
binda Þessi 3%, segir
forseti AlÞýöusambands-
ins. En Þegar hann er
spuröur að pví, hvort
hann geti Þá fallizt á, aö
jafnframt sé lögákveöiö,
að ekki skuli koma til
frekari grunnkaups-
hækkana á árinu, aftekur
hann Það með öllu.
Samningar eiga að vera
lausir eftir sem áður og
Snorri Jónsson
er Þá vandséð, hvers
vegna löggjafinn skuli
grípa inn í.
Þessi afstaða forseta
AlÞýðusambandsins er
annars dæmígerð fyrir
ábyrgðarleysi Þeirra
verkalýðsleiötoga, sem
fylgja AlÞýöubandalaginu
eða kommúnistum aö
rr.álum. Löggjafinn má
grípa inn í kjarasamninga
annarra stétta og skerða
Þeirra kjör, segja Þeir í
AlÞýöusambandinu, og
krefjast Þess jafnvel að
Það sé gert. Vinstri stjórn
má krafsa og klóra í
kaupgjaldsvísitöluna
eins og hana lystir og
viðbrögð Verkamanna-
sambandsins eru ekki
önnur en Þau að gefa
forsætisráðherra pylsu,
sennilega rauða.
Það er ekki undarlegt,
Þótt gagnrýni launÞega á
Þá Snorra, Guðmund
jaka og Benedikt Davíðs-
son fari vaxandi með
hverjum deginum sem
líður.
total-modulisiert
Fyrir rúmlega 10 árum settu AEG TELEFUNKEN verksmiðjurnar á markaöinn fyrstu
PAL litsjónvarpstækin, en þá hófust litsendingar eftir því kerfi í Vestur Þýskalandi.
Síðan hafa yfir 40 lönd, með yfir 700 milljón íbúa tekið TELEFUNKEN PAL KERFIÐ i notkun.
íslensk yfirvöld tóku einnig þá skynsamlegu ákvörðun, að velja PAL KERFIO
FRÁ TELEFUNKEN, fyrir íslendinga.
Allir framleiðendur PAL LITSJÓNVARPSTÆKJA, framleiða tæki sín undir einkaleyfi
TELEFUNKEN^ og greiða þeim einkaleyfisgjöld.
TELEFUNKEN er eina fyrirtækið sem framleiðir litsjónvarpstæki sín með 100%einingarkerfi,
sem einfaldar og flýtir viðgerðum.
TELEFUNKEN notar 20% framleiðslutíma hvers litsjónvarpstækis í reynslu hinna einstöku
hluta tækisins, auk þess er hvert tæki reynt í 24 tíma áður en það yfirgefur verksmiðjurnar.
Lítil orkunotkun (aðeins 140 wött) gefur lítið hitaútstreymi og eykur endingu tækisins.
TELEFUNKEN litsjónvarpstæki eru með 110° ,,lnline“ myndlampa, sem sýnir jafna
og góða mynd á skerminum, út í öll horn, auk þess sem tækin eru þynnri,
en áður hefur verið hægt að framleiða þau. Fjarstýring er að sjálfsögðu fáanleg.
Þrátt fyrir yfirburði TELEFUNKEN PAL LITSJÓNVARPSTÆKJA ERU ÞAU
SAMKEPPNISFÆR í VERÐI.
IBRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820
AEG TELEFUNKEN
B4NN UPP
PAL UTSJONIÆRPSKERFIÐ
á " ^
Wagoneer árgerð 1977
Viljum selja Jeep Wagoneer, dýrustu útgáfu
með quadra-track, sjálfskiptingu, V-8 mótor,
toppgrind, hliðarlistum og fl. og fl. Bílnum
hefur verið vel við haldið.
Gísli Jónsson & Co. h.f.
Sundaborg 41, sími 86644.
Flauelsbuxur
Meö fellingum — 20% polyester — 80% bómull
Stæröir 27“—34“
Litir:
Beige
Grænar
Brúnar
Austursrræti
0