Morgunblaðið - 14.06.1979, Page 13
MORGIJNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1979
13
> ■ i
A ROKSTOLUM
HANNES
HOLMSTEINN GISSURARSON:
Er jafnadarstefn-
an alþjóðleg?
Fyrir skömmu barst mér
bók eftir hinn heimskunna,
bandaríska hagfræðing
Arthur M. Okun, sem var
einn aðalráðunautur
Kennedys og Johnsons á
sjöunda áratugnum. Bók
hans ber nafnið „Jöfnuður
og hagkvæmni“ (Equality
and Efficiency), kom út 1975
og er um nokkur megin-
ágreiningsefni stjórnmál-
anna. Mér fannst þegar við
lestur fyrstu blaðsíðna bók-
ar hans andinn svipaður og í
bók Gylfa Þ. Gíslasonar
prófessors, fyrrverandi for-
manns Alþýðuflokksins,
Jafnaðarstefnunni, sem
kom út 1977, enda hefur
Gylfi vitnað með velþóknun
til Okuns í minni áheyrn. En
ég komst að því, þegar ég
bar efni þeirra nánar sam-
an, að það er á mörgúm
blaðsíðunum ekki einungis
svipað, heldur hið sama með
örlitlum orðalagsmun!
Sama efnið er á bls.
20—22 í bók Gylfa og á bls.
6—9 í bók Okuns. Til dæmis
má taka, að Gylfi segir á bls.
20: „Það er einkenni mann-
réttinda, að það kostar ekk-
ert að njóta þeirra, — gagn-
stætt því, sem á sér stað um
efnisleg verðmæti, fæði og
klæði, húsnæði o.s.frv. Menn
virðast yfirleitt sammála
um, að svo skuli vera. En
nokkurt íhugunarefni er
engu að síður tengt þessari
meginreglu. Ef það kostaði
eitthvað að hringja á
slökkviliðið, gæti verið, að
menn hugleiddu nánar en
menn gera, hvort það sé
nauðsynlegt í ákveðnu til-
viki.“
En Okun segir á bls. 6:
„An obvious feature of
rights — in sharp contrast
with economic assets — is
that they are acquired and
exercised without any
monetary charge. Because
citizens do not normally
have to pay a price for using
their rights, they lack the
usual incentive to economize
on exercising them. If the
fire department charged for
its services, people would be
at least a little more
reluctant to turn in an
alarm and perhaps a bit
more systematic about fire
prevention." Orðalagsmunur
er örlítill, en efnið hið sama.
Sama efnið er á bls.
25—30 í bók Gylfa og á bls.
10—31 í bók Okuns, þótt
frásögn Gylfa sé styttri. Og
efnið á bls. 30—35 í bók
Gylfa minnir mjög á efnið á
bls. 32-34 og 51-64 í bók
Okuns, þótt Gylfi taki alls
ekki eins afdráttarlaust
undir rökin fyrir einkafram-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
takinu og Okun, sem segist
sammála Friedrich A.
Hayek um sumt!
Sama efnið er á bls.
36—39 í bók Gylfa og á bls.
42—51 í bók Okuns. Til
dæmis má taka, að Gylfi
segir á bls. 36: „Hér vaknar
spurningin um það, hvað
ráði verðmæti framlags
hvers einstaklings á hrein-
um samkeppnismarkaði. Er
endurgjaldið fyrir þetta
framlag í raun og veru sann-
gjarnt? Sú þjónusta, sem
maður getur lagt fram í
þágu framleiðslunnar á
hugsanlega hreinum sam-
keppnismarkaði, getur verið
fólgin í eða átt rót sína að
rekja til ferns: (1) Þeirrar
þekkingar og þeirra eigna,
sem maður hefur aflað sér á
lífsleiðinni. (2) Þeirra hæfi-
leika, sem hann hlaut í
vöggugjöf, og þeirra eigna,
sem hann hlaut í erfðir. (3)
Þeirrar áreynslu eða þess
átaks, sem hann er reiðu-
búinn til þess að leggja á
sig. (4) Framboðs á og eftir-
spurnar eftir þjónustu, svip-
aðri þeirri, sem hann leggur
fram.“
En Okun segir á bls. 42:
„What determines the
competitive market value of
the services of any citizen?
Are the resulting rewards
really fair? The productive
contribution of the services
I could sell in a hypothetical
competitive market depends
on four sets of elements: (1)
the skills and assets that I
have acquired through my
lifetime; (2) the abilities and
talents with I was born; (3)
the effort I am willing to
expend; and (4) the supply
and demand situations for
other services related to the
ones I can offer.“ Annar
orðalagsmunur er eftir
þessum.
Aðrir kaflar bókar Gylfa
eru flestir teknir óbreyttir
úr bæklingi hans,
Jafnaðarstefnunni, sem
kom út 1949.
En hver er skýringin á
þessu sama efni? Jafnaðar-
stefnan er að vísu alþjóðleg,
en varla svo alþjóðleg, að
ríkisafskiptasinnum beri
saman í einu og öllu. Hvergi
er til Okuns vitnað eða í bók
hans vísað í
Jafnaðarstefnunni. Ég
bendi á þetta í þeirri von, að
einungis hafi verið gerð,
mannleg mistök, að Gylfi Þ.
Gíslason, sem notið hefur
virðingar sem hagfræðingur
og stjórnmálamaður, skýri
þetta.
Lawrence Wheeler
íslenzk-
ættaður í
Lincoln-
center
BANDARÍSKUR lágfiðluleikari
af íslenzku bergi brotinn.
Lawrence Wheeler. hélt fyrir
skömmu tónleika í Lincolncenter
í New York. Móðir Lawrence.
Jenfrid Hallgrímsson, er frá
Siglufirði en er búsett í Banda-
rfkjunum. Jenfrid er dóttir Kaja
Hallgrímsson og Kristjáns
Hallgrímssonar. Lawrence hefur
leikið með ýmsum sinfóníuhljóm-
sveitum Bandaríkjanna. Ilann er
29 ára gamall.
Arið 1970 lék Lawrence með
Sinfóníuhljómsveit íslands á
Listahátíð og sama ár lék hann
fyrir Ríkisútvarpið. Lawrence er
nú tónlistarprófessor við Tón-
listarháskólann í Houston í Texas
þar sem hann býr.
Ljóðakvöld
í stúdenta-
kjallaranum
Á föstudagskvöldið n.k. 15. júní
verður ljóðakvöld í Stúdenta-
kjallaranum og koma þar ýmis
skáld fram og lesa úr verkum
sínum. Auk þess verður á dagskrá
tónlist og vínveitingar á boðstól-
um. Frá stúdentaráði.
TOGCUR
Töggur hf heitir nýja SAAB
umboðið.Við erum á sama
stað og fyrra umboðið
að Bíldshöfða 16, ínýja
SAAB húsinu.Og það er töggur
í okkur. Auk þess að bjóða
1979 árgerðir hinna viður-
| kenndu og vönduðu SAAB og
** Autobianchi bíia getum
= við nú útvegað nokkra
SAAB 99 af 1978
árgerð, sjálfskipta og
hlaðna allskyns lúxus,
á sérstöku verði.
TOGGURHF
SAAB
UMB&ÐIÐ
SAAB 99 1978 sjálfskiptur á sérstöku veröi
BILDSHOFÐA 16 — SIMI 81530