Morgunblaðið - 14.06.1979, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1979
15
íslendingar sækja kvikmyndahús mikiu oftar en frændur þeirra á
Norðurlöndunum. Einnig hefur það komið í ljós f könnun að þáttur
bandarískra kvikmynda hér á landi er mun stærri en á öðrum
Norðurlöndum. Árið 1947 voru 79,5% af kvikmyndum sem hér voru
sýndar bandariskar eða 376 talsins. Þáttur bandarískra kvikmynda
var næstur í Svíþjóð eða 61,9% af sýndum kvikmyndum þar í landi.
ástarsögumyndirnar og svokall-
aðar diskómyndir sem eru orðnar
vinsælar hjá ungu kynslóðinni
eftir að John Travolta kom fram á
sjónarsviðið. En þessar diskó-
myndir geta bæði verið fallegar og
grófar og fullar ofbeldi.
Eitt af þeim vandamálum sem
diskómyndirnar hafa innleitt er
ljótt og ósæmilegt orðbragð sem
þýðendur eiga í miklum vandræð-
um með,“ sögðu efirlitsmennirnir.
Lélegar kvik-
myndir skatt-
lagðar í Finnlandi
Meðal þess sem rætt var á fundi
kvikmyndaeftirlitsmanna var
hvernig stemma skuli stigu við
ofbeldi í kvikmyndum. Meðal
annars var rætt um hugmyndir
sem fram hafa komið í Svíþjóð um
að lækka flutningsgjald þeirra
kvikmynda sem þykja góðar.
Einnig kynntu finnsku fulltrúarn-
ir það fyrirkomulag sem uppi er
þar í landi að lélegar kvikmyndir
eru skattlagðar um 30%, auk þess
sem rætt var um frekari leiðir sem
fara mætti í baráttunni við ofbeldi
í kvikmyndum.
íslendingar sækja
kvikmyndahús oftar
en nágrannarnir
í könnun sem Jesper Bruun
Pedersen gerði um kvikmyndir og
kvikmyndaeftirlit á Norðurlönd-
unum kemur það í ljós, að saman-
borið við Dani fara íslendingar
mjög oft í bíó. Árið 1975 fór hver
Reykvíkingur 15 sinnum í bío yfir
árið, á meðan hver Kaupmanna-
hafnarbúi fór 4 sinnum. Þar kem-
ur einnig fram, að árið 1974 voru
199 kvikmyndir sýndar á Islandi
en 204 árið 1975 sem er % hlutar
af kvikmyndaframboðinu í Dan-
mörku sem hefur 25 sinnum fleiri
íbúa.
Frá árinu 1967 til 1974 voru 42
kvikmyndahús á íslandi en flest
voru þau í Svíþjóð á þessum tíma,
1329 árið 1974. Áberandi er í
könnuninni, hversu miklu oftar
Islendingar sækja kvikmyndahús
en nágrannaþjóðir okkar. Árið
1974 fór hver íslendingur 10,8
sinnum í bíó meðan Danir fóru 3,8
sinnum, Svíar 2,9 sinnum, Norð-
menn 4,5 sinnum og Finnar 2,2
sinnum. Tala kvikmyndahúsgesta
hefur farið lækkandi á Norður-
löndum öðrum en Islandi. Árið
1967 sótti hver íslendingur kvik-
myndahús að jafnaði 10,7 sinnum
en síðan fór talan lækkandi til
ársins 1970. Síðan hefur kvik-
myndahúsferðum Islendinga
fjölgað jafnt og þétt og má senni-
lega leita orsaka þess i því að
nýjabrumið er farið af
sjónvarpinu.
„Með lagasetningu
má stuðla að því að
vandaðar kvikmynd-
ir verði sýndar“
„Það er ákaflega gagnlegt fyrir
okkur að fá tækifæri til að skipt-
ast á skoðunum við kvikmynda-
eftirlit hjá nágrannaþjóðum
okkar. Þannig fáum við meiri
yfirsýn yfir hvað er að gerast á
þessu sviði úti í hinum stóra
heimi. Auk okkar í kvikmynda-
eftirlitinu hér sátu þennan fund
Magnús Magnússon fulltrúi í
menntamálaráðuneytinu og Guðr-
ún Erlendsdóttir Iögfræðingur en
þau eiga bæði sæti í nefnd sem
skipuð hefur verið til að endur-
skoða íslenzk lög um kvikmynda-
eftirlit," sagði Hulda Valtýsdóttir,
einn hinna íslensku kvikmynda-
eftirlitsmanna.
„Þróun í þessum málum er ör
eins og víða. Nýir fletir koma fyrr
upp á Norðurlöndum en hjá okkur
svo við getum notfært okkur
reynslu manna þar að svo miklu
leyti sem hún samræmist íslenzk-
um aðstæðum — bæði varðandi
kvikmyndir ætlaðar börnum,
unglingum og fullorðnum.
Solshenitsyn sagði í frægri
ræðu nú í vetur, sem birt var í
Morgunblaðinu, að ýmislegt væri
varhugavert meðal vestrænna
þjóða í sambandi við þróun kvik-
myndaiðnaðarins og átti þá sér-
staklega við þau spillandi áhrif
sem vaxandi framleiðsla ofbeldis-
kvikmynda gæti haft á ungt fólk.
Og þá er auðvitað gerður glöggur
greinarmunur á kvikmyndaiðnaði
og kvikmyndalist. Ég held að það
sé full ástæða til þess að fólk
almennt taki afstöðu til þessa.
Yfirleitt þykir ekki ákjósanlegt
að viðhafa skýlaus boð og bönn í
sambandi við sýningar á kvik-
myndum og okkar hlutverk er ekki
fólgið í öðru en banna sýningar
fyrir börn yngri en 16 ára, en við
getum því miður lítið gert til að
örva kvikmyndahúseigendur til að
taka til sýningar góðar barna-
myndir, þótt það væri æskilegt.
Hins vegar má með lagasetn-
ingum á ýmsan hátt stuðla að því
að vandaðar og góðar kvikmyndir
veljist til innflutnings bæði fyrir
börn og fullorðna og það hefur
verið gert bæði í Finnlandi og
Svíþjóð.
Ef samstaða um þetta næst
meðal þeirra þjóöa þar sem mark-
aðurinn er stærstur, má vænta
þess að slíkt geti orðið framleið-
endum leiðarvísir og aðhald."
r.m.n.
Röskur mán-
udurí „glaón-
inginn”
SKATTSKRÁIN í Reykja-
vík verður lögð fram síðast
í júlímánuði, væntanlega á
tímabilinu 25. til 31. júlí, að
því er Gestur Steinþórsson,
skattstjóri í Reykjavík,
tjáði Morgunblaðinu í gær.
Sagði Gestur þetta vera
svipaðan tíma og verið
hefði undanfarin ár.
Skattstjóri sagði að
miklar hækkanir væru á
gjöldum frá því sem var í
fyrra, enda væru laun
miklu hærri, en að öðru
leyti yrði það með svipuðu
sniði og undanfarin ár.
Tökum m.a. handsnyrtingu
andlitsböö og vax meöferð.
húöhreinsun Ath. 15% afsl. af
litun húöhreinsun
plokkun fyrir skólafólk.
Snyr,is.°,an HRUND
Sími 44088, j