Morgunblaðið - 14.06.1979, Qupperneq 17
Anna Tómasdóttir
Unnur Aöalsteinsdóttir
Margrét Eiriksdóttir
Etin Steinþórsdóttir
Hrafnhildur Siguröardóttir
Gunniaugur Guöjónsson
Eva Gestsdóttir
Þórdis Kristjánsdóttir
Unnur Helgadóttir
Margrét Karlsdóttir
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTIJDAGUR 14. JIINI 1979
Sigurður Líndal.
samninga og afleiðingin yrði sú
að hún bæri ábyrgð á þeim í stað
hinna formlegu samningsaðila.
„Afleiðingin af þessu verður
sú, að stjórnskipun landsins er
stórlega raskað," sagði Sigurður.
„Stjórnmálin eru með þessum
hætti flutt frá Alþingi og öðrum
löglegum handhöfum þjóðfélags-
valds til hagsmunaaðila vinnu-
markaðarins. Og til hvers er þá
verið að kjósa til Alþingis og
mynda ríkisstjórnir, úr því aðil-
ar vinnumarkaðarins ráða hin-
um veigamestu þáttum stjórn-
mála til lykta, og það án þess að
bera neina ábyrgð og án þess að
nokkur trygging sé fyrir tilhlýði-
legri málsmeðferð, svo sem því
að ákvarðanir séu teknar lýð-
ræðislega."
Sigurður sagði að með bak-
hjarl í verkfallsréttinum gætu
þeir stjórnmálamenn, sem teldu
sig tala fyrir munn verkalýðs-
hreyfingarinnar krafist hvors
tveggja í senn, launajöfnunar og
samninganna í gildi. Þetta væri
ósamrýmanlegt.
Ef verkfallsstjórarnir brjóta
odd af oflæti sínu og reyna að
útskýra og réttlæta afstöðu, sem
engin heil brú er til í, væri flúið
yfir í merkingarlaust vígorða-
safn úreltrar og afbakaðrar
þjóðfélagsrýni frá 19. öld og
hrópað um stéttaþjóðfélag, auð-
stétt og ráðandi stétt. Og það án
nokkurrar útlistunar eða heim-
færslu upp á raunveruleikar
aðstæður, en gefin væru fyrir-
heit um stéttlaust og átakalaust
þjóðfélag, þar sem fólkið ætti
allt og réði öllu en hvergi væri
þó til nema sem heilaspuni
draumóramanna.
„Með slíkt vegarnesti ofbeldis-
hneigðar, þekkingarleysis og
draumóra," sagði Sigurður, „eru
menn að sjálfsögðu alófærir til
að takast á við nokkurn vanda.
Og undir forystu manna með
slíkt veganesti verða lífskjör
aldrei bætt.“
Rainbow
Warrior á
Tuttugu Qg fimm kon-
ur sýna í Asmundarsal
TUTTUGU og fimm ungar myndlistarkonur halda um þessar mundir
sýningu í Ásmundarsal. Sýningin var opnuð 9. júní. en henni lýkur 19. júlí.
Á sýningunni gefur að líta flestar
tegundir myndlistar en hver mynd-
listarkvennanna vinnur með sinni
tækni. Að sögn Sólveigar Aðal-
steinsdóttur og Sigríðar Guðjóns-
dóttur er tilgangurinn með þessari
sýningu að ná saman þeim konum
sem hættar eru í skóla en vinna
heima með verk sín, og sjá hvað þær
eru að gera. Flestar kvennanna sem
sýna í Ásmundarsal eru húsmæður
og margar lítt kunnar.
Fyrsta dag sýningarinnar sýndu
Guðrún Erla Geirsdóttir lifandi
verk. Hún kom inn klædd sem
fíngerð kona en er yfir lauk var hún
komin í „hippaklæðnað".
Auk þeirra Sólveigar, Sigríðar og
Guðrúnar eiga eftirtaldar konur
verk á sýningunni: Ása Gíslason,
Ásta Ólafsdóttir, Borghildur Ósk-
arsdóttir, Brynhildur Ósk Gísla-
dóttir, Edda Jónsdóttir, Elín
Magnúsdóttir, Guðrún Erla Geirs-
dóttir, Guðrún Auðunsdóttir, Guð-
rún Marinósdóttir, Guðrún Hrönn
Ragnarsdóttir, Guðrún Ásta Þor-
kelsdóttir, Herborg Auðunsdóttir,
Hjördís Bergsdóttir, Ingibjörg
Sigurðardóttir, Margrét Kolka Har-
aldsdóttir, Margrét Jónsdóttir,
Sigdri Valtingojer, Sigríður Braga-
dóttir, Sigríður Guðjónsdóttir,
Sigrún Eldjárn, Sigrún Sverrisdótt-
ir, Sólveig Aðalsteinsdóttir, Svala
Sigurleifsdóttir, Valgerður Bergs-
dóttir og Þórunn Guðmundsdóttir.
Sólveig Aðalsteinsdóttir ásamt þeim þremur skúlptúrverkum sem hún
á á sýningunni í Ásmundarsal.
leiðámiðin
Ilvalveiðiskipin eru nú á
miðunum, en komnir eru á land
10 hvalir frá því veiðar hófust í
byrjun vikunnar. Skip Green-
peace hreyfingarinnar, Rain-
bow Warrior, er á leið á miðin
en hefur ekki enn haft sig í
frammi til að trufla hvalveið-
arnar.
Þröstur Sigtryggsson hjá
Landhelgisgæzlunni upplýsti að
gæzlan fengi fréttir frá hval-
stöðinni um hvar skipið væri
statt og myndi fylgjast með
gangi mála, en hann kvað mik-
inn fréttaflutning af ferðum
skips Greenpeace frekar til þess
fallinn að vekja athygli á mál-
stað hreyfingarinnar, en sá væri
einn aðaltilgangur hennar.
AUGLYSINGASIMINN ER:
22480 ^
JfivrpMnliIobib
Lög og alþjóölegar reglur um flugfargjöld Þaö er ekki óeölilegt þótt mörgum gangi
eru flókin, svo flókin aö oft er talaö um illa aö rata - en þaö kemur ekki að sök.
,,fargjaldafrumskóginn“. Þess vegna lítum Allir sem hyggja á ferö meö okkur
viö á umboösmenn okkar og starfsfólk á fá örugga leiösögn.
söluskrifstofum, sem leiösögumenn íþeim Þeir láta í té nauösynlegar upplýsingar um
skógi.
Þaö er margt sem hefur áhrif á endanlegt
fargjald s. s. lega ákvöröunarstaöar-
lengd feröar, fjöldi þeirra er feröast
saman - aldur þeirra - hvernig gist er
og fleira og fleira.
feröatilhögun - og leiösögumaöurinn
um fargjaldafrumskóginn finnur hagkvæmustu
leiöina og lægsta mögulega fargjaldiö -
og ekki bara þaö hann pantar líka hótel og
bílaleigubíla, svo eitthvaö sé nefnt.
STARFSFÓLK OKKAR VEITIR
FARSÆLA OG ÖRUGGA LEIÐSÖGN
ALLA LEIÐ.
FLUGLEIÐIR