Morgunblaðið - 14.06.1979, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. JÚNI 1979
27
veitingaþjónaskóli Islands var
stofnsettur 1955 (nefnist nú
Hótel- og veitingaskóli íslands),
og var Sigurður yfirkennari skól-
ans allt til ársins 1973, þar af
settur skólastjóri í tvö ár. Af
þessari upptalningu má ráða að
Sigurður hefur verið aðalfræðari
og leiðbeinandi geysimargra
framreiðslumanna og allir minn-
ast þeir hans með hug þakklætis,
virðingar og hlýju.
Eins höfuðþáttar í lífi Sigurðar
er enn ógetið, en það eru ritstörf.
Á árunum 1929 til 1949 komu frá
hans hendi sjö bækur, og eru það
skáldsögur, Ijóð og smásögur.
Ég vil að endingu flytja frá
Félagi framreiðslumanna sam-
úðarkveðju til eftirlifandi konu
Sigurðar, Mikkelínu Maríu
Sveinsdóttur, barna þeirra og
annarra vandamanna.
Sveinbjörn Þorkelsson,
formaður.
bar einkenni ættar sinnar með
miklum glæsibrag. Frá henni staf-
aði hlýju og gleði og barngóð var
hún með afbrigðum.
Ég kynntist Kristínu fyrir 21
ári er ég kvæntist bróðurdóttur
hennar Jóhönnu Gunnbjörnsdótt-
ur. Jóhanna dvaldist raunar tvo
vetur þá sex-sjö ára gömul hjá
þeim mæðgum þegar þær áttu
heima á Akureyri að Brekkugötu
30. Minntist hún oft þeirrar miklu
hlýju og ástúðar, sem hún naut
hjá þeim Kristínu og Arnþrúði,
ömmu sinni. Þá tvo áratugi, sem
kynni okkar Kristínar stóðu, sá ég
hana aldrei bregða skapi. Mikil
tengsl voru þó milli heimilanna að
Nökkvavogi 6 og Nökkvavogi 41,
enctjá skyldleiki og vinátta mikil.
„Stína frænka“ var raunar stórt
og mikið hugtak á heimili mínu öll
þessi ár, hugtak, sem tengt var
gleði, hátíð og ástúð. Börnunum á
Nökkvavogi 41 fannst ekkert
skemmtilegra en fara í heimsókn
til Stínu frænku. Hjá henni urðu
fáeinir kubbar að ótrúlegustu
ævintýrahöllum, ekkert var hvers-
dagslegt, soðin ýsa og skyrhrær-
ingur urðu að ógleymanlegum
krásum en hápunktur heimsókn-
anna var þó að sjálfsögðu þegar
Stína frænka sagði eða las sögu.
Þá var nú heldur betur hlustað
ekki síður en hálfri öld áður þegar
hún sagði og lék Loðinbarða sögu
fyrir bræður sína. I mörg ár var
það föst venja að heimilisfólkið á
Nökkvavogi 41 heimsótti þau
Kristínu á nýársdag. Var þá ýmis-
legt til skemmtunar og sýndu þeir
bræður oftast myndir úr byggð
eða óbyggð en þeir eru miklir
ferðamenn og snillingar við
myndatöku. Þó er mér ekki síður
minnisstætt hver sægur jóla-
kveðja barst jafnan til þeirra
Kristínar, hvaðanæva að úr
heiminum, jafnt frá skyldmennum
sem fornum vinnufélögum úr
Sjöfn svo eitthvað sé nefnt.
Kristín var hvers manns hugljúfi
og þeir er henni kynntust héldu
tryggð við hana árum saman fyrir
sakir mannkosta hennar. Kristín
er því kvödd með miklum söknuðu
fjölda fólks en einkum er mér þó
þakklæti efst í huga á þessari
stund, þakklæti til forsjónarinnar
fyrir að hafa þekkt jafn ágæta
konu og Kristín Egilsdóttir var.
Eftirlifandi bræðrum hennar
votta ég mína dýpstu samúð.
Mikið skarð er nú fyrir skildi á
heimili Sigurjóns og Jóhannesar.
Til þeirra leitar hugurinn á þess-
ari kveðjustund.
Jakob Jakobsson.
ATIIYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargrcinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig vcrð-
ur grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt mcð grcinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vcra í sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vcra vclritaðar og með góðu
línubili.
Staður hagstæðra
stóríiuikaupa
AUGÚSINfAVTOfANMfH
Kjöt, mjólk, brauð, pakkavörur
og niðursuðuvörur. Pappírsvörur,
kerti-leikföng og gjafavörur.
3TEKKJARBAKKI
BANKASTRÆTI 7. SIMI 29122. AÐALSTRÆTI 4. SÍM115005