Morgunblaðið - 14.06.1979, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1979
29
félk í
fréttum
„Drekabáta- kappróðurinn“ í Hong Kong.
+ HÉR ER róðrarsveitin ameríska, sem þátt tók í þessari árlegu róðrarkeppni í
höfninni í Hong Kong. Ræöararnir eru frá Hawaiieyjum og reru níu á hvort borö. —
Þrátt fyrir allt komust þeir ekki í úrslitakeppnina.
+ NÝIR ÞJÓÐARLEIÐTOGAR. — Þessi fréttamynd er
frá höfuðborg Zimbabwe Rhódesíu, Salisbury. — Það er
fyrrum forsætisraæðherra landsins og foringi hvíta
minnihlutans í landinu sem farið hefur með öll völd í
landinu fram til þessa, Ian Smith, sem óskar hinum nýja
íorsætisráðherra landsins, biskupnum Abel Muzorewa, til
hamingju með hina formlegu valdatöku. — Að baki hans
stendur hinn nýi forseti Zimbabwe Rhódesíu, Josiah
Gumede.
+ FRANSKI lcikarinn
Jean Belmondo var fyrir
skömmu suður í Rómar-
borg, en hann er áhuga-
maður um tennisíþróttina
og er myndin tekin af
honum á „opnu“ ítölsku
tennismóti.
+ KONAN sem situr við hlið-
ina á bílnum er kona sviss-
neska diplomatsins Hugo Way,
sem myrtur var í bíl sinum
fyrir nokkru í' Mið-Ameríku-
ríkinu San Salvador. — Hún
hafði setið í framsæti bílsins
við hlið eiginmanninum er
skæruliðar skutu hann til bana
undir stýri bílsins. Það eru
vinir konunnar, sem standa
yfir henni er hún bíður þess að
lík eiginmannsins verði tekið
úr bílnum og flutt i burtu.
BLÓMAKER
GARÐÞREP
MOSAIK HF, gsr.isg'4
Smjör, kaff i
og kjöt
alltá
gamla verðinu
Vorum aö fá rauö epli frá Ameríku á mjög hagstæöu
veröi 499 kr kg.
Opið til 10 föstudag
og hádegis laugardag
HAGKAUP
SKEIFUNN115
Tísku -
sýning
Föstudag kl. 12.30—13.30.
Sýningin, sem verður i Blómasal Hótels Loftleiða er
haldin á vegum Rammagerðarinnar, íslensks Heimilisiðn-
aðar og Hótels Loftleiða.
Sýndir verða sérstakir skartgripir og nýjustu gerðir fatn-
aðar, sem unnin er úr íslenskum ullar- og skinnvörum.
Módelsamtökin sýna.
Hinir vinsælu réttir kalda borðsins á boðstólum.
Verið velkomin.
HOTEL
LOFTLEIÐIR
Simi 22322