Morgunblaðið - 14.06.1979, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ1979
Evrópubikarkep|in-
in í frjálsum íþrótt-
um um næstu helgi
• Vilmundur Vilhjálmsson
spretthlauparinn sterki úr KR.
mun hafa nóg að gera í keppn-
inni. Ilann tekur þátt í fimm
greinum. 100, 200, og 400 metra
hlaupum og er í báðum boð-
hlaupssveitunum 4x100 og 4x400
m.
Um næstu helgi tekur íslenska
landsliðið f frjálsum íþróttum
þátt í Evrópubikarkeppni í
frjálsum fþróttum karla og fer
keppnin fram f Luxemborg. í
riðli með íslendingum eru Portú-
galir, írar, Danir og svo heima-
menn. Þrjár efstu þjóðirnar í
riðlinum komast áfram f undan-
keppnina. Möguleikar íslendinga
verða að teljast allgóðir að þessu
sinni, en bar aftan mun standa á
milli íra, íslendinga og Dana um
að komast áfram. Islenska lands-
liðið hefur verið valið og skipa
það eftirtaldir:
Vilmundur Vilhjálmsson KR
100, 200, 400 m hlaup og bæði
4x100 — 4x400 m boðhlaup.
Jón Diðriksson 800 og 1500
metra hlaup, óvíst mun þó vera
hvort Jón getur keppt vegna
meiðsla sem hann hlaut fyrir
skömmu. Tognaði Jón og jafn-
framt er hann slæmur í hásinum
og er hann nú í rannsókn og
meðhöndlun hjá læknum.
Væri það mjög bagalegt ef hann
gæti ekki verið með þar sem hann
er í góðri æfingu um þessar
mundir og hljóp til dæmis 1500 m
á 3,45,9 á móti fyrir viku síðan. En
einmitt eftir það hlaup tóku
meiðslin sig upp.
Sigurður P. Sigmundsson FH
keppir í 5000 m hlaupi.
Elías Sveinsson keppir í 110 m
grindahlaupi og stangarstökki.
Aðalsteinn Bernharðsson í 400 m
grind og 4x400 m boðhlaupi. Ágúst
Ásgeirsson í 3000 m hindrunar-
hlaupi, og forfallist Jón mun
Ágúst einnig keppa í 1500 m.
Guðmundur R. Guðmundsson
FH keppir í hástökki, Friðrik Þór
Óskarsson keppir í langstökki og
þrístökki.
Hreinn Halldórsson keppir í
kúluvarpi, Óskar Jakobsson 4
spjótkasti og kringlukasti. Erlend-
ur Valdimarsson í sleggjukasti. Þá
munu þeir Sigurður Sigurðsson Á
og Oddur Sigurðsson KA keppa í
4x100 og 4x400 m boðhlaupum.
Fararstjórar verða Finnbjörn
Þorvaldsson og Sveinn Sig-
mundsson. Guðmundur Þórarins-
son þjálfari.
Evrópubikarkeppnin er stærsta
verkefni íslenska frjálsíþrótta-
fólksins á sumrin og hefur það
búið sig af kostgæfni undir keppn-
ina. All margir hafa dvalið við
æfingar erlendis og koma beint til
Luxemborgar víðsvegar að. Ágúst
Ásgeirsson hefur dvalið undan-
farnar vikur við æfingar í Eng-
landi, einnig Sigurður P. Sig-
mundsson. Jón Diðriksson dvelst í
Vestur-Þýskalandi. Vilmundur
Vilhjálmsson hefur æft og keppt í
Englandi. Og þeir Óskar Jakobss-
on og Hreinn Halldórsson hafa
verið við æfingar í Bandaríkjun-
um.
Það verður fróðlegt að fylgjast
með árangri frjálsíþróttamanna á
mótinu.
- þr.
Nýr Pele
kominn í
sviðsljósið
LENGST af hafa menn talið að
það kæmi aldrei annar Pele. Það
er nokkuð rökrétt ályktun, en
hinsvegar gætu hæglega komið
fram svipaðir snillingar. Þótt
þeir séu ekki á hverju strái, eru
flestir sem séð hafa Diego Marad-
onna, sannfærðir um að arftak-
inn sé loks kominn fram á
sjónarsviðið. Það tekur enginn
aumingi stöðu Marió Kempes í
landsliði Argentinu, en þegar
Argentínumenn Iögðu upp í Evr-
ópuferð sína fyrir skömmu og
sem nýlokið er, var ljóst, að
Kempes gæti ekki leikið með
liðinu. Hinn 18 ára gamli Diego
Maradonna fékk þá tækifæri til
að koma ár sinni fyrir borð með
argentinska liðinu.
Hann greip strax augað og
hápunkturinn kom þegar hann
skoraði glæsilegt mark gegn Skot-
um og lagði upp annað, er skoska
liðið var tekið í kennslustund í
knattspyrnu.
Það er dálítið sem er ótrúlega
líkt með því hvernig ferill Marad-
onna hófst og ferill Pele. Þegar
Pele lék sinn fyrsta leik með
aðalliði Santos, tæplega 16 ára
gamall árið 1956, skoraði hann
mark með því að smeygja knettin-
um á milli fóta markvarðarins,
Zaluar. „Reyndu að hitta markið
litli auminginn þinn,“ kallaði Zal-
uar á Pele litla fullur niðurlæging-
ar. En það var Zaluar sem var
niðurlægður. Eftir leik þennan,
sem Santos vann 7—1, hætti
Zaluar, svo rosalega skammaðist
hann sín. Maradonna lék sinn
fyrsta leik með aðalliði Argentín-
os Jouniors gegn Talleres í fyrra.
Pyrsta skiptið sem hinn smávaxni,
en þéttbyggði Maradonna fékk
knöttinn, lék hann snilldarlega á
núverandi landsliðsmann með því
að renna knettinum í gegn um
klofið á honum.
Faðir Maradonna var sjálfur
knattspyrnumaður, en ekki fræg-
ur, né með frægu liði. Hann hvatti
strákinn til þess að æfa af kappi,
hefur sennilega séð hvað í honum
bjó. Vettvangur knattspyrnuiðk-
ana Diego var hins vegar að mestu
bundinn við þröngar götur og
stræti. Það var ekki fyrr en hann
komst undir hendur Vittorio Spin-
etto, snjalls ítalsks þjálfara, sem
lagði grunninn að réttri þjálfun
fyrir strákinn.
Cesar Menotti, þjálfari argent-
ínska landsliðsins valdi hann í
stóra hópinn fyrir HM síðastliðið
• Maradonna á fullri ferð með
boltann. Hann hefur vakið feikna
athygli að undanförnu f leikjum
sínum.
sumar, en valdi hann ekki í
lokahópinn. „Hann er enn þá of
ungur, en hann verður örugglega
fyrirliði liðsins á næsta HM á
Spáni 1982,“ sagði Menotti. Nú er
Maradonna 18 ára gamall og
tilbúinn í slaginn. Nú þegar hann
er í sviðsljósinu kemur upp vanda-
málið um framtíðarbústað. Þegar
hefur spænska stórliðið Barcelona
boðið ógrynni fjár fyrir kappann.
Félag hans Argentínos Jouniors
sagði nei takk og sjálfur vill Diego
Maradonna leika í Argentínu
a.m.k. þar til að HM á Spáni 1982
er yfirstaðið. Það eru góð tíðindi
fyrir þann aragrúa knattspyrnu-
áhugamanna í Argéntínu, að
þurfa ekki að sjá á eftir sínum
snjallasta leikmanni til annarra
landa (eins og t.d. íslendingar
verða að sætta sig við).
• í kastgreinunum eiga íslendingar mesta möguleika á fyrsta sæti. í
þeim greinum keppa sterku mennirnir. Hreinn í kúluvarpi, Erlendur í
sleggjukasti, og Oskar Jakobsson f kringlukasti og spjótkasti.
Magnús og Eyjólfur
ganga yfir í FH
MAGNÚS Teitsson og Eyjólfur Bragason, handknattleiksmenn úr
Stjörnunni, munu leika með FH næsta kepppnistímabil. Ilafa þeir
félagar tilkynnt félagaskipti og á aðeins eftir að ganga frá
formsatriðum. Verður það mikill styrkur fyrir FH að fá þá í sínar
raðir þar sem meistaraflokkur félagsins stendur nú á tímamótum og
nýtt lið verður byggt upp í kringum unga og efnilega leikmenn.
Meistaraflokkur FH mun hefja æfingar á föstudagskvöld og ætlunin
er að æfa af krafti í sumar, þar sem farið verður í keppnisferð til
Vestur-Þýskalands 18. ágúst. Þá ætla FH-ingar sér stóra hluti í
útimótinu sem fram fer í Ilafnarfirði í júlílok og verður tengt 50 ára
afmæli félagsins. — þr.
• % •' • ' •'
V V 4& V iP V.#'
Geir þjálfar FH
GEIR Ilallsteinsson mun þjálfa meistaraflokk FH næsta keppnistíma-
bil og jafnframt leika með liðinu, samkvæmt áreiðanlegum upplýsing-
um sem Mbl. hefur aflað sér. Geir mun frekar hafa kosið að taka við
FH-Iiðinu en að halda til Ítalíu þar sem hann hefði fengið tilboð um að
þjálfa 1. deildarlið. Samningar við ítalina tókust ekki á þeim
grundyelli sem Geir hafði óskað og því hætti hann við. Nú hafa fjögur
1. deildarlið ráðið þjálfara. Hilmar Björnsson verður áfram með Val,
Bodan með Víking og Karl Benediktsson með Fram. Fjögur lið, ÍR,
KR, IIK og Ilaukar, eru enn óráðin og eru að leita eftir mönnum.
Ileyrst hefur að Haukar séu að ræða við Viðar Símonarson sem
þjálfaði Stjörnuna á síðasta ári. ,
• » *♦ *♦ •' *'
V.#' \ \ jp V.#' V
FH-konur
í KVÖLD kl. 20.00 vcrður stofnað í veitingahúsinu Gafl-inum í
Hafnarfirði félag kvenna, þeirra sem áhugasamar eru um framgang
félagsmála hjá FH. Eru sem flestar hvattar til að mæta. Undirbún-
ingsnefndin.
Einkunnagjöfln
Valur: Guðmundur Ásgeirsson 2, Grímur Sæmundsen 3, Vilhjálmur
Kjartansson 1, Hörður Hilmarsson 1, Dýri Guömundsson 2, Sævar Jónsson 2,
Ingi Björn Albertsson 1, Atli Eövaldsson 3, Jón Einarsson' 1, Guðmundur
Þorbjörnsson 2, Albert Guðmundsson 1, Ólafur Danivalsson (vm) 1, Hálfdán
Örlygsson (vm) 2.
ÍBV: Ársæll Sveinsson 3, Snorri Rútsson 2, Viðar Elíasson 1, Þórður
Hallgrímsson 2, Friðfinnur Finnbpgason 2, Sveinn Sveinsson 2, Örn
Óskarsson 2, Óskar Valtýsson 3, Ómar Jóhannsson 2, Tómas Pálsson 4,
Gústaf Baldvinsson 2, Einar Ingólfsson (vm) 1, Valþór Sigþórsson (vm) 1.
Dómari: Þorvarður Björnsson 2.
Haukar: Gunnlaugur Gunnlaugsson 2, Daníel Gunnarsson 2, Úlfar
Brynjarsson 2, Ólafur Jóhannesson 3, Ólafur Svelnsson 2, Guðmundur
Sigmarsson 3, Lárus Jónsson 2, Valur Helgason 1, Gunnar Andrésson 2,
Sigurður Aðalsteinsson 3, Ólafur Torfason 1, Hermann Þórisson (VM) 2,
Steingrímur Hálfdánarson (VM) 3.
ÍA: Jón Þorbjörnsson 2, Guöjón þóröarson 1, Jóhannes Guðjónsson 2,
Siguröur Lárusson 2, Jón Gunnlaugsson 2, Kristján Olgeirsson 3, Sveinbjörn
Hákonarson 2, Jón Alfreðsson 1, Árni Sveinsson 2, Matthías Hallgrímsson 1,
Sigþór Ómarsson 3, Andrés Ólafsson (VM) 2, Guöbjörn Tryggvason (VM) 1.
Dómari: Rafn Hjaltalín 3.
V.