Morgunblaðið - 14.06.1979, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1979
35
Pezzey skoraði
oddamarkið af 7
AUSTURRÍKISMENN unnu Englendinga í landsleik í
knattspyrnu sem fram fór í Vínarborg í gærkvöldi að
viðstöddum 31.000 áhorfendum. Leikurinn var vináttu-
landsleikur og hafði enga þýðingu aðra, enda bar hann
þess glögg merki, hann var opinn í báða enda, f jörugur,
vel leikinn og spennandi. Austurríkismenn skorðu 4
mörk en Englendingar 3, staðan í hálfleik var 3, staðan
í hálfleik var 3—1 fyrir Austurríki.
Englendingarnir voru daufir í
fyrri hálfleik og þá höfðu heima-
menn nokkra yfirburði. Thomas
Pezzey skoraði strax á 18. mínútu
og nýliðinn Welzl breikkaði bilið á
26. mínútu. Kevin Keegan, besti
maður Englands sem fyrr,
minnkaði muninn aðeins mínútu
síðar, en lokaorðið í fyrri hálfleik
átti Welzl, sem skoraði þriðja
mark Austurríkis og annað mark
jitt at39. mínútu.
Englendingarnir voru mjög
sókndjarfir í síðari hálfleik, eink-
Reyna aftur
ÖNNUR tilraun verður gerð í
kvöld með leik ÍBK og Fram í 1.
deild íslandsmótsins í knatt-
spyrnu. Honum var frestað á
mánudaginn vegna þess að vall-
arskilyrði í Keflavík voru ekki
eins og best var á kosið, einkum
eftir vatnsveðrin sem þá voru
nýbúin að ganga yfir. Leikurinn
hefst klukkan 20.00. Fyrsta deild-
in er nú öll í einum graut, öll
liðin eiga eins og er jafna mögu-
leika á því að falla og vinna
titilinn. Þetta hleypir meiri
spennu í mótið en verið hefur
nokkuð lengi.
Þá fer einnig fram einn leikur í
meistaraflokki kvenna, UBK og
Heimsmet
í spjótkasti
AUSTUR-ÞÝSKA stúlkan Ruth
Fuchs setti í gærkvöldi nýtt
heimsmct í spjótkasti kvenna í
Dresdcn. Varpaði hún spjótinu
69,52 metra. Fyrra metið átti
Kathy Schmidt frá Bandaríkjun-
um, 69,32 metra.
Skúli lyftir
breskum lódum
Kraftlyftingakappinn kunni,
Skúli Óskarsson, verður í sviðs-
ljósinu um helgina, en þá tekur
hann þátt í opna breska meistara-
mótinu í kraftlyftingum. Það
verður gaman að fylgjast með
árangri Skúla, því að hann ætlar
að öllum líkindum aö vega að
heimsmeti og er hann einfær um
það, eins og menn geta ímyndað
sér.
um voru paö Keegan og ateve
Coppell, sem tættu vörn heima-
manna sundur á hægri vængnum.
Coppell skoraði á 47. mínútu og á
64. mínútu jafnaði Ray Wilkins
fyrir Englendinga. Englendingar
sóttu þó meira af kappi en forsjá
og aðeins 5 mínútum síöar skoraði
Pezzey það sem reyndist vera
sigurmarkið eftir skyndiupphlaup.
Englendingar sóttu án afláts allt
til leiksloka og bæði Keegan og
Coppell áttu stangarskot en inn
vildi knötturinn eigi, því
austurrískur sigur, 4—3.
í Keflavík
FH mætast á Kópavogsvelli og
hefst leikurinn klukkan 20.00.
Svarfdælir
unnu Magna!
NOKKRIR leikir fóru fram í
bikarkeppni KSÍ í gærkvöldi.
Úrslit nokkurra þeirra urðu eft-
irfarandi.
Reynir Ársk. — Tindastóll 0—5
Magni — Svarfdælir 6—7
UBK — Stjarnan 3—1
Ármann — Víðir 3—1
Jafnt var eftir venjulegan leik-
tíma í leik Magna og Svarfdæla
2—2, en Svarfdælir höfðu betur í
vítakeppni að lokinni framleng-
ingu. Mörk Tindastóls gegn Reyni
skoruðu Rúnar Björnsson, Þór-
hallur Ásmundsson, Sigurjón
Magnússon, Björn Sverrisson og
Sigurfinnur Sigurjónsson.
Meistararnir
í vandræðum
íslandsmótið í knattspyrnu
kvenna er komið á fulla ferð og
þegar hafa 4 leikir farið fram.
Gallinn er bara sá, að það eru
aðeins 5 lið í deildinni. Úrslit
þeirra leikja sem fram hafa farið
eru þesii:
ÍA—Valur 2—2
UBK—Fram 3—1
Valur-UBK 0-0
FH-ÍA 0-0
íslandsmeisturunum frá því í
fyrra, Val, hefur gengið brösug-
lega að fylgja sigri sínum eftir og
hefur til þessa orðið að sætta sig
við jafntefli í fyrstu leikjum sín-
um. Sama er að segja um ÍA, sem
varð íslandsmeistari innanhúss.
Stórsigur
Júgóslava
JÚGÓSLAVAR sigruðu ítali í
vináttulandsleik í knattspyrnu í
gærkvöldi með 4 mörkum gegn
einu. Paolo Rossi skoraði fyrir
ítali og náði forystu í fyrri hiálf-
leik, en þrenna Susic og það fjórða
frá Zajec kollvarpaði ítölum.
35.000 heimamenn mættu á völl-
inn og kættust geysilega eins og
gefur að skilja.
• Janus Guðlaugsson (t.h.) rennir sér a svissneskan varnarmann.
Verður hann næsti atvinnumaðurinn?
Fer Janus til
Fortuna Köln?
MÖGULEIKI er. á því að Janus
Guðlaugsson bætist í hóp ís-
lensku atvinnumannanna í knatt-
spyrnu í haust. Ilann var fyrir
nokkru á ferðinni í Vestur-Þýska-
landi með frekara íþróttanám
fyrir augum og ef svo verður, er
ekki ólíklegt að hann leiki knatt-
spyrnu með einhverju liðinu í
næsta nágrenni. Ilefur 2. dcildar
liðið Fortuna Köln verið nefnt í
því sambandi.
Varla er vafi, að Janus myndi
standa sig með sóma með hvaða
liði sem er, en hann yrði ellefti
íslenski leikmaðurinn sem leikur
með erlendu liði um þessar mund-
ir, hinir eru Teitur Þórðarson,
Árni Stefánsson og Jón Pétursson,
sem leika í Svíþjóð, Arnór Guð-
johnsen, Ásgeir Sigurvinsson,
Karl Þórðarson og Þorsteinn
Bjarnason sem leika í Belgíu,
Pétur Pétursson sem leikur í
Hollandi, Jóhannes Eðvaldsson
sem leikur í Skotlandi og Guðgeir
Leifsson sem leikur í Bandaríkj-
unum.
- þr