Morgunblaðið - 14.06.1979, Page 36
REGN
Ljósm. Kristinn.
Greenpeace:
Áfram rætt við
undirmennina
Enginn frnidur boðaður með yfirmönnum
ENGINN sáttafundur hafði í gær verið boðaður með
yfirmönnum á farskipum og viðsemjendum þeirra. Hins
vegar var í gær alllangur fundur með undirmönnum á
farskipum og á þeim fundi höfnuðu undirmenn þeim
drögum að kerfisbreytingu kjarasamnings farmanna,
sem útgerðirnar höfðu lagt fyrir. Nýr sáttafundur með
undirmönnum hefur verið boðaður í dag klukkan 14 og
munu undirmenn þá hefja samningsgerð á grundvelli
hins gamla launakerfis. „Væntum við þess að við-
semjendur okkar geri okkur þá kauptilboð,“ sagði
Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur.
„Þeir eru bjartsýnir, undir-
menn, ef þeir búast viö kauptil-
boði frá okkur á morgun," sagði
Jón Magnússon starfsmannastjóri
Eimskipafélags íslands, sem er
talsmaður skipútgerðanna. Hann
kvað menn hafa lokið yfirferð yfir
kröfur undirmanna og sömuleiðis
yfir þær kröfur sem skipafélögin
hefðu lagt fram um kerfisbreyt-
ingu. Þeirri kerfisbreytingu höfn-
uðu sjómenn.
Eins og áður hefur komið fram
hafa yfirmenn og útgerðirnar nú
náð samkomulagi um kerfisbreyt-
ingu, þ.e. ramma að samkomulagi,
en eftir er að fylla hann út með
kauptölum. í gær virtist svo sem
báðir samningsaðilar ætluðust til
að sáttanefnd eða sáttasemjari
ríkisins legðu fram einhverjar
hugmyndir um kauptölur, en þeg-
ar Morgunblaðið ræddi við Torfa
Hjartarson í gær, vlrtist engan
veginn ljóst að af slíku yrði nú.
Torfi vildi ekki tjá sig um, hvenær
boðað yrði til nýs fundar með
yfirmönnum, það yrði til athugun-
ar í dag.
Þrettán
árekstrar
ÞRETTÁN árekstrar urðu í um-
ferðinni í Reykjavík í gær, en
enginn þeirra stórvægilegur og
ekki slys á fólki. Níu árekstrar
höfðu orðið um kl. 19 og fjórir til
viðbótar til kl. 23.
Kaskó-
trygging
hækkar
um 54,6%
RÍKISSTJÓRNIN hefur heimilað tryggingafélögunum að hækka
iðgjald húítrygginga (kaskó) um 54,6% og jafnframt var þeim
heimilað að hækka sjálfsábyrgð um sömu prósentutölu. Trygginga-
tfmabil kaskótrygginga hófst 1. maí s.l.
Trvggingafélögin höfðu óskað
eftir rúmlega 70% hækkun á
kaskótryggingunni en hins vegar
höfðu þau óskað eftir minni
hækkun á sjálfsábyrgð en
heimiluð var. Tryggingaeftirlitið
lagði til að heimilt yrði að
hækka iðgjöldin um 62,7%.
Jón Ingimarsson skrifstofu-
stjóri í tryggingaráðuneytinu
sagði í gær að iðgjöld bifreiða-
trygginga hækkuðu bara einu
sinni á ári og því væri um háar
prósentutölur að ræða. Á hitt
bæri einnig aö líta að á þessu
eina ári hefði verðmæti bifreið-
anna sem tryggðar væru aukist
samsvarandi í flestum tilfellum.
Kaskótryggingin er frjáls
trygging en ábyrgðartrygging
bifreiða, þ.e. skyldutryggingin
hækkaði fyrr í vor um rúmlega
44%. Iðgjaldatímabil ábyrgðar-
trygginga hófst 1. marz.
Trufluðu
veiðar
Hvals 8 í
gœrkvöldi
VSÍ frestaði verk-
banni um eina viku
SKIPSTJÓRINN á Hval 8 haíði
um kl. 23.30 f gærkvöldi samband
við Þröst Sigtryggsson skipherra
hjá Landhelgisgæzlunni gegnum
talstöð og óskaði þess að Land-
helgisgæzlan stuggaði við skips-
mönnum á Rainbow Warrior,
skipi Green peace hreyfingarinn-
ar, sem hefðu truflað þá við
veiðarnar allt gærkvöld.
Þórður Eyþórsson skipstjóri
sagði að hann sem íslenzkur þegn
ætti rétt á því að landhelgisgæzlan
sæi til þess að hann fengi að stunda
atvinnu sína í landhelgi óáreittur.
Rainbow Warrior mun hafa setið
fyrir Hval 8 síðdegis í gær við
mynni Hvalfjarðar er hann var á
leið á miðin eftir að hafa komið
með hvai til hafnar. Hvalur 8 stakk
skipið af, en Green peace menn
nvonu hafa elt hvalbátinn á hrað-
báti sínum. Missti hvalur 8 þannig
af einum hval þar sem hraðbátur-
inn fældi hvali frá og var öðru
hverju í skotlínu hvalbátsins, og
kvað skipstjórinn því stórhættu-
legt að gera tilraun til að stunda
veiðarnar undir þeim kringum-
stæðum.
Landhelgisgæzlan mun taka mál
þetta upp nú í dag og hefur beðið
skipstjóra Hvals 8 staðfestingar á
atburði þessum með skeyti.
SAMBANDSSTJÓRN Vinnuveitendasambands íslands ákvað á fundi
sfnum í gærmorgun að hafna beiðni ríkisstjórnarinnar um að
sambandið aflýsti boðuðum verkbannsaðgerðum, en hins vegar ákvað
stjórnin að fresta því um eina viku að til aðgerðanna kæmi. Kemur
boðað verkbann nú til framkvæmda frá og með 25. júní næstkomandi,
hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma. Fulltrúar VSÍ tilkynntu
forsætisráðherra þetta síðdegis í gær og lýsti þá Ólaíur Jóhannesson
ánægju sinni með þessa ákvörðun sambandsstjórnar VSÍ:
Eitt félag, Grafíska sveinafélag-
ið, hafði boðið til verkfalls sem
svar við verkbannsaðgerðum VSI
og átti það að koma til fram-
kvæmda á sama tíma og verk-
bannið. í gær hafði ekki verið
tekin ákvörðun um frestun verk-
falls Grafi'ska sveinafélagsins, en
ráðgerður var stjórnarfundur í
dag og samkvæmt upplýsingum,
sem Morgunblaðið aflaði sér í gær,
voru líkur á því að stjórn og
trúnaðarmannaráð félagsins tæki
ákvörðun um frestun boðaðs
verkfalls um eina viku.
í bréfi, sem fulltrúar VSÍ af-
hentu forsætisráðherra síðdegis í
gær, segir að sambandsstjórnin
geti ekki fallizt á þá beiðni
ríkisstjórnarinnar að aflýsa verk-
skyni að frestur verði nýttur af
viðsemjendum, sáttanefnd og
ríkisstjórn til þess að leysa á þeim
tíma þá alvarlegu kjaradeilu á
farskipum, sem staðið hefur í
fullar 7 vikur, og til þess að greiða
úr þeim hnút, sem öll atvinnu-
starfsemi í Iandinu er að komast í
vegna verkfalls yfirmanna á far-
skipum, féllst sambandsstjórnin á,
fyrir tilmæli ríkisstjórnarinnar,
að fresta samúðarverkbanninu til
25. júní n.k.
Sambandsstjórn Vinnuveitendasambands íslands á fundi sínum í gær,
þar sem tekin var ákvörðun um frestun verkbanns sambandsins um
eina viku. Verkbannið tekur gildi frá 25. júní. Ljósm.: Kristján.
banninu, sem hefjast átti 18. júní,
enda hefði „engin sú breyting
orðið á yfirstandandi kjaradeilum,
að telja megi forsendur fyrir
ákvörðun um samúðarverkbann
brostnar." Síðan segir, að
ráðherrarnir, Ólafur Jóhannesson,
Svavar Gestsson og Benedikt
Gröndal hafi sagt á fundi með
samningaráði VSÍ, að yrði ekki
um aflýsingu verkfalls að ræða,
fælist í beiðninni ósk um frestun
samúðarverkbanns. „I trausti þess
að ósk þessi sé fram borin í því
Þyrstir
þjófar
UM SÍÐUSTU helgi var brotizt
inn í geymslu Nestis á Tungu-
hálsi. Svo virðist sem þjófarnir
hafi verið mjög þyrstir því þeir
höfðu á brott með sér 84
lítersflöskur af Kóka Kóla.