Morgunblaðið - 27.06.1979, Side 1

Morgunblaðið - 27.06.1979, Side 1
142. tbl. 66. árg. MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. „Hefnd og frelsi” gegn Haig? Mons — 26. júní. — AP. ENN ER óljóst. hvort áður óþekkt samtök. sem kalla sig „Hefnd og frelsi“, eiga sök á banatilræðinu við Alexander Haig, yfirmann herafla NATO í Evrópu í gær. „Olíukaup Sovétmanna valda alvarlegu ástandi” ZUrich — 26. júní — Genf FORSETI OPEC, olíumálaráðherra Sameinuðu furstadæmanna við Persaflóa, segir í viðtali við „Weltwoche“, sem út kom í dag, að stóraukinn innflutningur Sovétríkjanna á olíu frá OPEC-ríkjunum eigi fyrirsjáanlega eftir að hafa mjög alvarleg áhrif á ástandið á olíumarkaði í heiminum á næstu fimm árum. „Við stöndum frammi fyrir geig- vænlegum vanda“, sagði Mana Saeed A1 Aotaiba, „og það er sannarlega komin tími til að ugga að sér“. Ráðherrann kvað ástæðu til að grípa til varúðarráðstafana til að koma í Hörku- bardagar í Managua Managua — 26. júní — AP. HERMENN Somozas forseta Nicaragua hafa varizt skærulið- um af hörku í miðborg Managua f dag. í austurhluta borgarinnar kveða enn við sprengingar og skothríð, en skæruliðar sandinista segjast f þann mund að hefja nýja atlögu í vesturborginni. Bankar, verzlanir og flest fyrirtæki í Managua eru lokuð, og fátt bendir til að starfsemi þeirra geti hafizt í bráð. Orðrómur er á kreiki um það í Managua, að Somoza sé farinn að undirbúa afsögn sína, en talsmenn stjórnar hans vísa á bug öllum slíkum fregnum. Somoza efndi til fundar með helztu ráðgjöfum sín- um í dag, og er talið að þar hafi verið til umræðu afstaða Banda- ríkjastjórnar til borgarastyrjald- arinnar í Nicaragua, en bandaríska utanríkisráðuneytið segir, að á meðan Somoza sitji á valdastóli sé engin von um málamiðlun. Þá hefur Bandaríkjastjórn lýst því yfir, að af hennar hálfu verði ekki um hernaðarlega íhlutun að ræða í Nicaragua, „hvorki beina né óbeina". veg fyrir olíuskort, og nefndi í því sambandi nýtingu annarrar orku, s.s. kjarnorku, sólarorku og kola. Hann taldi neyzluríki Vesturlanda ekki hafa ástæðu til að óttast að breyta þyrfti lífsvenjum almennings til að spara olíu, heldur þyrftu Vestur- landabúar að smíða þurftaminni bifreiðar, endurskipuleggja flugsam- göngur og nýta betur eigin orkulind- ir en hingað til. Búizt er við því, að olíumálaráð- herrar OPEC-ríkjanna þrettán, sem nú þinga í Genf, komi sér saman um nýtt olíuverð á miðvikudag, og verði niðurstaðan sú, að á næstunni verði hráolía frá þessum ríkjum seld á 20 bandaríkjadali. Saudi-Arabar eru þeir, sem harð- ast beita sér gegn hækkun, og sagði Yamani olíumálaráðherra í dag, að hann ætlaði að koma í veg fyrir „óeðlilega" verðhækkun, og nefndi í því sambandi að 19 dalir væru of Yamani olíumálaráðhera Saudi- Arabíu við upphaf OPEC-fundarins í Genf. Stjórn Saudi-Arabíu hefur beitt sér ákaft gegn olíuhækkunum OPEC á undanförnum misserum. mikið. Saudi-Arabía er mesta olíuút- flutningsríkið í samtökunum og hið eina, sem að undanförnu hefur selt á viðurkenndu OPEC-verði, en það hefur verið 14.55 dalir. Areiðanlegar heimildir herma að íranir, sem á undanförnum mánuðum hafa unnið aðeins þriðjung venjulegs olíu- magns, krefjist þess að OPEC-verðið verði milli 21.50 og 23 dalir. Hársbreidd munaði að bifreið Haigs yrði fyrir fjarstýrðri sprengju er hershöfðinginn var á leið til vinnu í höfuðstöðvum SHAPE í Casteau, rétt við borgina Mons í S-Belgíu. Kona, sem greini- lega talaði með frönskum hreim, hringdi í ritstjóra blaðsins „La Province", sem er gefið út í Mons, í gær, og lýsti því yfir að áðurnefnd samtök hefðu staðið að tilræðinu. Eftir sprengjuárásina í gær hafa öryggisráðstafanir verið stórefldar í stöðvum SHAPE og nágrenni, en lögregla í héraðinu starfar ósleitilega að því að reyna að upplýsa málið. Atli Dam um nýjar kosningar í Færeyjum: Fólkaflokkurinn kom- inn of langt til hægri „Við sjáum ekki lengur grundvöll fyrir stjórnarsamstarfi þar sem við teljum Fólkaflokkinn hafa sveigt of langt til hægri.“ sagði Atli Dam. formaður Jafnaðarflokksins. er Mbl. hafði samhand við hann í gær vegna þeirrar fréttar. að slitnað hefði upp úr stjórnarsamstarfi í Færeyjum. „Við viljum að vilji meirihluti þjóðarinnar fái að ráða en ekki vilji fárra manna." sagði Atli. Miðstjórn Jafnaðarflokksins hefur ákveðið að leggja fram tillögu um nýjar kosningar er þing kemur saman að nýju um Ólafsvökuna. Um tíma hefur mikill ágreiningur ríkt milli stjórnarflokkanna í Færeyjum en auk Jafnaðarflokksins og Fólka- flokksins á Þjóðveldisflokkurinn sæti í stjórninni. Ágreiningurinn hefur sér í lagi ríkt milli Jafnaðar- flokksins og Fólkaflokksins. „Ripper’ ’ kominn á kreik Wakefield - 26. júní. - AP. „YORKSHIRE-RIPPER“, kvennamorðingi, sem herjað hefur í Jórvfkurskfri norðanverðu síðustu fjögur árin og myrt hefur 11 konur, flest vændiskonur, sendi lögreglunni í dag hljóðupptöku. þar sem hann hefur f hótunum um að láta að sér kveða svo um Upptökunni var útvarpað í þeirri von að einhverjum tækist að bera kennsl á rödd mannsins, sem fyrst og fremst beinir orðum sínum til George Oldfield, lög- regluforingjans sem stjórnar leit- inni að „Yorkshire-Ripper": „Ég er ekki alveg búinn að ákveða hvenær ég fer á stúfana, kannski í september, kannski í október, kannski fyrr, ef ég sé mér færi. Ég er heldur ekki búinn að ákveða hvar það verður. Kannski í Manchester. Ég kann alltaf svo vel við mig þar. Þar er nóg af þeim á stjái,“ segir kauði, og vísar þar greinilega til vændis- kvennanna. „Þær láta sér aldrei segjast, eða heldurðu það, George? Ég hélt ég væri aldeilis muni á næstunni. Jafnframt hæðist hann mjög að lögreglunni og tilraunum hennar til að handtaka hann, en leitin að kvennamorð- ingjanum hingað til er talin nema andvirði rúmlega hálfs milljarðs fslenzkra króna. Hljóðupptökunni var útvarpað um gjörvallar Bretlandseyjar í dag. og hafa hótanir morðingjans vakið mikinn ugg. þó þeirrar skoðunar, að þar geti morðinginn verið að villa á sér heimildir. Síðast þegar „Yorks- hire-Ripper“ lét frá sér heyra liðu 13 dagar áður en hann gerði alvöru úr hótun sinni. í það skipti var það heiðvirð 19 ára gömul Halifax-stúlka, sem féll fyrir hendi morðingjans. búinn að vara þær við, en þær láta sér ekki segjast. Ég ætti eiginlega að vera í heimsmeta- bókinni, eins og ég er röskur við þetta. Er ég annars ekki kominn upp í ellefu? En ég hef tímann fyrir mér...“ Lögreglan segir að maðurinn tali með hreim Newcastle-upon-Tyne-búa, en er

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.