Morgunblaðið - 27.06.1979, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ1979
3
Skeidsfoss
stórskemmdur
Skeiðsfoss í slipp á Akureyri í gær.
Akureyri 26. júní.
SKEIÐSFOSS eitt skipa
Eimskipafélags íslands,
strandaði síðastliðinn
fimmtudag kl. 12.52 á
Tjarnarboða vestan Vatns-
ness. Skipið var á leið frá
Múrarafé-
lagið stend-
ur fast á ólög-
mæti verk-
bannsins
Hvammstanga til
Blönduóss.
Sjópróf fóru fram á
Akureyri í dag, og
samkvæmt upplýsingum
Ásgeirs Péturs Ásgeirs-
sonar dómsforseta var
sjólaust, en frekar lélegt
skyggni er strandið varð.
Nýbúið var að breyta um
stefnu er skipið strandaði,
og var það gert vegna
þess, að samkvæmt staðar-
ákvörðun sem gerð var
rétt áður áleit skipstjór-
inn skipið vera mun norð-
ar en það reyndist vera.
Skipið settist á miðjan kjöl
og vó salt á skerinu. tJtfall
var og fór skipið strax að
rifna og ákvað skipstjór-
inn þá að sigla fram af
skerinu og tókst það.
Skipinu var síðan siglt til
Blönduóss og þaðan til Siglufjarð-
ar, en þar var það þétt. Bráað-
birgðaviðgerð fer nú fram hjá
Slippstöðinni á Akureyri og lýkur
henni væntanlega um næstu helgi.
Slys urðu engin á mönnum og
farmur er óskemmdur, en botn
skipsins er talinn ónýtur. -St. Eir.
Loðnu veiðar vió
JanMayen;
Framhaldsvið-
ræður við Norð-
menn í vikunni?
ÍSLENSKIR og norskir embætt-
ismenn munu hugsaniega hittast
síðar í þessari viku, til viðræðna
um loðnuveiðar við Jan Mayen,
að því er Kjartan JóhannssQn
sjávarútvegsráðherra sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Embættismennirnir áttu fund
saman í Ósló í byrjun síðustu
viku. en þann fund sátu af hálfu
íslands þeir Már Elíasson fiski-
málastjóri, Jón Arnalds ráðu-
neytisstjóri og Jón B. Jónasson
deildarstjóri, eins og áður hefur
verið skýrt frá í Morgunblaðinu.
EINS og fram hefur komið í
Morgunblaðinu hefur Múrara-
félag Reykjavíkur véfengt þá
vinnustöðvun, sem Vinnuveit-
endasamband íslands boðaði á
dögunum og koma átti til fram-
kvæmda hinn 25. júnf síðastlið-
inn. Múrarafélagið skrifaði
Múrarameistarafélagi Reykja-
víkur bréf og taldi verkbannið
ólöglegt, þar sem engin tengsl
væru milli þeirra aðila, sem
samúðarverkbannið var boðað
fyrir. Múraramcistarafélagið fól
VSÍ að svara bréfinu og hefur
Múrarafélagið nú aftur ritað
Múrarameistarafélaginu bréf,
þar sem tilfærð eru frekari rök
fyrir ólögmæti verkbannsins.
í hinu nýja bréfi Múrarafélags
Reykjavíkur segir að félagið geti
ekki fallizt á þá kenningu að
sambandsstjórn VSÍ sé löghæfur
aðili til að ákveða verkbann á
meðlimi Múrafélags Reykjavíkur
fyrir hönd Múrarameistarafélags
Reykjavíkur. Er það sérstaklega
vitnað til 15. greinar laga nr. 80
frá 1938, E-liðs. Þar er rætt um
heimild trúnaðarmannaráðs til að
taka ákvörðun um vinnustöðvun
og heimildin bundin því að lög
félagsins feli því slíkt vald. Gera
lögin glöggan greinarmun á félög-
um og samböndum og þar séu
síðan taldir upp þeir aðilar, sem
geta gert verkföll og verkbönn, en
gagnályktun leiði til þess að
samböndum stéttarfélaga og
atvinnurekenda sé slíkt ekki
heimilt. Verkbannið hafði verið
boðað í nafni VSÍ. Segir í bréfinu
að Múrarafélagið geti ekki fallizt
á að sambandsstjórn VSÍ sé
trúnaðarmannaráð Múrarameist-
arafélags Reykjavíkur. Enn-
fremur sé á það að líta að
meirihluti sambandsstjórnar sé
ekki skipaður félögum í Múrara-
meistarafélaginu.
Viðey og
Bylgja seldu
erlendis
TVÖ íslenzk fiskiskip seldu
afla sinn erlendis í gær,
Bylgja í Fleetwood og Við-
ey í Hull. Bæði skipin
fengu mjög gott verð fyrir
afla sinn, samkvæmt upp-
lýsingum sem Morgunblað-
ið fékk í gær á skrifstofu
Landssambands íslenskra
útvegsmanna, enda gæði
aflans mjög mikil.
Viðey seldi 267 tonn, og fékk
fýrir þau 96 milljónir 656 þúsund
krónur, eða 362 krónur í meðal-
verð. Uppistaðan í afla Viðeyjar
yar þorskur. Bylgja seldi 53,6 tonn
og fékk fyrir þau 22.2 milljónir
króna, eða 416 krónu meðalverð.
Aflinn var þorskur, en þó talsvert
blandaður ýsu.
Svar:
xvmi :j0 Qijbas
•jsja6
uæj ujðs jæuaAij VNDMIA Rsa| uias up|B bjb 9t
jjpun JB6u||6un jmib iSBjæq qja jbcj VÐ3in>nA
VNONIA MPIB uinssacj b buubuj jjpunsnc)
99 BS9| iac) jujæAijujBS 'B6e|n>|!A VNONIA
nsp| bjb Z9-91. uinuupiB b BJQjndSQB o/0ge
!PUB|S) p PJBUIIJ Busai iseui NVXIA JQ Bjojs
-B6ujsA|6nB BJ>|Sua|Si spusquiBS 6o s6uba6bh
jBunuuo>)B|Q!UJ|ofj uinQOisjnQju juiæA>|ujBS
GYLMIR ♦ G&H 9 3