Morgunblaðið - 27.06.1979, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1979
5
Settu sjálfa sig í farbann
— rætt við Þorstein Thorarensen, borgarfógeta
í GÆR kvað borgaríógetinn í
Reykjavík upp lögbannsúrskurð
gegn einnar milljónar króna
tryggingu Hvals hf. þar sem
kveðið er á um „að Peter Misson,
David McTaggart eða aðrir
skipsmenn samkvæmt skips-
hafnarskrá. er þeir ráða yfir,
megi ekki trufla veiðar hvalveiði-
skipa Hvals hf., Hvals 6, Hvals 7,
Hvals 8 og Hvals 9, innan efna-
hagslögsögu íslands eins og hún
er ákveðin með lögum nr. 41
1979, með því að sigla gúmmíbát-
um eða öðrum farkostum í veg
fyrir hvalveiðiskipin og trufla
þannig siglingu þeirra, með þvf
að halda bátum sínum milli hval-
veiðiskipanna og hvala í skot-
færi, með því að sigla að hvölum,
sem koma upp til að blása, og
fæla þá með hávaða eða á annan
hátt af veiðisvæðinu eða með
öðrum hætti að trufla veiðar
hvalveiðiskipanna".
Mættir voru á skrifstofu borg-
arfógeta þegar úrskurðurinn var
kveðinn upp lögmaður Hvals hf.,
Haraldur Blöndal, og fyrir áhöfn
Rainbow Warriors, var David
McTaggart í forsvari.
Morgunblaðið ræddi við Þor-
stein Thorarensen, er kvað upp
úrskurðinn og sagðist hann hafa
veitt skipverjum Rainbow
Warriors stuttan frest til að skila
greinargerð en með því ákveðna
skilyrði að þeir yrðu á ytri höfn-
inni á meðan fógetaréttur fjallaði
um málið. Hann kvaðst hafa gert
þetta vegna þess að þeir, sem hlut
áttu að máli, voru útlendingar er
ekki hafa bólfestu hér á landi. Ef
þeim hefði verið sleppt úr landi á
meðan fógetaréttur fjallaði um
málið og þeir komist út á miðin til
að endurtaka þann verknað, sem
lögbanns hefði verið krafist við,
hefði það í raun verið tákn þess,
að borgarfógeti tæki lögbanns-
beiðni Hvals hf. ekki alvarlega.
í stað þess að flýta málsúrslit-
um þá bað lögmaður áhafnar
Rainbow Warriors um frest til
gagnaöflunar í eina viku og fram-
lengdi með því, að dómi Þorsteins
Thorarensens, farbann, sem
mennirnir leggja sjálfir á sig með
því að gangast undir skilyrðin
fyrir frestuninni.
„Ef Rainbow W arrior verður
tekinn þá er það sjórán”
— sagði David McTaggart, talsmaður
Greenpeacsamtakanna
„Við munum væntanlega taka
um það ákvörðun á morgun (í
dag) hvernig við bregðumst við
lögbannsúrskurðinum,“ sagði
David McTaggart, talsmaður
Greenpeacesamtakanna, eftir að
úrskurður um lögbann á aðgerð-
ir Greenpeacemanna hafði verið
lesinn upp fyrir þeim í gær.
„Við munum ekki beita okkur
fyrir neinum aðgerðum gegn ís-
lenzkum vörum á Bandaríkja-
markaði. Við komum hér sem
vinir og höfum ekki í hótunum.
Það, sem við höfum mestan áhuga
á, er að fylgjast með því hvernig
íslendingar greiða atkvæði á fundi
alþjóðahvalveiðiráðsins í Lundún-
um í júlí. Þar hafa Seychelleseyjar
lagt fram tillögu um friðun á
Indlandshafi og hluta Kyrrahafs.
Hvernig Island greiðir atkvæði
þar um hefur ekki áhrif á hval-
veiðar íslendinga.
En ég sagði dómaranum í dag,
að eins og við skildum alþjóðleg
siglingalög þá hefðu islenzkir
varðskipsmenn ekki heimild til að
fara um borð í Rainbow Warrior á
alþjóðlegri siglingaleið og færa
skipið til hafnar. Aðeins brezkir
hermenn hafa heimild til þess og
verða að hlíta ströngum reglum.
Heimild til slíks er aðeins veitt í
tilvikum að skip hefur um borð
þræla, eiturlyf eða veldur mengun
— og ekkert slíkt á við okkur. Ef
íslenzk varðskip taka Rainbow
Warrior þá er það hreint sjórán,"
sagði David McTaggart ennfrem-
ur.
Almenna bókafélagið:
í>jófur í Paradís
í endurútgáf u
ALMENNA bókafélagið hefur
sent á markað 2. útgáfu af
skáldsögu Indriða G. Þorsteins-
sonar Þjófur í Paradís.
í tilkynningu frá AB segir m.a.
um bókina:
Þessi bók sætti verulegum tíð-
indum þegar hún kom fyrst út árið
1967 og hefur raunar verið sífellt
til umræðu síðan bæði fyrir efni
sitt og inntak og fyrir frábærlega
viðfelldið málfar.
Þessi margumtalaða skáldsaga
segir frá paradís íslenzkrar sveit-
ar á árunum kringum 1930 —
kreppuárunum. Persónurnar eru
bændafólk og sveitabörn. Einn
þessara kyrrláta bænda, sá sem er
einna fátækastur þeirra, villist
dálítið af réttri leið, gerist þjófur í
þessu friðsæla bændasamfélagi.
Hvernig á að dæma slíkan mann?
Bændafólkið veit að hann er vel
innrættur, hjálpsamur og barn-
góður — hvers vegna þá að dæma
hann fyrir þjófnaðinn? Réttvísin í
gervi sýslumanns verður að líta
öðruvísi á málið. Þess vegna hlýt-
ur þjófurinn að fara í tugthúsið.
Nokkurt fjaðrafok hefur orðið
út af Þjóf í Paradís á síðustu árum
vegna þess að höfundur hafði
ætlað að lesa hana í útvarp, en
Indriði G. Þorsteinsson
sett var á hana lögbann af því að
mörgum hefur fundizt að lýsing-
unni á verknaði þjófsins svipi til
raunverulegra atburða sem munu
hafa gerzt um líkt leyti og sagan á
að gerast. Þessu lögbanni hefur nú
verið aflétt með dómi.
Þjófur í Paradís er 134 bls. að
stærð. Útgefandi er Almenna
bókafélagið.
Eftir Iögbannið hafði verið sett á — Haraldur Blöndal, lögmaður
Hvals hf., ræðir við David McTaggart, talsmann Greenpeace-samtak-
anna, og Geir Viðar, réttarvottur, fylgist með. Mbi.mynd Kristján
„Þetta er skoðun dómara”
— sagði Hörður Ólafsson, lögmaður áhafnar
Rainbow W arriors
„ÞETTA er dómur íslenzks dóm-
stóls. Honum verður ekki breytt
nema með löglegum hætti. Þetta
er skoðun dómara og hana vcrð-
ur að virða þangað til henni
verður breytt,“ sagði Hörður
Ólafsson, lögmaður áhafnar
Rainbow Warriors, er Mbl. bar
undir hann lögbannsúrskurð
borgarfógetans í Reykjavík þar
sem Greenpeacesamtökunum er
bannað að trufla veiðar hvalskip-
anna.
r
„Islenzk
stjórnvöld
framfylgi
þessu lög-
banni”
— sagði Haraldur
Blöndal, lögmaður
Hvals hf.
„Hvalur hf. ætlast til, að
íslenzk stjórnvöld framfylgi
þessu lögbanni, sem nú verður
fylgt eftir með máisókn,“ var hið
eina, sem Haraldur Blöndal,
lögmaður Ilvals hf., vildi segja
um lögbannsúrskurð borgar-
fógeta. Hvali hf. var gert að
greiða eina milljón króna til
tryggingar lögbanninu.
Blaðamaður Mbl. spurði Harald
hvort þetta þýddi, að íslenzk
varðskip yrðu látin stugga við
Rainbow Warrior, ef skipið reyndi
að trufla frekari veiðar íslenzku
hvalveiðiskipanna. „Það er þeirra
að ákveða það,“ sagði Haraldur.
AlUa.YSlNCASIMCJN ER:
22480 ^
|R«r0tmWaí>it)
r
teaímmt
Marks og Spencer
Marks & Spencer.
dömufatnaöur í úrvali.
V,