Morgunblaðið - 27.06.1979, Side 10

Morgunblaðið - 27.06.1979, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ1979 Varp við Breiðafjörð minna en á s.l. ári Stykkishi'ilmi. 24. Júnf. EINS og víðar hefir vorið verið mjög kalt hér við Breiðafjörð og nú um Jónsmessu finnst okkur lítið sem ekkert vor hafa komið. Þessir vorkuldar og gjóstur hafa haft sitt að segja um allt varp sem er miklu seinna á ferðinni en verið hefir. Varpið verður því að allra dómi sem ég hef rætt við minna en í fyrra og var þó ekki á bætandi. Nú hefir það einnig komið fyrir að vargur hefir verið áleitnari í eggin og eru þess dæmi að margir hafi orðið fyrir því að hreiður hafa verið rænd og eyðilögð. Rigning- arnar sem komu fyrir skömmu höfðu líka sitt að segja, sérstak- lega þar sem fuglinn hafði gert sér hreiður í mýrlendi eða djúpum holum og skorningum. Þar fóru þau á flot. Enn í dag er fuglinn að setjast upp og meira verður nú vart við kríuna í varplöndum en áður og mun henni fara fjölgandi og telja varpbændur það góðs viti. Minkaleit hefir verið lítilshátt- ar um eyjar og þar sem minkur hefir sést hefir verið leitað. En minkurinn hefir ásamt vargfugli séð um að æðavarp hefir ekki aukist. Útskipun á framleiðsluvörum er nú hafin á ný, og hafa skip þegar siglt til útlanda með vörur á markað, enda fóru sum skipanna þegar af stað, er bráðabirgðalögin höfðu verið gefin út. LjÓni WJI. 17900 Bljkahólar 2ja herb. íb. 60 fm útb. 11.0 millj. Fossvogur 2ja herb. íb. 65 fm þar af 28 fm stofa sér inng. og verönd. Mjög rúmgóö. Bústaðarhverfi 130 fm 5 herb. íb. á 1. haeð, auk 30 fm bílskúr. Fæst í skiptum fyrir 4ra herb. íb. í Rvík eða Kóp. Einbýlishús — Fossvogur Fæst aðeins í skiptum fyrir stóra sérhæð eöa raðhús. Góð peningamilligjöf nauðsynleg. Höfum fjársterkan kaupanda aö 300 — 400 fm einbýlishúsi. Á móti gæti komiö einbýlishús á eftirsóttum staö í vesturbænum. Fasteignasalan Túngötu Sölustjóri: Vilhelm Ingimundarson, heimasími 30986. Jón E. Ragnarsson hrl. 22480 AUGLYSINGA- SÍMINN ER: Nýstúd- entar fráMA Hópur þeirra 116 nýstúdenta sem útskrifuðust frá Mennta- skólanum á Akureyri 17. júní s.l. Meðal þeirra sem þá luku prófi voru fyrstu stúdentarnir sem útskrifast af tónlistarkjörsviði (sjá litlu myndina). Myndirnar tóku Eðvarð Sigurgeirsson og Gísli Sigurgeirsson. Nýr gíróseðill fyr- ir símareikningana 1. júlí tekur Póst- og símamála- stofnunin upp nýja gerð símareikn- inga, sem eru ( samræmi við nýjan gíróseðil. Sfmareikningurinn. sem er áfstur við gfróseðilinn er einnig settur upp á annan og gleggri hátt en áður og gefur nú betri upplýs- ingar en fyrr um skiptingu reikn- ingsupphæðarinnar. Einbýlishús í smíðum á Seltjarnarnesi 170 ferm. einbýlishús í smíöum á góöum staö á sunnanveröu Seltjarnanesi. 40 ferm. bílskúr fylgir. Húsiö selst frágengiö aö utan meö tvöföldu gleri og útihuröum. Húsiö verður tilbúiö til afhendingar í haust. Teikningar á skrifstofunni. Uppl. gefur Agnar Gústafsson hrl. Hafnarstræti 11, símar 12600 og 21750. Utan skrifstofutíma 41028. Þá mun þessi nýja gerð gíróseðla, sem er fyrir tölvulestur, stuðla að því að greiðslur munu berast stofn- uninni hraðar en áður frá hinum ýmsu greiðslu3töðum. Símnotendur ættu því síður að verða fyrir óþæg- indum vegna lokunar á síma, eftir að símareikningur hefur verið greidd- ur, eins og átt hefur sér stað í einstöku tilfellum að undanförnu. Símnotendum er bent á að hafa gíróseðilinn og reikninginn með í öllum tilvikum um leið og greitt er. Á gíróseðlinum er tölvuforskrift, en vegna tölvulesturs er mjög áríðandi að á framhlið gíróseðilsins sé hvorki stimplað né hann illa meðhöndlaður. Greiðslu má sem fyrr inna af hendi á póst- og símstöðvum, póst- gíróstofunni 3vo og í bönkum og sparisjóðum. Gjalddagi er fyrsta dag útgáfumánaðar, en tíu dögum síðar má búast við lokun síma, hafi reikningurinn þá ekki verið greidd- ur- (Fréttatilk.) 29555 Skólavörðustígur 3ja herb. mjög góö íbúö til sölu. Laus strax. Aöeins góö útborgun kemur til greina. Upplýsingar á skrifstofunni (ekki í síma). EIGNANAUST Laugavegi 96 (viS Stjörnubíó) Sími 2 95 55 Lártw Helgason rnlustj. Svanur Wr Vllhjálmsaon hdl. Einbýlishús við Sæbraut 364 ferm. glæsilegt einbýlishús á tveim hæöum viö Sæbraut á Seltjarnarnesi. Á efri hæö eru stofur, 3 svefnherb., eldhús búr, þvottaherb., og snyrting. Á neöri hæö er tvöfaldur bílskúr, 4 herb., gufubaö og geymsl- ur, einnig er á neöri hæö 2ja herb. 70 ferm. íbúö meö sér inngangi. Óvenju glæsileg og vönduö eign. Uppl. gefur Agnar Gústafsson hrl., Hafnarstræti 11, símar 12600 og 21750. Utan skrifstofutíma 41028. Fríhöfnin opnar á ný SAMKOMULAG hefur náðst um launaflokk, launaþrep og önnur starfskjör sumarafleysingafólks í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli og verður farið eftir sömu reglum og gilda um aðra starfsmenn Fríhafnarinnar. Frá þessu er skýrt í fréttatilkynningu, sem Morgunblaðinu barst frá BSRB. Samkomulag náðist um þessi atr- iði, en eins og kunnugt er af fréttum dcildu fjármálaráðherra og BSRB um kaup og kjör nýráð- inna starfsmanna hjá Fríhöfninni og var hún lokuð f nokkra daga. Samkomulagið, sem undirritað var í fyrrinótt var strax borið undir starfsmenn Fríhafnarinnar, og staðfest með 32 atkvæðum gegn 3. Samkomulag náðist um vinnu- tíma sumarafleysingarfólksins, orlof verður greitt samkvæmt or- lofslögum og veikindaréttur verður í samræmi við lög um uppsagnar- frest og veikindarétt frá 1. maí 1979. Þá verði tryggingaréttur sá sami og fastir starfsmenn njóta. Um launaflokk og launaþrep og önnur starfskjör sumárafleysinga- fólksins fer eftir sömu reglum og gilda um aðra starfsmenn Fríhafn- arinnar. Þá varð samkomulag um það, að aðilar falli frá viðurlögum eða skaðabótum út af þessu máli.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.