Morgunblaðið - 27.06.1979, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ1979
19
N orskir f jölmiðlar vilja
nú þegar 200 mílna f isk-
veiðilögsögu við Jan Mayen
íteló, 16. júnl.
Frá fréttarltara Mbl.
Jan Erlk Laure.
ÞEIRRI skoðun vex nú
stöðugt fylgi í norskum
fjölmiðlum, að Norðmenn
eigi ekki að taka sér 200
mílna efnahagslögsögu við
Jan Mayen í bili heldur að
taka sér 200 mílna fisk-
veiðilögsögu nú þegar.
Þessum skoðunum var
sérstaklega haldið fram í
kjölfar fundar fulltrúa
sjávarútvegsráðuneytisins,
fulltrúa utanríkisráðuneyt-
isins og fulltrúa sjávarút-
vegsins í landinu í fyrri
viku.
Á þessum fundi gerðu
sjómenn mjög ákveðna
kröfu um að Norðmenn
Toppfundurinn í Tokyo:
Samið um takmörk-
un á olíuirniflutningi?
Tokyo. 26. júní. Reuter.
JIMMY Carter virtist í
dag sannfærður um, að
samkomulag um takmörk-
un á olíuinnflutningi
þeirra sjö ríkja, sem að
toppfundinum í Tokyo
munu standa, næði fram
að ganga. Takmörkunin
yrði þó ekki meiri en svo,
að hún hefði ekki áhrif á
hagvöxt í heiminum.
Þá lagði Carter á fundi með
fréttamönnum mjög þunga
áherzlu á að lausn yrði fundin á
vandamálum þeirra þúsunda
flóttamanna sem frá Víetnam
streyma dag hvern.
Carter lauk í morgun viðræðum
sínum við Ohira forsætisráðherra
Japans um undirbúning toppfund-
arins, sem hefst á fimmtudag.
Michael Blumenthal, efnahags-
málaráðherra Carters, staðfesti
bjartsýni forsetans, þegar hann á
fundi með fréttamönnum nú undir
kvöldið sagði, að hann hefði mikla
trú á því að ríkin sjö kæmust að
samkomulagi um að takmarka
olíuinnflutning til að mæta þeim
vandræðum sem við væri að
glíma.
Nýnasista-
foringi
úr haldi í
Ósló
Ónló, 26. júní. Frá fréttararitara
Mbl. Jan Erik Laure.
ERIK Blucher, foringi nýnasista
í Noregi, er nú frjáls ferða sinna
á nýjan leik eftir að hafa setið í
fangelsi í fjóra daga grunaður
um hlutdeild í sprengingunum 1.
maí s.l. þegar einn maður slasað-
ist alvarlega.
Blucher var sleppt eftir að
dómari í Ósló úrskurðaði, að
ekki lægju nægar sannanir fyrir
um sekt hans til að halda honum
í varðhaldi lengur.
Sabena
kaupir
DC-10
áfram
Briíssel, 26. júní. AP
TALSMAÐUR belgíska flugfél-
agsins Sabena sagði á fundi með
fréttamönnum í dag, að félagið
myndi ekki afturkalla pöntun
sína á fjórðu DC-10 þotu félags-
ins, sem það á að fá næsta
sumar.
Carlos Van Refelghem,
stjórnarformaður félagsins,
sagði að ákvörðun félagsins und-
irstrikaði aðeins trú félagsins á
þessari gerð flugvéla.
Norræna eldf jallastöðin:
Kannar jarö-
skorpuhreyfingar
á Hengilssvæðinu
NORRÆNA eldíjallastöðin hefur
fengið styrk frá Vfsindasjóði að
upphæð kr. 1.800 þúsund til.
rannsókna á jarðskorpuhreyfing-
um og gasvirkni á Hengilssvæð-
inu. Guðmundur Sigvaldason
jarðfræðingur, forstöðumaður
Norrænu eldfjallastöðvarinnar,
sagði að hér væri um að ræða
rannsóknir til að bera saman
virkni umbrotasvæða t.d. Kröflu
og svæða sem hefðu ekki verið
virk í mörg hundruð ár.
—Bæði Orkustofnun og Hita-
veita Reykjavíkur hafa rannsakað
þetta svæði mikið, sagði Guð-
mundur, en með rannsóknum okk-
ar nú hyggjumst við beita nýjum
tækju sér þegar 200 mílna
fiskveiðilögsögu.
Ákveðið var að halda
annan fund þessara aðila
nú í vikunni þar sem reynt
yrði að komast að einhverri
niðurstöðu sem allir aðilar
gætu sæst á.
4 f órust
25 ennþá saknað
Fiumicino, ftalíu. 26. júní. AP.
FRANSKT vöruflutninga-
skip og ítalskt olíuflutn-
ingaskip lentu í hörðum
árekstri út af ítalska fiski-
bænum Fiumicino í nótt
og kom þegar mikill eldur
upp í þeim. ítölsk yfirvöld
sögðu í morgun, að fjórir
hefðu farist og 25 var
ennþá saknað.
Klukkustund eftir áreksturinn
var oliuskipið enn í ljósum logum,
en björgunarmenn þorðu ekki um
borð í vöruflutningaskipið vegna
sprengihættu svo ekki er enn vitað
um afdrif fjölmargra eins og áður
sagði.
Flestir úr áhöfn olíuskipsins
komust um borð í önnur skip en
voru margir nokkuð brenndir, en
fáir þó alvarlega
Belgískfreigátaí Reykjavík
Belgíska herskipið Westhinder lagðist að bryggjil í Reykjavík í
gær, og hér sjást tveir pollar mæna löngunaraugum út í hinn
glæsta farkost. Freigátan verður til sýnis við Faxagarð í dag
milli klukkan 14 og 17.
Westhinder er nýlegt skip, 2300 tonn að stærð, 107 metra langt og
10.5 metra breitt, og það ristir 3.60 metra. Hingað kom freigátan
frá Halifax en heldur síðan áfram til Trömsö í Noregi.
99
Meöf erd haml-
aðra í bernsku”
Norrænt þing um sérkennslumál í Reykjavík
NORRÆNT þing um sér-
kennslumál, það sextánda í
röðinni, sett í Háskóla íslands í
gær og er þetta í fyrsta skipti sem
þing af þessu tagi er haldið hér á
landi. Þing þessi eru á vegum
menntamálaráðuneytanna og
haldin fimmta hvert ár til skiptis
á Norðurlöndunum. Um 250
starfsmenn sem sinna uppeldis-
málum blindra/sjónskertra,
heyrnalausra/heyrnskertra og
málhamlaðra sækja þingið. Að
þessu sinni verður aðallega fjallað
um meðferð hamlaðra í bernsku
og verður 21 erindi flutt á þinginu.
Undirbúningsnefnd af íslands
hálfu hefur verið skipuð þeim
Magnúsi Magnússyni, Pálínu
Jónsdóttur og Þorsteini Sigurðs-
syni.
aðferðum m.a. varðandi fjarlægð-
ar— og landmælingar svo og
síritandi hallamælingar og kanna
með því hreyfingar á jarðskorp-
unni. Tilgangurinn með þessari
rannsókn er að sjá hvernig svæði
hegðar sér eftir að hafa verið
óvirkt í þúsund ár og fá eins konar
bakgrunnsupplýsingar um það og
mætti þá t.d. bera saman þetta
svæði og Kröflusvæðið, sem engar
slíkar upplýsingar voru til um.
Guðmundur sagði að styrkupp-
hæðin væri um það bil fjórðungur
þess sem myndi verða unnið fyrir
í sumar, en rannsóknirnar eru
þegar byrjaðar og hafa stjórnað
þeim m.a. Eysteinn Tryggvason og
Karl Grönvold.
FAE
Kúlu- og rúllulegur
H§H precision
88 Hjöruliðir
TIMKEN
Keilulegur
<onlinenlal
Viftureimar
Einnig eru tímareimar og tímakeðjur fáanlegar í flestar gerðir bifreiða og vinnuvéla.
Stærsta sérverzlun landsins með legur, ásþétti, hjöruliði og skildar vörur. Sendum
land allt «*Wng
feynsla
Þjonust
FALKIN N
SUOURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 __
r