Morgunblaðið - 27.06.1979, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ1979
25
fclk f
fréttum
FERÐ Jóhannesar Páls páfa til ættjarðar sinnar, Póllands, varð mikil frægðarför
fyrir hann og sigurganga kaþólsku kirkjunnar í þessu kommúnistaríki. — Þessi
mynd er tekin í illræmdum fangabúðum frá því á tímum Hitlers, Auschwitz-fanga-
búðunum. — Þangað kom páfinn, en við einn veggjanna í fangabúðunum lagði hann
blómsveig, kraup undir veggnum og bað fyrir þeim er þar voru teknir af lífi, en
veggurinn, sem páfinn kraup við og myndin er af, var kallaður „Dauðaveggurinn",
en hann hafði því hlutverki að gegna að við hann fóru aftökur fanga fram.
MARAÞONSUNDKONAN
Stella Taylor, sem er brezk,
varð fyrir stuttu að gefa upp á
bátinn þriðju tilraun sína til
þess að marka þau tímamót að
verða fyrsta manneskjan sem
syndir milli Bahamaeyja og
Bandaríkjanna. — Hún lagði
af stað frá eyjunum, en varð að
gefast upp eftir að hafa verið
20 klst. á sundi og var hún þá
samkvæmt ferðaáætlun sinni
búin að leggja að baki um
helming leiðangursins. Hún
hafði gert ráð fyrir að vera um
40 klst. á leiðinni, sem er um 80
mílur. — Sundkonan er nú 47
ára að aldri.
ÞETTA er nýjasta fréttamynd-
in af Josip Broz Tito marskálki
og einræðisherra í Júgóslavíu í
yfir 30 ár. — Hann er nýlega
orðinn 87 ára gamall. Sagt er
að hann fari sér með hægð við
að finna leiðir til þess að ekki
sjóði uppúr þegar hann verður
að drega sig í hlé frá
stjórnarstörfum eða í því til-
felii að hann félli skyndilega
frá. — Kunnugir telja að Tito
hafi enn ekki tekið neina
ákvörðun í þessu máli.
KVENÞJÓÐIN í Nýju Delhi greip öll tiltæk keröld
til að sækja vatn í borgarbrunnana nú fyrir
skömmu, er þar rigndi dálítið eftir sjö vikna
hitabylgju sem gekk þar yfir og vatnsskort af þeim
sökum.
Efling göngudeild-
ar sykursjúkra
höfuðáhugamálið
Samtök sykursjúkra, Reykja-
vík héldu aðalund sinn nýlega.
í skýrslu stjórnar var getið um
þau margvíslegu málefni, sem
unnið var að á árinu. Meðal
þeirra mála má geta að unnið var
að þátttöku hins opinbera í hluta
af þeim mikla kostnaði, sem
sykursjúkir, margir hverjir,
verða að bera vegna veikinda
sinna. Er ánægjulegt að mikill
skilningur rfkir hjá viðkomandi
aðilum, umtalsverður árangur
hefur náðst, og hillir undir viðun-
andi lausn margra af veigamestu
hagsmuna málunum á þessu
sviði.
Þá gangast Samtök sykur-
sjúkra fyrir félagsfundum, þar
sem komið er á framfæri fróðíeg-
um erindum um sjúkdóminn, auk
þess sem markmið slíkra funda
er að auka innbyrðis kynni fé-
lagsmanna. Eins og oft vill verða
í félagssamtökum er áhugi mis-
jafn og hefur fundarsókn ekki
ætíð verið eins og dagskrárefni
hafa gefið tilefni til.
Samtök sykursjúkra voru stofnuð
1971 og nutu þegar frá upphafi
stuðnings og forgöngu álitlegs
hóps áhugamanna. Aðalfrumkvöð-
ull að stofnun samtakanna var
Helgi Hannesson enda gegndi
hann formennsku frá upphafi, þar
til nú á aðalfundinum að hann
baðst undan endurkjöri. Sem við-
urkenningu fyrir frábær störf að
stofnun Samtaka sykursjúkra, og
æ síðan, var Helgi Hannesson
kjörinn fyrsti heiðursféagi sam-
takanna á aðalfundinum.
Félagar eru um 600 og er hafinn
undirbúningur að efldu félags-
starfi, sem yrði sjálfsagt auðveld-
ara ef fl.eiri af þeim, sem beint eða
óbeint eru aðnjótandi starfsemi
samtakanna, legðu þeim liðsinni
með því að gerast félagsmenn.
Göngudeild Sykursjúkra, við
Landspítalann, sem komið var á
fyrir forgöngu félagsins, er eitt
höfuð áhugamálið. Vilja samtökin
efla þá starfsemi sem mest má
verða. Hefur það m.a. verið gert
með bættum tækjabúnaði og er
stefnt að frekari framlögum á
þeim vettvangi.
Þá heyrir útgáfa tímaritsins
Jafnvægi og annarra upplýsingar-
rita til fastrar starfsemi félagsins.
Ráðgert er sumarferðalag að
venju og eru áætlanir um að það
verði síðla sumars og þá ef til vill
með nýstárlegu fyrirkomulagi.
Stjórn félagsins skipa nú Þórir
Helgason yfirlæknir, Örlygur
Þórðarson, Steinunn Þorsteins-
dóttir, Guðrún Hjaltadóttir,
Snorri Snorrason, Þór Þorsteins
og Bjarni Björnsson sem gegnir
formennsku.
Léleg símaþ jón-
usta í Bíldudal
—segir fréttaritari
Bíldudal, 24.6.
SÍMAÞJÓNUSTA hér er mjög
léleg, mjög er vont að tala út fyrir
svæðið vegna truflana. Viðgerð.ar-
þjónusta er í algjöru lágmarki eða
fyrir neðan lágmark, því ef bilar
nokkuð þarf að bíða í marga
mánuði eftir að fá gert við.
Til dæmis um þjónustuna má
geta þess að frá kl. 17 á föstudegi
til kl. 9 á mánudegi er símstöðin
lokuð, sem kemur sér mjög illa
fyrir aðkomufólk. Finnst fólki hér
að símaþjónustan versni eftir því
sem gjald hækkar, því vanalega er
það Landsíminn sem ríður á vaðið
með allar hækkanir.
í dag er fyrsti dagurinn í langan
tíma sem hægt er að segja að sé
gott veður, logn, sólskin og blíð-
viðri.
Fréttaritari.
Þýzka tímaritið „Zeit Magazin“ birtir á forsíðu nú íbyrjun
mánaðarins mynd eftir Erró, Annað hrópið. Segir þar á
forsíðu að listamaðurinn heimfæri að nútímanum verk
Edvards Munchs, Hrópið, en Erró er hins vegar sagður
vera japanskur listamaður.
zweite Sctirei
Modcrnc' Malcr
interpretieien Meisterwerke:
Hior ahtuaiisíert
der japanische Kunstler Frro
das beriihmte Werh
»t)er Schrri« von (dvard Munch
(Seite 54)