Morgunblaðið - 27.06.1979, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ1979
Ekki sjatnaði
grauturinn á
toppi 1. deildar
HVORT tvegííja Framarar oj? SkaKamenn eru líklega sáróánægðir
með að haía ekki farið með sigur af hólmi í viðureign liðanna á
Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Jafntefli. 1:1, varð raunin, en miðað
við gang leiksins hefðu Framarar átt að vinna. 3:1 hefði ekki gefið
ótrúlega mynd af leiknum. Leikur þessi var annars furðulegur. Fyrri
hálfleikurinn var með því lakasta sem boðið er upp á hórlendis og þá
skrifaði undirritaður jafn marga punkta í minnisbókina og hann
gerði á 10 fyrstu minútum síðari hálfleiks. Leikurinn vaknaði þá
heldur betur til lífsins, ekki síst er annað markið var komið. Það
þurfti mark til að vekja leikinn af værum hlundi og þegar það kom,
voru menn ekki sviknir af framhaldinu.
Fram 4.
ÍA I.
Ekki svo mikið sem örlaði á
samleik í fyrri hálfleik, leikurinn
var eitt allsherjar miðjuþóf og
greinilegt að taugarnar voru í lagi
hjá hvorugu liðinu. Ekki var hætt
á neitt nema ef vera skyldi það að
flæma áhorfendur burt. Aðstæður
voru þó ágætar fyrir góða knatt-
spyrnu í gærkvöldi og við þær
aðstæður skilja menn ekki hvers
vegna ekki er hægt leika þokka-
lega.
Sem fyrr segir var lítið um að
vera í fyrri hálfleik. Það næsta
sem ÍA komst að skora, var þegar
Marteinn ætlaði að senda á Guð-
mund markvörð Baldursson, en úr
varð hið ágætasta markskot sem
Guðmundur varði snaggaralega.
Markið, lífgjafi leiksins, hefði átt
að koma á 29. mínútu, en þá sendi
Rafn Rafnsson knöttinn til Guð-
mundar Steinssonar, sem var
algerlega dauðafrír á markteig.
En Guðmundur hitti ekki knöttinn
og leikurinn var dæmdur til að
lúra lengur.
Sem betur fer var ljóst, að
leikmenn liðanna nenntu þessu
ekki lengur. Einkum voru Skaga-
mennirnir sprækir fyrstu
mínúturnar og þegar á 47. mínútu
lá knötturinn í neti Fram eftir
spyrnu Sveinbjarnar Hákonarson-
ar. Hann var hins vegar rang-
stæður og varð því að fresta
hátíðarhöldunum. Fimm mínútum
síðar kom algerlega upp úr þurru
frábær sóknarlota hjá Fram, sem
lauk með því, að Trausti Haralds-
son renndi kenttinum inn fyrir
vörn IA, þar sem Pétur Ormslev
kom á fleygiferð og skoraði lag-
lega fram hjá úthlaupandi mark-
verðimipi Jóni Þorbjörnssyni.
Framarar voru enn hættulegir
og á næstu mínútunum komst
Pétur tvívegir í góð færi, fyrra
skiptið eftir einleik, en þá varði
Jón Þorbjörnsson frábærlega. í
síðara skiptið geystist Pétur einn í
gegn meðan varnarmenn ÍA
góndu á línuvörðinn og biðu eftir
rangstöðumerki sem aldrei kom.
Pétur brenndi af.
Hættulegustu sprettir Skaga-
manna komu gjarnan er Sigþór
Ómarsson var nálægur, en hann
er viðsjárverður vörnum og lék
Framvörnina nokkrum sinnum
illa. Ekkert kom þó út úr erfiði
Sigþórs, en einu sinni skaut hann
naumlega fram hjá í góðu færi.
Munaði svo mjóu, að allur skarinn
á vellinum var farinn að fagna
marki, enda flestir vallargesta
nýstignir á land af Akraborginni,
eða nýbúnir að þræða Hvalfjörð
suður til Reykjavíkur.
Skaginn jafnaði á 70. mínútu, en
þá skallaði Sigurður Halldórsson
Sigurður V. Halldórsson skorar jöfnunarmark ÍA með góðum skalla síðla leiks.
Ljósm. Kristján
laglega í netið eftir aukaspyrnu
Kristjáns Olgeirssonar frá vinstri
endamörkum. Lokakaflann var
um stórsókn, Fram að ræða og lá
sigurmarkið í loftinu án þess að úr
yrði. En Framarar léku vel, not-
uðu kantana og voru grimmir í
teignum og höfðu betur í mörgum
návígjum sem æskilegra hefði
verið að varnarmennirnir hefðu
haft betur í. Varð Jón markvörður
Þorbjörnsson að grípa nokkrum
sinnum vel inn í og einu sinni
bjargaði Jóhannes Guðjónsson af
línu skoti Guðmundar Steinsson-
ar.
Fram verður ekki meistari á því
að gera sífellt jafntefli. Eftir á
spyr enginn hvort liðið hafi átt
skilið að vinna leikina. Pétur
Ormslev átti stórgóðan leik að
Toppur og botn
mætast í kvöld
ÞRÓTTARAR og KR-ingar leiða
saman hesta sína á Laugardals-
vellinum í kvöld í 1. deild Islands-
mótsins í knattspyrnu. Hefst
leikurinn klukkan 20.00.
Hér er um stórmikilvægan leik
að ræða, KR er meðal efstu liða,
Þróttur meðal þeirra neðstu og
verða bæði liðin því helst að sigra
í leiknum af ólfkum ástæðum.
Samkvæmt Mótabók KSÍ mun
Róbert Jónsson dæma leikinn.
þessu sinni, einkum í síðari hálf-
leik, þegar hann lék á alls oddi og
gerði mikinn usla. í heildina voru
aðrir leikmenn lakari, en börðust
þó allir af grimmd. Leikmenn eins
og Ásgeir Elíasson, Marteinn
Geirsson, Rafn Rafnsson og
Trausti Haraldsson gerðu allir
góða hluti, en einnig slæma þess á
milli.
Sigþór Ómarsson átti bestan
leik Skagamanna og honum fer
fram með hverjum leik. Hann er
sprettharður og skilar kenttinum
yfirleitt vel eftir atvikum.
Kristján Olgeirsson og Árni
Sveinsson áttu einnig góðan leik,
slæmt er þó hve Árni er
„einfættur". Sigurður Lárusson
var og sterkur í vörninni.
í stuttu máli:
íslandsmótið, 1. deild, Fram — í A:
1:1 (0-0)
Mark Fram: Pétur Ormslev (52.
mín.)
Mark ÍA: Sigurður Halldórsson
(70. mín.)
Gul spjöld: Marteinn Geirsson
Dómari: Arnþór Óskarsson
________________________— gg.
STAÐAN
Staðan í 1. dcild er nú þessi:
ÍBK 6 3 3 0 11:2 9
Fram 6 2 4 0 10:5 8
ÍA 6 3 2 1 11:8 8
ÍBV 6 3 1 2 8:3 7
KR 5 3 11 6:4 7
Valur 6 1 3 2 7:7 5
Víkingur 6 2 1 3 6:10 5
KA 6 2 0 4 8:11 4
Þróttur 5 113 3:10 3
Haukar 6 1 0 5 3:15 2
Markhæstu leikmenn eru:
Pétur Ormslev Fram 5
Sveinbjörn Hákonars. ÍA 5
Gunnar Blöndal KA 3
Þórður Karlsson ÍBK 3
Einkunnagjöfin
FRAM: Guðmundur Baldursson 3, Símon Kristjánsson 2, Trausti Haraldsson
2, Marteinn Geirsson 2, Kristinn Atlason 2, Gunnar Bjarnason 1, Gunnar
Guömundsson 2, Ásgeir Elíasson 2, Rafn Rafnsson 2, Pétur Ormslev 4,
Guömundur Steinsson 2, Hafþór Sveinjónsson (vm) 2.
ÍA: Jón Þorbjörnsson 3, Siguröur Halldórsson 2, Kristján Olgeirsson 3,
Sveinbjörn Hákonarson 2, Jón Alfreösson 2, Árni Sveinsson 3, Sigþór
Ómarsson 4, Guðbjörn Tryggvasson 1.
DÓMARi: Arnþór Óskarsson 2.
Auövitaö
Beniaol
OKEYPIS FYRIR BÖRNINNAN10 ÁRA
Næsta brottför 11. júlí.
Góðir greiðsluskilmálar.
Seljum farseöla um allan heim á lægsta
Ferðamiðstöðin
AÐALSTRÆTI 9 — SÍMI 28133
Margra ára reynsla,
brautryöjendur
í Benidorm feröum.
Reyndir fararstjórar,
þjálfaö starfsfólk.