Morgunblaðið - 27.06.1979, Síða 31

Morgunblaðið - 27.06.1979, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ1979 31 Landshlaupi FRÍ lauk í gær Hátt á fímmta þúsundmanns tóku þátt LANDSHLAUPI FRÍ lauk á Laugardalsvellinum kl. 8.23 í gærmorg- un eða svo til alveg nákvæmlega á réttum tíma. I>á höfðu um 4500 manns hlaupið alls 2500 km vegalengd með boðhlaupskeflið. Það var Jóhann Jóhannesson sem hljóp lokasprettinn og afhenti síðan Erni Eiðssyni keflið. Mjög vel heppnuðu iandshlaupi var lokið. Örn afhenti síðan þjóðminjaverði Þór Magnússyni keflið til varðveislu ásamt kveðju þeirri er innan í keflinu var til allra hlauparanna frá forseta íslands. Allt er gott sem endar vel Sumarið skartaði sínu fegursta í gærmorgun er landshiaupið end- aði. Um kl. 1.50 voru hlaupararnir við Ferstiklu í Hvalfirði og allt stóðst áætlun. Og á slaginu 7.45 skiluðu Mosfellingar keflinu á Korpúlfsstöðum til sveitar Reykjavíkur. Jón oddviti á Reykj- um lét sig ekki vanta og skilaði síðasta spretti fyrir Mosfellssveit. Fyrsta sprettinn í Reykjavík hljóp Baldur Jónsson vallarstjóri íþróttavallanna í borginni og var hann léttur á fæti eins og fleiri. Við af honum tók Agúst Asgeirs- son þekktur langhlaupari og þrátt fyrir að hann skilaði af sér keflinu eftir 900 metra hljóp hann alla leiðina á Laugardalsvöllinn. Skiptingin við Korpúlfstaði var hátíðleg, lúðrasveit lék og ísl. fánar voru við sýslumörkin. Þá fylgdist nokkur fjöldi fólks með er lagt var upp í síðasta spölinn. Gleði þátttak- enda mikil Blaðamaður Mbl. ræddi við Sigurð Helgason aðalskipuleggj- anda hlaupsins síðasta áfanga hlaupsins. En hann ásamt Sigurði Björnssyni varaformanni FRI bar hitann og þungann af landshlaup- inu. Hafa þeir fylgt svo til öllum hlaupurunum skref fyrir skref. Að vísu hafa verið hvíldir hjá þeim til skiptis en þær voru ekki margar. — Þetta hefur gengið mun bet- ur en ég átti von á, sagði Sigurður. Það er ekki fjarri lagi að ætla að alls hafi tekið þátt í hlaupinu um 4600 manns. Eða um 1600 fleiri en við reiknuðum með í upphafi. Það sem mér er einna eftirminnilegast í sambandi við hlaupið er gleði og áhugi allra þátttakenda. Skipulag Héraðssambanda og ungmenna- félaga var til mikillar fyrirmynd- ar. Þá kom mér það á óvart hversu vel á sig komið fólk er líkamlega. Oft hlupu heilir hópar með hlaup- aranum sem var með keflið. Þá var sama hvort var að nóttu eða degi, fjöldi fólks fylgdist með hlaupinu, og oft fór það langa leið til þess að sjá boðhlaupið. Erfiðasti kaflinn var á Ströndunum Það fór ekki milli mála að erfiðasti kaflinn var á Ströndun- um. Þar var veður afskaplega slæmt. Snjókoma og skóf í skafla. En Strandamenn standa svo sann- arlega fyrir sínu, og þrátt fyrir þessi erfiðu veðurskilyrði skiluðu þeir keflinu frá sér um klukku- stund á undan áætlun. í Öræfa- sveitinni þurftu 25 manns að hlaupa samtals 70 km leið og hlupu sumir allt að 4 km. Fyrstu átta dagana var veður frekar óhagstætt, súld og rigning. En besta veðrið er nú síðasta daginn, og lokakaflinn hefur verið dásam- legur, sagði Sigurður. Illauparar á öllum aldri — Þátttakendur voru á öllum Ljósm. Mbl. Lmilia. Siðasti spölurinn. Jóhann Jóhannesson frjálsíþróttafrömuður úr Ármanni hleypur síðasta spölinn í Landshlaupi FRÍ í gærmorgun. „Ég hafði gaman af þessu, nú eru rúm 50 ár frá því ég hóf kcppni í frjálsíþróttum,1* .sagði þessi aldna kempa sem unnið hefur mikið og óeigingjarnt starf í þágu frjálsfþrótta á íslandi. ólafur Unnsteinsson fþróttakennari hljóp með boðið inn á Laugardalsleikvanginn, þar sem hlaupinu lauk. og skokkar ólafur hér í humátt á eftir Jóhanni. aldri eins og fram hefur komið. Sá yngsti mun hafa verið 1 og V2 árs, en hann hljóp í Vestur-Isafjarð- arsýslu einn og óstuddur um 85 metra leið með keflið. Sá elsti var 89 ára og var það Glúmur Hólm- geirsson. Víða hlupu börn með foreldrum sínum. Og ekki var sjaldgæft að heilar fjölskyldur væru með. — Það var mjög gott að stjórna unga fólkinu sem tók þátt í hlaupinu. Að vísu þurfti að halda aftur af sumum en það var líka það eina. Þá er ég þakklátur þeim hlýju móttökum sem við höfum fengið um allt land, sagði Sigurð- ur. Hlaupid náði tilgangi sínum — Ég tel að hlaupið hafi náð tilgangi sínum. Þetta hefur vakið áhuga fólks á líkamsrækt og opnað augu fjölda fólks fyrir hreyfingu og útiveru. Þrátt fyrir að erfitt hafi verið að skipuleggja hlaupið tel ég að það hafi verið vel þess virði sagði Sigurður að lok- um. — þr. Ljósm. Emilía. Úrvalið vann heimsmeistarana ARGENTÍNUMENN héldu upp á árs afmæli HM-titilsins, er landslið þeirra í knattspyrnu mætti heimsúrvali á River Plate. Argentínu- mcnn höfðu ráðgert stórfelld hátiðarhöld þegar lið þeirra ynni sannfærandi sigur á úrvalsliði heimsins, en öllu slíku var frestað, þegar heimsliðið gerði sér lítið fyrir og sigraði Argentínumenn 2—1. Var þetta fyrsta tap Argentínumanna síðan að HM-titiIlinn var innbyrtur í fyrra. Síðan þrír sigrar og þrjú jafntefli. Argentínumenn höfðu frumkvæðið og hinn stórefnilcgi Diego Maradona skoraði fyrsta mark leiksins, af 20 metra færi úr þröngri aðstöðu. Brasilíski markvörðurinn Emerson Leao vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið, fyrr en knötturinn lá í netinu. Úrvalsliðið sótti mjög í sig veðrið í síðari hálflcik og á 62. mínútu snarþagnaði áhorfendaskarinn, er Luis Galvan varð fyrir því óláni að senda knöttinn í eigið net og jafna leikinn. Fjörkippur heimsliðsins átti ekki síst rætur að rekja til þess að Brasilíumennirnir Tonihno og Zico komu inn á í hálfieik og voru mjög sprækir. Það var frábær samvinna þeirra sem skilaði sér sem sigurmark úrvalsins. Zico skoraði. Lokakaflan sótti Argentína meira, en komst lítt áleiðis gegn vörn gestanna. Liðin voru þannig skipuð: Argentína: Fillol, Galvan, Olguin, Passarella, Tarantini, Gallego, Maradona, Houseman, Luque (Outes) og Valencia. Úrvalið: Leao, (Koncilia), Kaltz, Cabrini (Toninho), Tardelli, Pezzey.i Krol. Causio, Platini (Zico), Rossi, Asensi og Boniek. , Þess má geta. að Marco Tardelli var rekinn af leikvelli fyrir að brjóta gróflega á Diego Maradona. Hlauparar úr Ungmennafélagi Kjalnesinga skila boöhlaupskeflinu í Landshlaupi FRI til Mosfellssveitunga í blíðskaparveðri við Þingvallaveginn. Kjalnesingar hlupu með merki félags síns og fylktu liði síðasta spölinn. í humátt á eftir hlaupurunum koma bflar þeirra Sigurðar Helgasonar og Sigurðar Björnssonar stjórnarmanna úr Frjálsíþróttasambandinu, en allt hlaupið skiptust stjórnarmenn FRÍ á að fylgja hlaupurunum eftir. Mosfellssveitungar skiluðu keflinu til reykvískra hlaupara á móts við Korpúlfsstaði. Ilöfðu Mosfellssveitungar stillt þar upp lúðrasveit og mynduð var fánaborg. Skóp þetta mikla stemningu á skiptisvæðinu, enda veitti ekki af þar sem flestir Reykvíkinganna voru enn með stírur í augunum er þeir tóku við boðinu. Leiðréttmg í einkunnagjafir Mbl. hefur að undanförnu misfarist fáein nöfn. Fyrst skal nefna nöfn þeirra Jóns Áskelssonar og Sigurðar Halldórssonar leikmanna ÍÁ. sem féllu niður í einkunnagjöf fyrir leik IA og Vals. Fengu báðir 2 fyrir frammistöðuna. Þá vantaði Heimi Karlsson í lista leikmanna Víkings gegn Val. Fékk Heimir 3. Loks datt úr nafn Asbjörns Björnssonar úr leik KA og ÍBK. Ásbjörn fékk 2.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.