Morgunblaðið - 27.06.1979, Side 32

Morgunblaðið - 27.06.1979, Side 32
EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU M m.ysim; \ SIMINN KK: 22480 EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU M I.I.YSIM, \ SIMINN KK: 22480 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1979 Drakknaði í Mikla- vatni í Skagafirði MAÐUR drukknaði á Miklavatni í Skagafirði síðdegis í gær, er hann var að vitja um net í vatninu. Var hann einn á bátnum, DC-10 flugbannið: Bitnað á nær 2000 Flug- leiðafarþeg- umíNewYork „Á síðustu 20 dögum hefur alls 1881 farþegi á vegum Flugleiða í New York orðið fyrir töfum eða breytingum á áætlun vegna flug- bannsins á DC-10 breiðþotunni,“ sagði Baldvin Berndsen, stöðvar- stjóri Flugleiða á Kennedyflug- velli, í samtali við Mbl. í gær- kvöldi. Þar af hafa Flugleiðir orðið að senda um 800 farþega með öðrum flugfélögum til Evrópu og annarra staða. Arnarflug hefur á þessu tíma- bili flutt 452 farþega til íslands og Luxemborgar. Þá hefur Balti- moreflugið haft viðkomu í New York og sótt alls 55 farþega. Evergreen International Airlines hefur leigt Flugleiðum vél þrisvar á tímabilinu til þess að flytja alls 558 manns og 816 manns hefur orðið að flytja með hinum ýmsu flugfélögum beint frá New York til Evrópu. Baldvin sagði í samtali við Mbl., að þeir sæju um að koma farþegunum á aðrar flugvélar, en borguðu ekki mismuninn á far- gjaldinu. Hins vegar kvað hann sum félögin taka farseðlana gilda á sama verði og hjá Flugleiðum. Skrifstofa Flugleiða í New York sér um flugafgreiðslu fyrir tvö flugfélög önnur, þ.e. danska leigu- flugfélagið Maersk, sem flýgur þrisvar í viku til New York, og bandaríska flugfélagið Evergreen frá Arizona, sem flýgur 3—4 flug á viku til New York. en fólk í landi fylgdist með ferðum hans. Maðurinn var ekki úr Skagafirði, en var gestkomandi á bæ ein- um skammt frá vatninu, þar sem sonur hans býr. Ekki er alveg ljóst hvernig slysið bar að höndum, en að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki er jafnvel talið, að maðurinn hafi fengið aðsvif áður en hann féll útbyrðis. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. Fella niður tollá reiðhjólum „Ég vil ekki segja um frekari útfærslu á þessu nú,“ sagði Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra, er Mbl. spurði hann í gær, hvort sam- þykkt rfkisstjórnarinnar um að fella niður toll af reiðhjól- um frá og með 1. júlf n.k. þýddi jafnframt niðurfellingu vöru- gjalds og hvort samþykktin næði einnig til reiðhjólahluta og varahluta f reiðhjól. Tollur af reiðhjólum er < nú 80% og vöru-! gjald 30%, eða samtals 134%, og sama er að segja um vara- hluti aðra en dekk, slöngur I og ljósabúnað, en af því er totlurinn 35—40%. Páll Bragason hjá Fálkanum hf. sagði að segja mætti að reiðhjól væru nú það dýr hér, að um illseljanlega vöru væri að ræða vegna verðsins. Páll sagði, að ódýrustu barnahjól kostuðu nú um 50 þúsund krónur og reiðhjól fyrir fullorðna kostaði frá 100 til 200 þúsund krónur. „Ef samþykkt ríkisstjórnarinn- ar þýðir niðurfellingu á bæði tollum og vörugjaldi, gæti ég trúað að reiðhjólin lækkuðu um rösklega helming í verði," sagði Páll. Hornsteinn var lagður að byggingu Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga í gær, er hún var formlega tekin í notkun. ólafur Jóhannesson forsætisráðherra múraði hornsteininn í vegg ofnhússins og naut hann við það aðstoðar Eggerts G. Þorsteinssonar stjórnarmanns í íslenzka járnblendifélag- inu. Sjá nánari frásögn á bls. 15. Ljósm. Ól. K.M. 2,6 milljarðar kr. til autónna framkvæmda í orkumálum á árinu — m.a. verði boraðar tvær holur við Kröflu „ÞAÐ hefur verið reiknað út, að með því að veita þessum 2,6 milljörðum til aukinna framkvæmda á þessu ári megi ná fram gjaldeyrissparnaði upp á að minnsta kosti einn milljarð á ári. Varðandi aðrar aðgerðir vil ég ekki nefna neinar ákveðnar tölur, en þó cr ljóst að um sparnað upp á marga milljarða er að ræða, ef hægt verður að hrinda öllu í framkvæmd. Þar vega þyngst aðgerðir varðandi skipti fiskiflotans yfir í ódýrara eldsneyti og í húshitunar- málum,“ sagði Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra, er Mbl. ræddi við hann í gær um tillögur þær um aðgerðir til orkusparnaðar og hagkvæmari orkunýtingu, sem ríkisstjórnin samþykkti á mánu- daginn. „Þetta eru svo arðgæfar fram- kvæmdir að ég tel ekkert hikandi við að taka erlend lán til þeirra," sagði Hjörleifur, er Mbl. spurði hann með hverjum hætti ætti að tryggja viðbótafjármagn að upp- hæð 2,6 milljarðar króna til fram- kvæmda í orkumálum á þessu ári. „í aðalatriðum verður þessu fé varið til viðbótarframkvæmda við 9 hitaveitur, þar á meðal hraun- hitaveituna í Vestmannaeyjum, fjarvarmaveitur á ísafirði og Höfn í Hornafirði og hitaveitu á Egilsstöðum. Þá verður fé varið til raflínulagna; bæði nýlagna og viðbóta og má nefna þar línu frá Dalvík til Ólafsfjarðar, sem tengir Skeiðsfossvæðið og landskerfið, og styrkingu dreifikerfa í sveitum. Þá verður fé varið til að undir- búa stofnlínur og hraða þannig framkvæmdum á næsta ári og til jarðhitaleitar. Einnig er inni í þessu dæmi fé til borana við Kröflu og er reiknað með tveimur nýjum holum þar á þessu ári.“ I samþykkt ríkisstjórnarinnar er m.a. það, að stefnt verði að því frá og með 1. janúar 1980 að innflutningsgjöld af fólksbifreið- um verði stighækkandi með tilliti til eldsneytiseyðslu. „Það er ekki búið að marka stefnuna varðandi þetta,“ sagði iðnaðarráðherra. „Lágmarksdæmið er núlldæmi fyrir ríkissjóð, það er að hann verði ekki af tekjum vegna þessa, en svo er það spurning, hvort nýta á þessa leið til tekjuöflunar." Sjá: Samþykkt ríkis- stjórnarinnar bls. 17. Geir Hallgrímsson ritar forsætisráðherra bréf: Nefnd allra flokkakanni hagkyæmustu díukaupin GEIR Hallgrimsson formaður Sjálfstæðisflokksins hefur ritað ólaíi Jóhannessyni forsætisráðherra bréf, þar sem lagt er til að ríkisstjórn- in skipi nefnd er hafi það verkefni að kanna möguleika á olfukaupum á sem hagkvæmustu verði. Verði þar á meðal rætt við Sovétríkin um breytt fyrirkomulag verðmiðunar í olíukaupum þaðan. Leggur Geir Hallgrfmsson til að í nefndinni eigi sæti fulltrúar allra stjórnmála- flokkanna. Bréf Geirs Ilallgrímssonar til forsætisráðherra er svohljóðandi, en það var tekið fyrir á fundi rfkisstjórnarinnar í gærmorgun: Hr. forsætisráðherra Ólafur Jóhannesson. Reykjavík. Með tilvísun til þess mikla vanda, sem olíuverðhækkanir valda í atvinnu- og efnagagslífi okkar íslendinga, vil ég hér gera það að tillögu minni, að ríkis- stjórnin skipi nefnd, er allir stjórnmálaflokkar eigi fulltrúa í. Verkefni nefndarinnar sé að kanna alla möguleika á olíu- kaupum á sem hagstæðustu verði og þ.á m. taka upp viðræður við Sovétríkin um breytt fyrirkomu- lag verðmiðunar í olíukaupum þaðan. Nauðsynlegt er, að íslenzka ríkisstjórnin óski eftir viðræðum fyrir hönd nefndarinnar við æðstu stjórnvöld og fyrirsvarsmenn olíu- fyrirtækja í þeim olíuframleiðslu- og olíusöluríkjum, sem rétt þykir að snúa sér til í ofangreindum tilgangi. Þá er og eðlilegt, að nefndin hafi samráð og samstarf við íslenzku olíufélögin og þau séu hvött til að nýta viðskiptasam- bönd sín í sama tilgangi. Þarflaust er að rökstyðja tillögu þessa nánar, þar sem leita verður allra ráða til að tryggja landinu nægilegt eldsneyti á viðunandi verði og koma í veg fyrir stór- felldar álögur á landsmenn. Eg vænti þess, að þú og ríkis- stjórn þin taki sem fyrst afstöðu til þessarar tillögu minnar og er að sjálfsögðu reiðubúinn til viðræðna um málið, ef þess er óskað. Geir Hallgrímsson, form. Sjálfstæðisflokksins.“ Morgunblaðinu tókst ekki að ná tali af þeim Geir Hallgrímssyni eða Ólafi Jóhannessyni í gærkvöldi vegna þessa máls, þar sem hvorugur þeirra var í borg- inni. 1GÆR var lagt lögbann á þær aðgerðir Greenpeace-samtak- anna að hindra veiðar ís- lenzku hvalveiðiskipanna. Hvali hf. var gert að greiða eina milljón til tryggingar lögbanninu. Hvalur hf. mun fylgja lögbanninu eftir með málsókn fyrir bæjarþingi Reykjavíkur, að því er lög- maður Ilvals hf. sagði í viðtali við blaðamann Mbl. David McTaggart, talsmaður Greenpeace-samtakanna, sagði, að samtökin tækju vænt- anlega í dag ákvörðun um viðbrögð þeirra við lögbanninu. Farbanni á Rainbow Warr- ior, skipi samtakanna, hefur því verið aflétt og er Rainbow Warrior nú heimilt að sigla. Sjá einnig viðtöl á bls. 5.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.