Morgunblaðið - 30.06.1979, Page 4

Morgunblaðið - 30.06.1979, Page 4
 ALLT MEÐ ii EIMSKIP A næstunni fferma skip vor til íslands sem hér segir: ANTWERPEN: Skógafoss Lagarfoss Stafford Vessel Reykjafoss ROTTERDAM: Skógafoss Lagarfoss Vessel Reykjafoss FELIXSTOWE: Dettifoss Mánafoss Dettifoss HAMBORG: Mánafoss Stafford Mánafoss Dettifoss PORTSMOUTH: Bakkafoss Brúarfoss Selfoss Bakkafoss 23. júlí HELSINGBORG: Laxfoss 3 Háifoss . . ® 1°. juh [S 17. júlí P 29. júní öj 4. júlí 12‘ iúlí ÍFi 19. julí p ..Í 2. juli |7| 16. jÚIÍ J 23. júlí p J7| , . ® ™:JSr i 1 Ulla Beck 29. júní ® Laxfoss 4- iúlí ífu Háifoss 11-júlí GAUTABORG: Úöafoss 29. júní "dJ Urriöafoss 10. júlí 1|] MOSS: jíÍTl Fjallfoss 3. júii 'rn Urriöafoss H.jú'í fr] BJÖRGVIN: i Fjallfoss 6. júlí -£J KRISTJANSSANDUR: ±r| Fjallfoss STAVANGUR: Fjallfoss GDYNIA: Grundarfoss ROSTOCK: Grundarfoss OSLÓ: Fjallfoss VALKOM: Múlafoss írafoss RIGA: Reykjafoss 5-jú'í |[7Í P 1 10. juli .. s 12. júlí Jj-Í 2. Júlf í] 13. júlí gl 18. júlí [jf 30 WESTON POINT: Kljáfoss 4. júlí p Risnes 9. júlí Kljáfoss 18. júlí sími 27100 i Reglubundnar ferðir alla mánudaga frárfleykjavík til ísafjarðar og Akureyrar. Vörumóttaka í A-skála á föstudögum. ALLTMEÐ MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ1979 Sjónvarpkl. 22.15: Oliver Twist” Síðasti dagskrárliðir sjón- varpsins fyrir sumarfrí verður breska bíómyndin „Oliver Twist“, en hún er byggð á hihni sígildu skáldsögu Charles Dick- ens. Myndin er frá árinu 1948, en leikstjóri er David Lean. Söguþráðurinn er í stuttu máli þessi. Ung stúlka er á ferð að næturlagi á heiðum uppi. Veður er hið versta, þrumur og eldingar. Kemst hún að lokum, aðframkomin, að hliðum mun- aðarleysingjahælis, en þar fær hún inni. Skömmu síðar elur hún þar barn, en deyr að því búnu. Drengurinn, sem hlýtur nafnið Oliver Twist, hlýtur illa meðferð á hælinu og lítið og vont viðurværi. Þegar piltur er 9 ára er honum komið í læri hjá líkkistusmið, en hann á að nema þá iðn. Hjá líkkistusmið- num er fyrir sveinn nokkur sem er eldri en Oliver, og reynir hann á allan hátt að sýna honum yfirburði sína. Fer svo að lokum að þeim lendir saman, og Oliver er hýddur fyrir bragðið. Unir hann nú svo illa í vistinni að hann strýkur og kemst við illan leik til Lundúna eftir nokkurra daga ferðalag. Ráfar hann þar umkomulaus um stræti og torg borgarinnar, en brátt kemur auga á hann piltur og leiðir hann Oliver á fund gyðingsins Fagins, hins versta illmennis. Sá frómi mað- ur stundar nokkuð óvenjulegan atvinnurekstur, en hann hefur þjófaflokk á sínum snærum og stjórnar liði sínu með harðri hendi. Aðkomupilturinn Oliver er tekinn í hópinn og látinn nema „iðnina". Dag nokkurn þegar þeir félagar eru úti að sinna sínum „skyldustörfum" er piltur gripinn af lögreglunni. Þá ber svo við að heiðursmað- urinn sem rændur var kennir í brjósti um piltinn, fær hann látinn lausan og tekur hann að sér. Hinn fyrrverandi „vinnu- veitandi" Olivers, gyðingurinn Fagin, unir þessu illa og fer svo að lokum að hann rænir pilti og lætur hann taka til starfa á ný. Er nú vistin Olivers enn verri en í hið fyrra sinnið, því hann er tortryggður og grunaður um græsku af yfirboðara sínum og samstarfsmönnum. Hinn góð- hjartaði heiðursmaður sem tók hann upp á arma sína, unir ekki þessum málalokum og leitar hans ákaft. Eins og vera ber endar myndin vel, þrátt fyrir slæmt útlit í fyrstu. Aðalhlutverkin eru í höndum Robert Newton, Anthony New- ley og Alex Guinnes, en hann fer með hlutverk gyðingsins alræmda og ku fara á kostum. Myndin hlytur góða dóma í kvikmyndahandbókinni góðu, fjórar stjörnur. Þýðandi myndarinnar er Kristmann Eiðsson. í kvöld verður á skjánum poppþáttur frá Sviss. Margir listamenn koma fyrir í þessum þætti, m.a. Boney M, Leo Sayer, Leif Garrett og Amii Stewart. Útvarpkl. 13.15: „í vikulokin” Þátturinn „í vikulokin" verður að venju í dag kl. 13.30, en sú nýbreytni verður í sumar að þátturinn lengist um hálftíma og stendur því til fjögur. Önnur nýjung er einnig, að þátturinn hefur öðlast nýja stjórnendur að hluta til. Sýnt er, að hinir gömlu stjórnendur þáttarins munu hætta, að Eddu Andrésdóttur undantekinni, en þættinum bæt- ist liðsauki, sem eru þeir Kristj- án E. Guðmundsson kennari og Guðjón Friðriksson blaðamaður á Þjóðviljanum. Eitt sæti er óskipað enn, en þær línur munu skýrast innan tíðar. Þátturinn í dag mun verða með hefðbundnu smiði þrátt fyrir breytingarnar. Farið verð- ur vítt og breytt, m.a. verður spjallað við fólk á DAS um sumarfrí og hvernig það ætli að eyða því. Einnig verður talað við landsfræga plötusafnara, þá Ás- mund Jónsson, Gunnar Gunn- arsson, Halldór Hansen o.fl. Síðan verður rabbað um nætur- útvarp og í því sambandi talað við tvo unga menn sem sótt hafa um að starfrækja slíkt útvarp og fá hlustendur að öllum Iíkindum að heyra hvernig þeir hugsa sér dagskrána. Fastir liðir verða eins og venjulega, eitthvað óvænt kemur í þáttinn, einnig koma einhverjir gestir. Spurningakeppnin hefð- bundna er ómissandi liður i þættinum, og munu stjórnendur haga sér samkvæmt því. Einnig kemur Hermann Gunnarsson hress að vanda og spjallar um íþróttir, á þann hátt sem honum einum er lagið. Útvarp Reykjavík L4UG4RD4GUR 30. júní MORGUNNINN __________________ 7.00 Veðurfrengir. Fréttir. Tónleikar 7.10 Leikfimi 7.20 Bæn 7.25 Ljósaskipti: tónlistar- þáttur í umsjá Guðmundar Jónssonar pianóleikara (end- urtekinn frá sunnudags- morgni). 8.00 Fréttir. Tónleikar. 8.15 Veðurfr. Forustugr. dagbl. (útdr.). Dagskrá. Tónleikar. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 9.20 Leikfimi 9.30 óskalög sjúklinga: Ása Finnsdóttir kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir). 11.20 Gamlar lummur: Gunn- vör Braga heldur áfram að rifja upp efni úr barnafim- um Huldu og Helgu Valtýs- 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikar. 13.30 í vikulokin. Stjórnandi: Jón Björgvinsson. LAUGARDAGUR 30. júnf 16.30 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.30 Heiða Þrettándi þáttur. Þýðandi Eirfkur Haralds- son. 18.55 Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 óperugleði Söngvar úr óperum eftir Mozart, Offenbach og Biz- et. Fiytjendur Elín Sigur- vinsdóttir, Sigríður Ella Magnúsdóttir, Svala Niel- sen, Sigurður Björnsson, Simon Vaughan o.fl. Undirleik annast Sinfón- ^ __________________________ SIÐDEGIÐ 16.00 Fréttir 16.20 Veðurfregnir. fuhljómsveit íslands. Hljómsveitarstóri Páll P. Pálsson. Kynnir Marfa Markan. Stjórn upptöku Andrés Indriðason. 21.00 Dansað f snjónum Poppþáttur frá Sviss. Meðal annarra skemmta Boney M., Leo Sayer, Leif Garrett og Amii Stewart. Þýðandi Ragna Ragnars. 22.15 Oliver Twist s/h Bresk bfómynd frá árinu 1948, byggð á hinni sfgildu skáldsögu Dickens. Leikstjóri David Lean. Aðalhiutverk Alec Guinn- ess, Robert Newton og Anthony Newley. Þýðandi Kristmann Eiðs- son. 00.05 Dagskrárlok 16.20 Vinsælustu popplögin. Vignir Sveinsson kynnir. 17.20 Tónhornið. Umsjón: Guðrún Birna Hannesdóttir. 17.50 Söngvar í léttum dúr. Tilkynnngar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. KVÖLDIÐ____________________ 19.35 „Góði dátinn Svejk“, saga eftir Jaroslav Hasek í þýð- ingu Karls ísfelds. Gísli Halldórsson leikari les (20). 20.00 Kvöldljóð. Tónlistarþátt- ur í umsjá Ásgeirs Tómas- sonar og Helga Péturssonar. 20.45 Sláttur. Þáttur með blönduðu efni f umsjá Böðv- ars Guðmundssonar. 21.20 Hlöðuball. Jónatan Garð- arsson kynnir amerfska kúr- eka- og sveitasöngva. 22.05 Kvöldsagan. „Grand Bab- ylon hótelið* eftir Arnold Bennett. Þorsteinn Hannes- son les þýðingu sína (5). 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.50 Danslög. (23.50 Fréttir). 01.00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.