Morgunblaðið - 03.07.1979, Side 1

Morgunblaðið - 03.07.1979, Side 1
48SIÐUR MEÐ 8 SIÐNAIÞROTTABLAÐI 149. tbl. 66. árg. ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. 50 tonn af tækjabúnaði til vísindalegra rannsókna og borana í Surtsey voru flutt með varðskipi og þyrlum til Surtseyjar fyrir helgina, en þar á að bora 210 metra niður í eyna tii þess m.a. að kanna móbergsmyndun og hitaleiðir í eynni. TF-URÓ, þyrla Gsezlunnar. flutti varning milli skips og lands í 70 ferðum og þarna er hún að landa sementi i miðjum hlfðum Surtseyjar. Þyrla Varnarliðsins flutti stóra tækin á iand eins og t.d. dráttarvélin sem sést á myndinni. Sjá grein á bis. 18. Ljósm. Mbi. Árni Johnsen. '-'JÍ ETA hefur íhótunum: Malaga og Gerona eru næst á dagskrá Khomeini gegn vændi og stripli Teheran, 2. júlí. Reuter. AP. NÝJASTA þjóðþrifamál- ið, sem Khomeini trúar- leiðtogi hefur ákveðið að láta til sín taka, er að uppræta í íran þá stétt, sem talið er að eigi sér lengstan feril í mann- kynssögunni, sumsé vændiskonur. Khomeini fiutti skörulega ræðu um málið á samkomu trúarleiðtoga í Qom um helgina, og var hún birt í írönskum blöðum í dag. „Þjóðfélagsumbótum er komið á með því að höggva hendur af fáein- um þjófum á almanna- færi,“ sagði Khomeini, „og ef nokkrar vændis- konur eru hýddar, þá losnar þjóðfélagið við vændi.“ Þá hefur Khomeini lagt blátt bann við því að fólk baði sig „nakið" á almannafæri, en eft- ir hans útleggingu jafngildir það nekt að klæðast „bikini" og öðrum vestrænum sundfatn- aði. Ríkir nú hin mesta ar- mæða á írönskum baðströnd- um við Kaspíahaf, þar sem hundruð þúsunda írana dvelj- ast um þessar mundir. Á mörg- um baðströndum er stranglega bannað að konur og karlar stundi sameiginleg sjóböð, en á baðstaðnum Bandar Arzali hafa yfirvöld náðarsamlegast fallizt á að fólk af báðum kynjum megi vera á sömu strönd, að því tilskildu að kvenfólkið svipti sig ekki hin- um skósíða slæðubúningi, sem Khomeini hefur fyrirskipað. Jidda. 2. júlí. AP. ÞEIRRI ákvörðun Saudi-Arabíu- stjórnar að auka veruiega olíu- vinnslu á næstunni hefur vfða verið vel tekið og er talið að hún muni hafa þau áhrif að halda niðri „Viskí” á geyminn Wawhinífton. 2. júlí. Reuter. VISKÍGERÐ í Virginíuríki er í þann veginn að hefja fram- leiðslu á 90% alkóhóli, scm notað verður sem bifreiðaelds- neyti. Alkóhólinu verður blandað saman við bensín í hlutföllunum 10 og 90 af hundraði, þannig að bensín verður eftir sem áður aðalorkugjafinn, en blandan, sem hlotið hefur heitið „gasól“, hefur þann kost að hún nýtist mun betur en venjulegt bensín, auk þess sem oktantalan hækkar verulega. Madrid, 2. júlí. Reuter. HRYÐJUVERKASAMTÖKIN ETA hafa lýst sig ábyrg fyrir nýjum sprengjutilræðum á fjöl- sóttum ferðamannastöðum á Spáni og hafa hótað að láta kné fylgja kviði á næstunni, einkum í olíuverði á heimsmarkaði. Enn hefur ekki verið gefið tii kynna hversu mikii aukningin verður. Hámarksvinnsla á dag hefur að undanförnu varið 8,5 milljón tunn- 1 ur, en stjórnandi ríkisrekna olíufé- lagsins Petromin gaf í skyn fyrir skömmu, að Saudi-Arabía kynni að auka oliuvinnsluna upp í 9,5 mill- jónir á dag til að vega upp á móti olíuverðhækkununum að undan- förnu. Þá sagði Yamani olíumála- ráðherra í Genf á dögunum, að svo gæti farið að Saudi-Arabía færi upp í hámarksafköst á næstu árum, þ.e.a.s. 14 milljónir tunna á dag. Efnahagssérfræðingar á Vestur- löndum eru á einu máli um að framleiðsluaukning í Saudi-Arabíu, sem er mesta olíuútflutningsríki heims, muni auka líkur á því að nokkurt jafnvægi komist á á olíu- markaði í heiminum. Meðal annars lét sérfræðingur rannsóknastofnun- ar olíufélaga í New York svo um mælt í dag, að þessi ákvörðun Saudi-Arabíu mundi vafalítið verða til þess að draga úr þrýstingi á Rotterdam-markaði. námunda við Malaga og Gerona. Hafa samtökin lýst því yfir að þau láti til skarar skríða svo um muni innan sólarhrings ef ríkis- stjórnin láti ekki að kröfum þeirra um að bæta aðbúnað um eitt hundrað félaga þeirra, sem sitja 1 fangelsi f borginni Soria. 1 Gerona-héraðinu er Costa Brava, þar sem fjöldi erlendra ferða- manna dvelst um þessar mundir, en Malaga er höfuðstaður Costa del Sol. í yfirlýsingu ETA, sem birt var í kvöld, var viðurkennt að samtök- in hefðu staðið fyrir ellefu sprengjutilræðum á ferðamanna- stöðum síðustu sex daga. Mann- tjón hefur ekki orðið í þessum árásum að öðru leyti en því að tveir Belgar særðust á Marbella á laugardaginn var. Þá viðurkenndu samtökin að hafa staðið fyrir skotiiríð á hraðlestina frá París til Madrid í morgun, en hún var þéttsetin frönskum ferðamönnum. Enginn særðist í þeirri árás. Óttazt var að ETA hefði verið að verki er fimm manns létu lífið Kuala Lumpur. 2. júlt AP. NÆRFELLT eliefu hundruð flótta- menn frá Vfetnam voru reknir á haf út á þremur skipum frá Malaysíu í dag, en samdægurs veittu stjórnvöld Malaysíu sam- þykki sitt til að 623 flóttamenn, sem komu fyrir viku í búðir í Puiau Bidong, fengju að dveljast þar áfram. Malaysíustjórn hefur vísað 15.513 flóttamönnum á haf út frá því að hert var á reglum fyrir þegar eldur kom upp í E1 Paso hótelinu í Palma á Mallorca í morgunsárið, en víst er talið að eldsupptök hafi ekki verið af mannavöldum. Hótelið var þétt- skipað Norðurlandabúum, en þeir, sem létu lífið, voru þrír Finnar, Svíi og Spánverji. hálfum mánuði. en frá áramótum hafa 57.513 flóttamenn á 347 skip- um hlotið sömu afgreiðslu í Malaysíu. Flóttafólkið, sem vísað var frá í dag, fékk mat, vatn og eldsneyti í Malaysíu, en þetta er næstfjölmenn- asti hópur, sem komið hefur frá Víetnam í einu frá því að flótta- menn tóku að streyma þaðan er stríðinu lauk fyrir fjórum árum. Gem byrjað að lesta kjarnorkuúrganginn Bristol, 2. júlí. AP. SKIPIÐ Gem, skrásett í Glasgow, sem Greenpeace-mcnn á Rainbow Warrior ætla að beina aðgerðum sfnum að á næstunni, hóf í dag lestun kjarnorkuúrgangs í smá- höfn við Severná. Samtökin „Vin- ir jarðar“, sem beita sér gegn nýtingu kjarnorku, höfðu haft af því spurnir að skipið kæmi til Bristol á miðvikudaginn kemur til að lesta þar, og var ætlunin að hindra lestunina. Af þeim aðgerð- um getur þó ekki orðið héðan af, að sögn málsvara „Vina jarðar“. Gem siglir úr höfn næstkom- andi föstudag, en farmur skipsins verða tvö þúsund og áttatíu stál- sívalningar, fylltir steinsteypu og geislavirkum úrgangi frá sjúkra- húsum, rannsóknastofum og kjarnorkuverum í Bretlandi. Siglt verður 500 sjómílur frá ströndinni og þar verður farminum sökkt. Um helmingur hafnarverka- manna í bænum Sharpness, þar sem skipið Iestar, neitaði að taka þátt í því að koma kjarnorkuúr- ganginum um borð, en málsvari hafnarverkamannanna, Dennis Sollars, kvað nægan mannskap hafa gefið sig fram til starfans þrátt fyrir það. Talið að aukið fram- boð frá Saudi-Arabíu haldi niðri olíuverðinu 1100 reknir á haf út

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.