Morgunblaðið - 03.07.1979, Side 2

Morgunblaðið - 03.07.1979, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979 Flugleióir: Starf skrifstofu- stjóra lagt nidur — sjöttiframkvæmdastjórinn ráóinn INNAN Flugleiða er nú unnið að sameiningu á ýmsum deildum félaKsins s.s. á skrifstofum og er ætlunin að færa starfsemi einstakra deilda saman og huKsanlega að leggja niður aðrar að hluta. Samhliða þessu verða ýmsar tilfærslur á yfirmönnum félagsins. Þe«ar er ákveðið að staða skrifstofustjóra félagsins verður lögð niður ok verður störfum hans skipt á ýmsa aðila, sem starfa á stjórnunarsviði. Starfi skrifstofustjóra hefur gegnt Finnbjörn Þorvaldsson en hann var frá 1960 skrifstofustjóri Loftleiða og eftir sameiningu flugfélaganna skrifstofustjóri Flugleiða. Ekki er vitað við hvaða starfi Finnbjörn tekur hjá Flugleiðum. Þá hefur verið ákveðið að ráða sjötta framkvæmdastjóra Flug- leiða og tekur Erling Aspelund við því starfi en undir hann mun falla rekstur á hótelum félagsins og bíialeigu. Erling hefur til þessa verið hótelstjóri bæði á Hótel Loftleiðum og Hótel Esju en gert er ráð fyrir að þeir, sem verið hafa aðstoðarhótelstjórar taki við störfum hótelstjóra á hvorum stað, Emil Guðmundsson á Hótel Loftleiðum og Steindór Ólafsson á Hótel Esju. Bílaleigurekstur Flug- leiða heyrði áður undir Alfreð Eliasson, forstjóra félagsins, sem eins og kunnugt er hefur látið af störfum hjá félaginu. Grétar Kristjánsson sem verið hefur forstöðumaður flugstöðva félagsins í Keflavík, New York, Chicago og Luxemborg tekur við nýju starfi sem nefnist forstöðu- maður samningamála og tilheyrir stjórnunarsviði. Er ætlunin . að Grétar sinni aðallega lögfræðileg- um verkefnum og gerð kjarasamn- inga fyrir féiagið auk þess sem hlutabréfadeild félagsins verður undir stjórn hans. Fyrra starfi Grétars verður skipt niður og þannig tekur skrifstofa félagsins í New York við stjórn flugstöðvar- innar á Kennedyflugvelli, völlur- inn í Luxemborg undir skrifstof- una þar og stöðvarnar í Keflavík og Reykjavík verða undir stjórn Hans Indriðasonar, sem áfram verður forstöðumaður farþega- þjónustu. Ákveðið hefur verið að sameina bókhald og tekjubókhald félagsins og verður bókhaldið undir stjórn Birgis Einarssonar, sem áður var yfir tekjubókhaldinu. Flemming Hólm, sem var forstöðumaður aðalbókhalds, tekur við öðru starfi er lýtur að innri endurskoðun hjá félaginu. Þá hefur verið ákveðið að leggja niður farþegaafgreiðslu millilandaflugs á Reykjavíkur- flugvelli og hefur forstöðumanni hennar Ólafi Erlendssyni verið sagt upp eins og öðru starfsfólki deildarinnar. Sprengingar ekki á slóðum íslendinga — segir Gudni Þórdarson — FÓLK HEFUR talsvert mik- ið hringt i dag og spurst fyrir um ástandið á Spáni eftir að þessar fréttir bárust um sprengingar þar, en þær eru ekki á þeim slóðum sem íslend- ingar eru á og því er ekki ástæða til að óttast neitt, sagði Guðni Þórðarson forstjóri Ferðaskrifstofunnar Sunnu f samtali við Mbl. ígær. - Ég veit ekki til þess að neinn hafi afturkallað farpöntun sína, sagði Guðni einnig, en þó kann svo að vera. Það er samt sem áður uggur í ferðafólki víða á þessum suðlægu slóðum vegna sífelldra sprengjuhótana, en við bendum á að allt öryggi hefur verið eflt stórkostlega og eftirlit er nú strangara. Sem dæmi um það mætti e.t.v. nefna að íslenzkt ferðafólk er ók suður um Ítalíu varð í Róm að bíða í 4 tíma meðan leitað var í bíl þess, svo mikil áherzla er nú víða lögð á sprengjuleit til þess að tryggja öryggi manna sem mest. Ég legg áherzlu á að öryggisráðstafanir hafa verið efldar vegna þeirrar öldu hryðjuverka og ógnana, sem nú gengur yfir heiminn en sem betur fer hefur hún ekki snert ferðamenn okkar, enda hafa sprengjurnar á Spáni ekki verið í námunda við dvalarstaði ís- lenzku ferðamannanna, sagði Guðni að lokum. Þúsundir ferðamanna á leið til Spánar — segir fararstjóri Utsýnar FRÉTTIR AF sprengingum hér ern mjög ýktar og ranglega frá þeim sagt, fjórar sprengjur sprungu og ekki sáust neinar skemmdir en einhverjir hlutu smávægileg meiðsli, sagði Sig- urdór Sigurdórsson fararstjóri Útsýnar á Torremolinos á Spáni í samtali við Mbl. í gær. Sagði Sigurdór að fslenzku ferðamennirnir hefðu ekki orð- ið varír neinna sprenginga, aðeins heyrt af þeim af fréttum, enda hefðu þær verið fjarri dvalarstað þeirra eða í Fuengi- rola. — Þessir sprengjumenn voru handteknir og eru nú í vörslu lögreglunnar, en talið er að hér sé um einhverja smáglæpamenn að ræða sem vilja vekja á sér athygli. Hefi ég ekki orðið var við að neinir ferðamenn sýndu á sér óttamerki vegna þessara frétta. Sigurdór sagði það einnig alrangt að ferðamenn væru teknir að streyma frá þessum ferðamannaslóðum, þvert á móti hefði það komið í ljós í frétta- tíma í sjónvarpinu að Evrópu- búar væru teknir að streyma suður á bóginn, tugþúsundum saman og hefðu verið sýndar í sjónvarpinu myndir af bílalest- um á leið suður um Spán, enda færi aðalsumarleyfistíminn nú í hönd. (L)ósm. Mbl. RAX). Knattspyrnan á greinilega hug þeirra alian þessara manna, sem þarna berjast um knöttinn á æfingu f knattspyrnuskóla Víkings. Ef til vill verða þessir knáu kappar landsliðsmenn framtíðarinnar. Eldur í úthafsrækju- báti í ísafjarðarhöfn ísafirði, 2. júlí. UM kaffileytið f dag kom upp eldur f gastæki um borð f m.s. Jóni Sturlaugssyni frá Þorláks- höfn f höfninni á ísafirði. Engin slys urðu á mönnum, en um tfma var talin hætta á að gaskúturinn spryngi f loft upp. Slökkvilið ísafjarðar kom á vettvang eftir örfáar mfnútur og tókst liðinu að kæla gaskútinn þar til hættan var liðin hjá. Tveir skipverjar af Jóni Stur- laugssyni voru að vinna við ryðg- aða lása undir hvalbak skipsins. Ætluðu þeir að hita lásana til að liðka gengjur. Undir hvalbaknum hjá þeim voru geymdir gaskútar til gassuðu, sem þeir höfðu verið að nota undanfarið, án þess að nokkur bilun væri sjáanleg. Skipti engum togum, að um leið og þeir báru eld að suðutækinu, gaus upp eldur á tengibrettinu við gaskút- inn. Komst eldurinn strax í máln- inguna og áttu skipverjar fótum fjör að launa. Slökkviliðið var kallað út. Kom það nær samstund- is á vettvang og tókst að ráða niðurlögum eldsins áður en hann barst niður í lúkarinn. Þá tókst reykköfurum fljótlega að komast að gaskútnum og kæla hann með sjóbaði. Lúkar bátsins er verulega skemmdur af reyk og vatni, en þar sem 5 manna áhöfn verður á bátnum í sumar, er ekki þörf fyrir lúkarinn og verður því óhappið ekki til að stöðva skipið. M.s. Jón Sturlaugsson frá Þorlákshöfn er 1401 stálskip smíðað í Noregi 1960. Eigandi skipsins er Guðni Stur- jaugsson útgerðarmaður, en skip- stjóri er Jakob Guðnason. Verið er að útbúa bátinn til úthafsrækju- veiða og er ætlunin að hann leggi upp hjá rækjuverksmiðju Böðvars Sveinbjarnarsonar á ísafirði í sumar. Úlfar Smjörlíki, bitafiskur og adgangs- eyrirvín- veitinga- húsa hækkar Á FUNDi verðlagsnefndar í gær var samþykkt að leggja til við rfkisstjórnina að heim- iluð verði 8% hækkun á smjörlíki og 20,5% hækkun á harðfiski eða nánar tiltekið svonefndum bitafiski. Einnig var samþykkt að heimila hækkun á aðgöngumiðum vfnveitingahúsanna og hækka aðgöngumiðar þeirra húsa, sem opin eru til kl. 23.30, úr 400 krónum í 500 kr. og ef húsin eru opin lengur er heimiluð hækkun úr 500 f 600 krónur. Fékk skotífótinn TUTTUGU og sex ára gamall piltur í Hafnarfirði varð fyrir því óhappi um helgina að skot hljóp úr hagla- byssu, sem hann var að fikta við, og fór í fót hans. Að sögn Rannsókn- arlögreglu ríkisins er ekki vitað hver tildrög óhappsins voru, en pilturinn mun ekki hafa hlotið alvarleg meiðsl. V erðlagsnef nd: Samþykkd 22% hækkun á farmgjöldum skipa VERÐLAGSNEFND sam- þykkti á fundi sínum í gær að gera tillögu um það til ríkisstjórnarinnar að skipafélögunum yrði heim- iluð 18% hækkun á farm- gjöldum vegna stykkja- flutnings til landsins að víðbættum 4% hækkun vegna gengisbreytinga. Ríkisstjórnin fjallar á fundi sínum 1 dag um þessa tillögu verðlags- nefndar ásamt tillögu nefndarinnar um 22% hækkun á afgreiðslugjöld- um skipafélaganna. Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi frá Ferðaskrifstof- unni Útsýn: 'Vegna fréttar Morgunblaðsins í gær um flótta ferðamanna frá Spáni vegna sprengjutilræða, hafði Ferðaskrifstofan Útsýn samband við tvo af fararstjórum sínum í Torremolinos í morgun. Samkvæmt frásögn þeirra er allt með kyrrum kjörum í Torremo- linos. Þar hefur ekkert tjón orðið, hvorki á mönnum né mannvirkjum né slys af völdum sprenginga. Þeir sem stóðu að misheppnuðum sprengjutilræð- um í Marbella og Malaga standa ekki í sambandi við Baska — heldur er um smáglæpamenn að ræða, sem nú hafa fundist og eru geymdir bak við lás og slá. Hins vegar hefur öryggiseftirlit verið stóraukið, bæði á flugvöllum og vegum til þess að koma í veg fyrir uppþot af þessu tagi. Með aðgerðum þessum má telja full- víst að búið sé að afstýra frekari sprengingum. Ferðamannastraumurinn til Costa del Sol er í fullum gangi. Einkum er mikil eftirspurn eftir íbúðum og hefur Útsýn til ráð- stöfunar íbúðirnar E1 Remo, Tamarindos, Santa Clara, íris og Lá Nogalera. Um flótta ferða- fólks frá Torremolinos er alls ekki að ræða að sögn starfsfólks Útsýnar þar. Farþegar una hag sínum hið bezta í glaðasólskini og 30 stiga hita og hafa ekki orðið neinna óspekta varir né orðið fyrir neinum óþægindum af þeim sökum. Skipafélögin fóru eftir áramót fram á 25% hækkun á farmgjöld- um sínum en sú hækkunarbeiðni var endurnýjuð nú nýverið eftir að síðustu hækkanir á olíu komu fram og óskuðu félögin þá eftir 40% hækkun á farmgjöldum sín- um. Ferdaskrifstofan Útsýn: Fyllsta öryggis gætt — sprengju vargar handteknir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.