Morgunblaðið - 03.07.1979, Síða 3

Morgunblaðið - 03.07.1979, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979 3 Umferðarslys við Haff jarðará: Þyrla flutti þrennt til Reykjavíkur FÓLKSBÍLL úr Reykja- vík, sem í voru hjón og sjö ára sonur þeirra, fór á sunnudagskvöld út af veg- inum við Haffjarðará á Mýrum eftir að bíllinn hafði lent á öðrum brúar- stöplinum. Þyrla frá Varnarliðinu var fengin til að flytja fólkið, sem í Siglfirdingur heimúrfyrstu veidiferdinni SÍKlufirði, 2. júlf. SKUTTOGARINN Siglfirðingur er væntanlegur úr sinni fyrstu veiðiferð í fyrramálið með um 130 tonn. Bæði Dagný og Stálvík liggja nú í höfn vegna bilana í spilum. Fréttaritari. bíjnum var, suður til Reykjavtkur, þar sem það var lagt inn á Borgar- spítalann. Fólkið slasaðist alvarlega, en ekkert þeirra mun þó vera í lífs- hættu. Bifreið hjónanna er stórskemmd. Bíllinn var á leið að vestan og mun lamb hafa hlaupið yfir veg- inn rétt við brúna á Haffjarðará. Ökumaðurinn reyndi að víkja framhjá lambinu en lenti á brúar- stöplinum og kastaðist bíllinn niður af veginum nær 6 metra fall en valt þó ekki. Er talið að bíllinn hafi lent í lausamöl í vegkantinum og ökumaðurinn hafi af þeim sökum misst stjórn á bílnum. Lögreglan í Borgarnesi kom á slysstaðinn ásamt lækni, auk þess sem haft var samband við Slysa- varnafélag Islands og beðið um aðstoð. Var óskað eftir aðstoð hjá Varnarliðinu og sendi það þyrlu ásamt lækni til að flytja fólkið til Reykjavíkur. Nefndm sammála um að taka við flóttamönnum UTANRÍKISMÁLANEFND AI- þingis hélt í gærmorgun fund þar sem rætt var m.a. um hvort íslenzka ríkisstjórnin ætti að taka við flóttamönnum frá Viet- nam til dvalar hérlendis. Mbl. sjmrðist fyrir um það hjá Einari Ágústssyni formanni nefndarinn- ar hver hefði verið niðurstaða fundarins. — Þetta var eitt aðalmál fund- arins og skýrði utanríkisráðherra frá því erindi hvort við ættum að taka við 5—6 fjölskyldum frá Vietnam til dvalar hérlendis. Allir nefndarmenn voru því sammála en fulltrúar vildu þó fá að ræða málið í þingflokkum sínum. Hér er um að ræða að taka við 5—6 fimm manna fjölskyldum, sem hafa keypt sig út úr landinu, en ekki er vitað nánar hvenær þær myndu koma til landsins. Rikisstjórnin mun nú fjalla nánar um málið þar sem það mætti ekki andstöðu í utanríkismálanefnd. Gert er ráð fyrir að sérlegur sendimaður verði að fara utan til að kynna sér málið og fylgja því eftir og mætti hugsa sér að t.d. Rauða krossinum verði falin umsjá þess eða einhverri hliðstæðri stofnun eða samtökum. Á fundi utanríkismálanefndar gerði utanríkisráðherra einnig grein fyrir viðræðunum við Norð- menn um loðnuveiðar við Jan Mayen, en Einar kvaðst ekki hafa umboð til að skýra frá þeim að svo stöddu. Sjóleiðin könnuð áður en lagt var upp áleiðis til Skotlands. með fyrirhugaðri viðkomu í Vestmannaeyjum. Talið frá vinstri: Elías Skaftason, Gunnar Þórðarson. Kristín Hálfdánsdóttir, Ásthiidur Þórðardóttir og Bárður Grímsson. „Dreymdi hauga- sjó og brælu” — sagði einn af áhöfn „Bonny” fyrir brottför frá Reykjavík ÍSFIRZKU Miðjarðarhafsfararnir lögðu upp frá Reykjavík á skútunni Bonny s.l. sunnudagskvöld áleiðis til Skotlands eftir vikutöf í Reykjavík. Ætlunin var að setja nýtt stofnmastur á skútuna í Reykjavík en vegna sendingartafa ákváðu þau að leggja upp án mastursins og sigla á hjálparvélinni til Skotlands, þar sem þau fá stofnmastrið. Mbl. hitti áhöfnina að máli rétt fyrir brottförina og spurði hvernig ferðin legðist í þau. „Mig dreymdi haugasjó og brælu í nótt og mig dreymir yfirleitt aldrei neitt," sagði Elías Skaftason, einn af áhöfninni. Eiginkona hans, Ásthildur Þórð- ardóttir, sem er á förum til Finnlands, sagði að draumurinn væri áreiðanlega fyrir góðu. „Þú ert bara svona spenntur að komast af stað,“ bætti hún við. Ásthildur fer á leiklistarnám- skeið í Finnlandi en mun síðan fljúga til Skotlands og bætast í hópinn þar. Þau Elías og Ást- hildur sigla síðan með meðan sumarleyfi þeirra endist. Skipstjórinn, Gunnar Þórðar- son, og eiginkona hans Kristín Hálfdánsdóttir, sem sigla munu skútunni alla leið til Miðjarð- arhafsins, sögðu að þau hefðu tekið ákvörðun um að sigla skútunni á hjálparvélinni til Skotlands. Þau væru búin að bíða í Reykjavíkurhöfn í meira en viku og væri mastursins fyrst að vænta eftir viku, tíu daga. „Við erum búin að fá leyfi Siglingamálastofnunarinnar og fulltrúar hennar hafa verið mjög alúðlegir, gefið okkur góðar ráð- leggingar um útbúnað og örygg- istæki. Við erum með fullkominn siglingaútbúnað, eina vandamál- ið er hvað olíubirgðirnar eíu fyrirferðarmiklar, við reiknum með að nota um 300 lítra af olíu á leiðinni“ sagði Gunnar. „Skút- an heggur nú líka hálfleiðinlega, þegar vélin er notuð, en við verðum að taka því,“ bætti Kristín við. Auk þeirra siglir Bárður Steingrímsson með. Sagðist hann ætla að vera með eins lengi og efni og aðstæður leyfðu. Það má taka fram, að allt eru þetta þaulvanir skútusiglarar og sjó- menn. Þau sögðust hlakka til að komast í sólina og sumarið og frá daglegu amstri og stressi. „Það má líkja ferðinni við ferðir víkinganna forðum. Þeir fóru svipaðar siglingaleiðir — við gerum síðan „strandhögg" þar sem okkur hentar og dettur í hug hverju sinni en þau verða nú vægari en víkinganna." Þau sögðust að lokum vilja nota tækifærið og þakka öllum þeim er greitt hefðu götu þeirra í Reykjavík. „Fulltrúar Siglinga- málastofnunarinnar eru alveg einstakir, ef allir væru eins og þeir þá væru ekki öll þessi vandamál í íslenzku þjóðfélagi." Auövitaö ÖKEYPIS FYRIR BÖRNINNAN10 ÁRA Næsta brottför 11. júlí. Góöir greiðsluskilmálar. Margra ára reynsla, brautryöjendur í Benidorm feröum. Reyndir fararstjórar, þjálfaö starfsfólk. Seljum farseöla um allan heim á lægsta Ferðamiðstöðin AÐALSTRÆTI 9 — SÍMI 28133

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.