Morgunblaðið - 03.07.1979, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 1979
5
Bátarallið í kringum landið:
Inga fyrst í
höfn í Eyjum
ÞRÍR bátar taka þátt í ralli Snarfara og Dagblaðsins í
kringum landið, en fyrsti báturinn hélt frá Reykjavík
til Vestmannaeyja klukkan 14 á sunnudag. Það voru
þeir ólafur Skagvik og Bjarni Sveinsson, sem fyrstir
héldu úr Reykjavík á ,Ingu, en nokkru síðar fóru
Gunnar Gunnarsson og Ásgeir Ásgeirsson á Signýju og
og Bjarni Björgvinsson á
Ingu og Signýju gekk vel
til Eyja og komu bátarnir
þangað með tveggja tíma
millibili um miðnætti, en
vélarbilun varð hjá hjónun-
um í Láru og kom báturinn
ekki til Eyja fyrr en klukk-
an 19.30 í gær. Urðu þau að
halda inn til Grindavíkur og
bíða þar meðan gert var við.
Hinir bátarnir tveir biðu
eftir keppinaut sínum í
Vestmannaeyjum, en héldu
til móts við Láru síðdegis í
gær.___________________
Vel heppnuð héraðsmót
Patreksfirði, 2. júií.
Á FÖSTUDAGSKVÖLD var fyrsta
héraðsmót Sjálfstæðisflokksins í
tilefni 50 ára afmælis flokksins
haldið í félagsheimilinu á Patreks-
firði. Ræðumenn voru Matthías
Bjarnason og Ellert B. Schram.
Skemmtiatriði önnuðust Jón Sigur-
björnsson, Þóra Friðriksdóttir, Jör-
undur, ungt fólk úr Karonsamtök-
unum, sem sýndi tízkuklæðnað og
diskódans og hljómsveit Ólafs
Gauks og fór mótið hið bezta fram.
- Páll.
hjónin Lára Magnúsdóttir
Láru.
Bilun kom í ljós í Lárunni þegar
áður en lagt var af stað frá
Reykjavfk og siðar þurfti að
halda f land f Grindavfk vegna
vélarbilunar. Lára skilaði sér þó
tii Eyja klukkan 19.30 f gær-
kvöldi.
Eyjólfur Konráð
Jónsson.
Pálmi
Jónsson.
Davíð
Oddsson.
Afmælishátíðir Sjálfstæðisflokksins:
í Siglufirði og á
HoÉsósi um helgina
AFMÆLISHÁTÍÐIR Sjálfstæðis-
flokksins, í tilefni af fimmtfu ára
afmæli flokksins, eru haldnar á
fimmtán stöðum á landinu í
sumar. Um helgina verða hátfðir
í Siglufirði á föstudag og á
Hofsósi á laugardag.
Hátíðin hefst á báðum stöðun-
um kl. 21:00. Skemmtiatriði eru
mjög fjölbreytt og hafa vakið
mikla lukku. En um skemmtidag-
skrána sjá leikararnir Þóra Frið-
riksdóttir, Jón Sigurbjörnsson og
Jörundur. Þá er tískusýning,
diskótekið Dísa og sýndur er
diskódans. Um hljómsveitarleik
sér Ólafur Gaukur og hljómsveit
hans.
Að loknum skemmtiatriðum
verður haldinn dansleikur sem
standa mun til kl. 02:00 og þar
munu sjá um stuðið, til skiptis,
diskótekið Dísa og hljómsveit
Ólafs Gauks.
í Siglufirði munu Pálmi Jóns-
son, alþingismaður og Davíð
Oddsson, borgarfulltrúi, flytja
ávörp en á Hofsósi þeir Davíð og
Eyjólfur Konráð Jónsson, alþing-
ismaður.
I>au sjá um diskódans og tfskusýningu af mikilli fimi.
i
Bjarni Sveinsson og ólafur Skagvik eru til í allt um borð í bát sínum, Ingu, skömmu fyrir brottför frá
Reykjavík á sunnudag. Bátur þeirra var sá eini, sem lagði af stað á réttum tíma og kom því langfyrstur til
Eyja.
Höfðu hjónin á Láru áætl-
að að verða í Eyjum klukkan
17.30 í gær, en lentu í niða-
þoku, þannig að þau komu
ekki þangað fyrr en klukkan
19.30. Höfðu þá Inga og
Signý farið á móti Láru og
sigldu bátarnir saman inn í
höfnina.
Klukkan 23 héldu bátarn-
ir til Hafnar í Hornafirði og
var reiknað með að sú leið
tæki 10 tíma, mikil þoka var
á þessari leið undir mið-
nættið, en gott veður að
öðru leyti. Bátunum eru
reiknuð stig fyrir hvern legg
á leiðinni í kringum landið
og næsti áfangastaður eftir
Höfn er Neskaupstaður.
s larlanda
Vegna mikillar eftirspurnar og annríkis
við afgreiðslu verður söluskrifstofa
Útsýnar Austurstræti 17, 2. hæö
opin til kl. 22,00 í kvöld
Sértilboð:
AHar nýjar pantanir, sem berast í dag mqö sérstöki
afborgunarkjörum — útborgun aöeins kr. 40 þúsur
eftlrstöövar á 5 mánuðum.
Allir farþegar, sem panta í dag fá
ókeypis kynnisferð erlendls innifalda,
t.d. til Granada, Feneyja, kynnisferö
um Aþenu o.s.frv.
Austurstræti 17 2. hæd.
Símar 26611 oa 20100.