Morgunblaðið - 03.07.1979, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979
7
„Skortir allan
dug . ..“
Halldór Guðmundsson
segir í Þjóðviljanum sl.
sunnudag: „Svo virðist
sem íslenzfca sósíalista
skorti allan dug til aö
andmæla „tlokksforyst-
unni“ um Þessar mundir.
Á skömmum tíma hafa
þverstæöur í stjórnar-
samstarfinu komið skýrt
fram: Alþýðubandalagið
á pátt í að setja bráöa-
birgðalög gegn löglega
boðuðu verkfalli, Walter
Mondale þakkar ríkis-
stjórninni góðan skilning
á nauösyn herstöðvarinn-
ar, Svavar Gestsson tek-
ur að sér formennsku
EFTA-ráðsins og Hjörleif-
ur Guttormsson opnar
Grundartangaverksmiðj-
una...“
Bragð er að þá barnið
finnur.
Stjórnarþátt-
taka umdeild
Síðar í greininni segir:
„Stjórnarþátttaka Al-
Þýðubandalagsíns var í
fyrstu umdeild jafnvel í
þinglíði flokksins. Þeirrar
deilu sér ekki stað á
síðum Þjóðviljans... í
forsystugreinum blaösins
og öðrum stefnumótandi
skrifum er stefna stjórn-
arinnar róttlætt... Hvað
segir ekki um bráöa-
birgðalögin í stjórnmála-
grein blaðsins sl. sunnu-
dag: „En hvort sem við
erum fyllilega sátt við
Þær aögeröir, eða ekki,
Þá skiptir mestu að við
snúum bökum saman og
séum ekki að skemmta
skrattanum meö sundr-
ungu í okkar röðum“. —
Þennan söng ætti aö taka
út af vinsæidatistan-
um ...,“ segir greinarhöf-
undur.
Níöurstaða hans er
Þessi: „Meö slíkum að-
gerðum búa vinstri
stjórnir í haginn fyrir sig-
ur hægri aflanna —
dæmið af Bretlandi á aö
þessu leyti við ísland."
Járnblendln
afstaða
Orkuráðherra í fyrri
vinstri stjórn, Magnús
Kjartansson, hóf viöræö-
ur við bandarískan auö-
hring, Union Carbide, um
sameign járnblendi-
verksmiöju í Hvalfirði.
Það fyrirtæki heltist úr
lestinni, en í stað Þeas
kom norskt, Elkem-
Spigerverket. Síðan hófst
heilagt stríð Alþýðu-
bandalagsins gegn Þess-
ari verkamiðju með til-
heyrandi níðstöng, sem
fræg varö í fréttum, enda
AlÞýöubandalagið komiö
í stjórnarandstöðu.
Enn á ný á Alþýðu-
bandalagiö orkuráöherra.
Sá hetur nú komið „form-
legri gangsetningu“
verksmiðjunnar á sinn
stað í þjóðarsögunni með
hátíðarræöu, sem birt var
í Þjóðviljanum 27. júní sl.
í þakklæfisskyni hlaut
orkuráðherra titilinn
„nafn vikunnar" í blaðinu
sínu og Þótti flestum við-
eígandi.
Alþýöubandalagiö hef-
ur farið marga hringi í
kring um sjálft sig í af-
stöðu til járnblendi-
verksmiðjunnar, eins og
raunar í flestum öðrum
málum. Hringdansi Al-
Þýðubandalagsins um
járnblendiverksmiðjuna
lauk með Þessum hátíð-
arorðum Hjörleifs Gutt-
ormssonar, ef marka má
Þjóöviljann:
„Undirbún-
ingur stórframkvæmda af
Þessu tagi tengist víða og
þar koma fleiri við sögu
en hér er unnt aö rekja,
m.a. Þeir er unnið hafa að
hönnun, hafnargerð og
umhverfisathugun, auk
beinna framkvæmda og
fjármálalegs undírbún-
ings. Þá er aö sjálfsögðu
hlutur Landsvirkjunar,
sem leggur verksmiðj-
unni til orku og hefur
reist aðveituvirki skv.
áætlun. Öllum þessum
aöilum, nefndum og
ónefndum fyrirtækjum
og starfsmönnum vil ég í
nafni íslenzku ríkisstjórn-
arinnar þakka ötul og vel
unnin störf.“
Og enn sagöi nafn vik-
unnar: „Takket være de
Nordmænd og Elkem-
Spiegerverket, som har
bidraget til verkets op-
byggning og vil deltage i
denne nye kraftfored-
lende bedrift."
Já hann haföi mikið að
Þakka, orkuráðherrann,
sem varö nafn víkunnar
hjá blaðinu sínu. í baksýn
sést í níðstöngina, sem
ekki er lengur í stjómar-
ándstöðul
AF HVERJU ERU TVÆR HULSUR
ÁTORGRIP MÚRBOLTANUM
FRÁ
VIÐMÆLANOI: tt.B. byggingavörur h.f. Suðurlandsbraut 4 Sími 33331
„Spyrja viðskiptavinír þínir ekki iðulega
um af hverju séu tvær hulsur á TOR-
GRIP múrboltanum frá 'uKllISSaXKS?"
„Jú, en það er yfirleitt öllum Ijóst að
þessar tvær hulsur gefa helmingi meiri
festingu en aðrir boltar og þeir virðast
hafa meiri togkraft. Og samkvæmt
áreiðanlegum upplýsingum sem ég sýni
ávallt viðskiptavinum, þá eru boltarnir
hannaðir með togþoiið í huga og efnið
sem notað er í framleiðsluna er gott. Nú,
verkfræðingar sem hingað koma tll inn-
Fæst í flestum
ybyggingavöruverzlunum
kaupa sýna þessum boltum mikinn
áhuga og sérstaklega þegar þeir lesa
um niðurstöður um álagsprófanir
‘OKIIIMiaAlíS boltanna."
„Hvernig er það, koma þeir sem byrja á
að kaupaUXIHISGÆÍG© boltana yfirleitt
aftur?“
Já, þeir koma reglulega aftur.'
51 Sundaborg
HF. Siml: 84000 - Reyk|avík
VANTAR ÞIG VINNU
VANTAR ÞIG FÓLK
O
tP
Þl AIGLÝSIR l'M ALLT
LAND ÞEGAR Þl AIG-
I.YSIR I MORGINBLAÐIM
BEOMASTER 1900
Útvarpsmagnarinn sem hefur
fariö sigurför um
allan heim.
Gæöi
og
glæsileiki
sker
sigúr
fjöldanum