Morgunblaðið - 03.07.1979, Side 10

Morgunblaðið - 03.07.1979, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979 Mannfjöldinn 1. 14 Eddu-hótel starfrækt víða um land í sumar des. sl. ÍBÚUM landsins hefur fjölgað um 0,86% á tíma- bilinu frá l.des. 1977 til 1. des. 1978 samkvæmt end- anlegum tölu frá Hagstofu íslands. Var mannfjöldinn l. des. 1977 220.470, en 224.384 hinn l.des. 1978. Fjölgunin frá l.des. 1976 til l.des 1977 var 0,70%. Hljóðbókasafnið í nýju húsnæði HLJÓÐBÓKASAFN Blindrafélags- ins og Bornarhókasafns Rcykjavík- ur hefur tekið til starfa í nýjum húsakynnum við Hólmgarð 34 í Reykjavík. í safninu eru nú 550 titlar og er hver bók tii í 3 eintökum. í frétt frá Blindrafélag- inu ok Borgarhókasafninu segir m. a.: Af sjálfu sér leiðir að safnið býr við verulegan bókaskort og gerir það starfsmönnum erfitt fyrir að af- greiða bækur eftir óskum lánþega, sem oft þurfa að bíða afar lengi eftir bókum sem þeir hafa pantað. Stöð- ugt er þörf fyrir lesara og er því beint til þeirra sem geta frjálst um höfuð strokið yfir sumartímann t.d. kennara og leikara að snúa sér til safnsins og lesa eina bók. Fer upplesturinn fram í húsi Blindrafé- lagsins að Hamrahlíð 17. 224.384 Karlar eru nú 113.167 og konur 111.217 og eru því karlar 1.950 fleiri. í Reykjavík er mannfjöldinn 83.376, en konur eru þar í meiri- hluta, 42.886 á móti 40.490 karl- mönnum. Næst á eftir Reykjavík kemur Kópavogur með 13.269 íbúa, Akureyri með 12.889 og Hafnarfjörður í þriðja sæti með 12.122. Keflavík er í fjórða sæti með 6.576 íbúa, Akranes með 4.768, Vestmannaeyjar með 4.634, Garðabær 4.520, Isafjörður með 3.251 íbúa og Selfsoss, sem fékk kaupstaðaréttindi á síðasta. ári 3.203, en fast á eftir fylgir Sel- tjarnarnes með 2.926 íbúa. Samtals er íbúafjöldi í kaup- stöðum öðrum en Reykjavík 85.717 og í sýslum er íbúafjöldinn 55.291. Er fjölmennasta sýslan Árnes- sýsla með 6.659 íbúa, síðan Suður- Múlasýsla með 4.582 íbúa og Snæfellsnessýsla með 4.480 íbúa, en mannfæsta sýslan er Austur- Barðastrandasýsla með 430 íbúa. Selvogshreppur er fámennasti hreppurinn með 20 íbúa síðan eru Múlahreppur í Austur Barða- strandasýslu og Hrófbergshrepp- ur í Strandasýslu með 22 íbúa, Fróðarhreppur í Snæfellsnessýslu með 25 íbúa ásamt Fjallahreppi í Norður Þingeyjarsýslu einnig með 25 íbúa og Ketildalahreppur í Vestur Barðastrandasýslu hefur 28 íbúa. í SUMAR verða rekin 14 Eddu-hótel á vegum Ferða- skrifstofu ríkisins víðs vegar um landið. í fyrra var hagnaður af heildar- rekstri Ferðaskrifstofu ríkisins tæpar 63 milljónir og þar af rúmar 13 millj- ónir vegna reksturs Eddu- hótelanna. Á blaðamannafundi nýlega voru blaðamönnum kynnt áform Ferðaskrifstofunnar. í sumar verða rekin 14 Eddu-hótel víðs vegar um landið, en í fyrra voru þau 12. Eddu-hótelin verða nú staðsett á eftirfarandi stöðum: Reykholti, Reykjum, Húnavöll- um, Akureyri, Stóru-Tjörnum, Hallormsstað, Eiðum, Kirkju- bæjarklaustri, Skógum, Flóka- lundi, Bjarkarlundi, ísafirði og tvö hótel á Laugarvatni. Ný Eddu-hótel bætast nú við á þremur stöðum, þ.e. Flókalundi, Bjarkarlundi og Hallormsstað. Hins vegar verður ekki hótel- rekstur að Sælingsdal í Dölum eins og síðastliðin ár. „Eddu- hótelin eru nauðsynleg í rekstri ferðamála á íslandi" sagði Kjart- an Lárusson forstjóri Ferða- skrifstofunnar á blaðamanna- fundinum. Kjartan sagði að Ferðaskrif- stofan leitaðist við að veita sem besta þjónustu hvað varðar gist- ingu og matsölu á sem hagstæð- ustu verði. Eins manns herbergi kostar 6000 kr. á sólarhring en tveggja manna herbergi kostar 8000 kr. og sagði Kjartan að þegar allt hefði verið reiknað saman væri talsvert ódýrara að eyða sumarfríum á íslandi en skunda til sólarlanda. Mögulegt er að panta herbergi fyrirfram á söluskrifstofum Ferðaskrifstof- unnar eða við komu á hótelin. Hótel Edda á Eiðum er eitt 14 Eddu-hótela sem starfrækt verða ísumar. Sigurður Arngrímsson: Raupsömum ráðherra svarað „Einhvers konar tugga“ Fyrir réttum mánuði síðan birt- ist lesendabréf í Dagblaðinu eftir mig. Það var um þessa endalausu munnræpu ráðamanna út af far- mannaverkfallinu. Annað lesendabréf „um ábyrgð ráð- herra", birtist eftir mig í dagbl. Vísi, fyrir um þrem vikum. Og að lokum birtist svo grein eftir mig í Morgunbl., fyrir um viku síðan. Hvort hér sé um „einhvers konar tuggu, sem hver tekur upp eftir öðrum", (leturbr. mín) eða hug- myndir manna úr mismunandi þjóðfélagsstéttum, út af því ástandi sem skapaðist út frá ummælum þínum og annarra ráðamanna eða ekki, um það skal ósagt látið. Ég taldi þó „tugguna" ferska, þegar ég hóf að rita um málefnið, fyrir um mánuði síðan. Um „lögútskýringar mínar", sem þú telur mig stunda í frítíma mínum, skal þetta tekið fram: Þær eru byggðar á áliti tveggja lög- manna, sem njóta mikils álits meðal þjóðarinnar. Annar þeirra er dómari, en hinn er kennari í lögum við Háskóla íslands. Sam- kvæmt því tel ég þetta túlkun mína á ummælum þeirra. Þeir töldu að þú og aðrir ráðherrar hefðuð stigið mikið óheillaspor með ummælum ykkar. Og að um- mælin hefðu gert aðstöðu samn- inganefndar farmanna vonlausa. I grein þinni er efnisgrein sem þú nefnir: „Er verkfall einkamál?" Þar segir þú meðal annars: „I umræðu um afskipti mín og ann- arra af verkfalli farmanna er grundvallaratriðið það, hvort verkfall sé, a.m.k. á ákveðnum stigum þess, einkamál deiluaðila. Einskonar feimnismál, sem lúti tilfinningalegum lögmálum frem- ur en rökrænum, sem hafi slíka sérstöðu meðal annarra viðfangs- efna þjóðarinnar í efnahagsmál- um, að á því megi tæpast hafa skoðun en gera í öllu falli ekki uppiskátt um hana. Þetta er kjarni málsins en ekki hvernig einstök ummæli voru orðuð og hafa síðar verið túlkuð", (leturbr. mín). Ég held að þú sért að reyna að segja, að ráðherra beri skylda til að afla hugmyndum sínum fylgis, vilji hann standa undir nafni. Það sé kjarni málsins, en ekki einstök ummæli hans. Það er mikið til í þessu Magnús minn, en ég kannast ekki við að þér hafi verið veitt umboð til að brjóta niður verkföll, eða öllu heldur að framlengja þau. Og mat þitt á því að kröfurnar væru „svívirðilegar" og að hér væri á ferðinni hagsmunaklíka, „hátekjumenn", sem væru að sundra einingu þjóðarinnar, hljóta að hafa vegið þyngra á metaskálunum, en t.d. ummæli mín, hins almenna borgara „frat- leikmanns að vestan". En efnis- lega er þessi efnisgrein þín bull. Það sem skiptir máli í setningu, er innihald hennar. Og þú sagðir að kröfur farmanna væru svívirði- legar". Það er mergur málsins. Persónulega er ég á móti verk- föllum. Og ég tel að hefðu við- ræðunefndirnar „fengið starfs- frið“, fyrir yfirlýsingum þínum og annarra ráðamanna, þá hefði fljótlega náðst samkomulag um að biðja um gerðardóm í málinu. Mönnum hefði fljótlega orðið það ljóst, að of mikið bar á milli. Eins og reyndar niðurstaðan varð eftir átta vikur. Þannig hefði mátt komast hjá ómælanlegu tjóni fyrir þjóðarbúið, af völdum verkfalls- ins. Munnræpa ráðherranna réði því aftur á móti, að umsemjendur ræddust ekki við, af skiljanlegum ástæðum. Yfirlýsingar þínar „um að kröfurnar væru svívirðilegar" og bráðabirgðalög yrði að setja á þessa „hátekjumenn", höfðu þar vissulega sitt að segja. Hvað er svívirðilegt? Verkamaður sem vinnur eftir uppmælingu, getur oft í starfi sínu náð fjórföldum tímalaunum. Fjór- földum greiddum kaffitíma, fata- peningum, orlofi o.s.frv. Hann getur því hæglega náð um 4200 kr. á tímann, þegar hann vinnur í dagvinnu. En samkvæmt skil- greiningu er hann lágtekjumaður. Mundir þú ekki telja það órétt- látt, ef að dyraverðir og ganga- verðir Alþingis, sem starfað hefðu þar fimm ár eða lengur, hefðu hærri laun en þú? Þú sem ábyrgð- ina berð og þar að auki ert þú með óheyrilega langan vinnutíma. Ég er viss um að þér þætti það ekki „svívirðilegt", þó að þú fengir laun í samræmi við starf þitt og ábyrgð. Farmenn eru á sömu skoðun um laun sín. Ráðherrar þurfa oft að vinna langan vinnutíma. Og þegar þeir fara heim, þá taka þeir oft með sér aðkallandi málefni, sem þurfa að fá úrlausn. Þar að auki eru þeir til reiðu allan sólarhringinn, á eins- konar „bakvakt", ef þörf krefur, eftir að þeir hafa lokað „sjoppu sinni". í sannleika held ég að vinnutími ráðherra sé ekki ósvip- aður vinnutíma farmanna. Þó að vinnan sjálf sé að sjálfsögðu óskyld. Viðmiðunardæmið í farmanna- deilunni, sem þú skilgreindir sem „hátekjur" (5—600 þús. pr. mán) var fyrir um 360 stunda vinnu á mánuði og „bakvakt" allan sólar- hringinn, svo lengi sem maður er skráður í skiprúm. Verkamaður- inn í dæminu sem ég setti fram, þarf 118—143 stundir til að ná þessari upphæð. Vissulega yrði dæmið óhagstæðara ef ég hefði tekið t.d. iðnaðarmann í bygging- arvinnu til viðmiðunar, eins og öðrum þegnum þessa lands. Það er mér mikið gleðiefni Magnús minn, að þér sé nú orðið ljóst hversu skaðvænlegar vinnu- deilur geta verið. Bæði fyrir þjóð- ina í heild og einnig fyrir þá, sem í þeim standa. Raungildi þeirra síðustu þrjátíu árin er núll, fyrir þá sem að þeim stóðu. Þær hafa því rænt okkur nær öllum hag- vexti fyrir þennan tíma. Aðgerðir verkalýðsforustumanna hafa oft fært „stjórnunarvaldið" út á göt- una, eins og þú bendir á í grein þinni, að geti átt sér stað. Þetta er ekki gott. En þó hafa forystumenn í verkalýðsmálum, bæði úr Al- þýðuflokknum og Alþýðubanda- laginu leikið þennan leik um áraraðir. Ég minnist þess ekki, að hafa heyrt þig tala um þjóðar voða í slíkum tilfellum. En nú gerir þú það. í áframhaldi af grein þinni ritar þú: „Verkfallsbeiting getur ógnað og jafnvel brotið niður áform í verðlags- og efnahagsmálum, sem meirihluti þjóðarinnar hefur greitt um atkvæði í almennum þingkosningum og falið tilteknum 18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDÁJ Magnús H. Magnússon f élagsm álaráðherr a: á hættu að persónuleg viðhorf hans séu túlkuð sem stefna ríkisstjórnar Hann tekur því i rikara mæli en ella þá áhættu að verða að segja aí sér embætti, ef sjónarmið hans verða undir. Brcyttir tímar Tilgerð og tvískinnungur hef- ur verið býsna þrálátt einkenni stjórnmálalifs hér á landi Meðal aðildarflokka að ríkiastjórn hef- ur ágreiningur lengst af verið „tabu" Honum skyldi ráðið til l.vkta fyrir læstum dyrum. Til almennings mátti helst ekki berrast annað en samhljómur radda, vitnisburður samstöðunn- ar, sem oft var þó reyndar alls ekki fyrir hendi. Síðustu vikurn- ar fyrir kosningar hófst loks Nokkur orð um raupsemi ráðherra I grein eítir Vilmund Gylfa son, sem bir’.ist í Dagblaðinu í siðustu viku um farmannadeil- una og gerðardómslögin svonefndu segir hann m.a að „kjánalegir ráðherrar hafi stór- spillt fyrir í þessari vinnudeilu" verið að i’jamma á að þau virðast orðin einhvers konar tugga. sem hver tekur upp eftir öðrum, allt fratleikmönnum að vestan. sem stunda lögskýr- ingu í frístundum, til alvarleg- ustu flokksformanna. VWh-rií ♦=' horft um öxl má Ijóst vera, að í þessu efni haía einstakir menn markað sér ólíka stefnu. Pjöldi ráðherra hafa valið þann kost- inn að tjá sig helst ekki opinber- lega um neitt dægurmál nema þá helst á þann veg, sem hver og t skilið aó „ upprifjun ágreiningsefna. sið- búin og ruglingsleg Af þessu leiddi oftast það, að mat kjós- andans varð handahófskennt og réðist meira af áróðursmætti stjórnmálaflokkanna en réttri vitpe-kju ur '_,'’in og við- Pyrir þann hóp er Vilmundur vissulega röggsamur fulltrúi. Þetta breytti stjórnmála starfseminni og bætti hana raunar á ýmsan hátt Nú eru hókanir ráðherra á rikisstjórn- arfundum birtar i fjolmiðlum Áður hefði slíku sennilega verið jafnað við landráð Ágreiningur stjórnarflokkanna er rakinn og tíundaður i hverju máli Pólk kynnist ekki aðeins viðhorfum ríkisstjórnar og einstakra aðild arflokka hennar Það fær itar- lega frásogn af viðhorfum ein stakra sotfnana, jafnvel ein stakra manna innan hvers flokks. Það lætur t.d stundum nærri að segja megi að Alþýðu J flokkurinn haldi nú sína þing , flokksfundi á síðum dagbla^ I anna. Þótt þessi nýja stefna þurfí slípast, og verða til muna > ‘ efnalegri. er það min skoðu I hún geti með timanum orð } bóta. Aö hlindmgsleikur stjórn ! manna við kjósendur hafi ge * sér til húðar Litaskij ^ margfrægu frafsvortu til hv, og hvítu til svarts viö hverj 1 nýja stjórnarmyndun séu samboðin kjósendum. og læinlin is skaðleg allri stjórnmálastar ! semi. Afstaða min til fjölmiðh tekur að sjálfsögðu mið af þess um almennu viðhorfum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.