Morgunblaðið - 03.07.1979, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 1979
11
Kjartan Lárusson forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins og Viihelm G.
Kristinsson skála með víkingahornum sem Ferðaskrifstofan hefur
látið útbúa.
Hótelin hafa yfir að ráða 530
herbergjum eða 1000 rúmum.
Reksturinn verður með svipuðu
sniði og undanfarin 2 ár. Fjöldi
starfsmanna er um 140. Hótelin
hafa nú öll opnað og eru opin þar
til í lok ágúst.
Ferðaskrifstofan mun hafa
fleiri hópferðir í sumar heldur en
nokkru sinni fyrr. Væntanlega
verða farnar um 130 ferðir sem
taka 5—15 daga hver, auk mikils
fjölda 1, 2ja og 3ja daga ferða.
Þátttaka Islendinga í þessum
ferðum hefur aukist undanfarin
ár, enda er verði stillt mjög í hóf.
Sagði Kjartan að íslendingar
virtust hafa mikla ánægju af að
ferðast með erlendum ferða-
mönnum um landið, enda fróðir
leiðsögumenn ávallt með í ferð-
inni.
Ferðaskrifstofa ríkisins býður
auk þess sem áður er nefnt upp á
alla þjónustu hvað varðar far-
seðla og hótelfyrirgreiðslu er-
lendis.
Ferðaskrifkstofan rekur al-
menna upplýsinga- og sölustarf-
semi fyrir innlenda og erlenda
ferðamenn á tveim stöðum. í
söluturninum við Lækjartorg er
opið virka daga kl. 8—18 og
laugardaga kl. 8—13. Afgreiðsla
skrifstofunnar að Reykjanes-
braut 6 er opin frá 8 til 18 virka
daga og 8 til 13 á sunnudögum.
Sigurður Arngrímsson
stjórnmálamönnum að fram-
kvæma", (leturbr. mín). Þér getur
ekki verið alvara maður. Er þér
ekki enn ljóst, að öll kosningalof-
orð ykkar, sem þið fenguð atkvæð-
in út á, hafið þið svikið. Jafnvel
lygina hafið þið lögleitt. Hvorki þú
né einn einasti þingmaður stjórn-
arflokkanna, hefur fengið þetta
umboð, sem þú telur þig hafa. Þið
fenguð umboð um að setja samn-
ingana í gildi. En einnig það hafið
þið rækilega svikið.
Síðan heldur þú áfram: „Verk-
fallsbeiting getur beinlínis höggv-
ið að rótum þess, sem sjálfstæði
og tilvera þjóðarinnar grundvall-
ast á. — Þegar einhverjar slíkar
afleiðingar verkfalls eru nærtæk-
ar, og þess mátti sjá merki í
farmannadeilunni, er verkfall ekki
lengur einkamál fárra,“ (letbr.
mín). Eftir að áhrif af ummælum
ykkar um deiluna urðu ljós, er
þetta rétt. En er það ekki „svívirð-
ing“, að þú hafir þagað í öll þessi
ár, þar til í farmannadeilunni, og
horft upp á að verkfallsvopninu
hafi verið misbeitt. í staðinn fyrir
að Ieitast við að reyna að fá
einskonar gerðardóm í allar
vinnudeilur. Gerðardóm sem hefði
vald til að meta stöðu umsemj-
anda, þar á meðal að skoða bók-
hald hans. Því ekki getur hann
greitt það sem ekki er til, nema að
velta því út í verðlagið. Þér hefði
verið nær að tala um slíkar að-
gerðir, í staðinn fyrir að hrópa
upp: „Svívirðing", „hátekjumenn
sem sundra þjóðfélaginu", „það
verður að setja bráðabirgðalög".
En einasta hugsun þín var, að
bjarga þessari ríkisstjórn, sem svo
til engu hefur áorkað, nema að
svíkja flest loforð, sem hún hét
umbjóðendum sínum. Ég held að
ykkur sé hollt að hafa orð Abra-
ham Lincoln í huga, þar sem hann
sagði: „You can fool all the people
some of the time, and some of the
people all the time, but you
cannot fool all the people allt the
time“.
Ennfremur er ykkur hollt að
hafa í huga: „Sá, sem tælir fals-
lausa menn út á vonda leið, hann
fellur sjálfur í gröf sína; en
ráðvandir munu hljóta góða
arfleifð", Orðskv. 28:10.
Lokaorð
Það var leiðinlegt Magnús minn,
að þér skildi verða á í messunni.
Því margt gott hefur þú gert, t.d.
fyrir gamla fólkið, í ráðherratíð
þinni. Og ég bið algóðan Guð að
launa þér fyrir það. I sjálfu sér er
ég einnig viss um, að þú sagðir allt
þetta í góðri meiningu. Meiningu
sem þú taldir rétta. Þar erum við
á öndverðum meiði og út frá því
spinnast þessi skrif mín um mál-
efnið.
Nafngift þá sem þú notar um
mig í grein þinni, ætla ég ekki að
svara. En ólíkt skemmtilegra
hefði það nú verið, að þér hefði
tekist að hrista af þér svona
götu-mál og að þú hefðir ekki
dregið það með þér inn í ráðuneyt-
ið. Það kann að vera, að þér og
öðrum ráðherrum sé illa við að
borgarar þessa lands, séu að fetta
fingur út í aðgerðir og ummæli
ráðherra. í mörgum löndum enda
menn í tugthúsi fyrir að skrifa
slíkan „ósóma“ og þar eru þeim
gefnar nafngiftir, eins og „frat-
leikmenn" og þaðan af verri. En
væntanlega útskýrir þú þetta fyrir
kjósendum þínum, ef það verða þá
einhverjir til að kjósa þig, um að
þú hafir verið sár og reiður og að
þér hafi verið vorkunn. Hvað sem
því líður, þá tel ég að flokksbróður
þínum, Sighvati Björgvinssyni,
hafi verið full alvara í huga þegar
hann reit, „að ráðherrar yrðu að
fara að hugsa áður en þeir töluðu
og þessari munnræpu ráð-
herranna yrði að linna." Ég er
Sighvati sammála.
Virðingarfyllst,
Sigurður Arngrímsson
frá fsaíirði.
32 húsgagnasmiðir útskrifast
SVEINSPRÓFUM í hús-
gagnasmíði er nú nýlokið
og útskrifuðust 32 hús-
gagnasmiðir að þessu
sinni eða fleiri en nokkru
sinni áður. Próftími er um
70 klukkustundir og fer
prófið fram á vinnustað og
í Iðnskólanum.
Að þessu sinni var tekin upp
sú nýbreytni að leggja sama
verkefni fyrir alla próftaka. í
hópi þeirra sem útskrifuðust
eru 8 sveinar sem voru í
verknámi í Iðnskóla Reykja-
víkur, en þetta er annað árið
sem slíkir nemendur útskrif-
ast. Á síðustu árum hefur
fjöldi þeirra sem útskrifast
aukist ár frá ári m.a. vegna
þess að Iðnskóli Reykjavíkur
kom á verknámi fyrir þessa
grein fyrir nokkrum árum.
Eftir að innflutningur á hús-
gögnum var gefinn frjáls og
tollar lækkaðir hafa atvinnu-
horfur í þessari grein farið
versnandi með hverju árinu
sem líður. Þannig hefur inn-
flutningur á húsgögnum á
árunum 1976 til 1978 um það
bil fjórfaldast að magni til.
í Reykjavík og nágrenni er
nú talið að því sem næst 250
húsgagnasmiðir séu starfandi,
en á síðustu fjórum árum hafa
100 manns útskrifast í þessari
grein. Með ofangreinda þróun
í huga er vandséð hvar þeir
sem útskrifast í þessari grein
á næstu árum iá atvinnu.
Öll mál eru í cm.
Frystir
107
Lítrar
Kælir
303
Lítrar
-71
Kælir
210
Lítrar
Frystir
190
Lítrar
-60 ......-I
Frystir
85
Lítrar
Kælir
265
Lítrar
-60
340
Lítrar
HAFNARSTRÆTI 3 - 2Ö455 - SÆTÚN 8 - 15655
140
Lítrar
Frystir
55
Lítrar
Kælir
265
Lítrar
gQ ------------ gQ -------