Morgunblaðið - 03.07.1979, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 03.07.1979, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979 Sauðárkrókur: Er við hittum Pál tannlækni að máli á íþróttavellinum var meistaraflokkur í fót- bolta á æfingu. Þjálfari liðsins, sem sjá má á milli hópanna á miðri mynd, er fenginn að sunnan. Heitir hann Gústaf Björnsson og er úr Knattspyrnufélaginu Fram. niínnailfift,. pi Samdráttar gc sviði, enda máy Þó ljóðlínan „skín við sólu Skagafjörður“ væri ofarlega í huga blaðamanns Mbl. er hann og ljósmyndari blaðsins lögðu upp frá Reykjavíkurflugvelli skömmu fyrir Jónsmessu á leið til Sauðárkróks, þá brást vonin um sólríka daga í Skagafirði. Þess ístað andaði köldu að norðan og úrkomusamt var ímeira lagi að mati Norðanmanna. Á Sauðárkróki búa nú um 2.100 manns. Atvinnulíf er þar mikið og fjölbreytt og uppbygging íbúðahverfa og ýmissa þjónustustofnana mjög hröð um þessar mundir. Við ræddum við nokkra forráðamenn bæjarfélagsins og fyrirtækja á ýmsum sviðum og heimsóttum atvinnufyrirtæki. Birtist hér hluti af afrakstri ferðarinnar og eftirstöðvarnar væntanlega fljótlega. Páll Ragnarsson formaður Ungmennafélagsins Tindastóls: „Háir okkur mest hversu erfitt er að fá fólk til starfa” Hluti af starfsliði Hótels Mælifells í eidhúsi heimavistarskólans, sem er að sögn Guðmundar betur búið tækjum en stærstu eldhús á hótelum í Reykjavík. Þau eru, talið frá vinstri, Elsa Elíasdóttir, eiginkona Guðmundar, Guðmundur hótelstjóri, Tómas Guðmundsson faðir Guðmundar og Tómas Guðmundsson sonur hans, Ólöf Þorsteinsdóttir starfsstúlka og Sigurður Tómasson kokkur. Hótel Mælifell: Veizlumatur, matreiddur af kokki, sem nam í eldhúsum Savoy í London Ekki var örtröð fyrir að fara á heimavistinni, sem Hótel Mælifell hefur til afnota á sumrin, þá tvo daga, sem blm. og ljósmyndari Mbl. gistu þar um miðja s.l. viku. Vistar- verur þar eru góðar og ekki má gleyma matnum, sem borinn var á borð, enda matreiddur af Sigurði Tómassyni matreiðslumanni, sem var við framhaldsnám í eitt og hálft ár á hinu fræga hóteli Savoy í London og lauk þaðan námi með góðum vitnisburði. Sigurður starfar hjá bróður sínum Guðmundi Tómassyni hótelstjóra á sumrin en er einn af kokkun Nausts- ins á vetrum. Tómas faðir þeirra starfar einnig við hótelið — var reyndar hótelstjóri og eigandi á undan Guðmundi og f móttökunni var að finna þriðja ættliðinn, son Guðmundar, Tómas. Heimilislegt, eða hvað finnst ykkur? Við ræddum stuttlega við Guðmund hótelstjóra og inntum hann eftir hvernig hótelreksturinn gengi. „Þetta gengur þokkalega. Þó finnst mér erfiðara að reka hótelið nú en í byrjun. Verðlagningin er þó nokkuð á eftir dýrtíðinni. Aðsóknin er þokkaleg yfir sumartímann, en á vetrum er oft dauður tími.“ — Eru margir starfsmenn við hótelið? „Allt í allt eru 11 manns starfandi yfir sumartímann. Við hjónin störf- um hér bæði og eins synir okkar. Það má kannski segja að þetta sé eins konar fjölskyldufyrirtæki," sagði Guðmundur brosandi. „A vetrum verðum við að komast af með sem fæst starfsfólk. Þá sækja hótelið helst menn, sem koma hingað í sambandi við fyrirtækin á staðnum. Við höfum reynt 'að hafa nokkra nýbreytni í starfseminni á veturna, vorum t.d'. með sérstök opin veizlukvöld þar sem buðum upp á mat eins og bezt gerist í Reykjavík fyrir hálfvirði og slógum upp dansleik á eftir. Þessi kvöld voru vel sótt af heimamönnum." — Merkir þú einhverja breytingu á aðsókninni í ár? „Ég er ekki frá því að það sé aukning á- að íslendingar ferðist innanlands. Það er hins vegar ekki gott að segja til um útlendingana, þeir koma yfirleitt ekki fyrr en í lok júní, og byrjun júlí.“ Við spurðum Guðmund í lokin, hvernig honum líkaði að búa á Sauð- árkróki. Hann svaraði því til, að það væru mikil viðbrigði frá því að búa fyrir sunnan. „Það var meira líf í Reykjavík og meira stress. Hér er miklu rólegra og það er gott aö búa hér. Hér er nóg af tómstundatæki- færum. Við höfum góðan golfvöll, hestamennskan er vinsæl, ungmenna- félagið sér um íþróttaaðstöðu og kennslu, flugkennsla er á staðnum, eins stangaveiðifélag. Eins eru hér flest þau félög, sem vinsælust eru í Reykjavík, s.s. J.C., Lions, Kiwanis, Rotary, Erímúrarareglan o.fl. Það er engin hætta á að fólki þurfi að leiðast, og stressið er minna." Við íréttum, að Páll Ragnars- son tannlæknir, formaður Ung- mennafélagsins Tindastóls, yrði við æfingar á íþróttavellinum að kveldi og brugðum okkur þangað til að forvitnast ofurlftið um æskulýðs- og fþróttamál á Krókn- um. Páll var að leggja upp f sitt reglulega skokk, en gaf sér þó tíma til að spjalla við okkur. Við spurðum hann fyrst hvernig ung- mennafélagsstarfið gengi. „Við erum hér að burðast við að halda þessu lifandi. Við höfum verið með flokka í íslandsmótinu í körfubolta og fótbolta — það eru helst boltaíþróttirnar sem við tökum þátt í keppni í. — Og hvernig er þátttakan? „Það gengur svona upp og ofan. Það koma náttúrulega árgangar sem skara fram úr og árgangar sem eru lakari, það fer eftir ýmsu. Ef tapast einn bekkur í skóla þá kemur það niður á heildinni og það segir tilfinnanlega til sín á svo litlum stað. Við erum núna með 5., 4., 3. og meistaraflokk í fótbolta og 4., 3. og meistaraflokk í körfu- bolta.“ — Hvernig er aðstaðan til íþróttaiðkana hér? „Við höfum Ijómandi góða að- stöðu til keppni í útiíþróttum. Aftur á móti erum við illa settir með almenna aðstöðu, og mikill skortur er á sparkvöllum. Við höfum einn sparkvöll í bænum, lítinn fyrir polla. Við höfum tekið þátt í keppni yngri flokka í körfu- bolta í 7—8 ár, þrátt fyrir að við skólana eru engin mörk eða körfu- boltahringir. A staðnum er einn íþróttasalur, 8x16 m að stærð, og þar eru einu körfuboltahringirnir í bænum. Ég er búinn að vera að reyna að koma því í gegn að fá þessa aðstöðu bætta í a.m.k. fimm ár, því krakkarnir alast upp í íþróttunum í leik en ekki á keppn- isvöllum, sem eru meira og minna lokaðir fyrir þeim. „Nei, og þó — kannski var það bara þrjóska að ég kom heim aftur, sagði Páll Ragnarsson tannlæknir og formaður ung- mennafélagsins. — Hefur Tindastóll eitthvað annað á dagskrá en körfubolta og fótbolta? „Þó að boltaíþróttirnar séu stærsti og vinsælasti þátturinn þá erum við náttúrulega með fleira á stefnuskránni eins og önnur ung- mennafélög. Við eigum og rekum skíðatogbraut, einnig erum við með sund og frjálsar íþróttir og við troðum upp með leikrit á sæluviku fimmta hvert ár. En það er með leiklistina eins og svo margt annað í starfi ungmennafé- laganna. Við missum yfirleitt beztu starfskraftana í stærri félög á staðnum. Hér áður vorum við með skógrækt og gróðrastöð en skógræktarfélög hafa tekið við starfseminni og áhugamenn um þau málefni helgað þeim starfs- krafta sína. Skákíþróttin er nokk- uð stunduð innan félagsins, en ef mikill áhugi kemur upp á skák þá er Skákfélag Sauðárkróks rifið upp en síðan er menn missa áhugann, þá er íþróttinni skilað aftur til ungmennafélagsins með þeim ummælum að það eigi nú að rífa þetta upp. Það sem háir starfinu mest er að erfitt er að fá fólk til þess að starfa fyrir félagið, ekki til keppni heldur til að vera með. Það hefur t.d. ekki tekist að ná í mannskap til að sinna hinum einstöku deild- um. Það er aðeins ein stjórn og hún þarf að sjá um allar deildirn- ar.“ Páll er borinn og barnfæddur Sauðkræklingur. Hann sagði mikla breytingu hafa orðið á staðnum frá því hann ólst þar upp. Mikill munur væri á allri aðstöðu og gott væri að búa þar. Þjónusta og samgöngur góðar. Spurningunni um, hvort ekki hefði freistað hans að vera áfram í Reykjavík að loknu námi svaraði hann á þessa leið: „Nei, og þó, kannske var það bara þrjóska, að ég kom aftur. Ég var við nám fyrir sunnan í átta ár og átti orðið nokkurn hóp vina og félaga þar. Það er nokkuð stórt svæði, sem ég þarf að sjá um hér einn sem tannlæknir og ég hef þar af leiðandi minni tíma til frístunda og tómstundastarfa. Ég gæti ef- laust komist léttara af fyrir sunn- an. En ég sé ekki eftir að hafa komið heim aftur."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.