Morgunblaðið - 03.07.1979, Síða 17

Morgunblaðið - 03.07.1979, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979 17 í Morgunblaðinu sl. föstudag birtist frétt með þriggja dálka fyrirsögn, vegna ráðningar for- stöðukonu að barnaheimilinu Laufásborg. I fréttinni kemur fram, að fóstrur í Laufásborg hafi sagt upp störfum vegna ráðningar minnar í starf forstöðukonu. Blaðamaður fær umsögn þeirrar stúlku sem nú gegnir störfum forstöðukonu, og einnig getur blaðamaður þess réttilega, að ekki hafi náðst í mig, enda var ég utanbæjar. Út af fyrir sig er það nýmæli, að ráðning forstöðukonu barnaheim- ilis verði að stórfrétt í dagblaði, en mín vegna hefði gjarnan mátt fjalla um slíkar ráðningar oftar í blöðum. Þar sem Morgunblaðið hefur boðið mér að koma á framfæri mínu áliti, þykir mér rétt að skýra málið örlítið frá minni hlið. Hverjir lof- uðu stöðunni? í byrjun júnímánaðar var aug- lýst laust starf forstöðumanns við Laufásborg. Um þessa stöðu sótti ég. Þegar starf er auglýst laust til umsóknar er ekki gert ráð fyrir að búið sé að ráða í það fyrirfram. Ekki ætla ég að fara að segja æfisögu mína, en árið 1948 lauk ég prófi frá Fóstruskólanum, í fyrsta hópnum sem brautskráðist eftir fóstrunám hérlendis, og hef síðan, til ársins 1974, nær samfellt unnið við fóstrustörf. Á þessum 26 árum hef ég unnið öll störf í og tengd fóstrustarfi. Verið forstöðukona á annan áratug, unnið sem fóstra á öllum stigum frá vöggustofu og skóladagheimili og auk þess unnið á sjúkrahúsi til að kynna mér meðferð veikra barna. Eg tel mig þarafleiðandi hafa töluverða reynslu í starfinu. Þrisvar hef ég stundað fram- haldsnám erlendis. Meðal náms- efnis má nefna, að við Danska kennaraháskólann sótti ég nám í uppeldisfræðum og rekstri dag- vistunarstofnana, auk samvinnu fóstra við foreldra. Árið 1974 fékk ég styrk frá Evrópuráði og notaði hann til að kynna mér fóstrunám og hin margvíslegu rekstrarform dagvistunarstofnana á Norður- löndum. í vetur sótti ég svo fyrirlestra í samfélags- og uppeld- isfræðum við Stokkhólmsháskóla. — Ég hirði ekki um að tína hér til hin ýmsu smærri námskeið og kynnisferðir tengdar fóstrustarf- inu, víða erlendis. — Við þetta má bæta stúdentsprófi sem ég lauk á síðasta ári. Sem forstöðukona minnist ég Athugasemd frá Elínu Torfadótt- urvegnaskrifa um veitingu stöðu forstöðukonu Laufásborgar þess ekki að hafa nokkru sinni átt í útistöðum við starfsfólk, né heldur minnist ég þess að nokkru sinni hafi hætt hjá mér stúlka vegna ósamkomulags. Hins vegar varð ég að sjá á eftir mörgum góðum fóstrum sem hjá mér höfðu starfað, í forstöðukonustörf. Tugir nemenda fengu starfsþjálfun á forstöðukonuferli mínum, og man ég ekki eftir að þar bæri skugga á, — nema síður væri. Af þeim ótal foreldrum sem ég hef átt samskipti við í starfi mínu, minnist ég þess vart að komið hafi til árekstra. Hitt er annað mál að ég tel mig hafa átt drúgan þátt í að koma á foreldrafundum á barnaheimilum, enda fengin í ótalin skipti á ýmis barnaheimili til að flytja erindi um gildi góðra samskipta foreldra og fóstra. Það er einn ánægjulegasti þáttur fóst- urstarfsins að kynnast ótölulegum fjölda þakklátra foreldra, og það er einn stærsti vinahópurinn minn í gegnum árin. Elín Torfadóttir í félagsmálaráði fékk ég fimm atkvæði en einn sat hjá. En í Stjórnarnefnd dagvistunarstofn- ana Reykjavíkurborgar féllu at- kvæði 2 og 2. Vissulega mega menn hafa sínar skoðanir á um- sækjendum, en þó „undrar" mig afstaða fulltrúa Fóstrufélagsins í stjórninni. Þegar stéttarfélag á fulltrúa í stjórn stofnana er þeim ávallt nokkur vandi á höndum þegar gera þarf upp á milli félags- manna. Þó er meginreglan sú, að tekið sé tillit til starfsaldurs. En fulltrúi Fóstrufélagsins vílar ekki fyrir sér að ganga framhjá 26 ára starfsferli og fjölþættri reynslu og menntun, heldur greiðir hann þeim umsækjanda atkvæði sem mun skemmri starfsaldur hefur og telur að ef sá umsækjandi sé ekki ráðinn, jaðri það við brott- vikningu. Brottvikningu úr hverju? Starfið var laust til um- sóknar. Er hægt að víkja manni úr starfi sem hann hefur ekki? í viðtali Morgunblaðsins við þá stúlku sem nú gegnir forstöðu- mannsstarfinu, segir hún að hinn umsækjandinn hafi unnið með sér við stjórnun Laufásborgar í eitt og hálft ár, og beri þess vegna að fá stöðuna. Það sakar kannski ekki að geta þess, að ég vann í Laufás- borg í 5—6 ár, án þess að krefjast stöðunnar út á það. I Vísi sl. laugardag er viðtal við eina af þeim fóstrum sem sagt hafa upp störfum, og skýrir hún þar frá því, að búið hafi verið að lofa hinum umsækjandanum stöð- unni, og þess vegna séu þetta svik við hana. Hverjir skyldu hafa lofað henni þessu? Og í hvaða umboði? Ekki þeir aðilar sem áttu að veita stöðuna. — Skyldu það hafa verið sömu aðilar og buðust til þess í vetur að veita mér stöðu forstöðu- manns Laufásborgar og sem ég svaraði með því að þeir hefðu ekki umboð til neinna stöðuveitinga og ég myndi aðeins taka þær stöður sem auglýstar væru lausar? Kannski er þarna komin skýr- ingin. Um þær fóstrur sem sagt hafa upp störfum, hef ég ekkert slæmt að segja, því ég þekki ekki, að ég veit, neina þeirra né heldur að ég hafi átt í neinum útistöðum við þær á einn eða neinn hátt. Ég vona að það sé gagnkvæmt. Þess- um fóstrum óska ég alls góðs. En örlítið stingur það í stúf við umhyggju fyrir börnum, að segja upp störfum án tilskilins fyrir- vara, og vonandi er það ekki gert til að gera nýrri forstöðukonu erfiðara fyrir, — slíkt má ekki ætla fóstrum. Með þökk fyrir birtinguna. Elín Torfadóttir, fóstra allra aðildarríkja í Comecon í Austur Evrópu nema Rúmen- íu. Verðið er reiknað út á grundvelli vestræns meðal- verðs næstu fimm ár á undan, svo að ákvörðun OPEC ríkj- anna í fyrri viku um hækkun olíuverðs mun einnig hafa í för með sér hækkun á olíu frá Sovétríkjunum. Bandamenn Sovétríkjanna nota og einnig vestræna gjaldmiðla til að festa kaup á verulegu olíu- magni frá OPEC. Þó svo að olíuframleiðsla í Sovétríkjunum hafi dregizt saman mun framleiðsla á kolum hafa gengið betur, og er nú komin um 4.7 millj. tonna fram úr áætlun. Pravda eggjaði lesendur sína mjög að gæta fyllstu varkárni í allri olíunotkun og átaldi alla sóun. Hins vegar er ljóst að Comeconríkin munu nú beina athyglinni í vaxandi mæli að öðrum orkugjöfum, eins og vestræn ríki, og Kosygin for- sætisráðherra fjallaði sér- staklega um kjarnorkuna í því sambandi. Hann sagði að unnið væri að sameiginlegri áætlun til að leggja grundvöll að því að kjarnorkan gæti komið í stað þeirra orkugjafa sem nú eru almennastir og væri stefnt að því að kjarnorkan yrði þriðj- ungur allrar orku Comecon. Á fundinum munu ríkin hafa gert mjög umfangsmikl- ar samþykktir um samstarf og samræmingu í efnahags- og orkumálum. Ein þeirra miðar að því að Sovétmenn og Tékkóslóvakar reisi í samein- ingu kjarnorkuver, er fram- leiði fyrir árslok 1990 37 milljón kgW fyrir Austur- Evrópulönd. Faddetev ritari Comecon sagði einnig að samstarfs- samningurinn um kjarnork- una skuldbindi Sovétmenn til þess að byggja ver sem fram- leitt gæti samtals 113 millj. kgW fyrir þennan tíma og myndi þetta komið í gagnið spara 70 milljón tonn af hefðbundnum orkugjöfum á ársgrundvelli. Framleiðslu- geta kjarnorkuvera í Sovét- ríkjunum nú og fram að árslokum er aðeins 20 millj. kgW. Auk Sovétríkjanna eiga að- ild að Comecon Búlgaría, Kúba, Tékkóslóvakía, Aust- ur-Þýskaland, Ungverjaland, Mongólía, Rúmenía, Pólland og Víetnam. Forsætisráðherr- ar þessara ríkja voru fyrir sendinefndunum á fundinum í Moskvu að Piotr Jaroszevicz forsætisráðherra Póllands einum undanskildum, en hann var sagður sjúkur. Júgóslavía er aukafélagi og sendi fulltrúa, og áheyrnar- fulltrúar komu einnig frá Afganistan, Angóla, Eþíópíu, írak, Finnlandi, Laos, Mexíkó, Mósambik og Suður Jemen. Nýkomið: frá Detroit Automotive: Driflæsingar í fjórhjóladrifsbíla, framan og aftan. Frá Riveria: Stálvaskar meö áfastri 2ja hólfa gaseldavél. Aqua Flow 12v vatnsdælur m/krana. Gasofnar meö öndun út, fyrir bíla og sumarhús. Litlir gasofnar fyrir tjaldvagna og fellihýsi. Frá Rapido: Fellihýsi, lítiö á vegi, stórt uppsett. Hafid samband við Gunnar Ólafsson eða Sigurð Þorkelsson hjá Panelofnum hfM Kópavogi. Sími 44210. Scout II. 4 cyl. Scout II. Kom mjög vel út í sparakstri B.Í.K.R. í maí. XSsVéladeíld m Sambandsins Ármúla 3 Reykjavik Simi 38900 í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.