Morgunblaðið - 03.07.1979, Page 18

Morgunblaðið - 03.07.1979, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979 an dag. Þeir byrjuðu á því að flytja eldsneyti í land úr Óðni fyrir þyrlu Varnarliðsins og um kl. 7 kom sú stóra aðvífandi og stóru hlutirnir á þilfari Óðins hurfu á loft einn af öðrum og lentu mjúklega undir „væng“ þyrlunnar á réttum stöðum í Surtsey. Þetta var í fyrsta skipti sem vel þjálfað þyrlulið Varnarliðs- ins framkvæmdi slíka flutninga af skipsfjöl, en það gekk fljótt og vel bæði hús og dráttarvél svifu á loft eins og ekkert væri eðlilegra. Þegar stóra þyrlan hafði lokið 6 ferðum með s.tærstu tækin tók TF-GRÓ við og flaug 70 ferðir milli eyjar og skips um daginn. Var stórkostlegt að fylgjast með hæfni flugmanna þyrlunnar við erfiðar aðstæður, því norðan strekkingur var á og því misvindasamt í hlíðum Surtseyjar. Tækjabúnaðinn þurfti að flytja á nokkra staði, við Pálsbæ, undir Búnka og upp við austurgíginn þar sem borstaðurinn hefur verið valinn í hlíðinni. Það er Jarðfræðistofnun Banda- ríkjanna sem styrkir Náttúrufræði- stofnun íslands til þessara rann- sókna sem byggjast á því að ná kjarna úr borun niður á 210 metra dýpi og kanna þannig hvernig askan hefur breytzt í móberg við steinruna og efnabreytingar af völdum hita, raka og þunga, aðallega. Sveinn Jakobsson jarðfræðingur stjórnar verkinu, en hann vann m.a. við rannsóknir í Surtsey þegar gos var í eynni og hann hefur unnið við 'ýmsar rannsóknir í öðrum eyjum Vestmannaeyjaklasans. Af þessum 33 milljónum króna sem Banda- ríkjamenn veita til rannsóknarinn- ar mun meginhluti fjárins fara í kostnað við borun eða nær 30 milljónir króna og þar af eru um 4 millj. kr. söluskattur á borunina, en unnið er að því að það fé notist einnig í rannsóknina. Sú rannsókn sem nú fer fram í Með traktor í loft- brú til Surtseyjar 80 þyrluferðir með búnað til vísindarannsókna í Surtsey Dinglandi dráttarvél neðan í þyrlu Varnarliðsins, rétt laus við þilfar Óðins. ÓÐINN lá við bryggju í Þorláks- höfn, en síðustu klukkustundirnar hafði verið skipað um borð 50 tonnum af ýmsum tækjum til vísindarannsókna í Surtsey, nánar tiltekið tækjabúnaði til þess að kanna í fyrsta skipti í sögu jarðar- innar hvernig móberg verður til inni í eynni sjálfri. Bor frá Jarð- borunum ríkisins var kominn á þyrluþilfarið, dælur, borar, hús og jafnvel dráttarvélar. Varðskipið átti að flytja farminn til Surtseyjar þar sem þyrlur frá Gæzlunni og Varnarliðinu skyldu sfðan selflytja varninginn í land. Það var liðið á nótt s.l. fimmtu- dags þegar Óðinn lét úr höfn, kóssinn tekinn á Surtsey eftir snara sigiingu út hafnarmynnið. Helgi Hallvarðsson skipherra gaf ordrur snöggt og ákveðið eins og honum er lagið, hver maður á sínum stað, valið lið dugmikilla útvarða íslands. í morgunsárið var Óðinn við strönd Surtseyjar og beið eftir gæzluþyrl- unni með Birni Jónssyni flugmanni við stjórnvölinn, en auk hans fiaug Þórhallur Karlsson þyrlunni þenn- Ævar Jóhannesson með hita- mæli í hlíð Surtseyjar, en hann heíur komið við sögu í mörtfum þáttum rannsókna ( eynni. Surtsey er mjög sérstæð og það er reyndar einsdæmi að farið sé á þennan hátt með annan eins farm af tækjum til vísindarannsókna á eyju langt úti í hafi, en einn þátturinn í þessari rannsókn er að finna hvaðan sá mikli hiti kemur sem enn er víða í Surtsey og siík rannsókn tengist að sjálfsögðu könnun á möguleikum í framtíðinni til frekari orkuöflunar á íslenzkum jarðeldasvæðum. Á næstu dögum er reiknað með að borun hefjist af fullum krafti í Surtsey. Þrír bormenn eru á staðn- um auk jarðfræðinga og annars starfsliðs, en m.a. tók 14 manna lið úr hjálparsveit skáta í Vestmanna- eyjum þátt í því að koma verkinu af stað. Hafa þeir unnið við að grafa geypilega holu til þess að ná vatni fyrir borinn. Reiknað er með að boruninni ljúki á næstu tveimur mánuðum. Grein og myndir: Árni Johnsen Hel/fi Hallvarðsson skipherra á Óðni. Gróðurinn sækir hægt og síg- andi á (Surtsey, en mest er a/ fjöruarfa. Sveinn Jakobsson jarðfræð- ingur stjórnar rannsókninni. -V ti® á dráttarvélinni góðu, fyrsta ökutækinu í Surtsey. Bormennirnir Þyrlumenn Varnarliðsins héldu stóru þyrlunni kyrri eins og ekkert væri yfir þilfari óðins meðan krókurinn var festur ( tækin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.