Morgunblaðið - 03.07.1979, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979
29
Viðræðum um mikilvæg-
an þátt var í raun lokið
með jákvæðum árangri
— segir Eyjólfur Konráð Jónsson
„MIKILVÆGT er að formleg-
ar pólitískar viðræður hafa
nú verið teknar upp milli
ríkjanna um Jan Mayen
svæðið utan 200 mílna efna-
hagslögsögu íslands f sam-
ræmi við ályktun Alþingis
22. desember síðastliðinn.
Þrátt fyrir þagnarskyldu
ætti að vera óhætt að segja að
viðræðunum nú um um mikil-
vægan þátt málsins hafi í
raun verið lokið með jákvæð-
um árangri, þegar snurða
hljóp óvænt á þráðinn, því að
fjöldi íslenzkra og norskra
blaðamanna fylgdist allan
laugardaginn með framvind-
unni, þótt þeir væru ekki
viðstaddir beinar samninga-
viðræður, og lýsa áreiðanlega
því, sem þeir urðu áskynja,“
sagði Eyjólfur Konráð Jóns-
son alþingismaður, fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í ís-
lenzku samninganefndinni,
er Mbl. ræddi við hann í gær.
„Að sjálfsögðu mun hvorug
þjóðin grípa til einhliða aðgerða
meðan slíkar viðræður fara fram,“
sagði Eyjólfur, „en báðir aðilar
hafa lýst því yfir að þeim verði
haldið áfram. Þannig er árekstr-
um milli þessara vinaþjóða, sem
gætu gert óbætanlegan skaða,
bægt frá að minnsta kosti fyrst
um sinn.
Fregnir hafa birzt bæði hér og í
Noregi um að fullt samkomulag
hafi verið um helmingaskipti þess
loðnuafla, sem á sumarvertíð væri
heimilt að veiða á Jan Mayen
svæðinu utan efnahagslögsögu
ríkjanna, þannig að Norðmenn
veiði 90.000 tonn og íslendingar
sama magn. Sýnir það með öðru
Eyjólfur Konráð Jónsson
að samkomulagsvilji var á báða
bóga. Heildarlausn Jan Mayen
málsins hlýtur að byggjast á
slíkum velvilja og þeirri megin-
reglu, sem einkennir störf hafrétt-
arráðstefnu Sameinuðu þjóðanna,
að sanngirnissjónarmið eigi að
ríkja og þeirra beri að leita með
samningum en ekki valdbeitingu.
Þetta lýsir sér glöggt í því að á
fundum ráðstefnunnar hafa enn
engin mál verið útkljáð með at-
kvæðagreiðslu, heldur er ætíð leit-
að samkomulags.
Ég er sannfærður um að ekki
þarf að koma til árekstra milli
Norðmanna og íslendinga um
yfirráð á Jan Mayen svæðinu, ef
nægilegt svigrúm gefst til við-
ræðna og báðir aðilar viðurkenna
réttmæta hagsmuni hins. Þá nást
samningar, sem báðum þjóðunum
eru geysimikilvægir og tengja þær
enn traustari vináttuböndum."
AtliDam lögmaður Færeyinga:
Förum líklega f ram á
viðrædur við íslend-
inga ogNorðmenn....
BENEDIKT Gröndal utanríkisráð-
herra hringdi í Atla Dam lögmann
Færeyinga á laugardag og skýrði
honum frá gangi mála í ráðherra-
viðræðunum um Jan Mayen málið.
í samtali við Mbl. vildi Benedikt
ekki skýra frá því, sem honum og
lögmanninum fór í milli, en í viðtali
við Færeyjaútvarpið á laugardags-
kvöld kvaðst Atli Dam að svo stöddu
ekki geta tekið afstöðu til þeirra
3.000 tonna, sem Færeyingum hefði
verið úthlutað í ráðherraviðræðun-
um í Reykjavík.
Atli Dam sagði, að áður en fær-
eysk stjórnvöld tækju afstöðu, yrðu
þau að fá nánari fréttir af gangi
mála hjá Islendingum og Norð-
mönnum. „En það er ekki ólíklegt að
við munum fara fram á samninga-
viðræður við íslendinga og Norð-
menn,“ sagði Atli Dam.
Mbl. reyndi í gær að ná tali af
Atla Dam, an án árangurs.
>alítils
ekki fallizt á, þar sem það myndi grafa
undan rökum Norðmanna um að eyjan
eigi rétt á eigin lögsögu.
I viðræðunum í Reykjavík var ekki
ýkja miklum tíma eytt í umræður um
skilin milli íslenzkrar lögsögu og
lögsögu Jan Mayen, þar sem viðræð-
urnar snerust fyrst og fremst um rétt
Noregs til að lýsa yfir lögsögu við Jan
Mayen. Þó virðist ljóst, að ísland sé
ekki reiðubúið til að láta miðlínuna
gilda og þá er Noregur kominn í sömu
aðstöðu og gagnvart Sovétmönnum í
Barentshafi, en þar vilja Norðmenn
láta miðlínuna gilda. Að gefa eftir
gagnvart íslendingum við Jan Mayen
gæti haft óheppileg áhrif á þær
viðræður, sem enn eru eftir við
Sovétmenn um Barentshafið.
Norskir fiskimenn eru lítt hrifnir af
viðræðunum í Reykjavík. Einkum eru
þeir óánægðir með 23. júlí sem upp-
hafsdag sumarveiðanna, þar sem þeir
vilja helzt hefja veiðar á tímabilinu 9.
til 15. júlí. 90.000 tonn eru í þeirra
augum heldur ekki neitt til að hrópa
húrra yfir. í fyrra veiddu norskir
sjómenn 150.000 tonn af loðnu við Jan
Mayen og þeir hafa sagt, að þeir geti
ekki tekið við kvóta upp á minna magn
nú. Á þriðjudag ætla Frydenlund og
Bölle sjávarútvegsráðherra að gera
sjómannasamtökunum grein fyrir
gangi mála og má gera ráð fyrir að
talsmenn sjómanna leggi áherzlu á að
veiðarnar hefjist fyrr en 23. júlí og að
ieyfilegt aflamagn Norðmanna verði
meira en 90.000 tonn. Þá mun vænt-
Eyvind Bolle, sjávarútvegsráð-
herra Noregs, heldur út í bflinn
eftir viðræðurnar í Ráðherrabú-
staðnum. Hann vildi ekki svara
spurningum Mbl. en vísaði á
Knut Frydenlund
utanríkisráðherra.
anlega verða lagt að norsku ríkis-
stjórninni að lýsa yfir norskri fisk-
veiðilögsögu við Jan Mayen, hvað svo
sem íslendingar vilji í þeim efnum.
Norsku ríkisstjórninni var í dag
gerð grein fyrir viðræðunum í Reykja-
vík, en ekki er ljóst, hvaða viðtökur
greinargerðin um þessar misheppnuðu
samningaviðræður fékk í ríkisstjórn-
inni.
Snorri Sturlu-
son stendur
ekki lengur
einn undir vin-
áttu okkar og
Norðmanna
„ÍSLENDINGAR og Norð-
menn eru áfram ágætir vin-
ir,“ sagði Benedikt Gröndal
utanríkisráðherra, er norsk-
ir blaðamenn spurðu hann
eftir viðræðurnar, hvort
hann teldi að lítill árangur í
Ráðherrabústaðnum ætti eft-
ir að bitna á vináttu þjóð-
anna.
„Hins vegar hafa tímarnir
breytzt," bætti Benedikt við.
„Og við þurfum að glíma við
ýmis vandamál, eins og til
dæmis við höfum gert hér nú,
en jafnframt höfum við tekið
upp samvinnu á nýjum svið-
um, eins og til dæmis varð-
andi járnblendiverksmiðjuna.
Þannig hafa ýmis ný við-
horf komið inn í samskipti
landanna og sú tíð er liðin, að
við getum byggt vináttu okk-
ar á Snorra Sturlusyni einum
saman."
GÖMLU síðutogararnir hafa staðið sig vel eftir að þeim var breytt í
loðnuskip og má í því sambandi nefna aflaskipið Sigurð. Að
undanförnu hefur verið unnið við breytingar á Júpiter, áður Gerpi, í
slippnum í Reykjavík, en á sunnudag var hann dreginn til
Hafnarfjarðar, þar sem lokið verður við breytingar á skipinu.
Meðfylgjandi mynd tók Ólafur K. Magnússon er dráttarbátur lagði af
stað með Júpiter til Hafnarfjarðar, en eigandi skipsins er Hrólfur
Gunnarsson f Reykjavik.
WorldOpen:
Haukur og Margeir
með 4 vinninga eft-
ir fimm umferðir
HAUKUR Angantýsson og Mar-
geir Pétursson voru í gær með 4
vinninga eftir 5 umferðir á
World Open skákmótinu, sem
fram fer í Philadelphiu í Banda-
ríkjunum, en efstur var þá Kan-
adamaðurinn Day með 5 vinn-
inga. Þriðji íslenzki keppandinn,
Sævar Bjarnason, var með 2,5
vinninga.
I fimmtu umferð tapaði Haukur
fyrir Day en í fjórum fyrstu
umferðunum sigraði hann fjóra
Bandaríkjamenn; Rang, Pundy,
Gertler og Kavnalsky, sem Hauk-
ur vann í aðeins 16 leikjum.
Margeir vann Braun Bandaríkj-
unum í fyrstu umferð, tapaði í
annarri fyrir Gertler og vann svo
Friðrik annar
á skákmótinu
í Manila
FILIPÍNSKI stórmeistarinn
Eugene Torre varð sigurveg-
ari skákmótsins í Manila og
fékk hann 10 vinninga.
Friðrik ólafsson varð annar
með 9 vinninga og Sovétmenn-
irnir Averbach og Dorfman
og Englendingurinn Keene
komu næstir með 8 vinninga.
I síðustu umferðinni gerðu
Torre, Friðrik og Dorfman
jafntefli, en Averbach og
Keene unnu sínar skákir.
•
Umferðarslys
á Alftanesi
AÐFARARNÓTT laugardags-
ins fór bíll út af i beygju á
Álftanesvegi en fimm manns
voru í bílnum og slösuðust allir
nokkuð. Ökumaðurinn slapp þó
lítt meiddur, einn farþeganna
höfuðkúpubrotnaði og tveir
aðrir hlutu minni beinbrot.
•
Fjórir sækja
um hæstarétt
UMSÓKNARFRESTUR um
embætti dómara í Hæstarétti
íslands rann út 29. júní sl.
Fjórir sóttu um starfið en það
eru Árni Grétar Finnsson.
hæstaréttarlögmaður, Hafn-
arfirði, Erlendur Björnsson,
bæjarfógeti, Seyðisfirði, Hall-
dór Þorbjörnsson, yfirsaka-
dómari. Reykjavík og Sigur-
geir Jónsson, bæjargógeti.
Kópavogi.
Álþingi samþykkti í vor lög
þess efnis að dómaraembætt-
um í Hæstarétti yrði fjölgað úr
sex í sjö og er hér um að ræða
þrjá landa þeirra; Gabel, Vano og
Hall.
Sævar Bjarnason vann Frem
Bandaríkjunum í fyrstu umferð og
gerði jafntefli við stórmeistarann
Benkö í annarri. Þá vann hann
Bandaríkjamanninn Napoli, en
tapaði svo fyrir Peltz og Munoz.
Tefldar verða 10 umferðir en
keppendur eru um 500 talsins, þar
á meðal stórmeistararnir Balins,
Benkö, Bisuguir, Browne,
Georghiu og Miles.
Sem kunnugt er var Ingvar
Ásmundsson efstur ásamt fleirum
á þessu skákmóti í fyrra, en hann
kom því ekki við að vera með nú og
Guðmundur Ágústsson varð einn-
ig að hætta við þátttöku í mótinu.
veitingu á sjöunda dómaraem-
bættinu. Dómsmálaráðherra
sendi í gær umsóknir til
Hæstaréttar íslands en sam-
kvæmt lögum skal leita um-
sagnar dómsins um dómara-
efni.
•
Urskurðaður
í4mánaða
gæsluvarðhald
LIÐLEGA tvítugur piltur var
um helgina handtekinn eftir
að hafa brotist inn í sumarbú-
stað á Nesjavöllum í
Grímsnesi.
Lögreglan á Selfossi handtók
manninn og reyndist þarna
vera á ferðinni maður, sem
síðustu ár hefur komið við sögu
lögreglunnar vegna innbrota í
sumarbústaði og íbúðir. Eink-
um hefur maðurinn brotist inn
í bústaði á Þingvöllum og í
Grímsnesi. Var maðurinn úr-
skurðaður í allt að 4 mánaða
gæsluvarðhald.
Keypti250 miða
— fékk gæðing
Á Fjórðungsmóti norð-
lenskra hestamanna á Vind-
heimamelum um helgina fór
meðal annars fram happ-
drætti og var aðalvinningur-
inn altygjaður gæðingur frá
Hafsteinsstöðum í Skagafirði.
Einn mótsgestanna, valin-
kunnur hestamaður úr Reykja-
vík, keypti 250 miða í happ-
drættinu en hver miði kostaði
1000 krónur og kom gæðingur-
inn í hans hlut. Segir sagan að
hann hafi ekki fyrr verið búinn
að taka við hestinum, er hann
bauð viðstöddum hestakaup að
hætti góðra hestakaupmanna.