Morgunblaðið - 03.07.1979, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 03.07.1979, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979 21 Golf • Mikið var um að vera í golfi um helgina. Á myndinni sést óskar Sæmundsson sigurvegari í Toyota golfkeppninni íbygginn á svip þar sem hann býr sig undir að „pútta“ á síðustu holunni. Sjá golffréttir bls. 28. Ljósm. Guðjón. Knattspyrna Staðan í Islandsmótinu í knattspyrnu hefur sjaldan verið tvísýnni. Á myndinni sjást Valsmenn fagna marki Atla Eðvaldssonar innilega mjög, enda toppliðin í sjónmáli eftir góðan sigur Vals um helgina. Sjá nánar knattspyrnufréttir bls. 24, 25 og 27. Ljósm. Kristján. Einar Bollason landsliðsþjálfari Einar Bollason, hinn gamal- kunni og þrautreyndi körfu- boltakappi hefur verið skipaður landsliðsþjálfari í körfuknatt- leik. Á nú að gera stórátak í landsliðsmálum, fjölga lands- leikjum svo að eitthvað sé nefnt og stefnt verður að því að stilla upp sterku landsliði í Evrópu- keppni landsliða eftir tvö ár og hefur Einari nú verið falið leiðtogahlutverkið. Til álita kom einnig að einhver bandarísku leikmannanna og þjálfaranna sem hér munu starfa myndu sjá um þjálfun liðsins, sbr. að Tim Dwyer þjálf- aði liðið í fyrra. Það var hins vegar fallið frá því, enda hafa þeir bandarísku í nógu að snúast með sín félagslið og þar af leiðandi líklega sterkari leikur að velja innlendan þjálfara. Ásgeir fékk grænt Ijós! Það er nú komið á hreint, að Ásgeir Sigurvinsson hefur fengið leyfi félags síns í Belgíu um að leika með ÍBV gegn Feyenoord í vináttuleik liðanna í Vestmannaeyjum 25. júlí næstkomandi. Ásgeir skrifaði félagi sínu bréf og fyrir skömmu fékk hann jákvætt svar. Er ekki nokkur vafi, að Eyjamönnum er mikill fengur að sjá Ásgeir í gamla ÍBV búninginum sínum leika gegn hollensku snillingunum, en Ásgeir er einhver snjallasti knatt- spyrnumaður sem ísland hefur átt og aldrei betri en nú. LAPPIRNAR UPP í LOFT. Lilja Guðmundsdóttir hafði það náðugt um helgina þar sem hún komst ekki til Evrópubikar- keppninnar í Wales. Fékk hún ekki farmiða til mótsins eins og nánar kemur fram í fréttinni hér til hliðar. Fékk ekki farmiðann „ÉG mætti ekki í keppnina. þar sem ég fékk engan farmiða til þess að koma mér til Bretlaudsú sagði frjálsíþróttakonan Lilja Guðmundsdóttir þegar Mbl. spjallaði við hana í Norrköping í gær, en þegar íslenzka kvennalandsliðið í frjálsíþróttum þreytti Evrópúbikarkeppnina í Wales á sunnudag vantaði Lilju til keppninnar. „Ég fékk þau skilaboð að ég ætti að sækja miðann á SAS-skrifstofuna í Norrköping. eins og ég hef svo oft gert áður. Þegar ég mætti þar hafði skrifstofan ekki fengið nein fyrirmæli varðandi útgáfu flugmiða á mig. Allan föstudaginn var ég f stöðugu sambandi við skrifstofuna. sem síðan var í stöðugu sambandi til íslands vegna máls míns, en allt kom fyrir ekki. Enginn kannaðist við að FRÍ hefði beðið um farmiða fyrir mig í Evrópubikarinn,“ bætti Lilja við. — ágás. Tekur Bjarni við KR-ingum? KR-INGAR eru komnir langt með að ráða Bjarna Jónsson sem þjálfara fyrir 1. deildar lið sitt í handbolta, en KR sigraði í 2. deild í fyrra undir hand- leiðslu Hilmars Björnssonar. Hilmar hefur snúið sér alfarið að Val, sem hann þjálfaði sam- hliða KR í fyrra og snéru KR-ingar sér þá til Bjarna. Bjarni ætlaði að gefa ákveðið svar um eða upp úr helginni og var að sögn jákvæður í garð KR-inga. Bjarni er þrautþjálf- aður landsliðsmaður og fjöl- kunnugur í handknattleik. • Bjarni Jónsson, í leik með Þrótti fyrir nokkrum árum, en hann þjálfaði og lék með því liði fyrst um sinn eftir að hann kom heim frá Danmörku. Þar dvaldist hann og lék með Aar- hus KFUM um skeið við góðan orðstír. - gg- Coghlann góður írski hlauparinn Eamonn Coghlann náði frábærum árangri í miklu míluhlaupi í borginni Philadelphia í Bandaríkjunum um helgina. Hljóp Coghlann á 3:52,9 mínútum, en það er níundi bezti árangur á vegalengdinni frá upphafi. Coghlann setti heimsmet á vegalengdinni innanhúss í vetur, hljóp þá á 3:52,6 mínútum. Vonast hafði verið til að heimsmet nýsjálenzka hlauparans John Walkers yrði slegið í hlaupinu, þar sem bezti árangur lakasta þátttakandans var 3:56,4 mínútur. Lítill byrjunarhraði kom í veg fyrir það. í öðru sæti í hlaupinu varð Bandaríkjamaðurinn Steve Scott á 3:53,4 mín. og heimsmethafinn John Walker varð fjórði á 3:55,0 mín. Á mótinu hljóp bandaríska stúlkan mfluna á 4:23,5 mínútum, sem er næstbezti árangur kvenna frá upphafi, aðeins heimsmet Maracescu frá Rúmeníu, 4:22,1 mínútur, er betra. • Bretar hafa nú dæmt sinn fræknasta frjálsíþróttamann, Steve Ovett, í keppnisbann, þar sem hann keppti án leyfis brezka frjáísíþróttasambandsins á móti í Hollandi um sfðustu helgi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.