Morgunblaðið - 03.07.1979, Qupperneq 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979
Loks sigraði
Magni í deildinni
EKKI sótti Reynir Sandgerði, gull í greipar Magnamanna í leik
liðanna á Grenivík á laugardaginn. Þeir máttu þola tap, 2—1. Ef á
heildina er litið þá var leikurinn ekki vel leikinn, en þó brá fyrir
góðum augnablikum. Fyrri hálfleikur var frekar slakur og knatt-
spyrnan sem liðin sýndu ekki upp á marga fiska. Framan af voru
Reynisdrengirnir skárri aðilinn en Magni sótti í sig veðrið er líða tók
á hálfleikinn. Það litla spil sem sást var að mestu leyti af hálfu
Reynismanna. Ekki var mikið um hættuleg færi en þau færi sem
sköpuðust fóru öll forgörðum utan eins. Það var á 31. mín. er Jón B. G.
Jónsson skoraði fyrir Reyni. Hann fékk knöttinn einn og óvaldaður á
markteig og afgreiddi hann með þrumuskoti í netið. Besta færi Magna
í halfleiknum átti Hringur Hreinsson þegar hann komst einn innfyrir
vörn Reynis en þrumuskot hans geigaði. Seinni hálfleikur var líflegri,
og sköpuðust hættuleg færi á báða bóga. Besta færi hálfleiksins átti
Jón B. G. er hann skallaði knöttinn yfir á marklínu, þegar auðveldara
virtist að skora. Á 58. mín jafnaði Hringur Hreinsson, hinn skæði
framherji Magna, metin með gullfallegri hjólhestaspyrnu af mark-
teig. Og aðeins mínútu síðar komust Magnamenn yfir með marki Jóns
IUugasonar. Jón skaut af 20 m færi, knötturinn lenti í þúfu, og
skoppaði siðan yfir markvörðinn. Það sem eftir lifði leiksins var
jafnræði með liðunum, en Magnasigur virtist aldrei í hættu. Að leik
loknum fögnuðu heimamenn innilega enda þeirra fyrsti sigur í
deildinni í höfn.
Einn Reynismanna í dauðafæri við mark Magna, en hættunni var bægt frá. Magni
vann þarna frækinn sigur og sýndi að liðið verður ekki auðtekin bráð í sumar.
Þór á uppleið
ÞÓRSARAR frá Akureyri gerðu góða ferð til ísafjarðar á föstudag-
inn, en þá unnu þeir sætan sigur á liði heimamanna. Leikurinn fór
fram á nýjum malarvelli ísfirðinga, sem var þó ekki í sem bestu
ásigkomulagi. Þórsarar hófu leikinn af krafti og sóttu stöðugt fyrsta
stundarfjórðunginn. Þeir uppskáru fljótlega árangur erfiðisins er
Óskar Gunnarsson skoraði með þrumuskoti frá vítateig. Eftir markið
slökuðu Þórsarar á og oft skall hurð nærri hælum við mark þeirra. En
það voru Þórsarar sem bættu öðru marki við. Það var hinn sókndjarfi
Guðmundur Skarphéðinsson sem skoraði af stuttu færi. í byrjun
síðari hálfleiks sóttu heimamenn stíft, en þvert ofan í gang leiksins
skoruðu Þórsarar sitt þriðja mark. Guðmundur Skarph. átti þá
glæsilega sendingu fyrir markið þar sem Jón Lárusson kom aðvífandi
og skallaði örugglega í netið. Eftir markið lögðu heimamenn allt kapp
á sóknina og sóttu djarft en Þórsarar áttu hættulegar skyndisóknir.
Það voru ísfirðingar sem áttu sfðasta orðið í leiknum er Andrés
Kristjánsson skoraði af stuttu færi, eftir að Eiríkur markvörður Þórs
hafði hálfvarið gott skot af löngu færi. ísfirðingar sóttu stíft síðustu
mínúturnar, en án árangurs. Góður dómari leiksins var Björn
Björnsson.
Sundfólkið aftar-
lega á merinni
ÞAÐ gekk frekar brösulega hjá
íslenska landsliðinu f sundi, sem
þátt tók í 8 landa tveggja daga
keppni f Belgfu um helgina.
(slenska liðið varð f áttunda og
sfðasta sætinu, allt langt að baki
sjöunda liðinu, sem var landslið
Sviss. Hlaut íslenska liðið alls 51
stig, en Sviss 126. Norðmenn
sigruðu í keppninni af miklu
öryggi, hlutu 260 stig. Spánverj-
ar urðu f öðru sæti með 185 stig,
Skotar hlutu 169 stig, Walesbúar
167 stig, Belgar 159 stig og
ísraelar 139 stig.
í flestum greinanna urðu ís-
lendingarnir í síðustu sætunum,
en komust í 5. sætið í fáeinum
greinum. Annað sætið náðist þó í
4x200 skriðsundi, urðu Islendingar
þar næst á eftir Norðmönnum.
Var tími íslensku sveitarinnar
7:53,69 mínútur, en tími norsku
sigursveitarinnar var 7:52,66.
Spánn var í þriðja sæti með
8:01,80.
í 1500 metra skriðsundi karla
tróð Brynjólfur Björnsson sér í 5.
sætið og synti á 17:15,62 mínútum.
í greininni sigraði Amri Ganiel
frá ísrael á 16:17,47 mínútum.
Bjarni Björnsson náði fimmta
sætinu í 200 metra skriðsundi, er
hann synti á 2:01,14 mínútum.
Sigurvegarinn synti á 1:57,94, en
það var Amri Ganiel frá ísrael.
Sonja Hreiðarsdóttir hreppti
fimmta sætið í 200 metra bringu-
sundi, synti á 2:49,84 mínútum en
sigurvegarinn, Maureen Campbell
frá Skotlandi synti vegalengdina á
2:44,82.
Síðan náði Sonja Hreiðarsdóttir
6. sæti í 400 metra fjórsundi á
tímanum 5:39,59 mínútum, en að
öðru leyti höfnuðu íslensku
keppendurnir í botnsætunum í
hverri grein.
Ólöf Sigurðardóttir synti 200
metra skriðsundið á 2:23,89, Þór-
anna Heiðinsdóttir synti 100
metra baksund á 1:14,87, Margrét
Sigurðardóttir synti 100 metra
flugsund á 1:13,96 og Sonja
Hreiðarsdóttir synti 200 metra
fjórsund á 2:41,84. Allar voru þær
stöllur í 8. sæti.
Ingólfur Gissurarson varð átt-
undi í 200 metra bringusundi á
2:43,19, Brynjólfur Björnsson varð
áttundi í 100 metra flugsundi á
1:03,69 og íslenska sveitin varð í
áttunda sæti í 4x200 metra skrið-
sundi kvenna á 4:23,37 mínútum.
• Fáir spáðu liði Magna frá Grenivík frama í 2. deildar keppninni í sumar og liðið
hefur verið í fallbaráttu. En bjartari tímar eru kannski framundan, þar sem liðið
vann sinn fyrsta leik í deildinni um helgina, lagði þá Reyni frá SanHororAi fyrir
norðan. Ljósmyndir: sor
Vilmundur sprækari
„ÉG HEF tekið það rólega að undanförnu, tekið mest fartleksæfingar
á grasi, en forðast að æfa á hlaupabraut. Bólgan er farin úr fætinum
og þetta lftur allt vel út. Ég ætla að freista þess að keppa um næstu
hclgi.“ Þannig mælti frjálsfþróttamaðurinn Jón Diðriksson f spjalli
við Mbl. í gær. Jón hefur undanfarnar vikur átt við meiðsl að strfða í
hásin, en virðist nú á batavegi. Eftir veturinn var Jón í betri æfingu
en nokkru sinni fyrr, en f byrjun sumars hófu meiðsl að setja strik f
reikninginn og hefur Jón þar af leiðandi lftið getað keppt.
Vilmundur Vilhjálmsson og Gunnar P. Jóakimsson hafa dvalið hjá
Jóni við æfingar í tvær vikur. Sagði Jón að Vilmundur væri nú orðinn
öllu sprækari en í Luxemborg fyrir tveimur vikum, en Gunnar hefur
hins vegar átt erfitt uppdráttar. Kepptu þeir á móti í Gelsenkirchen um
helgina og hljóp Vilmundur þar 100 metra á 10,7 sekúndum og 200 metra
á 21,8 sekúndum, en hvort tveggja er hans bezta í ár. Gunnar hljóp 800
metra á 1:55,0 sekúndum.
Gunnar kemur heim í vikunni og verður meðal keppenda á
meistaramóti Islands um næstu helgi, en Vilmundur heldur til Englands
í vikulokin og keppir eitthvað þar áður en hann heldur til Kalott
keppninnar, sem fram fer eftir þrjár vikur tæpar. — ágás.
Búlgarskir „KSr
menn reknir heim
Knattspyrnusamband Búlgarfu var leyst upp fyrir nokkrum dögum
og starfsmenn þess sendir heim. Ástæðan er sú, að búlgarska
landsliðinu hefur gengið ömurlega að undanförnu, síðast 0—3 tap á
heimavelli gegn Englandi. Rfkisstjórninni þótti nóg komið og rak alla
heim.
Benetti á
faralds-
fæti
RÓMEO Benetti, járnkarlinn hjá
Juventus og ftalska landsliðinu,
hefur nú flutt sig um set, þar sem
Roma, 1. deildar liðið hefur keypt
hinn 33 ára gamla kappa. Benetti
er miðvallarspilari og frægur
fyrir hörku sína. Hefur oft jaðrað
við neistaflugi í návfgum þar sem
Benetti er nærri. Kaupverðið var
ekki látið uppi.