Morgunblaðið - 03.07.1979, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 03.07.1979, Qupperneq 43
5 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979 23 Stórsigur Oster í TOTO bikarnum HIN árlega TOTO-keppni svokallaða í knattspyrnu er á fleygiferð um þessar mundir, en þar leikur m.a. öster Wexjö. lið Teits Þórðarsonar og afrek liðsins um helgina eru mjög athyglisverð, stórsigur, 4—0, gegn hinu kunna tékkneska liði Banik Ostrava. Úrslit leikja um heigina urðu sem hér segir. Maccabi Nathanya (ísrael) — Rapid Vienna (Austrr.) Odense (Danm.) — Gautaborg (Svíþjóð) Kalmar FF (Svíþj.) — Esbierg (Danm.) Austria Salzb. (Austurr.) — GKS Katowicz (Póll.) Öster (Svíþjóð) — Banik Ostrava (Tékk.) Chemois Geneva (Sviss) — Slavia Sofia (Búlgaría Malmö FF (Svíþjóð) — St. Gallen (Sviss) Vejle (Danm.) — Royal Antwerp (Belgíu) Bohemians Prag (Tékk.) — FC Zúrich (Sviss) First Vienna (Austurr.) — Spartak Trvana (Tékk.) AGF Aarhus (Danm.) — Prin Blagovgrad (Búlg) Zbrojovka Brono (Tékk.) — Lask Linz (Austurr.) 4:2 2:2 2:1 1:1 4:0 2:2 2:1 1:2 2:2 1:1 2:0 3:0 - i ■ t tcm l m ■ ■ ^4 y, . .. .• *--• 1 ' * ** sl • Tómas Pálsson, einn besti maður ÍBV gegn ÍA um helgina, sækir að Jóni Þorbjörnssyni markverði ÍA. ÍBV vann þarna sannfærandi sigur og er meðal efstu liða, en ekki skyldi afskrifa Skagamenn. þar sem þeir hafa leikið 6 af 7 leikjum sínum til þessa á útivelli. Ljósm. Sigurgeir. Knattspyrnan sækir a í usa Með furóulegri íslandsmótum Knattspyrnan er óðum að hasla sér völl í Bandaríkjunum, enda leika þar nú margir snjallir leikmenn frá öllum heimshornum. Úrslit leikja í bandarfsku deildarkeppninni um helgina urðu þessi: Minnesoa Kicks — Chicago Sting New England Tea Men — Detroit Express Houston Hurricane — California Surf Seattle Sounders — Portland Timbers Memphis Rouges — Dallas Tornado Philadelphia Fury — San Jose Earthquakes Fort Lauderdale Strikers — Vanouver Whitecaps Washington Diplomats — Los Angeles Aztecs 4- 2 3-1 2-1 5- 1 2-1 2-1 3-2 3-2 Svo sem sjá má, eru Bandarfkjamenn samir við sig í nafngiftum og gefa þar ímyndunaraflinu lausan tauminn. Margir kunnir kappar úr ensku knattspyrnunni koma þarna við sögu og nöfn eins og Keith Weller, Trevor Francis, Gerry Daly o.fl. komust á blað um helgina. Kempes tryggði Valencia bikarinn Valencia varð spænskur bikarmeistari í knattspyrnu um helgina, með góðum sigri, 2—0, gegn Real Madrid. Real, sem tryggði sér spænska meistaratitilinn fyrir skömmu, lék án nokkurra sinna sterkustu leikmanna og sigur Valencia var mjög sanngjarn. Það var Argentínumaðurinn Mario Kempes, sem skoraði bæði mörk Valencia, það fyrra á 25. mfnútu leiksins og það sfðara á 90. mfnútu. Besta tækifæri sitt fékk Real f fyrri hálfleik skömmu eftir fyrsta markið, en vítaspyrna var þá misnotuð illa. Þetta er í fimmta skipti sem Valencia vinnur bikarinn á Spáni. ÍSLANDSMÓTIÐ í knattspyrnu er sannarlega opið f báða enda og merkilega jafnt f alla staði. Ef skoðuð er staðan inni í opnu fþróttablaðsins sést, að fjögur lið hafa hlotið 9 stig, eitt 8 stig og næst neðstu liðin tvö, KA og Þróttur hafa bæði hlotið 5 stig, þannig að segja má að toppliðin séu engan veginn úr fallhættu! Þegar 35 leikjum er lokið í mótinu, er athyglisvert að skoða nokkur smáatriði, eins og t.d. að aðeins tveir leikmenn hafa skor- að þrennur og getur það vart Læknagolf Austurbakki gengst fyr- ir árlegri golfkeppni á morgun og eru þátttak- endur læknar og heilbrigð- isstarfsfólk. Mót þetta fer fram á Grafarholtsvellin- um og hefst klukkan 17.00. talist há prósentutala í 35 leikj- um. Það voru þeir Sveinbjörn Hákonarson og Halldór Arason sem þrennurnar skoruðu, Svein- björn fyrir ÍA og gegn KA og Halldór fyrir Þfott gegn KR. Enginn leikmaður hefur verið rekinn af leikvelli enn sem komið er og ef slíkt er borið saman við' eina af þeim þjóðum þar sem knattspyrnan þykir grófari en góðu hófi gegnir, Ítalíu, má geta þess að 9 leikmenn ítalska 1. deildar liðsins Atalanta voru reknir af leikvelli í 23 fyrstu leikjum liðsins í fyrra vetur, tíundi var þjálfari liðsins! Knattspyrnan er sennilega óvíða prúðmannlegar leikin heldur en hér, því að yfirleitt er frekar fátítt að leikmenn hérlendis skoði rauða spjaldið. Lið Keflavíkur sýnir mestu breiddina, en 13 mörk liðsins hafa 7 leikmenn skorað í 7 leikjum. Er erfitt að leika gegn slíkum liðum. Minnsta breiddin hlýtur þá að vera hjá Haukum, enda hafa þeir aðeins skorað 4 mörk í deildinni og þrír menn skipta þeim á milli sín. Aðeins 6 vítaspyrnur hafa til þessa verið dæmdar í 1. deild, þar af hefur ein farið í vaskinn. Er það óvenjulega lítið. Þá er eftir að geta þess sem hugsanlega er einn athyglisverð- asti punkturinn, en hann varðar KR. Vesturbæjarliðið trónar nú hreykið í efsta sæti deildarinnar ásamt 3 öðrum liðum, öllum með 9 stig. En ætla það sé einsdæmi, að lið sem er í efsta sæti eftir 7 umferðir sé í mínus í markaskor- un. KR hefur skorað 10 mörk í deildinni í sumar, en fengið á sig 11! — gg. Bikarkeppnin tvísýnir leikir FYRSTU leikirnir í 16 liða úrslit- um bikarkeppni KSÍ fara fram f kvöld. Á Hvaleyrarholtinu leika Ilaukar og Þróttur frá Reykjavík og hefst leikurinn klukkan 20.00. Bæði liðin eru við botn 1. deildar. en Þróttarar eru eigi að síður líklegri til afreka. Þá leika norður á Akureyri Þór og ÍBV og verður það örugg- lega ekki léttur leikur fyrir 1. deildarliðið, því að Þór hefur leikið vel að undanförnu og er sterkt lið heim að sækja. Leikur- inn hefst klukkan 20.00. Á miðvikudagskvöldið fara síð- an fimm leikir fram í keppninni. UBK-Fylkir, KA-Fram, IBK-ÍBÍ. KR-KS og iA-Þróttur NK. Á fimmtudaginn leika síðan Vík- ingur og Valur, en allir Icikir þessir hefjast klukkan 20.00. jHÉHaKltrwm* Rossi fer hvergi Ljósm. Sigurgeir. • Föngulegasta klapplið norðan Stórhöíða og jafnvel þótt víðar væri leitað. Það er ekki að furða að Eyjamenn leiki vel á heimavelli, með slíka kvenhylli að baki sér. EKKERT varð úr stórsölunni á Paolo Rossi frá Lanerossi Vi- cenza til Napólí, en fyrir skömmu var samningur milli félaganna kominn svo vel á veg, að tilkynnt var að Rossi væri leikmaður með Napólí. Nú hefur málið hins vegar allt saman hlaupið í baklás og til- kynntu stjórnarmenn Lanerossi, að hvorki Napólí, né önnur félög sem rætt hefði verið við í sam- bandi við Rossi, hefðu verið reiðu- búin að greiða þá fjárhæð sem sett var upp fyrir Rossi. Ekki hefur félagið gefið upp söluverðið, en áætlað er að það sé eitthvað nálægt sjö milljónum Bandaríkja- dala. Þá gerðist það einnig fyrir skömmu, að Rossi keypti 25% prósent í Vicenzafélaginu og sagði hann við það tækifæri, að hann hefði engan áhuga á því að yfirgefa félagið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.