Morgunblaðið - 03.07.1979, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 03.07.1979, Blaðsíða 46
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979 W, Hugsjónamaðurinn Johan Cruyff ánægður hjá Aztecs Sem kunnugt er, lagði Johan Cruyfí knattspyrnuskóna á hilluna fyrir 8 mánuðum síðan og sór þá að koma aldrei nálægt knetti framar, hann hefði fengið sig fullsaddan af að vera sparkaður niður af öðrum hverj- um mótherja og því um líkt. Svo langt var gengið að hann fékk morðhótanir, og var tilgangur- inn að slá hann út af laginu. bað er einnig kunnugt, að Curyff hætti við áform sín um að hætta fyrir skömmu og ákvað að leika um sinn með bandaríska félaginu Lon Angeles Aztecs. Áður hafði New York Cosmos reynt að lokka kappann til sín, en þar sem þeim, með öll sín fjárráð, hafði mistekist, var talið ólíklegt að takast mætti. Los Angeles-liðið er ekki eins ríkt og New York Cosmos, áhorfenda- fjöldi hjá Aztecz hefur oft farið niður í 5000 manns á sama tfma og Cosmos hefur halað inn 75.000 manns. Það er því eitthvað annað en peningar sem dregið hefur Cruyff út úr skel sinni. Gamall kunningi Curyff og stjóri hjá Aztecs, en það er Rinus Michels. Hefur hann verið stjóri hjá félögum Curyff í 10 ár, fyrst hjá Ajax, þá hjá Barcelona og loks nú hjá Aztecs. Þeir ræddust saman lengi vel og loks sagði Curyff að hann myndi leika eitthvað áfram. Það eru ekki einungir peningarnir sem eru í boði, þó að illar tungur saki Cruyff um græðgi. Curyff segir nefnilega, að hann vilji leggja sitt af mörkunum til að útbreiða knatt- spyrnu í Bandaríkjunum. „Cosmos héldu áfram að fá 70.000 manns á völlinn til sín eftir að Pele var hættur hjá liðinu. Eitthvað svipað vil ég skilja eftir mig hjá Aztecs," sagði Cruyff nýlega í viðtali við enskt vikurit. I Los Angeles eru að sögn um 8 milljónir íbúa og segir Cruyff, að sé ekki hægt að draga fleiri en 20.000 áhorfendur að meðaltali á leik hvern, sé eins gott að leggja allt draslið á hilluna og snúa sér að hornaboltanum. Cruyff undir- strikar það síðan enn frekar, að ef hann hefði dregið fram skóna til að græða peninga, hefði hann farið til Cosmos þegar tækifærið gafst á sínum tíma. „Ég saknaði knattspyrnunnar þessa 9 mánuði, ég tel mig geta leikið a.m.k. 2—3 ár í viðbót og mér finnst ég verða að leggja mitt af mörkum til útbreiðslu íþróttarinnar," segir hugsjónamaðurinn Johan Cruyff. Það var ekki að sjá, að 9 mánaða hvíld hafi sljóvgað snilld kappans nema síður sé. I sínum fyrsta leik með LA Aztecs skoraði hann tvö mörk á fyrstu 7 mínútum leiksins og lagði síðan upp tvö í viðbót áður en yfir lauk, en LAA vann þá sinn fyrsta leik í langan tíma, 5—2 gegn Atlanta, Rinus Michels hefur þetta að segja um framlag Cruyffs fram til þessa: „Aðalvandamálið er, að leikmennirnir sem fyrir eru, fyllast lotningu og halda að þeir séu einhverjir tréhestar þegar þeir sjá til hans, spila með honum og ekki síst bera sig saman við hann. Menn verða að vera vel með á nótunum þegar þeir leika í sama liði og Cruyff, aldrei að vita hvenær hann lætur mann fá knöttinn, það gæti verið á ólík- legustu augnablikunum. • Johan Cruyff. Einn mesti og besti knattspyrnumaður fyrr og sfðar. Hann ætlar að hefja knattspyrnuna til vegs og virð- ingar í Los Angeles, Bandarfkj- unum. Og fyrir það fær hann óhemju miklar fjárupphæðir. Neeskensfékk blöðrur á tærnar JOHAN Neeskens, hollenski knattspyrnusnillingurinnn, lék nýverið sinn fyrsta leik með bandarfska knattspyrnuliðinu New York Cosmos, sem hann gerði við 5 ára samning fyrir skömmu. Cosmos vann þá lið New England Tea Men með einu marki gegn engu. Mikils er krafist af Neeskens, en samt sem áður féll hann í skuggann af tveimur innfæddum Bandarfkjamönnum, Rick nokkrum 1 Davis og markverðinum David Bricic. Davis skoraði eina mark ieiksins, en Brcic varði mark Cosmos af snilld. Ekki svo að skilja að Neeskens hafi verið lélegur, síður en svo. Hann hafði að venju gffurlega yfirferð, en hann var kominn með blöðrur á allar tær áður en yfir lauk. Það er nefnilega leikið á gervigrasi og því þarf að venjast. Þrátt fyrir að Neeskens hafi ekki sýnt sitt besta, vita menn að allt stendur til bóta. • Johan Neeskens á fleygiferð með knöttinn f sfnum fyrsta leik með New York Cosmos. • Teitur (lengst t.v.) sækir að markverði Hammarby. Teitur og McDonald gera rósir í Svíþjóð MALCOLM MacDonald, fyrrum enski landsliðsmaðurinn, sem leikur með Arsenal á vetrum, en hefur leikið í sænsku deildar- keppninni í sumar, var f sviðs- ljósinu um síðustu helgi, er hann skoraði sigurmark Djurgarden gegn Elfsborg. MacDonald átti við meiðsl að strfða allan sfðasta vetur, en var að ná sér afstrik undir vorið. Djurgarden óskaði þá eftir hon- um sem lánsmanni f sumar og Arsenal sá sér hag í því. Hefur hann þvf leikið með Djurgarden það sem af er sumri og staðið vel fyrir sfnu. MacDonald skoraði sem fyrr segir sigurmarkið fyrir Djurgarden gegn Elfsborg. öster, lið Teits Þórðarsonar, á enn í miklu basli, leikur einn daginn eins og meistaraliði sæm- ir, en mun lakar næsta dag. Teitur og félagar fóru um helg- ina til Hammarby og töpuðu þar 0—1. Að sögn sænskra blaða var Teitur þó mjög sterkur í leiknum og einn besti maður öster. Sovétmenn keppa hér NÚ er ljóst að f jórir fr jálsfþrótta- menn frá Sovétríkjunum munu koma á Reykjavfkurleikana í frjálsum fþróttum sem fram fer á Laugardalsvellinum 8. og 9. júlí. Þá er og ljóst að einn kanadfskur spretthlaupari verður með. Ekki er endanlega frá þvf gengið hversu margir þátttakendur verða frá Bandaríkjunum, en mikill áhugi er meðal margra frjálsfþróttamanna þar. — þr. Mikil keppni hjá peim yngstu Undanfarið hafa staðið yfir íþrótta- og leikjanámskeið fyrir börn 6—9 ára og 10 — 12 ára. Um eitt þúsund þatttakendur voru að þessu sinni á námskeið- inu. Því lauk með keppni fyrir börn 6—9 ára í hverfunum, en þeim var veitt viðurkenning í 60 m hlaupi, langstökki og 400—500 m hlaupi. Á aðalleikvangi Laugardalsvallar var haldið íþróttamót fyrir börn 10—12 ára og var þeim einnig veitt viður- kenning fyrir þrjá beztu árangra í 60 m hlaupi, langstökki, bolta- kasti, boðhlaupi og f knattspyrnu var afhentur farandbikar. Mikil keppni var hjá börnun- um og árangur góður, enda mörg góð fþróttamannsefni á ferðinni. Úrslit urðu þessi: Boltakant — stúlkur: 10 ára: Hildur Sigurðard. 32.0 m Laugardalsv. Guðrún Jónsd. 28.0 m Melavöllur Snæfríður Baldursd. 27.5 m Melavöllur 11 ára: Sigurbjörjf Sigþórsd. Herdís Gunnarsd. Bryndís Harðardottir 12 ára: Hanna Leifsdóttir Hulda Ingvarsd. Petra Friðriksd. 34.5 Melavöllur 32.0 m Melavöllur 29.0 m Melavöllur 34.0 m Melavöllur 33.5 m Laugardaisv. 33.0 m Laugardaisv. 60 m hlaup stúlkur: 10 ára: Olga Guðrún Stefánsd. 9.9 sek. Laugard.v. Hildur Sigurðard. 10.1 sek. Laugard.v. Ester María Guðmundsd. 10.3 sek. Fellav. 11 ára: Hafdfs Hafsteinsd. 9.5 sek. Fellav. Sigurbjörg Sigþórsd. 9.6 sek. Melav. Gunnhildur Gunnarsd. 9.9 sek. Melav. 12 ára: Guðrún Elliðad. 9.2 sek. Laugard.v. Þóra Jenny Gunnarsd. 10.0 sek. Melav. Hanna Halld. Leifsd. 10.1 sek. Melav. Langstökk stúlkur: 10 ára: Hildur Sigurðard. 3.60 m Laugard.v. Guðrún Jónsdóttir 3.56 m Melav. Olga Guðrún Stefánsd. 3.55 m Laugard.v. 11 ára: Hafdís Hafsteinsd. 4.00 m Fellav. Sigurbjörg Sigþórsd. 3.95 m Melav. Guðbjörg Jónsd. 3.88 m Laugard.v. 12 ára: Guðrún Elliðad. 4.00 m Laugard.v. Elfsabet Albertsd. 3.70 m Laugard.v. Þóra Jenny Gunnarsd. 3.69 m Melav. Boðhlaup stúlkur: Sveit Melavallar Sveit Laugard.vallar 2. sveit Laugard.v. Boltakast — drengir: 10 ára: Halldór f>orsteinss. Sigurður Einarss. Hlynur Jóhannss. 11 ára: Sigurður Kúnarss. Kjartan ólafss. Gunnlaugur ólafss. 12 ára: Guðmundur Guðm.ss. Unnsteinn Ólafss. Magnús Gylfason 60 m hlaup drengir: 10 ára: Þorsteinn Guðjónss. Guðmar Kristjánss. Ólafur Böðv. Helgas. 11 ára: Kjartan ólafss. Magnús Friðjónss. Gunnl. ólafsson 12 ára: Sigurður Nordal Magnús Sigurðss. Ingi Eirfkss. Boðhlaup drengir: Sveit Melavallar Sveit Laugard.vallar Sveit Fellavallar Langstökk drengir: 10 ára: Þorsteinn Guðjónss. Vignir Björnss. Sigurður Reyniss. 11 ára: Kjartan Ólafss. Sigurður Rúnarss. ósvaldur Þorgrfmss. 12 ára: Sigurður Nordal Magnús Sigurðss Guðmundur Guðm.s. Björn Jónss. 8x50 m 68.5 sek. 8x50 m 69.5 sek. 8x50 m 72.9 sek. 37.5 m Fellav. 36.0 m Fellav. 35.5 m Fellav. 43.5 m Laugard.v. 40.5 m Laugard.v. 39.5 m Laugard.v. 40.5 m Laugard.v. 40.0 m Laugard.v. 39.5 m Laugard.v. 9.5 sek. Melav. 9.9 sek. Fellav. 10.1 sek. Fellav. 10.2 sek. Laugard.v. 10.3 sek. Melav. 10.4 sek. Laugard.v. 9.2 sek. Melav. 9.4 sek. Laugard.v. 9.5 sek. Laugard.v. 8x50 m 63.8 sek. 8x50 m 67.7 sek. 8x50 m 71.6 sek. 3.57 m Melav. 3.54 m Laugard.v. 3.49 m Fellav. 3.87 m Laugard.v. 3.70 m Laugard.v. 3.66 m Laugard.v. 4.80 m Melav. 4.32 m Laugard.v. 4.10 m Melav. 4.10 m Melav. Úrslit f knattspyrnu: Melavöllur — Fellavöllur 6—0.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.