Morgunblaðið - 03.07.1979, Síða 48

Morgunblaðið - 03.07.1979, Síða 48
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979 Sigurvegarinn öskar Sæmundsson GR, eins og sjá má er hann einbeittur á svip, þar sem hann horfir eftir hvíta boltanum. Einar sigraði á Akureyri Dagana 29. og 30. júní fór fram á Akureyri Coca Cola keppnin í golfi. Leiknar voru 36 holur, með og án forgjafar. Röð efstu manna var sem hér segir. Án forgjafar: 1. Einar Guðnason 160 högg, 2. Magnús Birgisson 162 högg, 3. Jón Þór Gunnarsson 163 högg. Með forgjöf: 1. Karl Frímannsson 144 högg, 2. Einar Guðnason 152 högg. 3.-5. Þórhallur Pálsson, Héðinn Gunnarsson og Jón Þór Gunnarsson allir með 153 högg. SOR. Betri árangur en á pappírnum virðist ÍSLENSKA landsliðið í golfi hafnaði í 16. sæti í Evrópumótinu í golfi sem lauk í Danmörku á sunnudag. Þrátt fyrir það stóð liðið sig vel og náði þeim áfanga að komast í B-riðil. Var sýnt í mörgum leikjum fslenska liðsins, að aðeins lítinn herslumun vantar upp á að veita. Á laugardaginn lék ísland við Austurríki og tapaði með 1,5 vinningum gegn 5,5 vinningum. íslensku piltarnir léku þó vel og mörg töpin voru naum. Þao var Hannes Eyvindsson sem vann sigur á andstæðingi sínum í einliðaleik, vann frægan kappa að nafni Mierlech 4—3. Sigurður Hafsteinsson gerði jafntefli við sinn keppinaut og tryggði íslandi þar hálfan vinning. Belgar voru mótherjar íslands á sunnudaginn og fóru leikar þar 6 — 1 fyrir Belgíu. Keppnin var þó aldrei eins ójöfn og talan sú gefur til kynna, því að töp sumra íslendinganna voru afar naum, t.d. 2—3, 1 — 2 og 5—6. Eina sigur íslands innbirti Björgvin Þorsteinsson með því að vinna mótherja sinn í einliðaleik. Frammistaða íslands var því ef nokkuð er, betri heldur en staða liðsins í 16. sæti gefur til kynna. Forseti Evrópu- sambandsins í heimsókn hér Á MORGUN, miðvikudag, er væntanlegur til landsins Spánverjinn Andreau, forseti golfsambands Evrópu, ásamt fyrrum forseta, Norðmanninum Valström. Koma þeir hingað á eigin vegum til þess að kynna sér aðstæður á golfvöllum hér. Og þá sérstaklega golfvöllinn í Grafarholti. En íslenska golfsambandið hefur sótt um að fá að halda Evrópumeistaramót unglinga árið 1982, á vellinum. — þr. Óskar sigraði í T oyota golf mótinu Einn keppenda var 52 cm frá því að hljóta bíl í verðlaun ÓSKAR Sæmundsson sigraði eftir jafna og harða keppni í Toyota golfkeppninni um helg- ina. Þurfti bráðabana til að skera úr um röð efstu manna þar sem þrír kylfingar urðu efstir og jafnir á 75 höggum. Og ekki færri en fjórir komu inn á 76 höggum. Jafnari getur keppni ekki verið. Oskar lék við Pál Ketilsson og Júlíus Júliusson til úrslita og lék Óskar vel í bráðabanan- um og var verðugur sigurveg- ari. Leiðinleg deila kom upp í keppninni. Páll Ketilsson GS tók boltann upp af vellinum og þurrkaði af honum gras og mold áður en hann setti hann niður aftur. Gerðist þetta á fyrstu braut vallarins. Var um augljóst brot að ræða, þar sem þetta mælir á móti golfreglun- um. Ekki tókst neinum að fara holu í höggi á 7. braut og krækja sér í hina glæsilegu Toyota Tercel bifreið sem í verðlaun var. En Jón Arnarson GK var næstur holunni, aðeins 0,52 m frá henni. Fékk haim golfkerru í aukaverðlaun. Sá sem var næst holu á 5. og 17. braut var Magnús Halldórsson GK, 1,26 m. Hlaut hann golfpeysu og dúsin af golfboltum í verðlaun. Næstur holu á 11. braut var Magnús Ingvarsson GR, 2,25 m. Um tvö hundruð þátttakendur voru í mótinu sem heppnaðist í alla staði vel og var Golfklúbbn- um Keili til sóma. Veðrið var að vísu óhagstætt en það beit ekki á Ljósm. Guðjón B. Sigurjón Gíslason lék aftur með eftir meiðsli þau sem hann hlaut fyrir skömmu. Hafnaði Sigurjón í 4—7 sæti í keppn- inni. Hér mundar kappinn kylf- una. hina fjölmörgu vösku kylfinga. Það vakti athygli hversu vel golfvöllur þeirra Keilismanna var hirtur og snyrtilegur. JM/þr. Verðlaunahaíar Victory Toyota Cup Drengir 1. Héðinn Sigurðsson GK 77 2. Gunnar Þ Halldórss. GK 78 3. Ásgeir Þórðarson NK 78 Unglingar 1. Jónas Kristjansson GR 85 2. Rafn Sigurðsson GK 88 3. Stefán Unnarsson GR 88 3. fl. karla 1. Gunnar Haraldsson GR 85 2. Ólafur Ólafsson NK 95 3. Árni Jakobsson GK 99 2. fl. karla 1. Þorsteinn Magnússon NK 92 2. Jóhann Einarsson NK 94 3. Guðmundur Hafliðas. GR 95 Kvennafl. 1. Guðfinna Sigurþórsd. GS 74 2. Steinunn Sæmundsd. GR 77 3. Jakobína Guðlaugsd. GV 78 1. flokkur karla 1. Gunnlaugur Jóhannss. NK 80 2. Guðlaugur Kristjánss. GS 80 (umspil) 3. Henning Bjarnason GK 82 Meistarafl. karla 1. Óskar Sæmundsson GR 75 2. Júlíus R. Júlíusson GK 75 3. Páll Ketilsson GS 75 (umspil) ÖLDUNGAR Með forgjöf 1. Óli B. Jónsson NK 68 2. Hólmgeir Guðmundss. GS 74 3. Ingólfur Helgason GR 75 3. Sverrir Guðmundsson GR 75 (umspil óútkljáð) Án forgjafar 1. Hólmgeir Guðmundsson GS81 2. Óli B. Jónsson NK 83 3. Jóhann Eyjólfsson GR 89 Ljósmynd Guðjón B. Hann Júlíus R. Júlíusson GK, er ekki beint blíður á svipinn þar sem hann er að ræða við Pál Ketilsson. „Páll braut reglurnar og því átti að dæma hann úr keppninni“ sagði Júlíus. Páll hafði þurrkað gras og mold af golfbolta sfnum og sett hann sfðan niður aftur. Og er það brot á rcglum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.