Morgunblaðið - 03.07.1979, Síða 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979
Bpr^S I® ai ■Sf ^
Ivf ll
Þörungavinnslan á Reykhólum, Reykhólasveit íA-Barðastrandasýslu.
Aðalfundur Þörungavinnslunnar h.f.:
Full tök hafa náðst
á öflun hráefnisins
MiAhÚKum 1. júl( 1979.
SAMKVÆMT reikningum Þörungavinnslunnar h.f. urðu rekstrartekjur á
síðastliðnu ári 292 milljónir króna, en þar af voru tekjur af útflutningi 280
milljónir króna. Rekstrargjöld voru 239 milljónir króna og framlegð til vaxta og
afskrifta þannig 53 milljónir króna, en árið 1977 varð beint rekstrartap 48
milljónir króna. Vextir og verðbótahækkanir af lánum nema 95 milljónum króna
og afskriftir eru reiknaðar 90 milljónir þannig að reikningslegur halli er 134
milljónir króna. Þess má geta að inni í rekstrargjöldum felast verulegar
endurbætur á framleiðslutækjum.
Rekstrarstöðunni
snúið við
Þetta kom fram meðal annars
á aðalfundi Þörungarvinnslunn-
ar h.f. sem haldinn var í félags-
heimili Reykhólahrepps að
Reykhólum 30. júní s.l. Fundinn
sátu um 70 manns, hluthafar,
starfslið fyrirtækisins og gestir.
Með þessu hefur rekstrarstöðu
fyrirtækisins verið snúið við, svo
að fyrirsjáanlega verður hægt að
hefja endurgreiðslu lána og
vaxta af þeim. Stefnt er að því
að á yfirstandandi ári skili
reksturinn framlegð sem nægir
fyrir vaxtagreiðslum og að 1981
verði unnt að greiða vexti og
afborganir með fullum þunga. I
skýrslu stjórnar Þörungavinnsl-
unnar kom fram að árið 1978
hafi öllum markmiðum verið náð
sem sett voru í rekstrar- og
framkvæmdaáætlun fyrir það
ár. Þessi markmið voru að sann-
reyna að öflun þangs gæti geng-
ið, að aflað yrði nægjanlegs heits
vatns og að afla og vinna úr að
minnsta kosti 10 þúsund lestum
af votu þangi, þannig að beinn
hallarekstur á fyrirtækinu yrði
stöðvaður.
Góð nýting tækja
til hráefnisöflunar
Sýnt er nú að full tök hafa
náðst á öflun hráefnisins og að
þau tæki sem upphaflega voru
keypt til þess verks geta skilað
því magni af hráefni sem verk-
smiðjan getur unnið úr. Nú
streyma þannig að meðaltali
35-36 1/sek af 112-114 gráðu
heitu vatni á Celcius og er þar
nægur varmi til að gefa þau
þurrafköst sem reiknað hafði
verið með. Árið 1978 var aflað
nærri 12 þúsund lestum af
blautu þangi og afurðirnar urðu
3 þúsund lestir af þangmjöli
sem að mestu var selt sam-
kvæmt samningi til Alginate
Industries Ltd. í Skotlandi. Lítils
háttar var selt af þangmjöli til
innlends og erlends fóðurefna-
markaðs. Til viðbótar þessu var
lagður veigamikill grundvöllur
að lengingu starfstíma með
vinnslu nokkurs magns af þara
og byrjunarátaki í öflun mark-
aða fyrir þaramjöl og
þörungaseyði í framtíðinni.
Fjárhagsleg
endurskipulagning
Þar sem grundvallarmál Þör-
ungarvinnslunnar eru nú leyst
er nú unnið að fjárhagslegri
endurskipulagningu fyrirtækis-
ins, annars vegar með verulegri
aukningu hlutafjár og eins með
þvi að áföllnum vöxtum og af-
borgunum af langtímalánum
verði breytt í lán er greiðist upp
á 10 árum. Á aðalfundinum var
samþykkt tillaga þess efnis að
auka hlutafé fyrirtækisins um
allt að 610 milljónir. En hlutafé
fyrirtækisins er nú 120 milljónir
króna, hluthafar eru 170 talsins.
Ríkissjóður er eigandi 75%
hlutafjár, en sveitarfélög, fyrir-
tæki og einstaklingar ejga 25%
hlutafjár.
Á fundinum kom fram að um
þessar mundir eru nokkrir erfið-
leikar á mörkuðum fyrir þör-
ungaafurðir meðal annars vegna
tilkomu nýrra framleiðenda á
þörungum sem hráefni til
alginatvinnslu. Hag Þörunga-
vinns'unnar er þó borgið að því
leyti að samningur við skoska
fyrirtækið Alginate Industries
Ltd. tryggir sölu afurða fyrir-
tækisins og verð þeirra, en hins
vegar hefur verið samið um að af
4000 lesta áætlaðri framleiðslu
þessa árs verði 1000 lestir af-
hentar eftir áramót. í staðinn
komi framlenging á 10 ára
samningi við skoska fyrirtækið
um eitt ár. En sölusamningurinn
tryggir Þörungavinnslunni lág-
marksverð sem tengt er verðlagi
í breskum efnaiðnaði á hverjum
tíma og hefur verðlag farið
hækkandi upp á síðkastið vegna
olíuverðshækkana í heiminum.
Erfið veðurskilyrði
Á yfirstandandi ári er stefnt
að því að framleiða allt að 4000
lestum af þangmjöli úr 16—17
þúsund lestum af blautu þangi
auk þaravinnslu síðari hluta
ársins. I júnílok hafði verið
landað 5000 lestum af votu þangi
sem er 2000 lestum meira en á
sama tíma í fyrra. Þetta er þó
1000 lestum minna en áætlað var
á þessum tíma vegna mjög erf-
iðra veðursk'ilyrða til öflunar í
apríl og maí. Talið er raunhæft
að þetta verði unnið upp á
komandi mánuðum og að hægt
verði að standa við sett markmið
í framleiðslunni.
Hjá Þörungavinnslunni starfa
nú 28 manns en auk þess vinna
um 30 manns að öflun og starf-
ræktir eru 7 prammar við öflun-
ina.
Á næstunni verður megin-
áhersla lögð á rekstrarlega upp-
byggingu fyritækisins, að því er
fram kom á aðalfundinum, bæði
að því er varðar framleiðslu og
rekstrarhagræðingu svo og
aukningu framleiðslunnar í full
afköst, lengingu starfstíma og
markaðsölfun vegna nýrra af-
urða. Á aðalfundinum voru eftir-
taldir menn kjörnir í aðalstjórn:
Ingi Garðar Sigurðsson, til-
raunastjóri, Kjartan Ólafsson,
alþingismaður, og Ólafur E.
Ólafsson, endurskoðandi, Stein-
grímur Hermannsson, ráðherra
og Vilhjálmur Lúðvíksson, fram-
kvæmdastjóri. í varastjórn sitja
Grímur Arnórsson, bóndi, Tind-
um. Reynir Bergsveinsson,
bóndi, Fremri-Gufudal. Eiríkur
Ásmundsson, kaupfélagsstjóri,
Gunnlaugur Sigmundsson, deild-
arstjóri og Jón Sigurðsson,
framkvæmdastjóri. Endurskoð-
endur voru kjörnir Halldór V.
Sigurðsson og Vikar Davíðsson.
Formaður stjórnar er Vilhjálm-
ur Lúðvíksson.
— Sveinn Guðmundsson.
Sama síld-
armagn og
síðasta haust
Sjávarútvegsráðuneytið
hefur sent frá sér eftirfar-
andi fréttatilkynningu um
síldveiðar við Suður- og
Vesturland á þessu ári:
„Sj ávarútvegsráðuneytið
hefur, að tillögu Hafrann-
sóknastofnunar, ákveðið að
leyfa veiðar á 35 þúsund lestum
af síld á hausti komanda.
Jafnframt hefur verið ákveðið,
að hringnótabátar fái að veiða
á tímabilinu 20. september til
20 nóvember, en gert er ráð
fyrir að reknetabátarnir fái að
veiða á tímabilinu 20. ágúst til
20. nóvember 1979. Skipting
heildaraflamagns milli hring-
nótabáta annars vegar og rek-
netabáta hins vegar hefur ver-
ið ákveðin þannig, að í hlut
hringnótabáta koma 20. þús.
lestir en í hlut reknetabáta 15.
þús. lestir af síld.
Veiðar með reknetum verða
áfram leyfisbundnar, og veiðar
með hringnót verða einnig háð-
ar sérstökum leyfum ráðuneyt-
isins eins og verið hefur síðan
síldveiðar í hringnót hófust
aftur hér við land haustið 1975.
Verða veiðileyfin háð skilyrð-
um um framkvæmd veiðanna
og um meðferð afla.
Þar sem heildarsíldarkvót-
inn verður hinn sami og á s.l.
vertíð, hefur ráðuneytið ákveð-
ið, að aðeins komi til greina
þau hringnótaskip, sem þessar
veiðar stunduðu á s.l. vertíð, en
þó ekki yfirbyggð loðnuskip, né
þau skip, sem leyfi fengu til
humarveiða á yfirstandandi
vertíð.
Umsóknarfrestur um leyfi til
síldveiða í reknet og hringnót
er til 15. júlí n.k. og verða
umsóknir, sem berast eftir
þann tíma ekki teknar til
greina."
Fundu gaml-
an hreyfil af
herflugvél
NOKKRIR félagar úr Flug-
sögufélaginu grófu upp hreyf-
il af gamalli herflugvél sl.
föstudag, sem fórst við Kald-
aðarnes í Flóa. Var vélin í
aðflugi að flugvelli þar er hún
varð benzínlaus og brotlenti.
Tveir menn voru með vélinni
og sluppu þeir lítt meiddir.
Flugsögufélagarnir grófu
hreyfilinn upp aðfararnótt
laugardagsins og fluttu hann
til Reykjavíkur þá um nóttina.
Sögðu talsmenn félagsins í
samtali við Mbl. að hér væri
um að ræða hreyfil með
skrúfublaði og væri það senni-
lega eina upprunalega skrúfu-
þlaðið sem til væri í heiminum.
Flugkennslan eingöngu
í höndum flugskólanna?
Reynum að hafa sem
flesta ánægða, segir
flugmálastjóri
TILLAGA að breytingu á fyrir-
komulagi flugkennslunnar hér á
landi verður hugsanlega lögð
fyrir flugráð f sumar, að sögn
Agnars Kofoed Hansen flugmála-
stjóra. En uppi munu vera hug-
myndir um það að flugkennslan
verði framvegis í höndum flug-
skólanna eingöngu.
„Það hefur mörg undanfarin ár
verið reynt að breyta fyrirkomu-
lagi flugkennslunnar," sagði
Agnar Kofoed Hansen, „og segja
má að þyngri kröfur til þeirra sem
annast kennsluna séu liður í þess-
um breytingum, en þær kröfur
hafa verið síþyngdar á undanförn-
um árum. Einnig má nefna í þessu
sambandi að ríkið hefur loksins
tekið að sér að annast bóklega
kennslu fyrir atvinnuflugmenn og
hefur Jón Böðvarsson unnið ötul-
lega að því í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja.
Við viljum gjarnan hafa um
kennsluna einhvern fastákveðinn
ramma og innan þess ramma alla
sem kenna. En reynt verður, ef
breytingartillögur koma til flug-
ráðs, að hafa þær þannig að sem
flestir verði ánægðir."
íslenska liðið á EM í bridge í Sviss:
Einn stórsig-
ur og tvö töp
ÞREMUR umferðum er lokið á
Evrópumótinu í bridge sem hófst
sl. sunnudag f Sviss. íslendingar
eru þar meðai þátttakenda og
hafa fengið 32‘/2 stig og eru í
miðjum hóp þátttakenda á stiga-
töflunni.
Að sögn Jóns Páls Sigurjóns-
sonar sem fór með liðinu spilaði
íslenzka liðið í fyrstu umferð gegn
Portúgölum á sunnudaginn og
vann leikinn með 20 stigum gegn
mínus þremur. Um kvöldið var
spilað gegn ísraelum. íslenzka
liðið hafði yfir í hálfleik en náði
ekki að halda forskotinu og tapaði
5—15. í gær var svo ein umferð
spiluð og nú gegn Ungverjum. Var
leikurinn í járnum til loka og
endaði með jafntefli 10—10 en
einum íslenzku spilaranna urðu á
mistök sem voru dæmd á þann veg
að Ungverjum var dæmdur sigur
12 gegn 7'/2.
Ovæntustu úrslit 3. umferðar
voru þau að Tyrkir unnu Sviss
20—0 en Tyrkjum hafði ekki geng-
ið vel í fyrstu umferðunum.
Eftir 3 umferðir eru Frakkar
langefstir með 58 stig en alls tekur
21 sveit þátt í mótinu: Grikkir
mættu ekki til leiks og er því
yfirseta.
Jón Páll sagði að gott hljóð væri
í spilurunum og færi mjög vel um
þá á hótelinu.