Morgunblaðið - 03.07.1979, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979
33
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Auglýsing
frá Heilbrigðis-
eftirliti ríkisins til
framleiðenda og
innflytjenda niður-
lagðs lagmetis
Af marggefnu tilefni vill Heilbrigöiseftirlit
ríkisins benda framleiðendum og innflytjend-
um niöurlagös lagmetis um allt land á, aö
þeir gæti þess aö gæöi, pökkun og merking
umbúöa niðurlagðs innlends og innflutts
lagmetis, sem boðiö er til sölu, sé í samræmi
við ákvæði reglugerðar nr. 250/1976 um
tilbúning og dreifingu matvæla og annarra
neyslu- og nauösynjavara ásamt áorönum
breytingum.
Samkvæmt ákvæöum reglugeröar 250/1976
gerir Heilbrigöiseftirlit ríkisins eftirfarandi
kröfur um pökkun, geymslu og merkingu
umbúöa niöurlagðs lagmetis.
1. Nafn og heimilisfang framleiðanda eða
pökkunarfyrirtækis skal vera skráö á umbúö-
irnar.
2. Á umbúðunum skal koma fram, aö um
niðurlagt lagmeti sé aö ræöa.
3. Á pökkunarstaö skal skráö á umbúðirnar
dagsetningu pökkunardags og síöasta sölu-
dags, þannig aö kaupendur sjái nefndar
dagsetningar greinilega.
4. Umbúðirnar skulu eingöngu myndskreytt-
ar í samræmi viö innihald.
5. Á umbúðunum skal geta nettóþyngdar
vörunnar og að auki fiskþyngdar, þar sem
það á viö.
6. Nafns og ákveðins eiginleika vörunnar
skal getiö meö greinilegum bókstöfum svo
auðvelt sé fyrir kaupendur að taka eftir þeim,
þegar sala fer fram.
7. Á umbúðirnar skal skráð innihald vörunn-
ar (innihaldslýsing). Þar skulu koma fram
aöalefni hennar svo sem fita, prótein kol-
vetni, vítamín og steinefni, upp talin í
minnkandi magni.
Auk þess skal næringargildi vörunnar gefið
upp miðað við 100 gr. Magns leyfilegra
aukaefna skal getiö á umbúðunum.
8. Á umbúöum niöurlagös lagmetis skal
standa: „Geymist í kæli (undir 4°C)“, þar sem
lítið er á niöurlagt lagmeti sem viökvæm
matvæli.
Almennt er talið aö niöurlagt lagmeti hafi um
það bil 6 mánaöa geymsluþol, sé það geymt í
kæli (undir 4°C), þó vill Heilbrigðiseftirlit
ríkisins vekja athygli þeirra sem hlut eiga aö
máli á því að ákvöröun á tímalengd milli
pökkunardags og síöasta söludags verður aö
byggjast á geymsluþolsrannsóknum fram-
kvæmdum af viðurkenndum oþinberum
rannsóknaraöilum.
Heilbrigðiseftirlit ríkisins beinir þeim tilmæl-
um til allra heilbrigðisnefnda aö fylgjast náið
meö að ofangreindum kröfum sé framfylgt.
Geymið auglýsinguna.
Heilbrigðiseftirlit ríkisins.
Fríkirkjusöfnuö-
urinn í Reykjavík
Hin árlega sumarferö Fríkirkjusafnaöarins
verður farin sunnudaginn 8. júlí. Komið
saman við Fríkirkjuna kl. 8.30 f.h., ekið um
Borgarfjörðinn og Hvítársíðuna. Hádegis-
verður í Bifröst. — Farmiðar eru seldir til
fimmtudagskvöld í Versluninni Brynju,
Laugavegi 29, og í Fríkirkjunni kl. 5—6 e.h.
Nánari uppi. í síma 31985.
Ferðanefndin
Útboð
Tilboð óskast í rif á núverandi þaki Brautar-
holts 28, Rvk. og byggingu rishæðar sama
húss, að fokheldu stigi. Utboðsgögn verða
afhent á Verkfræðistofunni Fjölhönnun h.f.,
Skipholti 2, R. gegn 20.000.- kr. skilatrygg-
ingu. Tilboðin verða opnuö á sama staö
mánudaginn 9. júlí kl. 2.00 e.h.
Tilboð óskast
í uppsetningu á innréttingum í 63 íbúöir.
Útboðsgögn liggja frammi hjá Trésmiðjunni
Víði h/f, Smiðjuvegi 2, Kópavogi, og afhend-
ast gegn 10.000.- kr. skilatryggingu
Tilboð skulu hafa borist fyrir þriðjudaginn 10.
júlí.
| húsnæöi ó: '$t 1
Óska eftir einbýlishúsi,
raðhúsi, sérhæð eða
stórri blokkaríbúð
á stór-Reykjavíkursvæðinu frá 1. ágúst eða
fyrr. Uppl. í síma 41443.
Makaskipti
íbúð á stór-Reykjavíkursvæðinu óskast í
skiptum fyrir gott einbýlishús (viölagasjóðs-
hús) á Hvolsvelli. Upplýsingar í síma
99—5297.
Norðurland
Eystra
Alþingismennirnir Jón G. Sólnes og
Lárus Jónsson boöa tll almennra stjórn-
málafunda á eftlrtölrlum stðöum:
Dalvik (fél.heimillnu Vfkurrðst):
þriöjudaginn 3. júlf kl. 20:30.
Hríeey (samkomuhúsinu) miövikudaglnn
4. júli kl. 20.30.
Verzlunarmannafélag Suðumesja:
Vítur samþykktar á starfs-
mannastjóra vamarliðsins
FÉLAGSFUNDUR meðal skrif-
stofufólks, sem vinnur hjá varn-
arliðinu. veitti í fyrrakvöld
stjórn Verzlunarmannaféiags
Suðurnesja heimild til aðgerða í
deilu þeirri, sem komin er upp
milli starfsmannanna og launa-
skrárnefndar um skipan skrif-
stofufólks f launaflokka. Á fund-
inum var samþykkt ályktun, sem
er svohljóðandi:
„Fundur starfsfólks í verzlun-
arstétt á vegum varnarliðsins,
haldinn í félagsheimilinu Stapa í
Njarðvík 27. júní 1979, mótmælir
harðlega útreikningum á launum
og röðun í launaflokka þeirra, sem
laun taka samkvæmt kjaradómi
17. maí 1979, þar sem fá störf á
vegum varnarliðsins falla undir
hina nýju flokkaskipan í kjara-
dómnum, vegna þess að allt aðrar
kröfur eru gerðar til kunnáttu
einstaklinga, sem vinna á vegum
þess en tíðkast á íslenzkum vinnu-
markaði. Fundurinn vítir einnig
geðþóttaákvarðanir Guðna Jóns-
sonar forstjóra starfsmannahalds
varnarliðsins, sem hefur að því er
virðist tekið sér einræðisvald í
flokkaskipunarmálum starfs-
manna varnarliðsins.
Fundurinn gerir skýlausa kröfu
til þess að fá úr því misrétti bætt,
sem verzlunarfólk hjá varnarlið-
inu hefur orðið fyrir í launamál-
um af hálfu starfsmannahalds
varnarliðsins og felur fundurinn
stjórn og trúnaðarmannaráði
Verzlunarmannafélags Suður-
nesja að kanna allar leiðir til þess
og bendir í því sambandi á hvort
rétt sé að fá skipaðan nýjan
kjaradóm, sem muni fjalla um
launamál verzlunarfólks hjá varn-
arliðinu með hliðsjón af fyrr-
greindu samkomulagi frá 17. maí
1979 og þeirri flokkaskipan, sem
gillt hefur hjá varnarliðinu til
þessa.
Fundurinn óskar þess einnig að
Guðni Jónsson komi þar hvergi
nærri, enda bera félagsmenn ekki
traust til hans að vinna að slíkum
samningamálum eftir það sem á
undan er gengið.“
Samkvæmt upplýsingum Val-
garðs Kristmundssonar, formanns
Verzlunarmannafélags Suður-
nesja, mun þessi ályktun send
utanríkisráðherra, varnarmála-
deild, kaupskrárnefnd og yfir-
manni varnarstöðvarinnar á
Keflavíkurflugvelli. Valgarð kvað
engar ákvarðanir hafa verið tekn-
ar af stjórn félagsins um fram-
hald málsins eftir félagsfundinn í
fyrrakvöld.
(Ljósm. Mb. ÓI.K.Msk.)
Ljósmyndarinn varð himinlifandi er hann sá þennan föngulega jafnaldra sinn á
ferð um miðbæinn í góða veðrinu í gær. Víst er að það eru ekki margir bílar af
gerðinni Oldsmobile, árgerð 1926, sem sjást á ferli og svona hressir eins og þessi
fararskjóti.