Morgunblaðið - 03.07.1979, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 03.07.1979, Qupperneq 26
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979 I Varðarferð er tólk á öll um aldri og sama fólkið ár eftir ár Landsmálafélanið Vörður fór sumarferð sína s.l. sunnudag. Þátt tóku í ferðinni að þessu sinni um 600 manns. Veður var ekki með bezta móti, rigning og nokkur gjóla fyrri hluta ferðar- innar, en stytti þó ætfð upp í áningarstöðum. í Skorradal, sem var sfðasti áningarstaður ferðarinnar, skein sól og nátt- úran skartaði sínu fegursta. Lagt var upp klukkan rúmlega átta frá Siálfstæðishúsinu við Bolholt og ekið sem leið lá upp í Hvalfjörð þar sem stanzað var á melunum vestan við Saurbæ og drukkið morgunkaffi. Þar flutti stutta tölu Egar Guðmundsson formaður Varðar. Að loknu morgunkaffi var ekið að Grund- artangaverksmiðjunni. Jón Sig- urðsson forstóri tók þar á móti hópnum og sagði frá starfrækslu verksmiðjunnar. Dr. Gunnar Thoroddsen, fyrrv. iðnaðarráð- herra, flutti þar einnig ávarp og rifjaði upp undirbúning að stofnun verksmiðjunnar, en eins og menn muna var ákvörðun tekin um stofnunina í ráðherra- tíð Gunnars. Verksmiðjan er mikið mannvirki og lýstu ferða- langar ánægju sinni með að fá tækifæri til að koma á staðinn. Að sögn Jóns Sigurðssonar rigndi eins og hellt væru úr fötu rétt fyrir komu hópsins, en á meðan hann átti viðdvöl hélst þurrt. Frá Grundartanga var ekið í Borgarfjörð og upp á Mýrar, þar sem minjar úr sögu Egils Skalla- grímssonar má finna í örnefnum o.fl. Var gerður stanz á Ökrum, þar sem talið er að Egill hafi yrkt akra sína og nafnið er dregið af, og þar snæddur hádeg- isverður. Gafst fólki þar tæki- færi til að kanna umhverfið og ganga fjörur. Var síðan ekið áleiðis í Skorradal og um Geldingadraga heimleiðis. I Skorradal var stoppað og kvöldsnarl fram borið. Hafði veður þá mjög breytzt til batnaðar, sól skein í heiði og var áð nokkru lengur en áætlað hafði verið. Einar Guðjohnsen aðalleiðsögumaður ferðarinnar flutti þar greinargóða staðarlýs- ingu og Geir Hallgrímsson for- maður Sjálfstæðisflokksins flutti ávarp. Sagði hann m.a. að við skyldum vona, að eins færi með þjóðmálin eins og veðrið þennan dag — að úr rættist um síðir. Góður rómur var gerður að ræðu hans. Komið var til Reykjavíkur um níuleytið um kvöldið. Þátttakendur í þessari Varð- arferð voru á öllum aldri, eins og meðfylgjandi myndir bera með sér. Var það mál manna að ferðin hefði tekist í alla staði vel, enda auðséð að vel hafði verið staðið að undirbúningi. Guðmundur Jónsson, einn af fararstjórunum og fulltrúi í ferðanefnd, sagði í lok ferðar- innar, að hann væri ánægður með ferðina, þó veðrið hefði mátt vera betra. Fólk væri ánægt og þá væri tilganginum náð, allir sem hann hefði talað við ætluðu að koma aftur í Varðarferð að ári. „Mikill undir- búningur liggur að baki slíkrar ferðar. Við komum saman í ferðanefnd seinni hluta vetrar til að undirbúa ferðina. Það er erfitt að skipuleggja slíka ferð vegna þess að hún má aðeins taka einn dag. Við völdum og könnuðum leiðir undir frábærri stjórn Óskars Friðrikssonar for- manns nefndarinnar. Fyrir hönd nefndarinnar vil ég sérstaklega þakka öllum þátttakendunum og það er ánægjulegt að við sjáum ætíð sama fólkið ár eftir ár.“ tieir Haligrímsson flutti stutta ræðu í áningarstað í Skorradal. A bak við hann má sjá hluta af bifreiðaflotanum. Vngsta kynslóðín naut ferðarinnar ekki síður en þeír eldri. Systkinln Valdis og Sumariiói ieku ser vio öldurnar og Valdís benti Ijósm. á að þetta væri sjórinn. Ingibjörg litla er hálfundrandi á svipinn, hefur liklega ekki vitað að hafið væri svona stórt. Ferðalangar kunnu vel að meta sólina sem gafst í Skorradalnum, enda viðverutími þar framlengdur. Á Grundartanga fluttu ávörp Jón Sigurðsson og tiunnar Thoroddsen. Klifu þeir fimlega hirngstiga einn mikinn, svo að hópurinn mætti betur heyra þá og sjá. Ljósm. Mbl. F.P. Nokkur kynning fékkst í ferðinni á íslenzku vegakerfi. Ferðalang- ar þurftu að ganga yfir Kljáfossbrú á Hvítá meðan bifreiðunum var ekið yfir, enda hefði varla verið hægt að koma eldspýtustokk- um milli bflanna og handriðs, er þeir óku yfir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.