Morgunblaðið - 03.07.1979, Page 27

Morgunblaðið - 03.07.1979, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979 3 5 Mörgum verður meint af eitraða peðinu... Þegar rætt er og ritað um umdeild afbrigði innan skákfræðinnar kemur óneitanlega fljótt upp í hugann hið svonefnda „Eitraða peðs afbrigði“ í Sikileyjarvörn. í því þverbrýtur svartur grundvallarlögmál skák- byrjunarinnar. Hann margleikur drottningunni snemma tafls til þess að ná í eitt peð og verður siðan að berjast hatrammri varnarbaráttu hvort sem hvítur reynir að fanga svörtu drottninguna eða blæs strax til kóngssókn- ar. Það er því oft sem stjórnendur svarta liðsins hafa ekki verið vanda sín- um vaxnir og beðið herfi- legan ósigur snemma, en því er heldur ekki að neita að oft hefur svartur kom- ist óskaddaður út úr orra- hríðinni og unnið síðan á peðinu sem hann hafði upp úr krafsinu. Eitraða peðs afbrigðið hefur þar af leið- andi verið vinsælt vopn þeirra sem tefla ávallt til vinnings Vegna orðstírs þess sem Fischer og fleiri öfluðu afbrigð- inu um og eftir 1960 hefur það •síðan verið eitt mest rannsakaða afbrigði allrar skákfræðinnar og menn hafa keppst við að finna eitthvað nýtt í því æ síðan. Ekki er því heldur að neita að afbrigð- ið hefur oft hlotið þung högg, en síðan jafnan tekist að rísa upp aftur úr öldudalnum. Fræg var t.d. 11. skák þeirra Spasskys og Fischers hér í Reykjavík 1972. Skákin tefldist þannig: Hvítt: Spassky Svart: Fischer Sikileyjarvörn 1. e4 - c5, 2. Rf3 - d6,3. d4 - cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — a6,6. Bg5 - e6,7. f4 - Db6!? 8. Dd2 - Dxb2,9. Rb3 - Da3,10. Bxf6 — gxf6,11. Be2 — h5,12. 04) - Rc6,13. Khl - Bd7, 14. Rbl!? (Skákskýrendur um allan heim hrósuðu þessum leik upp í hástert og töldu svartan hart- nær glataðan, enda höfðu þeir þá ekki á öðru að byggja en fram- haldi skákarinnar:) Db4? (Eins og kom í ljós nokkrum mánuðum síðar er langörugg- asta framhald svarts í stöðunni hér 14... Db2! Hvítur virðist þá ekki geta gert betur en að þráleika með 15. Rc3 — Da3, því Spassky að tilraunir til þess að vinna drottninguna falla um sjálft sig. T.d. 15. a3? - Hc8,16. Hf3 - e5! 17. Rc3 — Dd4 og svartur stendur til vinnings eða 15. a4 — f5 og staðan er mjög tvísýn. Það má reyndar ekki á milli sjá hvor leikurinn, 14. Rbl, eða 14... Db2! ofbjóða rökréttum þankagangi skákmanna meira. Vel staðsett- um riddara er leikið upp í borð og drottningunni síðan varpað aftur í gin ljónsins á b2). 15. De3 - d5? 16. exd5 - Re7, 17. c4 - RÍ5,18. Dd3 - h4,19. Bg4 - Rd6, 20. Rld2 - f5, 21. a3 - Db6, 22. c5 - Db5, 23. Dc3 - fxg4, 24. a4 - h3, 25. axb5 og Spassky vann auðveld- lega. Þessi skák á áreiðaniega eftir að verða kennslubókardæmi í því hvernig hægt er að slá frábæra skákmenn út af laginu með óvæntum og markvissum leikjum í byrjuninni. En nú nýlega var skák tefld austur í Sovétríkjunum sem olli því að kalt vatn tók enn á ný að renna milli skinns og hörunds á áhangendum Eitraða peðs af- brigðisins. Skákin var tefld árið 1977 af tveimur sterkum meist- urum þar eystra: Hvítt: Vitolins Svart: Gavrikov Sikileyjarvörn 1. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3. d4 - xcd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — a6. 6. Bg5 - e6, 7. Í4 - Db6, 8. Dd2 - Dxb2,9. Hbl - (Þetta er eldri og hefðbundn- ari leið en 9. Rb3). Da3,10. f5 — Rc6, 11. Rxc6 — (Hér er reyndar nákvæmara að leika 11. fxe6 fyrst, því að í 12. leik hefði svartur vel getað leikið Fischer 12... Bxe6, en það skiptir okkur engu máli). bxc6, 12. fxe6 — fxe6,13. e5 — dxe5, 14. Bxf6 — gxf6, 15. Re4 - Be7. (Eftir að þessi skák var tefld reyndi argentínski stórmeistar- inn Quinteros að leika hér 15... Dxa2. Refsinguna við þeim leik má reyndar sjá í síðasta skák- þætti í Morgunblaðinu í skák- inni Grúnfeld-Helmers, svæða- mótinu í Luzern). 16. Be2 - h5,17. Hb3 - Da4. 18. Rxf6+! (Hreint og beint ótrúlegur leikur og engin furða þótt hann hafi leynst fyrir mönnum í tvo áratugi. Staðreyndin virðist vera sú að peðið á f6 sé svo öflugur varnarmaður að gefa megi heil- an riddara án þess að vinna nokkurn tíma til þess að losna við það). Bxf6,19. c4! (Hvítur eyðir leik í að loka svörtu drottninguna inni, án þess þó að hafa nokkra von um að vinna hana. Svartur á hins vegar í miklum erfiðleikum með að bæta stöðu sína og hvítur hefur því efni á að eyða tíma). eftir MARGEIR PÉTURSSON Bh4+,20. g3 - Be7, 21. 04) - Ha7, 22. Hb8 - Hc7, 23. Dd3 - (í júgóslavneska skákritinu Informator stinga þeir Koifman og Lepeshkin hér upp á 23. Bd3 og telja þeir hvít þá hafa meira en nægilegt spil fyrir manrinn eftir t.d. 23... Hg8, 24. Bh'i — Hg7 og nú 25. Dh6 eða 25 Hdl. Síðarnefndi leikurinn leggur skemmtilega gildru fyrir svart. Ef 25. Hdl - Hxh7? þá 26. Hxc8+! — Hxc8, 27. Dd7+ — Kf7, 28. Hfl+ með vinnandi sókn). Bc5+. 24. Khl - Ke7, 25. Dg6 - Kd6, 26. Df6 - He8, 27. Bxh5 - (27. Hf5!? kom hér vel til greina). Hce7, 28. Hdl+ - Bd4, 29. Hxd4+ — exd4, 30. Dxd4+ — Kc7, 31. Db6+ - Kd7, 32. Dd4+ Jafntefli. Þessi skák vakti að vonum mikla athygli, jafnvel þó að Vitolins hafi ekki uppskorið réttlát laun erfiðis síns. Vorið 1978 var síðan tefld mjög mikil- væg skák fyrir afbrigðið á al- þjóðlega skákmótinu í Niksic í Júgóslavíu. Þar áttust við tveir af bezt lesnu stórmeisturum meðal ungu kynslóðarinnar. Fyrstu tuttugu leikirnir eru eins og í skákinni hér á undan. Hvítt: Timman Svart: Ribli 21. 04) - Bd7, (Þetta er greinilega endurbót Riblis á skákinni hér á undan og það þýðir að hann hefur fundið einhverja vænlega leið fyrir hvít eftir 21.. Ha7). 22. Hb7 - Hd8, (Eftir 22... 0-0-0?! 23. Hfbl - Bc5+, 24. Khl - Bd4, 25. c5! — opnast allar flóðgáttir). 23. Bd3 - Bc5+, 24. Khl - Hg8, 25. Be2! - Ke7, 26. Bxh5 - Hg7. 27. Dh6 - Dxc4, (Ef 27... Hdg8 þá 28. Df6+ - Kd6, 29. Hdl+ - Bd4, 30. Hxd4+ o.s.frv. eða 27. . . Hgg8, 28. Hf7 - Kd6, 29. Dh7 - Bc8, 30. Hfc7 - Hge8, 31. Hxc8!). 28. Dxg7+ - Kd6, 29. Df6 - Bd4. 30. Hfbl - Dd3, 31. H7b3 - Df5, 32. Dxd8 - Dxh5, 33. Db8+ - Kd5. 34. Dc7 - Dh7, 35. Hel - Df7, 36. Hd3 - Kc4, 37. Hd2 - Bc3, 38. Dxd7 - Df3+, 39. Kgl og svartur gafst upp. Nýlega var síðan tefld á al- þjóðlegu skákmóti í Frunze í Sovétríkjunum sem fram fór nú í júnímánuði skák mjög keimlík þeirri sem þeir Timman og Ribli tefldu. Fyrstu 23 leikirnir eru eins. Hvítt: Beljavsky Svart: Szekely 24. Kg2 - Hvort kóngurinn er á hl eins og í skákinni hér á undan eða á g2 er að mestu smekksatriði). Hg8, 25. De2! 25. Be2! kom reyndar einnig til greina. Með hinum gerða leik hótar hvítur bæði 26. Dxe5 og 26. Dxh5+) Bd4,26. Dxh5+ - Ke7, 27. Dh4+ - Kd6, 28. c5+! (Hvítur opnar hrókum sínum línur að svarta kóngnum). Kxc5, (Eftir 28... Kd5, 29. Be4+ - Kxc5, 30. De7+ - Kc4, 31. Hcl+ — Bc3, 32. Dd6! verður svartur fljótlega mát). 29. De7+ - Kd5, 30. Hxd7+ - Hxd7, 31. Dxd7+ - Kc5, 32. Hcl+ - Kb6, 33. Be4 - Bc3,34. Dd3 — Bd4, 35. Hxc6+ — Dxc6, 36. Bxc6 — Kxc6, 37. Dxa6+ og svartur gafst upp. Þeir sem tefla Eitraða peðs afbrigðið á svart verða greini- lega að leggja heilann í bleyti ef þeir ætla að halda áfram að ræna peðinu. DregiÓ í 3. flofel ^N/%. ° 2i í dag NÝTT HAPPDRÆTTISÁR 79-80 1 In^ V ^ V ^ MIÐI ER MÖGULEIKI ^ Dregiö í 3. flokki kl. 17.30 í dag. Meöal vinninga sumarbústaöur aö Hraunborgum ^ í Grímsnesi. Nokkrir lausir miöar eru enn fáanlegir í aöalumboöi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.