Morgunblaðið - 03.07.1979, Page 28

Morgunblaðið - 03.07.1979, Page 28
3 6 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979 Margrét Einardóttir var kjörin formaður landssamhandsins. Hún Inga Jóna Þórðardóttir viðskiptafræðingur. flytur hér þakkarávarp. Við borðið sitja Auður Auðunsson, sam var fundarstjóri, og Sigurlaug Bjarnadóttir, fráfarandi formaður. Ljósm. F.P. „Vekjum til virðingar og reisnar allt það jákvæðasta og bezta í sj álfstæðisstefnimni’ ’ Þing Landssambands sjálfstæðiskvenna var haldið á Akranesi sunnudaginn 27. maí s.l. Sigurlaug Bjarnadóttir formaður sambandsins setti þingið, bauð þingfulltrúa velkomna og lýsti ánægju sinni yfir að þinghaldið skyldi að þessu sinni vera í Vesturlandskjördæmi. í setningarræðu sinni rakti Sigurlaug stöðu og gang þjóðmála, einnig minntist hún 50 ára afmælis Sjálfstæðisflokksins, en viðfangsefni þingsins, auk hefðbundinna þingstarfa var helgað afmælinu. Sigurlaug lauk setningarræðu sinni með tilvitnun í orð fyrsta formanns Sjálfstæðisflokksins, Jóns Þorlákssonar: „Sá, sem vill leita eftir efnalegri velgengni fyrir sjálfan sig, verður að gera það með því fyrst og fremst að leitast við að fullnægja sem bezt þörfum annarra.“ Sjálfstæðiskvenna- félögin standa vel í stykkinu Þá var gengið til dagskrár og flutti formaður skýrslu stjórnar fyrir tímabilið milli landsþinga. Kom m.a. fram, að á tímabilinu voru haldnir 12 fundir í stjórn sambandsins, auk fjölmargra funda í starfsnefndum. Aðildar- félög sambandsins eru 17 að tölu. Félagatalan er tæplega þrjú þús- und, þar af liðlega 1100 í Hvöt, Reykjavík. Nokkuð var fjallað um stöðu kvenfélaga og hvort eðlilegt væri að sameina þau almennu félögun- um. Kom fram, að við umræður um það mál væri niðurstaðan sú, að kvenfélögin hafi sannað gildi sitt og staðið fyllilega í stykkinu og sum með miklum ágætum. Á tímabilinu apríl-maí á s.l. ári efndi Landssambandið í samvinnu við aðildarfélögin úti á landi til almennra stjórnmálafunda víðs vegar um landið. Voru þeir vel heppnaðir. Landssambandið og Hvöt efndu til ráðstefnu í nóv. s.l. um „Vinnu- markaðinn og fjölskylduna". Var ráðstefnan vel sótt, boðið var sérstaklega til hennar fulltrúum um 30 félagasamtaka launþega og vinnuveitenda og nokkru seinna send út bréf rúmlega hundrað einstakra fyrirtækja um allt land, þar sem kynnt var efni og niður- stöður ráðstefnunnar og jafn- framt send ítarleg gögn og upplýs- ingar um sveigjanlegan vinnutíma og hvernig hann verkar í fram- kvæmd, en niðurstaða ráðstefn- unnar var, að með meiri sveigjan- leika vinnutíma mætti mun betur samhæfa fjölskylduna að vinnu- markaðinum og vinnumarkaðinn að fjölskyldunni. Landssambandið í samvinnu við Hvöt hefir síðan reynt að fylgja máli þessu eftir, m.a. með útgáfu dreifibréfs. Áherzla var lögð á að koma bréfinu inn á sem flesta fjölmenna vinnustaði og þjónustu- stofnanir. Landssambandið, í samvinnu við Samband ungra sjálfstæðis- manna, gekkst fyrir nokkrum félagsmálanámskeiðum á tímabil- inu, gefið var út auglýsingablað „Harpa" þar sem reynt var að vanda til lesefnis. Stofnuð hafa verið kjördæmis- samtök sjálfstæðiskvenna á Vest- fjörðum, var það gert í Bolungar- vík 17. maí s.l. og hefur lands- sambandið fullan hug á að stofnuð verði samtök í sem flestum kjör- dæmum landsins. Gangskör, síða Landssambands- ins í Morgunblaðinu hefur birst nokkrum sinnum á kjörtímabil- inu. Umsjónarmaður síðunnar, Fríða Proppé, baðst undan áfram- haldandi umsjón síðunnar vegna anna. Voru • sjálfstæðiskonur hvattar til að nota þennan vett- vang til tjáningar og skoðana- skipta. Framkvæmdastjóri Landssam- bandsins og Hvatar, Anna Borg, lét af störfum í febr. á s.l. ári. Voru henni færðar sérstakar þakkir fyrir ómetanlegt starf í þágu sambandsins. Við starfi Önnu tók til skamms tíma Edda Bjarnadóttir og síðan Edda Jóns- dóttir, er gegnir starfinu nú. Er Sigurlaug hafði lokið flufn- ingi skýrslu stjórnar sagði hún: „Þegar ég nú læt af formennsku Landssambandsins eftir fjögurra ára tímabil sem formaður, sem er hámarkstími samkvæmt núgild- andi lögum sambandsins, þá er mér efst í huga þakklæti til hins fjölmenna hóps góðra sjálfstæð- iskvenna um land allt, sem ég hefi kynnst og starfað með að málefn- um sambandsins og Sjáífstæðis- flokksins. í stjórninni hef ég setið undanfarin 12 ár, svo að það er sannarlega tími til kominn að ég víki um set. Ég þakka traust ykkar og vinsemd, sem hefir verið mér í senn ómetanlegur styrkur og hvatning í starfi. Sérstakar þakkir færi ég samstarfskonum mínum í stjórninni fyrir traust og elskulegt samstarf. Þar hefir aldrei borið neinn skugga á. — Landssambandinu óska ég far- sældar í starfi um ókomna tíð. Verkefnin eru sem fyrr næg fram- undan fyrir nýja krafta að fram- gangi góðra mála, fyrir nýtt átak til að virkja hugsjónir okkar sem stjórnmálaflokks í þágu lands og þjóðar." Ávarp formanns Sjálfstæðisflokksins, Geirs Hallgrímssonar Þá var gert hádegisverðarhlé. Geir Hallgrímsson flutti þar stutt ávarp. Fjallaði hann nokkuð um ástand landsmála og hversu stétt- arstríð gætu höggvið nærri lýð- ræðisskipulaginu. Sagði hann sjálfstæðismenn vilja leita lausn- ar vandans með tilliti til almanna- hags. Sjálfstæðisflokksins væri að sameina manngildishugsjónina hagsmunarbaráttunni. í lok ávarpsins þakkaði hann sjálfstæð- iskonum þeirra framlag í starfi flokksins. Þingstörfum var framhaldið kl. 14. Gerði gjaldkeri sambandsins, Sigríður Pétursdóttir, grein fyrir reikningum og kom fram að fjár- hagur sambandsins var góður á kjörtímabilinu. I kjörnefnd voru kosnar þær Ragnhildur Helgadóttir, Reykjav., Hildur Einarsdóttir Bolungarvík og Jónína Júlíusdóttir Kópavogi. Þá voru fluttar skýrslur sam- bandsfélaganna. Björg Einars- dóttir flutti skýrslu f.h. Hvatar, Reykjavík, Guðrún Jónsdóttir f.h. Bárunnar Akranesi, Svava Gunn- laugsdóttir f.h. Borgarfjarðar, Kristín Sigurðardóttir f.h. Snæ- fellsnes- og Hnappadalssýslu, Sig- urrós Sigtryggsdóttir f.h. Dala- sýslu, Hildur Einarsdóttir f.h. Þuriðar Sundafyllis, Bolungarvík, Umsjón: Friða Propi Kjördœmissamtök stofn- uð í Vesturlandskjördœmi Á þinginu var formlega gengið frá stofnun Kjördæmissamtaka sjálfstæðiskvenna í Vesturlands- kjördæmi. Skv. ákvæðum laga er heimilt að stofnsetja kjördæmasamtök, er hafa nokkur réttindi, m.a. fulltrúa í kjördæmisráðum. Slík samtök hafa nú þegar verið stofnuð í Vestfjarðakjördæmi og er fyrirhugað að stofna þau víðar. Þingfulltrúar úr Vesturlandskjördæmi samþykktu samhljóða stofnunina og var þeim árnað heilla með lófaklappi. Sigurlaug Bjarnadóttir færði þeim. f. h. landssambandsins, bók að gjöf í tilefni af stofnuninni. Ólína Björnsdóttir f.h. Sauðár- króks og Skagafjarðar, Þórunn Sigurbjörnsdóttir f.h. Varnar, Ak- ureyri, Ingibjörg Johnsen f.h. Eyglóar Vestmannaeyjum, Arndís Benediktsdóttir f.h. Strandasýslu, Ágústa Skúladóttir f.h. Árnes- sýslu, Jónína Júlíusdóttir f.h. Eddu, Kópavogi, Ásthildur Magn- úsdóttir f.h. Vorboðans, Hafnar- firði og Sesselía Magnúsdóttir f.h. Sóknar, Njarðvík. Sjálfstæðisflokkur- inn 50 ára — stefnu- mið og hugsjónir: Að loknum flutningi skýrslna aðildarfélaganna voru flutt fram- söguerindi. Áslaug Friðriksdóttir skólastjóri fjallaði um manngild- ishugsjón Sjálfstæðisflokksins, Björg Einarsdóttir fulltrúi um Sjálfstæðisflokkinn — flokk allra stétta og Inga Jóna Þórðardóttir viðskiptafræðingur um æskuna og Sjálfstæðisflokkinn. Áslaug Friðriksdóttir skóla- stjóri sagði kjarnann í manngildis hugsjón Sjálfstæðisflokksins vera einstaklingsfrelsið, trúin á sér- hvern einstakan, manninn sjálfan og frelsi hans og samfara því væri einstaklingsfrelsið sérkenni sjálf- stæðisstefnunnar. „Norska skáldið Nordahl Grieg orti óð til frelsins, og eru þessar hendingar þaðan teknar: „Sú fullvissa er fædd í oss öllum að frelsið sé líf hvers manns, jafneinfalt og eðlisbundið sem andardráttur hans“. Sterkari rök verða vart fundin fyrir einstaklingsfrelsinu, und- irstöðunni undir manngildishug- sjón Sjálfstæðisflokksins, en að það sé líf hvers manns." Áslaug ræddi síðan nokkuð takmörk frelsisins, en þau tak- markast af sams konar frelsi annarra og muninum á sjálfsaga og ríkisvaldi. Síðan benti hún á hvernig þessi hugsjón kemur sem rauður þráður í gegnum allar ályktanir flokksins og athafnir, og rakti máli sínu til stuðnings, ályktun síðasta landsfundar flokksins um skólamál. Áslaug vitnaði til rita og ræðna nokkurra hugmyndafræðinga flokksins og til bókar John Stuart Mill um Frelsið 1859. Hún sagði í Iok ræðu sinnar: „Góðir þing- fulltrúar. Manngildishugsjón Sjálfstæðisflokksins, sem byggir á

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.